Morgunblaðið - 14.08.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞOTURNAR KYRRAR Í BILI
Davíð Oddssyni forsætisráðherra
var tjáð af þjóðaröryggisráðgjafa
George W. Bush Bandaríkjaforseta í
gær að engin fyrirmæli væru lengur
í gildi um að F-15-þotur varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli skyldu kall-
aðar burt. Davíð segir að þetta sé af-
ar þýðingarmikið og viðræður um
varnarmál séu nú komnar í nýjan og
farsælan farveg.
Tafir í þyrluútköllum
Mikil umferð um Flugvallarveg til
ylstrandarinnar í Nauthólsvík hefur
valdið töluverðum töfum fyrir þyrlu-
sveit Landhelgisgæslunnar á leið í
útköll, ekki síst á góðviðrisdögum.
Þeirri beiðni þyrluáhafnarinnar hef-
ur ekki verið sinnt í nokkur ár að
notast við blá forgangsljós í útköll-
um frá heimili að flugskýli Gæsl-
unnar.
Vopnasmyglari ákærður
Þrír menn voru ákærðir í gær fyr-
ir að hafa reynt að smygla rússn-
eskum sprengiflaugum til Banda-
ríkjanna í þeim tilgangi að selja þær
til hryðjuverkamanna. Einn þeirra
er breskur ríkisborgari af indversk-
um uppruna en upp komst um hann
er hann gekk í gildru FBI-manna
sem þóttust vera íslamskir öfga-
menn sem vildu kaupa vopn til að
skjóta niður farþegaþotu.
Átök milli sjíta og hersins
Átök urðu á milli bandaríska hers-
ins og hóps sjía-múslima í Bagdad í
gær. Þetta er í fyrsta sinn sem
skerst í odda á milli þeirra en írask-
ur drengur lést í átökunum og fjórir
aðrir særðust.
Viðbúnaður í miðbænum
Mikill viðbúnaður er til staðar af
hálfu lögreglu vegna menningar-
nætur sem verður nk. laugardag. Í
fyrsta sinn verður notast við nýja al-
mannavarnastjórnstöð í Skógarhlíð
þar sem aðgerðir lögreglu og ann-
arra sem að öryggismálum menn-
ingarnæturinnar koma verða sam-
ræmdar. Hátíðin er sú fjölmennasta
sem haldin er hér á landi.
14. ágúst 2003
SÓKNARDÖGUM fækkar úr 21 í
19 á næsta fiskveiðiári, samkvæmt
reglugerð um veiðar sóknardagabáta
sem sjávarútvegsráðherra kynnti á
dögunum. Örn Pálsson, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
segist gera sér vonir um að hugmynd-
ir um lágmarksfjölda sóknardaga
verði samþykktar á Alþingi.
Bátum sem reru á sóknardögum
eftir 1. september árið 2002 var út-
hlutað 21 sóknardegi. Ekkert þak er á
afla hvers báts á ári en dögum getur
fækkað eða fjölgað eftir heildarveiði
hópsins á hverju ári. Fjöldi sóknar-
daga fyrir hvert fiskveiðiár er fundinn
út með því að reikna meðalþorskafla á
hvern sóknardag fiskveiðiársins á
undan og deila honum í heildarþorsk-
afla bátanna. Afli sóknardagabáta
hefur farið verulega fram úr þeim við-
miðunarafla sem þeim er úthlutaður á
undanförnum árum og hefur dögun-
um því fækkað á milli fiskveiðiára.
Sóknardögum getur þó ekki fækkað
um meira en 25% milli fiskveiðiára.
Þannig voru dagarnir 23 á fiskveiði-
árinu 2000/2001, 21 fiskveiðiárinu sem
nú er að ljúka og verða 19 á næsta
fiskveiðiári, þar sem heildarafli
bátanna er orðin umtalsvert meiri en
viðmiðunaraflinn sem var 1.800 tonn.
