Morgunblaðið - 09.08.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 45
ÞRÍR landsliðsmenn í júdó taka
þátt í mjög öflugu alþjóðlegu
júdómóti í Braunschweig Þýska-
landi í dag. Það eru þau Vern-
harð Þorleifsson, Bjarni Skúlason
og Gígja Guðbrandsdóttir. Að
sögn Bjarna nýta margar þjóðir
mótið í Þýskalandi sem undirbún-
ing fyrir heimsmeistaramótið sem
fer fram í Osaka í Japan í sept-
ember.
Bjarni Friðriksson landsliðs-
þjálfari stjórnar júdómönnunum á
mótinu og þess má geta að 472
keppendur frá 29 þjóðlöndum eru
skráðir til leiks.
Júdómenn
á ferð í
ÞýskalandiALLAR vangaveltur um aðMSK Zilina, meistaralið Slóv-
akíu, myndi leika heimaleik
sinn gegn Chelsea í Brat-
islava, en ekki í Zilina, sem
er um 140 km norðaustur af
Bratislava, hafa verið blásn-
ar út af borðinu í Slóvakíu.
Forráðamenn liðsins, sem er
frá bæ rétt við landamæri
Póllands, eru ákveðnir í að
taka á móti stjörnuliði
Chelsea heima á miðvikudag-
inn kemur.
Karol Belanik, fram-
kvæmdastjóri liðsins, sagði
að þó að vitað væri að miklu
meiri peningar kæmu í kass-
ann með því að mæta
Chelsea á stærri velli, hugs-
uðu menn frekar um árangur
en peninga. Það verður því
leikið á Pod Dubnom-
vellinum, sem tekur aðeins
6.311 áhorfendur.
„Allir stuðningsmenn okk-
ar bíða spenntir eftir leikn-
um gegn Chelsea. Fram und-
an er söguleg stund fyrir
leikmenn Zilina og fyrir allt
fólkið hér í bænum. Við vit-
um að stuðningsmenn okkar
vilja sjá liðin eigast við á
heimavelli okkar. Þeir fá
það,“ sagði Belanik í viðtali á
heimasíðu liðsins í Slóvakíu,
þar sem viðureignin vekur
mikla athygli.
Eiður Smári og samherjar eiga
erfitt ferðalag framundan.
Aðeins 6.311 sjá
Chelsea leika í Zilina
TONY Pulis, knattspyrnustjóri Stoke,
fagnaði tveimur nýjum miðvallarleik-
mönnum sem mættu til Britannia í gær og
hefur Stoke fengið sjö nýja leikmenn til liðs
við sig í sumar. Hér er um að ræða Darel
Russell og Keith Andrews, sem eru báðir
22 ára og fyrrverandi unglingalandsliðs-
menn Englands.
Stoke borgaði Norwich 125 þús. pund
fyrir Russell, sem skrifaði undir þriggja
ára samning en Írinn Andrews kemur í láni
frá Wolves og verður í þrjá mánuði hjá
Stoke í fyrstu.
Báðir eru leikmennirnir tilbúnir að leika
með Stoke gegn Derby í dag – á upphafs-
degi 1. deildarkeppninnar 2003–2004. „Ég
er mjög ánægður með að þessir tveir ungu
leikmenn skuli vera komnir til okkar. Þeir
styrkja hóp okkar mikið,“ sagði Pulis.
Tveir nýir
til Stoke
FÓLK
ARSENAL hefur lánað Fulham
hinn unga þýska varnarmann Moritz
Volz fram að áramótum. Volz, sem
var fyrirliði þýska unglingalandsliðs-
ins, er 20 ára og leikur sem hægri
bakvörður. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Volz er lánaður – hann lék
með Wimbledon tíu leiki sl. keppn-
istímabil. Hann hefur aðeins leikið
einn leik fyrir Arsenal.
DANSKI markvörðurinn Thomas
Sörensen er kominn til Aston Villa
frá Sunderland. Kaupverðið var 2,25
millj. punda og skrifaði Sörensen
undir þriggja ára samning.
ALFREÐ Gíslason stjórnaði liði
sínu Magdeburg til sigurs í æfinga-
leik gegn sænska liðinu Sävehof,
37:28. Stefan Kretzschmar skoraði
flest mörk, eða átta, og Pólverjinn
Grzegorz Tkaczyk, sem er nýliði,
skoraði sjö mörk. Arftaki Ólafs Stef-
ánssonar – Robert-Ioan Licu skor-
aði þrjú mörk, eins og Sigfús Sig-
urðsson.
