Morgunblaðið - 14.08.2003, Qupperneq 34
MINNINGAR
34 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Elín SigurrósKjartansdóttir
fæddist í Reykjavík
9. apríl 1922. Hún
lést á heimili sínu að
kvöldi sunnudagsins
3. ágúst síðastliðins.
Foreldrar hennar
voru Kjartan Eyj-
ólfsson, f. 29. sept-
ember 1888 í Björn-
skoti í
V-Eyjafjallahreppi,
d. 2. mars. 1977, og
Sólborg Jónsdóttir,
f. 18. júlí 1890 í Hey-
nesi í Innri-Akranes-
hreppi, d. 14. september 1980.
Elín var einkabarn foreldra
sinna.
Hinn 18. desember 1943 giftist
Elín Óskari L. Ágústssyni, f.
20.12. 1920, en foreldrar hans
voru Ágúst L. Lárusson, f. 7.
febrúar 1888, d. 14. desember
1941, og Ágústína Ingibjörg
Magnúsdóttir, f. 26. nóvember
1884, d. 10. október 1949. Börn
Elínar og Óskars eru: 1) Auður
L., gift Sigurði Ólafssyni. Börn
þeirra eru Elín Ósk,
gift Ragnari Gunn-
laugssyni, og Ólafur
Örn. 2) Eygló, gift
Ingvari Sveinbjörns-
syni. Börn þeirra
eru a) Óskar Örn,
sambýliskona Guð-
rún Karlsdóttir og
er barn þeirra
Eygló Kristín, b)
Kjartan, sambýlis-
kona Sólveig Stef-
ánsdóttir, c) Ágúst,
d) Sólborg Erla, e)
Skúli. 3) Erla Sól-
veig, gift Þorsteini
Jónssyni. Börn þeirra eru Elísa-
bet Rún og Elín Edda.
Elín lauk prófi frá Verslunar-
skóla Íslands 1939 og hóf síðan
störf hjá Stefáni Thorarensen
lyfsala og starfaði þar til 1943, er
hún helgaði sig húsmóðurstörf-
um. 1968 hóf hún störf á skrif-
stofu Ríkisspítalanna og lét af
störfum fyrir aldurs sakir 1994.
Elín verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
Það er ekki létt verk að setjast
niður og skrifa minningargrein um
tengdamóður mína, Elínu Kjart-
ansdóttur.
Dauðinn er eitthvað sem við öll
fáum að reyna og þó svo sé fara
naprir vindar um hugann er andlát
ber að höndum, jafnvel þótt dauð-
inn komi sem líknandi hönd og
hvíld frá líkamlegum þjáningum
svo sem var er Elín kvaddi þessa
jarðvist.
Það eru nú tvö ár síðan Elín
veiktist og hafði fyrir þann tíma
aldrei kennt sér neins alvarlegs
meins eða legið á sjúkrahúsum.
Fjölskyldu Elínar var mjög brugð-
ið enda ljóst að brugðið gat til
beggja vona um framhaldið. Síð-
astliðið vor var orðið ljóst að
hverju drægi og hrakaði heilsu
hennar síðustu mánuðina.
Elín kvaddi á heimili sínu að
kvöldi sunnudagsins 3. ágúst og
hlaut hægt og hljótt andlát en það
var eins og birtu brygði og síðan
færðist ró yfir andlit hennar.
Það eru nú rúm 30 ár síðan
fundum okkar bar saman, eða eins
og ég orðaði það þá, hætti mér í
ljónagryfjuna. Ekki fór það nú svo
sem þau orð lýsa því aldrei bar
skugga á í okkar samskiptum
þrátt fyrir nær daglegt samneyti
og um margt ólíkt skaplyndi.
Elín var einbirni og eflaust hef-
ur skaphöfn hennar að einhverju
leyti borið þess merki, enda lærð-
ist fljótt að ráðlegra var að and-
mæla ekki um of skoðunum henn-
ar á málefnum líðandi stundar.
Það var reyndar ekki erfitt þar
sem undir niðri skynjaði maður
einstaka góðvild og vilja til að
færa til betri vegar, þrátt fyrir
nokkuð ákveðnar skoðanir.
Gefandi er e.t.v. orð sem fær
lýst návist og atferli Elínar, en
hún var nótt sem nýtan dag boðin
og búin til aðstoðar í öllum málum.
Þau eru ekki mörg laugardags-
kvöldin sem ég hef misst úr í boði
hennar í mat og drykk fyrr en
undir það síðasta, en þeirra sam-
verustunda er sárt saknað. Ekki
vegna matarins, sem reyndar var
ljúffengur, heldur vegna hlýrra og
ánægjuríkra stunda. Stundir sem
ekki koma aftur og minna nú
óþyrmilega á hverfulleik lífsins.
Unubær við rætur Úlfarsfells
kemur og í hugann á þessari
kveðjustund, en þar höfðu Elín og
Óskar breytt örfoka mel í gróð-
urvin. Þar dvöldum við hjónin
ásamt börnum okkar og Elínu og
Óskari löngum stundum. Þar voru
börnin að leik og lærðu til garð-
yrkjustarfa og við Elín náðum vel
saman um nauðsyn þess að reyta
kartöflugarðinn. Að hausti var El-
ín kappsöm við kartöfluupptökuna
og varð alltaf að stinga eitthvað
upp sjálf, síðast á liðnu hausti. Nú
líður senn að því að þessi unaðs-
reitur, sem Elínu var afar kær,
fari undir götur og byggingar, og
er það vel að hún lifði ekki þá
stund, fyrst henni varð ekki auðið
lengri lífdaga.