Örn segir að viðræður við sjávarút-
vegsráðherra um að sett verði gólf í
fjölda sóknardaga hafi ekki borið ár-
angur síðasta vetur. „Við bentum á að
aflaaukning sóknardagabáta undan-
farinna ára væri í beinum tengslum
við aukið vélarafl bátanna. Við lögð-
um það til að reynt yrði að koma í veg
fyrir aukna sókn innan kerfisins,
þannig að ef settar eru aflmeiri vélar í
bátana verði menn að gjalda fyrir það
með sóknardögum. Í staðinn yrði sett
gólf í dagafjöldann.“
Örn segir að LS hafi farið fram á að
sóknardagar hvers fiskveiðiárs verði
aldrei færri en 23. Hann segir þessar
hugmyndir hafa fengið jákvæðar und-
irtektir meðal þingmanna og gerir sér
vonir um að málið komi til kasta Al-
þingis í vetur.
„Heimsmet í niðurskurði“
Á heimasíðu Landssambands smá-
bátaeigenda er fjallað um fækkun
sóknardaga. Þar segir m.a.: „Eftir því
sem næst verður komist eru 19 leyfi-
legir sóknardagar standandi heims-
met hvað varðar niðurskurð í þessum
efnum. Varla þarf að geta þess að
þetta blasir að auki við á sama tíma og
verið er að auka aflaheimildir svo um
munar í nokkrum tegundum. Forysta
stórútgerðarinnar hefur í langan tíma
látið sem óð væri vegna afla þessara
báta og jafnvel gengið svo langt að
halda því fram að „umframafli“ þeirra
tefði fyrir uppbyggingu þorskstofns-
ins. Ítrekað hefur sú ótrúlega fullyrð-
ing heyrst úr þeim herbúðum að þess-
ir bátar væru í „frjálsri sókn.“
Staðreyndin er hins vegar sú að þess-
ir bátar lifa við heimsmet í ófrelsi og
með ólíkindum að á sama tíma og
þessi staðreynd blasir við, guma
stjórnvöld af því úti um allan heim
hversu frábært fiskveiðistjórnunar-
kerfið íslenska er.“
Sett verði gólf í
fjölda sóknardaga
Miklir möguleikar á samstarfi Íslands
og Marokkó, rætt við sjávarútvegs-
ráðherra landsins og fulltrúa Brims
Landiðogmiðin
Sérblað um sjávarútveg
úrverinu
FISKVERÐ í Frakklandi hefur
ekki lækkað í sumar og svo virð-
ist sem hitabylgjan í Evrópu hafi
ekki haft áhrif á fiskneyslu, að
mati Elísabetar Óskarsdóttur,
forstöðumanns umboðssölufyrir-
tækisins Latitude 66 í Boulogne
sur Mer í Frakklandi.
Í Verinu fyrir skömmu var haft
eftir Jean-Pierre Plormel, for-
stjóra samtaka fiskframleiðenda í
Breton, From-Bretagne, að
ástandið á markaðnum væri
hrikalegt og verð hefði hríðlækk-
að. Elísabet segist ekki kannast
við slíkt ástand, að minnsta kosti
ekki í Boulogne sur Mer en þang-
að komi langstærsti hluti þess
sjávarfangs sem fluttur er til
Frakklands.
„Hér í Boulogne sur Mer, mið-
stöð fiskinnflutnings og fiskiðn-
aðar í Frakklandi, er hefðbundið
sumarástand á fiskmörkuðum,
árstíðabundin niðursveifla í
magni vegur upp á móti minni
neyslu yfir sumarið.“
Elísabet segir að hitabylgjan í
Evrópu að undanförnu hafi ekki
haft merkjanleg áhrif á fiskverð
eða framboð af fiski. Verð á
karfa hafi styrkst, sérstaklega á
karfa frá Íslandi sem sé venju-
lega mjög góður. „Hér er mjög
mikil eftirspurn eftir karfa, skila-
verð á smákarfa er 1,10 til 1,40
evrur og 1,40 til 1,70 evrur á
millistórum og stórum karfa.
