Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.08.2003, Blaðsíða 20
AKUREYRI 20 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er sem betur fer ekki mjög algengt að knattspyrnudómararar meiðist en Bragi Berg- mann á Akureyri, einn fjögurra íslenskra milliríkjadómara, hefur ekki getað dæmt síð- ustu fimm vikur vegna brjóskloss í hálsi. Seg- ist hann að vonum afar vonsvikinn – ekki síst vegna þess að yfirstandandi ár er hans síðasta sem milliríkjadómara. „Ég er búinn að eiga í þessum meiðslum í fimm vikur; er með brjósklos í hálsi, milli sjötta og sjöunda hálsliðar. Taug út í vinstri handlegg er klemmd og vinstri vísifingurinn er til dæmis alveg dofinn. Ef ég hreyfi mig er eins og ég fái rafstuð í handlegginn. Hann dofnar upp,“ segir dómarinn. Bragi rekur fyrirtækið Fremri kynningar- þjónustu á Akureyri. Hann vinnur mikið við skriftir á tölvu og segist, eins og fleiri sem sinni ámóta störfum, vera stífur í baki, öxlum og hálsi og því veill fyrir. Svo þegar hann fór að bera þunga kassa í vinnunni og „dunda í garðinum eins og maður gerir gjarnan á sumrin“, dundi ógæfan yfir. Bragi segist hafa verið í mjög markvissri meðferð en meiðslin séu þess eðlis að þau geti gengið til baka af sjálfu sér „ef maður hegðar sér alveg rétt; hreyfir sig rétt. Vissa hluti má ég ekki gera; ég má helst ekki beygja höfuðið fram eða til hliðar. Ég get það, en ef ég set hökuna niður í bringu er ég í raun að opna sárið.“ Hann segir brjósk langan tíma að gróa; „það er reyndar mismunandi eftir einstaklingum, getur tekið frá nokkrum vikum upp í marga mánuði. Í versta falli, ef þetta lagast ekki af sjálfu sér, þyrfti ég í aðgerð en ég fer ekki í hana fyrr en í lengstu lög vegna þess að hún er áhættusöm.“ Bragi segist vonast til þess að geta dæmt meira í sumar. „Ég er enn þá að gæla við að geta komist af stað um eða upp úr næstu mán- aðamótum þannig að ég nái í endann á keppn- istímabilinu; geti dæmt í síðustu tveimur um- ferðum Íslandsmótsins eða svo. Og ef ég kemst aftur af stað fæ ég vonandi leik eða leiki erlendis í haust; það væri gaman að fá kveðjuleik sem FIFA-dómari erlendis.“ Bragi átti að dæma leik einhvers staðar úti í Evrópu snemma í september – viðureign landsliða 21 árs og yngri, en hann veit ekki hvaða þjóðir þar áttu í hlut og vildi ekki vita það. KSÍ tilkynnti auðvitað að hann kæmist ekki vegna meiðsla. „Ég er búinn að dæma tvo leiki erlendis í ár og fullt af leikjum hérna heima, en aðeins þrjá í Landsbankadeildinni. Hef því misst af mörg- um, bæði í efstu deild og 1. deild, vegna meiðslanna og það er gríðarlega svekkjandi.“ Þrátt fyrir meiðslin reynir Bragi að halda sér í æfingu. Fer ferða sinna á reiðhjóli og æf- ir einnig á þrekhjóli. „Mönnum kann að finn- ast það mótsagnakennt að maður með brjósk- los í hálsi sé á hjóli en það er í lagi ef ég passa mig. Ég þarf reyndar að passa mig við margt, t.d. þegar ég geng fram af gangstétt eða fer yfir hraðahindrun, hvort sem er á hjóli eða í bíl; að fá ekki hnykk á höfuðið. Bragi verður 45 ára í haust og í árslok hverfur hann af FIFA-listanum svokallaða, lista yfir alþjóðlega knattspyrnudómara. „Þetta eru aldursmörkin; það er alveg sama hvort það er Bragi Bergmann eða Collina [hinn ítalski], menn verða að hætta um ára- mótin eftir að þeir verða 45 ára,“ sagði Bragi við Morgunblaðið. Dómarar mega aftur á móti dæma leiki hér heima til fimmtugs og Bragi stefnir að því að halda áfram fimm