Morgunblaðið - 14.08.2003, Side 22
TORKENNILEGT dufl
fannst á Starmýrarfjörum
við Djúpavog fyrir nokkrum
dögum.
Andrés Skúlason á Djúpa-
vogi fann duflið, myndaði það
og sendi gögn til Hafrann-
sóknarstofnunar, Siglinga-
málastofnunar og Landhelg-
isgæslunnar en enginn á
þeim bæjum kannaðist við
gripinn.
„Duflið hefur legið í fjör-
unni í allan vetur og enginn
orðið var við það fyrr en nú,“
segir Andrés.
„Ég var spenntur að vita
hvað þetta væri, svo að við
rifum duflið í sundur og þá
kom í ljós kúla með sendi
innan í og var hann merktur
hafrannsóknadeild Háskólans í
Kiel í Þýskalandi. Kom í ljós að
þetta er samstarfsverkefni um
ástand sjávar milli Hafrannsókna-
stofnunar og Háskólans í Kiel. Þeir
eru með fjögur dufl í höfunum, eitt
hjá Kanaríeyjum, annað suður af
Grænlandi, þriðja einhvers staðar
norður í höfum og þetta átti að
vera við Bretlandseyjar. Duflið
hefur því rekið þaðan,“ segir
Andrés.
Duflið mælir ástand
geymslu á Djúpavogi
Andrés var beðinn um að taka
duflið í sína vörslu og geyma
vandlega. Aðilar frá Kílarhá-
skóla er væntanlegir til landsins
og munu þá hugsanlega koma til
Andrésar og kíkja á duflið.
„Þessi sendir fer í gegnum
gervitungl og því eru engar upp-
lýsingar í duflinu sjálfu,“ segir
Andrés. Sendirinn mun því
væntanlega kanna hitastig,
strauma og ástand geymslunnar
hjá Andrési á Djúpavogi á næst-
unni og senda þær upplýsingar
til gervihnattarins. „Ég var ein-
mitt að hugsa um það þegar ég
keyrði með duflið yfir á Djúpa-
vog á dögunum að nú sæti mað-
ur í Kiel fyrir framan tölvu og velti
vöngum yfir því hvað í ósköpunum
duflið væri að gera á hundrað kíló-
metra hraða uppi á austanverðu Ís-
landi,“ sagði Andrés að lyktum.
Hafrannsóknardufl fannst á Starmýrarfjörum
Kannar nú ástand
geymslu á Djúpavogi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Andrés Skúlason með könnunarduflið dular-
fulla sem hann fann á Starmýrarfjörum.
Djúpivogur
AUSTURLAND
22 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐS-, bæjar- og uppskeruhá-
tíðin Ormsteiti 2003 verður sett á
morgun á Egilsstöðum.
Þetta er í ellefta sinn sem hátíð-
in er haldin og einkennist hún af
því að heimamenn galdra fram
fjölbreytta og oft á tíðum óvenju-
lega dagskrárliði. Hátíðin stendur
frá 15. til 25. ágúst og fer fram um
allt Fljótsdalshérað.
Allir bæjarbúar vaktir
Snemma í fyrramálið ætlar eitt-
hvað á fjórða tug krakka á Egils-
stöðum að fylkja liði með
Lagarfljótsorminn sér til fulltingis
og ganga með hljóðfæraslætti og
söng á allar húsdyr bæjarins.
Þannig á að vekja bæjarbúa til
Ormsteitis og hvetja þá til að gera
sér glaðan dag.
Unnur Sveinsdóttir listamaður í
Fellabæ hefur haft umsjá með
Smiðju Ormsins í Fljótinu og hafa
nokkrir tugir barna unnið þar ým-
is og fremur hástemmd hljóðfæri
úr aðskiljanlegum efnivið.
Framkvæmdastjóri Ormsteitis
er Lára Vilbergsdóttir listhönnuð-
ur.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Unnur Sveinsdóttir leiðir hljóðfæragerð krakka í Smiðju Ormsins í Fljótinu.
Þau ætla að vekja alla bæjarbúa upp í fyrramálið með hljóðfærunum sínum.
Ormsteitið að bresta á
Egilsstaðir
UMHVERFISRÁÐ Austur-Héraðs
samþykkti á fundi sínum í gær að út-
hluta fasteignafyrirtækinu Þyrp-
ingu hf. 7.900 fm lóð undir versl-
unar- og þjónustuhúsnæði á
Egilsstöðum. Samþykktin er gerð
með fyrirvara um staðfestingu bæj-
arstjórnar, sem fundar í næstu viku.
Um er að ræða lóðirnar Blómvang
2–4, 6–8 og 10–12 á Egilsstöðum, en
þar hefur löngum verið æfingavöll-
ur fyrir knattspyrnuiðkendur.
Á lóðinni hyggst Þyrping reisa
allt að 1.800 fm verslunar- og þjón-
ustubyggingu ásamt bílastæðum.