Grálúðan hefur selst á vel yfir 3
evrur og smáþorskur á 2,30 til
3,30 evrur.
Þá hefur verð á blálöngu og
löngu verið að styrkjast, enda
hefur dregið úr veiðum hjá bæði
Frökkum og Færeyingum. Hér
hefur hins vegar verið mikið
framboð af ufsa, verð fremur lágt
og verðhækkun varla fyrir-
sjáanleg fyrr en í vetrarbyrjun,“
segir Elísabet.
Hefðbundið ástand í Frakklandi
HEILDARAFLI íslenskra fiskiskipa
í júlí sl. var 230.414 tonn en var
251.325 tonn í júlí 2002. Afli í mán-
uðinum minnkaði því um tæplega
21.000 tonn milli ára, að því er fram
kemur í tölum Fiskistofu.
Heildarafli íslenskra skipa á tíma-
bilinu janúar–júlí 2003 var 1.358.718
tonn en var 1.660.707 tonn á sama tíma
2002, sem þýðir að aflinn er 302 þús-
und tonnum minni í ár. Munar þar mest
um slakari loðnuafla.
Botnfiskaflinn jókst hins vegar lítil-
lega í nýliðnum júlí, var 35.644 tonn en
var 34.044 tonn í júlí 2002.
Þorskaflinn í júlí 2003 var aðeins
11.373 tonn og aflinn í fyrra var einnig
slakur í júlí eða 12.481 tonn. Afli
flestra annarra botnfisktegunda var
meiri nú en í júlí 2002.
Afli uppsjávartegunda var 188.062
tonn en var 210.323 tonn í júlí 2002.
Munar þar um minni loðnuafla í ár.
Milli júlímánaða 2002 og 2003 jókst
verðmæti fiskaflans, á föstu verði árs-
ins 2001, um 3,2%, samkvæmt útreikn-
ingum Hagstofu Íslands. Fyrir
tímabilið janúar–júlí dróst afla-
verðmæti saman, á föstu verði árs-
ins 2001, um 4,4% miðað við sama
tímabil ársins 2002.
Mun minni afli í júlí
!
""#
$
"
%
&
'
'()
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun
getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar
ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á
skjótanháttflegarnau›synleggögn liggja fyrir.
Haf›u sambandvi› rá›gjafaGlitnis e›akíktuáwww.glitnir.isogfá›ua›sto›
vi›a›veljafláfjármögnunarlei›semhentarbest.
Glitnir traustur samstarfsa›ili í fjármögnun atvinnutækja.
F T
T
E
R F E T
O
T P
E
O
P
E Sér›u atvinnutæki›
sem flig langar í?
– traustur samstarfsa›ili í fjármögnun
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a nd sbanka K i r k j u s and i 1 5 5 Rey k j a v í k g l i t n i r . i s s ím i 4 40 4400
KRÓNAN hefur veikst undan-
farna daga og spá sérfræðingar á
fjármálamarkaði því að framhald
verði þar á á næstunni. Hún veikt-
ist um 0,7% í gær, hefur veikst um
tæp 2% í þessari viku og tæp 8%
frá því hún var hvað sterkust á
árinu í maímánuði síðastliðnum.
Óvissa um stækkun Norðuráls
og tengdar virkjunarframkvæmd-
ir eru að mati sérfræðinga ein
helsta skýringin á meiri veikingu
krónunnar en flestar áætlanir
gerðu ráð fyrir. Aðrar skýringar á
veikingu krónunnar, sem nefndar
eru, eru aukinn halli á viðskipta-
jöfnuði, kaup Seðlabankans á
gjaldeyri og aukið flæði fjármagns
úr landinu með auknum kaupum
innlendra fjárfesta á erlendum
verðbréfum, slökun í peninga-
málastefnunni og hugsanlegt
brotthvarf varnarliðsins af Kefla-
víkurflugvelli. Þessar ástæður fyr-
ir veikingu krónunnar voru til að
mynda nefndar í Markaðsyfirliti
Greiningar Íslandsbanka fyrir
ágústmánuð sem birt var í gær.