ár til viðbótar. Hann dæmir fyrir Árroðann í Eyjafjarðarsveit og er stoltur af því. „Þótt Árroðinn sé hættur að senda lið til keppni dæmi ég enn fyrir félagið. Það er miklu flottara en að segjast dæma fyrir Fram eða KR, þegar ég fer til útlanda, að geta sagst dæma fyrir „Early Sunrise United“! Bragi hefur starfað sem dómari í nærri 30 ár; dók dómaraprófið aðeins 15 ára og segist hafa verið mjög heppinn alla tíð. „Ég hef nán- ast alveg sloppið við meiðsli og þó ég vildi auðvitað helst vera laus við þessi get ég alls ekki kvartað.“ Bragi Bergmann vonast til að ljúka ferlinum sem milliríkjadómari erlendis Ekki dæmt í fimm vikur vegna brjóskloss í hálsi Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Bragi Bergmann, alþjóðadómari í knattspyrnu. Hann er með brjósklos í hálsi og hefur því ekk- ert getað dæmt síðustu fimm vikur. Í kvöld kl. 20 standa Ferðamála- setur Íslands og Minjasafnið á Ak- ureyri fyrir kvöldferð með leiðsögn um uppgraftarsvæðið á Gásum, verslunarstaðnum frá miðöldum. Þátttakendur í ferðinni munu fræð- ast um sögu staðarins, fornleifa- rannsóknirnar og gróðurfar svæð- isins. Þátttökugjald er 300 krónur. Farið verður af stað frá bílastæðinu við Gáseyrina. Heitur fimmtudagur í Deiglunni. Í kvöld kl. 21.30 leikur Kvartett Kára, sem er nú er á stuttri tónleikaferð um Norðurland, en hann er skipaður þeim Sigurði Flosasyni á saxófón, Andrési Þór Gunnlaugssyni á gítar, Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Kára Árnasyni á trommur. Efnisskráin samanstendur af sí- grænum djassperlum sem flestir ættu að kannast við. Miðar seldir við innganginn á 800 kr. Aukakvöldsýning á einleiknum „Ellý, alltaf góð“ eftir Þorvald Þor- steinsson í flutningi Ævars Þórs Benediktssonar verður haldin í kvöld kl. 21. Sýningin er haldin í Litla-Garði, gegnt flugvellinum. Miðaverð er 900 kr. og eru súpa og brauð frá veitingastaðnum Friðriki V. innifalin í verði. Athygli skal vak- in á því að þetta er síðasta sýningin sem haldin verður á Akureyri, því nú fer Hádegisleikhúsið ásamt Castor Media í ferðalag suður á bóginn. Í DAG UM miðjan dag í gær varð það óhapp á Eyjafjarðarbraut vestari, fyrir neðan bæinn Teig, að tveir bílar óku samsíða út af veginum og höfnuðu úti í skurði. Tildrög slyssins voru þau að Volkswagen „rúgbrauð“ sem var á undan hægði á sér og hugðist taka vinstri beygju. Í þann mund sem hann tók beygjuna ætlaði fólksbíll sem var á eftir að fara fram úr og lentu bílarnir saman á veginum og fóru út af. Tvennt var í hvorum bíl, allir í ör- yggisbelti, og sluppu allir án meiðsla en voru þó fluttir á sjúkrahús til skoðunar. Rúgbrauðið var ökufært, eftir að það var dregið upp á veg, en hinn bíllinn er trúlega ónýtur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Annar bíllin er talinn ónýtur og mesta mildi að engin slys urðu á fólki. Tveir bílar höfnuðu í skurði EINS og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær höfðu einhverjir óprúttnir stolið öðru tveggja skilta sem vara ökumenn við umferð anda- fjölskyldna yfir Drottningarbraut á Akureyri. Skemmst er frá því að segja að skömmu eftir útkomu blaðs- ins í gær barst lögreglu ábending um hvar skiltið væri að finna. Það er nú komið aftur í réttar hendur og verð- ur væntanlega farið að þjóna tilgangi sínum á nýjan leik innan skamms. Skiltið komið í leitirnar 30 ÁRA LÁNINNRÉTTINGAR EldaskálinnBrautarholti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.