DAVID Beckham lék vel og lagði
upp mörk fyrir Ronaldo og Raul
þegar Real Madrid lagði úrvalslið
frá Hong Kong og Kína í Hong Kong
í gær, 4:2. Zinedine Zidane skoraði
fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu,
en síðan skoraði Ronaldo tvö og Raul
eitt. Spánarmeistararnir eiga nú eft-
ir að leika einn leik í Taílandi áður
en þeir halda heim.
PATRICK Vieira, fyrirliði Arsen-
al, verður í byrjunarliðinu sem mæt-
ir Manchester United í leik um sam-
félagsskjöldinn í Cardiff á morgun.
Vieira hefur lítið leikið með Arsenal
síðan hann meiddist í deildarleik
gegn United í apríl. „Vieira er tilbú-
inn,“ sagði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal.
WENGER reiknar með að aðeins
einn þeirra Thierry Henry, Sylvain
Wiltord og Robert Pires leiki, þann-
ig að líklegt er að Dennis Bergkamp,
Kanu, Francis Jeffers eða Jeremy
Aliadiere verði í fremstu línu. Mart-
in Keown er meiddur og er líklegt að
Kolo Toure leiki við hlið Sol Camp-
bell á miðjunni í vörninni.
LEIKMENN Manchester United
eru nýkomnir heim úr þreytandi ferð
um Bandaríkin og Portúgal. Mikael
Silvestre mun líklega leika sem mið-
vörður með Rio Ferdinand, þar sem
Wes Brown er meiddur. John O’S-
hea fer þá að öllum líkindum í stöðu
vinstri bakvarðar.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United, mun láta fyrirliðann
Roy Keane ráða ferðinni á miðjunni
og þá fær nýliðinn Eric Djemba
Djemba tækifæri til að sýna sig.
Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskær
verður í hlutverki Davids Beckham
á miðjunni.
HOLLENSKI landsliðsmaðurinn
og markahrókurinn Ruud van
Nistelrooy mun líklega ekki byrja
leikinn svo að það er tækifæri fyrir
Diego Forland eða David Bellion til
að sýna listir sínar.
LANDSLIÐSHÓPUR Íslands í
alpagreinum á skíðum 2003–2004
hefur verið valinn og verður hóp-
urinn við æfingar í Noregi og
Svíþjóð í vetur. Áætlaður kostn-
aður við æfingar landsliðsins er
um níu milljónir króna.
Dagný Linda Kristjánsdóttir,
Akureyri, Emma Furuvik, Ár-
manni, Guðrún Jóna Arinbjarn-
ardóttir, Víkingi, Arna Arnars-
dóttir, Akureyri, Hrefna
Dagbjörnsdóttir, Akureyri, og
Eva Dögg Ólafsdóttir, Akureyri,
skipa kvennaliðið en karlaliðið er
skipað Björgvini Björgvinssyni,
Dalvík, Kristjáni Una Óskarssyni,
Dalvík, Sindra Má Pálssyni,
Breiðabliki, og Sveini Sigurðs-
syni, Ármanni.
Landsliðshópurinn
Jamie Dunlop hófst strax handaí gær og hitti íslenska skíða-
landsliðið í alpagreinum sem byrj-
aði í þolæfingum í
Reykjavík í gær.
Landsliðið mun
hefja skíðaæfingar í
september en það
er ekki vitað hvar það verður, þar
sem aðstæður á jöklum í Evrópu
eru ekki góðar vegna hitabylgj-
unnar sem ríkir í álfunni. Í vetur
heldur íslenska landsliðið til Lille-
hammer í Noregi og þar mun liðið
æfa við góðar aðstæður. Íslenska
alpagreinanefndin hefur valið
landsliðið og það er skipað 12
manns.
Í Lillehammer munu landsliðs-
mennirnir Sindri Pálsson og
Björgvin Björvinsson búa alfarið
og vera við æfingar. Margir úr
landsliðinu eru í skólum í Noregi
og því hentar Lillehammer mjög
vel fyrir íslenska landsliðsfólkið.
„Margir ungir og
efnilegir skíðamenn“
Jamie Dunlop er mjög ánægður
með að vera kominn til starfa hjá
Skíðasambandi Íslands og telur að
framtíðin sé björt hjá íslensku
skíðafólki. „Ég er mjög ánægður
að vera orðinn landsliðsþjálfari Ís-
lands og ég hlakka til að byrja að
starfa með landsliðinu. Sú vinna
hefst strax í dag þegar þolæfing-
arnar hefjast. Það eru margir ung-
ir og efnilegir íslenskir skíðamenn
og á þessum þremur árum held ég
að við getum gert margt gott.