Tímabundin lækkun á
genginu
Í Markaðsyfirliti Greiningar Ís-
landsbanka var sagt að Greining
ÍSB reiknaði með því að krónan
mundi eiga undir högg að sækja á
næstu vikum. Óvissa um stækkun
Norðuráls og tengdar virkjunar-
framkvæmdir sem og óvissa um
veru varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, gjaldeyriskaup Seðla-
banka Íslands, vaxandi halli á ut-
anríkisviðskiptum og kaup
innlendra aðila á erlendum verð-
bréfum eru meðal þeirra þátta
sem munu að mati Greiningar ÍSB
grafa undan gengi krónunnar nú á
haustmánuðum.
Ingólfur Bender forstöðumaður
Greiningar ÍSB segir að mikil
óvissa sé um þessa spá og segir t.d.
að ef endanlega verði ákveðið nú á
næstu vikum að ráðast í stækkun
Norðuráls á þessu ári muni það að
öllum líkindum valda því að krón-
an muni styrkjast en ekki veikjast
á umræddu tímabili. Hann segir
einnig að líkur séu frekar á því að
lækkun gengis krónunnar undan-
farið sé tímabundin og hið sama
gildi um þá hugsanlegu lækkun
sem verði nú á haustmánuðum. Í
þessu sambandi vísar Ingólfur til
þess að raungengi krónunnar sé
fremur lágt um þessar mundir
miðað við efnahagshorfur, en
raungengi krónunnar lýsir sam-
keppnisstöðu innlendra fyrirtækja
gagnvart erlendum.
Ingólfur telur ólíklegt að hag-
kerfið muni fara í gegnum kom-
andi skeið stóriðjuframkvæmda
án þess að raungengið standi
hærra en það gerir nú og að hækk-
unin muni verða fyrir tilstuðlan
hækkunar á nafngengi krónunnar.
Hversu mikil sú hækkun verður
muni m.a. fara eftir samspili pen-
ingastjórnunar Seðlabankans og
hagstjórnar hins opinbera á næstu
misserum.
Sveiflur að aukast
Í Mánaðarriti greiningardeildar
Landsbankans í júlí var ekki gert
ráð fyrir að krónan myndi styrkj-
ast á allra næstu mánuðum en að
það myndi hins vegar koma að því
er líða tæki á þetta ár. Var í ritinu
sérstaklega nefnt að væntanleg
hækkun á stýrivöxtum Seðlabank-
ans og hugsanleg aukning á fjár-
festingu erlendra aðila í íslenskum
skuldabréfum myndu hafa áhrif til
hækkunar á gengi krónunnar.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, segir að erfitt sé að átta
sig á skammtímahreyfingum í
gengi krónunnar. Hún segir engan
veginn víst að gengið hafi náð
botni en telur að þegar líður á
þetta ár muni gengið styrkjast.
Hin mikla veiking krónunnar að
undanförnu sé að hennar mati
tímabundin. Sveiflur séu almennt
að aukast á þessum markaði, bæði
vegna þess að markaðurinn sé
opnari auk þess sem markaðsað-
ilum hafi fækkað. Það hafi sín
áhrif.
Frekari veiking á næstunni
Snorri Jakobsson, hagfræðingur
hjá Kaupþingi Búnaðarbanka,
segir að ástæðurnar fyrir veikingu
krónunnar séu helstar stækkun
Norðuráls, kaup Seðlabankans á
gjaldeyri, versnandi vöruskipta-
jöfnuður, aukin kaup innlendra
fjárfesta á erlendum verðbréfum,
slökun í peningamálastefnunni og
hugsanlegt brotthvarf varnarliðs-
ins. Á móti þessum neikvæðu
áhrifum vegi þó gott þjóðhagslegt
jafnvægi og aukinn trúverðugleiki
peningastefnu Seðlabankans.