Umsækjandi reiknar með að
framkvæmdum verði lokið og rekst-
ur hefjist 1. maí á næsta ári.
Þyrping hf. er þróunarfélag í eigu
fasteignafélagsins Stoðar hf. og
starfar í nánum tengslum við versl-
anir Baugs. Auk Bónusverslunar-
innar sem nú er rekin á Egils-
stöðum, á Baugur þar Lyfju og
Húsasmiðjuna.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þyrping sækir um byggingarlandið sem hér sést gegnum gröfubogann. Það stendur við þjóðveg 1 á Egilsstöðum
og er 9.700 fm að stærð. Þarna er nú sparkvöllur fyrir fótboltaiðkendur.
Þyrping reisir stórt þjónustu-
og verslunarhús
Egilsstaðir
Ljósmynd/Sigmar Ingason
Útimessa í Víðidal á Efrafjalli. Sr. Lára G. Oddsdóttir á Valþjófsstað og sr.
Örnólfur J. Ólafsson á Skútustöðum þjónuðu í athöfninni. Sr. Jón A. Bald-
vinsson vígslubiskup Hólastiftis predikaði og sr. Sigurður Sigurðarson,
vígslubiskup í Skálholti ávarpaði söfnuðinn og blessaði.
Á SUNNUDAG var þess minnst í úti-
guðsþjónustu í Valþjófsstaðar-
prestakalli, að Múla- og Aust-
fjarðaprófastdæmi voru færð undir
Hólastifti um síðustu áramót.
Þessi breyting á mörkum Hóla-
stiftis og Skálholtsstiftis þykir
merkilegur kirkjusögulegur atburð-
ur, þar sem mörk þessara tveggja
biskupsdæma hafa verið óbreytt frá
upphafi, þó ekki hafi biskupar setið
óslitið á Hólum og í Skálholti frá
upphafi kristni á Íslandi. Mörkin að
austan lágu um Biskupsháls á mót-
um Þingeyjarsýslna og Norður-
Múlasýslu, en færast nú suður undir
mörk Suður-Múlasýslu og Austur-
Skaftafellssýslu.
Héraðsmenn og Mývetningar
sameinast um helgihald
Útimessan var haldin í Víðidal á
Efrafjalli og er liður í helgihaldi Val-
þjófsstaðarprestakalls. Undanfarin
ár hefur verið messað undir berum
himni á sunnudegi eftir verslunar-
mannahelgi einhvers staðar til fjalla
í prestakallinu. Að þessu sinni stóðu
Valþjófsstaðarprestakall og Skútu-
staðaprestakall sameiginlega að
guðsþjónustunni og þjónuðu sr.
Lára G. Oddsdóttir á Valþjófsstað og
sr. Örnólfur J. Ólafsson á Skútustöð-
um við athöfnina. Nývígður vígslu-
biskup Hólastiftis Jón A. Baldvins-
son predikaði og vígslubiskup
Skálholtsstiftis Sigurður Sigurð-
arson ávarpaði messugesti og lýsti
blessun.
Um 60 manns komu til athafn-
arinnar í góðu veðri og var svo veitt
messukaffi í skjólsælum hvammi við
Víðidalsá að lokinni guðsþjónustu.
Kirkju-
sögulegur
viðburður
Valþjófsstaður
UM þessar mundir standa yfir við-
ræður um sölu húseignarinnar
Valaskjálfar á Egilsstöðum, sem er
í eigu einkahlutafélagsins Í efra.
Þar er nú rekið Fosshótel Vala-
skjálf auk þess sem heimavist hef-
ur verið þar á vetrum fyrir nem-
endur Menntaskólans á
Egilsstöðum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er það Sverrir Her-
mannsson, eigandi Fosshótel Barón
í Reykjavík sem nú er í viðræðum
við eigendur Valaskjálfar. Segist
Arnór Benediktsson hjá Í efra ehf.
ekkert vilja láta hafa eftir sér um
þær viðræður, en hann reikni með
að eitthvað gæti gerst hvað varðar
sölu á Valaskjálf á næstu vikum.
Hann segir fleiri aðila hafa sýnt
áhuga á að kaupa Valaskjálf en vill
ekki tilgreina hverjir það eru.
Rekstur Fosshótels Valaskjálfar
hefur gengið vel í sumar, en rekstr-
arstaða mun þó vera erfið.
Félagsheimili Egilsstaðabúa hef-
ur verið í Valaskjálf og horfa menn
til þess hvort hugsanlegir kaup-
endur hafi áhuga á að reka það
áfram í einhverju formi.
Ekki náðist í Sverri Her-
mannsson í gær.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fosshótel Valaskjálf á Egilsstöðum er nú hugsanlega til sölu. Íbúar bæj-
arins velta fyrir sér framtíð félagsheimilisins sem þar er til húsa.
Sala Valaskjálfar
stendur fyrir dyrum
Egilsstaðir