Markmið mitt er að gera íslenska
landsliðið sterkt í alpagreinum en
ég þekki allnokkra úr íslenska
landsliðinu sem eru góðir afreks-
menn,“ sagði Jamie Dunlop í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Jamie mun gera góða hluti
með landsliðið
Guðmundur Jakobsson, formað-
ur alpagreinanefndar Íslands, er
ánægður með að hafa fengið Jamie
til starfa og telur hann vera hval-
reka fyrir landsliðið. „Jamie hefur
búið sig vel undir að taka við ís-
lenska landsliðinu og hann hefur
mjög góð sambönd í Evrópu sem
skiptir miklu máli. Skíðasamband-
ið var að leita að þjálfara sem gæti
tekið að sér þetta verkefni næstu
þrjú árin sem felur í sér að stefna
á góðan árangur á Ólympíuleik-
unum í Tórínó árið 2006.
Skíðasambandið hefur skapað
góða umgjörð fyrir landsliðið með
því að koma landsliðinu fyrir í
Lillehammer en þar eru allar að-
stæður mjög góðar til æfinga. Fyr-
ir áramót mun landsliðið fara til
Austurríkis til að æfa og eftir ára-
mót mun það fara í æfinga- og
keppnisferðir. Það eru engin stór-
mót í vetur og því verður hann
mest notaður til mikilla æfinga.
Við erum með sama undirbúning
og stóru skíðaþjóðirnar nema
þetta er minna í sniðum hjá okkur
vegna þess að við erum fámenn
þjóð,“ sagði Guðmundur í viðtali
við Morgunblaðið.
Ég ætla að ná
góðum árangri
Sindri Pálsson, landsliðsmaður í
alpagreinum, er mjög spenntur
fyrir að búa í Lillehammer og tel-
ur að íslenska landsliðið eigi að
geta náð góðum árangri á næstu
árum. „Næsti vetur verður mjög
spennandi og það verður gaman að
taka þátt í verkefnum landsliðsins.
Í október mun ég fara til Austur-
ríkis í þrjár vikur í æfingaferð og
stuttu eftir það held ég til Lille-
hammer þar sem stífar æfingar
munu halda áfram.
Mér líst mjög vel á nýja þjálf-
arann en þetta er í fyrsta sinn sem
Skíðasambandið ræður sérþjálfara
fyrir landsliðið í alpagreinum og
því eru spennandi tímar framund-
an. Ég ætla að ná góðum árangri á
næstu tímabilum og með þessa
umgjörð sem Skíðasambandið er
að bjóða uppá tel ég að ég muni
geta staðið mig vel.“
Aðspurður um kostnaðinn við að
búa og æfa í Lillehammer sagði
Sindri að vissulega væri hann
mjög mikill. „Þetta er fjárhagslega
mjög dýrt fyrir mig því ég þarf að
langmestu leyti að standa sjálfur
undir kostnaðinum. Ég vona að
styrktaraðilar muni veita mér að-
stoð og nú fer ég að vinna í því að
reyna að afla mér styrkja hjá fyr-
irtækjum á Íslandi,“ sagði Sindri.
Skíðasambandið borgar þjálfara-
kostnaðinn en landsliðsmennirnir
þurfa sjálfir að greiða annan
kostnað að langmestu leyti.
Stefnan sett á góðan árangur á vetrarólympíuleikunum í Tórínó á Ítalíu 2006
Landsliðið verður við
æfingar í Lillehammer
ÞRIGGJA ára samningur Skíða-
sambands Íslands við Jamie
Dunlop, sem er nýráðinn lands-
liðsþjálfari Íslands í alpagrein-
um, var undirritaður í gær.
Jamie er ástralskur og hann var
aðalþjálfari ástralska landsliðs-
ins í eitt ár. Hann hefur mikla
reynslu sem þjálfari en hann
hefur starfað í Evrópu síðustu
tvo áratugi. Á síðasta tímabili
var hann aðalþjálfari hollenska
landsliðsins en á árunum 2000–
2002 þjálfaði hann hollenska
kvennalandsliðið. Jamie og
Skíðasambandið hafa sett
stefnuna hátt og ætla að ná
góðum árangri á Ólympíu-
leikunum í Tórínó á Ítalíu árið
2006.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jamie Dunlop, landsliðsþjálfari í alpagreinum á skíðum.
Eftir
Atla
Sævarsson