Krónan heldur
áfram að veikjast
Óvissa um stækkun Norðuráls er að mati sérfræðinga ein helsta ástæða meiri veikingar
krónunnar en ráð var fyrir gert. Talið er að hún styrkist aftur þegar líður á árið
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
BAUGUR hefur neitað áhuga á bresku
tískuversluninni New Look Group PLC,
en getgátur hafa verið uppi um að kaup
á 28% hlut Tom Singh stofnanda New
Look væri næst á dagskrá hjá Baugi, nú
þegar kaupin á Hamleys eru að nálgast
lokapunkt.
Talsmaður Baugs sagði í samtali við
breska fjölmiðla að Baugur héldi áfram
að leita að vænlegum fjárfestingar-
tækifærum í Bretlandi, en New Look
væri ekki þar á meðal.
11. júlí sl. tilkynnti New Look að
Singh hefði skipað nefnd óháðra fjár-
málaráðgjafa til að gera tillögur um ráð-
stöfun eignarhlutar Singh og fjölskyldu í
fyrirtækinu.
Fjórða ágúst sl. tilkynnti Deutsche
Bank, fyrir hönd Singh, að hafnar væru
viðræður við fjármögnunaraðila sem
gætu leitt til yfirtökutilboðs Singh í New
Look.
Yfirlýsingin olli talsverðum heilabrot-
um á markaðnum, þar sem menn höfðu
fyrirfram talið að Singh væri líklegri að
losa sig við allan hlut sinn, en að reyna
að kaupa upp fyrirtækið.
Fjármálaskýrendur telja að yfirtöku-
tilboð frá Singh verði gert í samvinnu við
núverandi stjórnendateymi félagsins,
leitt af forstjóranum Stephen Sunnucks.
Skýrendur telja að New Look verði
keypt fyrir 320-350 pens ef af verður,
eða 640-700 milljón sterlingspund, að því
gefnu að aðrir tilboðsgjafar komi ekki til
sögunnar og tilboðsstríð hefjist.
New Look rekur 500 tískuvöruversl-
anir fyrir konur í Bretlandi auk þess
sem félagið hefur þegar opnað verslanir í
Frakklandi undir nafninu NewMim.
Gengi félagsins lækkaði á markaði í
gær og endaði í 310 pensum á hvern
hlut.
B R E T L A N D
Baugur
vill ekki
New Look
Stofnandinn í yfirtökuhugleið-
ingum þvert á spár manna
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Samið um niðurgreiðslur
Styrkir til landbúnaðar verða ræddir í Cancun 8
Rakvélastríð
Gillette telur Energizer brjóta á einkaleyfi sínu 8
BREYTINGAR
Í FARVATNINU
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 30
Erlent 12/17 Umræðan 32
Höfuðborgin 18 Minningar 33/35
Akureyri 20 Kirkjustarf 35
Suðurnes 21 Bréf 36
Austurland 22 Dagbók 38/39
Landið 23 Íþróttir 40/43
Neytendur 24 Fólk 44/49
Listir 25/32 Bíó 46/49
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
Þjónusta 29 Veður 51
* * *
DECODE, móðurfélag íslenskrar erfðagreining-
ar, tapaði 23,3 milljónum Bandaríkjadala á fyrstu
sex mánuðum ársins, eða tæpum 1,9 milljörðum ís-
lenskra króna. Á sama tímabili í fyrra nam tapið
35,9 milljónum Bandaríkjadala og hefur því
minnkað um 35% milli ára.
Handbært fé félagsins nemur í lok tímabilsins
76,6 milljónum dollara, eða rúmum sex milljörðum
króna, 2,6 milljónum dollara minna en við lok
fyrsta ársfjórðungs og 16,4 milljónum dollara
minna en við síðustu áramót.
