Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Langvin kemur í dag. Mannamót Félag aldraðra, Mos- fellsbæ. Skrifstofa fé- lagsins verður lokuð í sumar til 2. sept- ember. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Morgunganga er frá Hraunseli kl. 10. Rúta frá Firðinum kl. 9.50 Gerðuberg, félags- starf. Þriðjudaginn 12. ágúst opnað að af- loknu sumarleyfi, fjöl- breytt sumardagskrá framundan, m.a. ferða- lög, allir velkomnir. FEBK. Púttað á Lista- túni kl. 10.30 á laugar- dögum. Mætum öll og reynum með okkur. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyr- ir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. GA – Samtök spila- fíkla, fundir spilafíkla, Höfuðborgarsvæðið: Þriðjudagur kl 18.15 – Seltjarnarneskirkja, Valhúsahæð, Seltjarn- arnesi. Miðvikudagur kl. 18 – Digranesvegi 12, Kópavogi. Fimmtudagur kl. 20.30 – Síðumúla 3–5, Göngudeild SÁÁ, Reykjavík. Föstudag- ur kl. 20 – Víðistaða- kirkja, Hafnarfirði. Laugardagur kl. 10.30 – Kirkju Óháða safn- aðarins v/ Háteigsveg, Reykjavík. Austur- land: Fimmtudagur kl. 17 – Egilsstaðakirkju, Egilsstöðum. Neyðar- sími GA er opinn allan sólarhringinn. Hjálp fyrir spilafíkla. Neyð- arsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. OA-samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upplýsingar á www.oa.is og í síma 878 1178. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 genga að Katt- holti. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Skóverslun Axel Ó. Lárussonar, Vest- mannabraut 23, Vest- mannaeyjum, s. 481 1826, Mosfell sf., Þrúðvangi 6, Hellu, s. 487 5828, Sólveig Ólafsdóttir, Verslunin Grund, Flúðum, s. 486 6633, Sjúkrahús Suðurlands og Heilsu- gæslustöð, Árvegi, Selfossi, s. 482 1300, Verslunin Íris, Aust- urvegi 4, Selfossi, s. 482 1468, Blómabúðin hjá Jóhönnu, Una- bakka 4, 815 Þorláks- höfn, s. 483 3794. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Bókabúð Grindavíkur, Víkurbraut 62, Grindavík, s. 426 8787, Penninn – Bókabúð Keflavíkur, Sól- vallagötu 2, Keflavík, s. 421 1102, Íslands- póstur hf., Hafnargötu 89, Keflavík, s. 421 5000, Íslands- póstur hf., c/o Kristj- ana Vilhjálmsdóttir, Garðbraut 69, Garður, s. 422 7000, Dagmar Árnadóttir, Skiphóli, Skagabraut 64, Garð- ur, s. 422 7059. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást í Reykjavík, Hafnarfirði og á Sel- tjarnarnesi á Skrif- stofu LHS, Síðumúla 6, Reykjavík, s. 552 5744, fax 562 5744, Hjá Hirti, Bónushús- inu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561 4256, Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 66, Hafnarfirði, s. 565 1630. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Penninn, Bókabúð Andrésar, Kirkjubraut 54, Akranesi, s. 431 1855, Dalbrún ehf., Brákarbraut 3, Borgarnesi, s. 437 1421, Hrannar- búðin, Hrannarstíg 5, Grundarfirði, s. 438 6725, Verslunin Heimahornið, Borg- arbraut 1, Stykk- ishólmur, s. 438 1110. Hranfkelssjóður (stofnaður 1931). Minningarkort af- greidd í símum 551 4156 og 864 0427. Í dag er laugardagur 9. ágúst, 221. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti. Því hefur Guð, þinn Guð, smurt þig gleðinnar ol- íu fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.)     Hjörleifur Pálsson,verkfræðingur, segir vinstrimenn gjarnan grípa til orða eins og ný- frjálshyggja, öfgafrjáls- hyggja eða bara öfganý- frjálshyggja þegar þeir vilja móðga menn. „Sú var tíðin að þeir létu sér nægja að nota orðið frjálshyggja um frjáls- hyggjumenn, enda þótti það alveg næg móðgun í þeirra augum. Nú þykir það hins vegar ekki nægileg móðgun, enda hefur orðið ekki nógu neikvæða merkingu í hugum fólks. Því er grip- ið til nýyrða sem hljóma mjög ógnvekjandi, enda ekkert flott við það að vera öfga eða ný, svona eins og öfgahægrimenn og nýnasistar,“ segir hann í pistli á haf- steinn.is.     