Það er ekki með öllu ljóst hvað
skáldið átti við með orðunum „að
skiljast við ævinnar æðsta verk í
annars hönd, þar er dauðasökin“.
Ef þessi fleygu orð eiga við skyld-
ur gagnvart sínum nánustu er ljóst
að Elín hefur ekki unnið til þess-
ara dapurlegu orða, þar sem lífs-
hlaup hennar einkenndist af rækt-
arsemi við eiginmann, börn og
barnabörn. Þau orð sem svo oft
heyrast nú á vorum dögum; „að
gera eitthvað fyrir sjálfan sig“
voru ekki til í hennar huga og at-
höfnum. Það hæfir vart í þessu
sambandi að tala um fullkomið for-
eldri og fyrirmynd, en ég leyfi mér
þó að láta þau um munn fara nú
þegar ég kveð Elínu með þessum
fátæklegu orðum, en því var ekki í
orð komið sem fegurra var.
Ingvar Sveinbjörnsson.
Þegar ég sá Elínu tengdamóður
mína fyrst hafði ég ráðið mig í
vinnu á skrifstofu ríkisspítalanna,
en þar starfaði hún sem bókari.
Ég kom beint úr skóla og var hálf-
grænn í skrifstofustörfum, og í
þessari raunverulegu debet- og
kreditveröld sem ég var kominn
inn í, var gott að leita til þessarar
konu, sem virtist vita alla skapaða
hluti um bókhaldsfærslur. Mig
grunaði ekki þá að hún ætti nokkr-
um árum síðar eftir að verða
tengdamóðir mín.
Margs er að minnast frá 32 ár-
um. Að fara til tengdamömmu eða
ömmu í kvöldverðarboðið á laug-
ardagskvöldum á veturna, sem
varð eins konar fastur liður í til-
verunni. Aðfangadagskvöldin og
gamlárskvöldin öll, páskadags-
morgnarnir, þar sem smáatriði
eins og að snæða bita af epli áður
en nokkurs annars var neytt, til að
tryggja góða heilsu, varð smám
saman að ljúfri skyldu. Elín var
skarpgreind kona, ákveðin, gjaf-
mild og mátti ekkert aumt sjá.
Hún var fyrir útivist, og hafði
ánægju af því að ferðast um land-
ið, enn fremur hafði hún yndi af
ræktun og þau tengdaforeldrar
mínir ræktuðu saman ljúfan reit
sem þau nefndu Unubæ eða kof-
ann, og vottar vel um hvað hægt
er að gera í ræktun ef vilji er fyrir
hendi, þótt landið sé erfitt til
ræktunar.
Kæra tengdamóðir, ég kveð þig
nú og þakka þér fyrir árin sem ég
fékk að njóta kynna við þig.
Sigurður.
ELÍN
KJARTANSDÓTTIR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÓLVEIG B. GUÐMUNDSDÓTTIR
VIKAR,
Bugðulæk 10,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti
fimmtudaginn 7. ágúst sl., verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. ágúst kl. 13.30.
Þórhildur Lilja Þorkelsdóttir,
Jón Gunnar Þorkelsson, Sigrún Haraldsdóttir,
Herdís Þorkelsdóttir, Einar Einarsson,
Ágústa Þorkelsdóttir, Ólafur H. Óskarsson,
Páll Þorkelsson,
Lilja Þorkelsdóttir, Garpur Dagsson
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til allra þeirra, er auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURSTEINS GUÐMUNDSSONAR,
Birkigrund 32,
Selfossi.
Oddný Þorkelsdóttir,
Margrét Sigursteinsdóttir, Sumarliði Guðbjartsson,
Katrín Sigursteinsdóttir, Kristinn Bergsson,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
OLGA ÓLADÓTTIR,
Suðurgötu 7,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Tinna Kr. Gunnarsdóttir, Bjarni Þorbergsson
og barnabörnin.
Elskulegur frændi okkar og vinur
STEFÁN R. B. HÖSKULDSSON,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands,
Hornafirði, þriðjudaginn 5. ágúst, verður
jarðsunginn frá Hafnarkirkju laugardaginn
16. ágúst kl. 13.00.
Jarðsett verður í Djúpavogskirkjugarði sama
dag.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Marta Imsland.
Elskulegi bróðir minn og frændi okkar,
GUNNAR I. SIGURÐSSON
frá Hvassahrauni,
lést á endurhæfingardeild Arnarholts Kjalar-
nesi laugardaginn 9. ágúst.
Útförin verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 19. ágúst kl. 13.30.
Hulda G. Sigurðardóttir
og frændfólk.
Elskuleg móðir mín, amma og systir okkar,
ERNA INGÓLFSDÓTTIR SEPE,
lést á sjúkrahúsi á Long Island, New York,
mánudaginn 28. júlí sl.
Útför hennar fór fram föstudaginn 1. ágúst.
Fyrir hönd aðstandenda,
Róbert Róbertsson og börn,
Laufey Ingólfsdóttir og Dóra Ingólfsdóttir.
Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA GUÐRÚN KONRÁÐSDÓTTIR
frá Skagaströnd,
Jökulgrunni 4,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar-
daginn 9. ágúst sl.
Útför hennar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 19. ágúst kl.
15.00.
Jón Haukdal Þorgeirsson,
María Þ. Haukdal Jónsdóttir,
Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir,
Særún Haukdal Jónsdóttir,
Böðvar Haukdal Jónsson,
Anna Haukdal Jónsdóttir,
Jóna B. Haukdal Jónsdóttir,
Þorgeir L. Haukdal Jónsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is