Á fyrstu sex mánuðum ársins voru tekjur 22,4
milljónir dollara og jukust um 7,7 milljónir miðað
við saman tímabil í fyrra þegar tekjur námu 14,7
milljónum dollara.
Tekjur félagsins á öðrum ársfjórðungi námu
10,5 milljónum dollara samanborið við 9,4 millj-
ónir á sama tímabili í fyrra. Tap af rekstri á öðrum
ársfjórðungi minnkaði um 48% miðað við sama
tímabil í fyrra, úr 19,7 milljónum Bandaríkjadala í
10,2 milljónir.
Í tilkynningu félagsins segir að vöxtur í tekjum
endurspegli árangur deCODE í vöruþróun og
þjónustu, auk þess sem inni í þessari tölu um
tekjur séu tekjur af nýjum samstarfssamningum
félagsins.
„Á öðrum ársfjórðungi höfum við haldið áfram
að ná miklum árangri í þróunarverkefnum okkar á
sviði lyfja og greiningar og á sama tíma færst nær
því skammtímamarkmiði okkar að láta tekjur
standa undir rekstri. Niðurstaðan fyrir annan árs-
fjórðung sýnir að við erum á réttri leið í átt að því
að standast okkar fjárhagslegu markmið fyrir árið
og, trúi ég, undirstrikar ætlun okkar að standa við
langtímamarkmið okkar,“ sagði Kári Stefánsson
forstjóri deCODE í tilkynningunni.
„Við einbeitum okkur nú að því að stækka tekju-
grunn fyrirtækisins og spara handbært fé okkar á
sama tíma og við ætlum að hraða áætlunum okkar
á meginsviðum starfseminnar, í sjúkdómsgrein-
ingum og lyfjauppgötvunum,“ sagði Kári enn-
fremur í tilkynningunni.
deCODE tapar 1,9 millj-
örðum fyrri hluta árs
35% minna tap hjá fyrir-
tækinu en í fyrra
Í FYRRAKVÖLD var haldinn fund-
ur með um 50 íslenskum starfsmönn-
um Impregilo við Kárahnjúkavirkj-
un, vegna kvartana yfir aðbúnaði og
launamálum sem þeir segja í ólestri.
Íslendingarnir sætta sig ekki
lengur við launaafgreiðslu fyrirtæk-
isins og segja að verið sé að bola
þeim úr vinnu til að hægt sé að ráða
ódýrari erlendan vinnukraft á svæð-
ið. Þá hafa ekki verið efnd loforð um
að útvega túlka vegna samskipta við
þá erlendu verkamenn sem tala litla
eða enga ensku, hreint drykkjarvatn
hefur verið af skornum skammti og í
gærmorgun gerðist það að ekki var
til nægur matur ofan í mannskapinn.
Impregilo hefur haft sumarið til
að ganga frá lausum endum í launa-
og aðstöðumálum, en þrátt fyrir gef-
in loforð um úrbætur hafa þau ekki
verið efnd nema að litlu leyti.
Vilja átak í
aðbúnaðarmálum
Oddur Friðriksson yfirtrúnaðar-
maður segir mennina mjög
óánægða. „Þetta eru mál sem sam-
ráðsnefnd hefur tekið upp og málið
er komið á það stig að við erum að
gefa Impregilo lokafrest,“ segir
Oddur. Niðurstaða fundarins í fyrra-
kvöld var svohljóðandi ályktun:
„Fundurinn krefst þess að gert verði
átak í aðbúnaðarmálum og farið að
fullu eftir virkjanasamningi. Skorað
er á viðkomandi stofnanir að beita
ýtrustu úrræðum ef ekki verður far-
ið eftir samningum.“
Launamál Íslendinganna eru í
ólestri, að þeirra mati. Einkum
vegna þess að fáir menn eru komnir
inn á vaktir og tapa starfsmennirnir
þannig þeim álögum sem þeim var
lofað og fá þar af leiðandi lægri laun
en efni stóðu til. Þá hafa fram-
kvæmdir við vinnubúðir gengið mun
hægar en reiknað var með og alltof
mikill mannskapur í þeirri aðstöðu
sem þegar er fyrir hendi.