Hann rifjar upp þá tíðþegar vinstri menn kölluðu sig stoltir komm- únista, lenínista, sósíal- ista og ýmsum fleiri skemmtilegum nöfnum. „Nú þykir það hins vegar ekki nógu flott, enda hafa orðin ekki nægilega já- kvæða merkingu í hugum fólks. Því er notast við nýrri og nútímalegri hug- tök, sem þykja hljómfeg- urri og auglýsingavænni. Það er í raun mjög skondið að hlusta á vinstrimenn nota sín ný- yrði yfir frjálshyggju- menn og sjálfa sig. Það sýnir betur en margt annað hversu erfitt það reynist þeim að rökræða málin, og hversu vel þeir átta sig á því hvað sósíal- isminn fór halloka fyrir frjálshyggjunni á síðustu öld.     Þrátt fyrir alla nýyrða-smíðina hafa grund- vallarhugsjónirnarnar ekki breyst. Margur sósíalistinn hefur þó flúið nokkur skref til hægri, á meðan frjálshyggjumenn hafa getað staðið nokkuð ró- legir án þess að tvístíga. Það sem hefur fyrst og fremst breyst í gegn um tíðina er að frjálshyggjan hefur æ ofan í æ sannað ágæti sitt umfram sósíal- ismann. Frjálshyggju- menn hafa því aldrei talið sig þurfa að skammast sín neitt fyrir að kalla sig réttu nafni. Það sama verður greinilega ekki sagt um sósíalistana.     Það má vel vera að eftir50 ár, þegar sósíal- istar kynna stoltir þrett- ándu leiðina skreytta ein- hverjum nýjum tískuorðum, þá muni þeir hrópa öfganýfornaldar- afturhaldsfrjálshyggja yfir hausamótunum á frjálshyggjumönnum. En það mun ekki breyta því að frjálshyggjumenn þess tíma munu áfram styðjast við sömu hugsjónir og frjálshyggjumenn síðustu aldar gerðu, og þeir sem voru uppi enn fyrr. Þær grundvallarhugsjónir sem frjálshyggjumenn hafa alltaf byggt á verða jafn sígildar þá og þær eru í dag,“ segir Hjörleif- ur Pálsson. STAKSTEINAR Öfganýfornaldaraft- urhaldsfrjálshyggja Víkverji skrifar... VERSLUNARMANNAHELGINvar um síðustu helgi. Og að vanda hélt Víkverji sig innan borg- armarka, fór ekki einu sinni vestur yfir læk. Þetta er siður sem hann hef- ur haldið allt síðan hann fór til Eyja ’93 (sem var að vísu bráðskemmtileg- asta hátíð). Engu að síður finnst hon- um hvergi betra að vera en í borginni einmitt þessa helgi. Hann er samt sízt einhver náföl borgarrotta sem sundlar þegar fjöll og firnindi berast í tal. Þvert á móti endurfæddist hann til náttúrubarns fyrir réttum sex ár- um og hefur stikað til og frá um land- ið allar götur og vegi síðan. En þessi tiltekna helgi – verslunarmannahelg- in – vekur alltaf hálfgerðan ugg í honum. Það má næstum segja að honum ói við henni. Að sama skapi líður lymskulegur ánægjustraumur um búk og limi þegar helgin nálgast. Ástæða þessa er að um verslunar- mannahelgina dettur allt í dúnalogn á höfuðborgarsvæðinu og vindar ró- legheita og sátta blása yfir. Svo margir eru þeir nefnilega sem fara á faraldsfót þessa löngu helgi að bókin „Palli var einn í heiminum“ öðlast sjálfstætt líf á strætum borgarinnar. Það er bókstaflega hægt að anda djúpt að sér borgarloftinu og finna það í samsetningu þess hversu mjög stress-jónunum hefur fækkað. Hvíld- in góða dregst því yfir mann hvort sem manni líkar betur eða verr. x x x ÞESS utan þolir Víkverji ekkitjöld. Hann hryllir satt að segja við þeim. Allt síðan hann vaknaði (í öllum fötunum að sjálfsögðu) með andlitið í kókómjólkurpolli, klesst upp í hliðinni á loftlausu tjaldi úti á Hróarskeldu, umluktur táfýlu og öðrum miður geðslegum mannaþef, hefur hann forðast þau eins og heitan eldinn. Og tjöld fara saman með verslunarmannahelginni eins og egg og beikon. Því meiri ástæða er fyrir Víkverja til að labba um auð stræti borgarinnar – sem breyttist í þorp þessa helgi – og snúa svo að kvöldi upp í mjúkt fletið. Ömurlegar sýnir blasa þó við í borginni þrátt fyrir þessa hvíldar- og helgistund. Það er að verða vitni að verslunarfólki sem er að vinna um verslunarmannahelgina. Óskiljan- legt. Líkt og að þurfa að kaupa allar afmælisgjafirnar sínar sjálfur. Rétt- ara væri að almannavarnaflautur minntu fólk á að hamstra rækilega fyrir helgina á fimmtudegi svo að við gætum nú tekið okkur frí öll saman. x x x ÍDAG fer svo fram ganga sam- ogtvíkynheigðra, hápunktur Hinseg- in daga sem hófust í gær. Víkverji hefur gengið tvisvar áður og hyggst endurtaka leikinn í dag. Gangan er að sjálfsögðu liður í að reyna að brjóta niður hina forheimskandi og mannskemmandi fordóma sem menn hafa í garð annarra manna og því er von Víkverja að sem flestir fjölmenni í téða göngu í dag. Morgunblaðið/Sverrir Frá Hinsegin dögum í hitteðfyrra. Ótímabær dauðdagi ÁRNÝ Jóhannsdóttir hafði samband við Velvakanda og vildi koma því á framfæri að fólk sem ekki vildi eiga kett- linga ætti að láta gelda læð- ur sínar. Mikið er um það að kettlingar fáist gefins og ekki er víst að nægur fjöldi heimila sé til fyrir þá. Í Vel- vakanda birtist fyrir skömmu auglýsing þar sem fólk var beðið um að forða kettlingum frá ótímabær- um dauðdaga með því að taka þá að sér. Eigandi kettlinganna hefði betur látið gelda læðu sína og þannig sjálfur forðað kett- lingunum frá ótímabærum dauðdaga. Þakklæti til starfsfólks Kerlingarfjallaskála og annarra ÉG VARÐ fyrir þeirri reynslu um verslunar- mannahelgina að veikjast í Kerlingarfjöllum þar sem ég var bílstjóri með 15 manna franskan hóp frá Ferðakompaníinu. Ég vil hér með koma fram þakk- læti til allra þeirra sem að- stoðuðu mig á staðnum, þ.e.a.s læknis sem þar var staddur, Jóns Tryggva sem ráðlagði að mér væri komið á spítala sem fyrst. Skála- verðir og aðrir voru með eindæmum liprir og al- mennilegir og allir hjálpuð- ust að sem einn við að gera þetta kleift. Einn eigandi skálans, Páll Gíslason, flýtti ferð sinni í bæinn til að keyra mig og tel ég mig mjög heppinn að hafa feng- ið svo góðan bílstjóra sem hann greinilega er. Þórarinn Grímsson (Doddi Gríms) Tapað/fundið Nokia-sími tapaðist NÝR NOKIA 6310-sími tapaðist laugardaginn 2. ágúst sl. á leiðinni Brúna- land – Grensásvegur – Breiðagerði. Skilvís finn- andi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 660 2583. GSM-sími tapaðist LJÓSGRÁR Motorola Du- alband-sími tapaðist í júlí. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa sam- band í síma 567 2827. Fund- arlaun í boði. Gleraugu gleymdust við Lakagíga BARNAGLERAUGU í rauðleitri málmumgjörð týndust við Lakagíga mið- vikudaginn 6. ágúst sl. Þetta var nálægt næsta merkta gíg við veginn. Skil- vís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Helenu í síma 866 5447 eða 690 1108. Ljósblár barnaskór fannst VINSTRI skór af barni í stærð 26 fannst við Höfða- bakkabrekku í vegkanti. Þetta er brekkan sem ligg- ur uppí Efra-Breiðholt. Um er að ræða ljósbláan leð- urskó, með matta áferð, mjög vandaðan af Primigi- tegund og er hann með ljós- an sóla. Eigandi getur hringt í síma 663 1220 eða 557 3084 og nálgast þannig skóinn, enda sá hægri gagnslaus án hans. Dýrahald Kettlingar fást gefins ÞRÍR kettlingar fást gef- ins. Frekari upplýsingar í síma 555 2447. Skógarlæður í sárri neyð TVÆR gullfallegar skógar- læður í sárri neyð fást gef- ins. Um er að ræða útikisur en þær þurfa mikla nær- veru. Ef þú, lesandi góður, hefur góða aðstöðu og getur hugsað þér að taka þær að þér hringdu þá í síma 898 8926. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason Þessi stúlka skemmti sér konunglega í sandinum í Nauthólsvíkinni um verslunarmannahelgina síðustu. LÁRÉTT 1 ávinnum okkur, 4 góðs hlutar, 7 strembin, 8 greinin, 9 máttur, 11 kona, 13 baun, 14 greppatrýni, 15 haug, 17 vítt, 20 reykja, 22 um garð geng- in, 23 hrósið, 24 hvílan, 25 ástunda. LÓÐRÉTT 1 dáin, 2 lúkum, 3 raun, 4 auðmótuð, 5 tekur, 6 sól, 10 gaffals, 12 metingur, 13 málmur, 15 þrúgar niður, 16 ófrægjum, 18 ósætti, 19 skjóða, 20 van- þóknun, 21 sérhvað. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hungraður, 8 lubbi, 9 rebba, 10 gái, 11 ryðja, 13 tærir, 15 stygg, 18 saums, 21 rót, 22 ruggi, 23 aldin, 24 handsamar. Lóðrétt: 2 umboð, 3 geiga, 4 afrit, 5 umber, 6 slör, 7 maur, 12 jag, 14 æða, 15 særð, 16 yggla, 17 grind, 18 staka, 19 undra, 20 senn. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.