Helga Hreinsdóttir hjá Heilbrigð-
iseftirliti Austurlands segir að gefið
hafi verið bráðabirgðaleyfi fyrir að
herbergi væru tvímönnuð, en ljóst sé
að fleiri séu settir í herbergi. Leyfin
séu því ekki virt. Hvað neysluvatns-
mál varðar segir hún ástand vatns að
flestu leyti ágætt og gaumgæfilega
fylgst með því.
Í gær var verkfundur hjá Lands-
virkjun þar sem rædd var gerð tíma-
plans fyrir úrbætur, einkum á starfs-
mannaaðstöðu Impregilo við
Kárahnjúka. Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Samiðnar,
talsmaður þeirra verkalýðsfélaga
sem hlut eiga að máli gagnvart
Impregilo, segist vonast til að strax
eftir helgi fari menn að sjá tímaplan
yfir það hvernig úr málum verði
leyst.
Um fimmtíu íslenskir starfsmenn
Impregilo voru á fundinum og var
fyrirtækinu gefinn frestur til úrbóta
fram yfir samráðsfundinn sem hald-
inn verður á fimmtudag í næstu viku.
Íslenskir starfs-
menn Impregilo
krefjast úrbóta
Impregilo fær frest fram í næstu viku
Kárahnjúkavirkjun. Morgunblaðið.
TÓLF af reyndustu fall-
hlífarstökkvurum lands-
ins æfa þessa dagana
stíft fyrir flókið sýning-
aratriði á Flughátíð Ice-
landair og Flugfélags Ís-
lands á Reykjavíkurflug-
velli hinn 16. ágúst, á
menningarnótt.
Dagskráin stendur frá
um klukkan þrjú síðdeg-
is fram til klukkan átta.
Glæsilegt stökk fyr-
irhugað
Að sögn Þórjóns Pét-
urssonar hjá Fallhlífa-
klúbbi Reykjavíkur
munu fallhlífarstökkv-
ararnir mynda stóra
stjörnu á himni. „Við
verðum svo með um 20
reyksprengjur festar við
líkamann. Síðan mun
Íslandsmethafinn í
vængjaflugi elta flugvél-
ina og mæta stjörnunni í
um átta þúsund feta
hæð,“ sagði Þórjón. Þá
verða stökkvararnir á
um 200 km hraða á
klukkustund. „Ég full-
yrði að þetta stökk verð-
ur með því glæsilegasta
sem stökkvarar Fall-
hlífaklúbbs Reykjavíkur
hafa framkvæmt, og ef-
laust bið á að annað eins
verði endurtekið,“ bætti
Þórjón við. Við lendingu
munu kapparnir halda á fánum,
sem gera mun atriðið enn til-
komumeira. Áætlað er að stokkið
verði um fimmleytið á laugardag-
inn.
Flughátíðin er haldin til að
fagna 30 ára afmæli Flugleiða, 60
ára afmæli Þristsins og 100 ára
afmæli flugsins. Samhliða glæsi-
legum flugsýningum munu gestir
geta skoðað 20 merkar flugvélar
fyrir framan flugskýli 4 og reynt
fyrir sér í flugskutlukasti. Sextíu
flugmiðar og hundrað aukavinn-
ingar eru í vinningspotti skutlu-
kastsins.
Fallhlífarstökkvarar sýna á Flughátíð
Morgunblaðið/Jim Smart
Allir klárir að leggja í’ann upp í háloftin til að stökkva út í óvissuna.
Mynda stjörnu
í háloftunum
Niðurleiðin í fallhlífinni tekur skamman tíma
en er þeim mun skemmtilegri.