Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 38

Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 38
DAGBÓK 38 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Libra kemur í dag, Dettifoss fer í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað. Smíðastofan er lokuð til 11. ágúst. Handavinnustofan op- in, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 10.15 leik- fimi, kl. 11 boccia. Kl. 13.30 lengri ganga. Púttvöllur opinn mánudag til föstudags kl. 9–16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 14 dans. Félagsstarfið, Dal- braut 27. Kl. 8–16 op- in handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10–13 verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við böðun, hár- greiðslustofan opin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16.30 post- ulínsmálning, kl. 9–16 opin vinnustofa, kl. 13.30 söngtími. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Billjardsalurinn opinn frá kl. 13.30 til 16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Í dag: Brids í Ásgarði kl. 13. Laus sæti í Skaftafells- sýslur 27.–30. ágúst. Þeir sem eru skráðir þurfa að borga stað- festingargjald. S. 588 2111. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 10.30 helgi- stund, frá hádegi vinnustofur og spila- salur opinn, veitingar í Kaffi Bergi. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 9–15. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin kl. 9–17 virka daga, heitt á könn- unni. Hraunbær 105. Kl. 9 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morgunstund, kl. 10 fótaaðgerð og boccia- æfing, kl. 13 frjáls spil. Hvassaleiti 56–58. Kl. 10 boccia, 13.30 fé- lagsvist. Hársnyrting og fótaaðgerðir. Norðurbrún 1. Kl. 10– 11 ganga. Vesturgata. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 10–11 boccia. Minningarkort Samúðar- og heilla- óskakort Gídeon- félagsins er að finna í anddyrum eða safn- aðarheimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhúsinu, á skrif- stofu KFUM&K og víðar. Þau eru einnig afgreidd á skrifstofu Gídeonfélagsins, Vest- urgötu 40, alla virka daga frá kl. 14–16 eða í síma 562 1870. Allur ágóði fer til kaupa á Nýja testamentinu sem gefið verður 10 ára skólabörnum eða komið fyrir á sjúkra- húsum, hjúkrunar- heimilum, hótelum, fangelsum og víðar. Minningarspjöld Kristniboðssambands- ins fást á skrifstof- unni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gegnt Langholts- skóla), sími 588 8899. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálgast kortin í Kirkjuhúsinu, Lauga- vegi 31, Reykjavík. Líknarsjóður Dóm- kirkjunnar. Minning- arspjöld seld hjá kirkjuverði. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði, til styrkt- ar kirkjubyggingar- sjóði nýrrar kirkju í Tálknafirði eru af- greidd í síma 456 2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafnar- firði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. Minningarkort Ás- kirkju eru seld á eft- irtöldum stöðum: Kirkjushúsinu Lauga- vegi 31, þjónustu- íbúðum aldraðra við Dalbraut, Norðurbrún 1, Apótekinu í Glæsibæ og Áskirkju, Vesturbrún 30, sími 588 8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrifstof- unni, Holtavegi 28, í s. 588 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. Í dag er fimmtudagur 14. ágúst, 226. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.)     Jón Hákon Halldórssonfjallar um mögulega aðild Íslands að Evrópu- sambandinu og ummæli yfirmanns landbúnaðar- og sjávarútvegsmála hjá sambandinu í því sam- hengi. Hann telur um- mælin ekki gefa tilefni til bjartsýni hjá aðildar- sinnum.     Jón Hákon segir, í pistliá vefriti Heimdallar, frelsi.is: „Það er mik- ilvægt að talsmenn Evr- ópusambandsins á Ís- landi, hvar í flokki sem þeir standa, gæti raunsæ- is í umræðu um sam- bandið og mögulega kosti og galla við inn- göngu Íslands í það.     Einhverjir ættu þá aðhafa í huga orð Franz Fischlers, yfirmanns landbúnaðar- og sjáv- arútvegsmála Evrópu- sambandsins, sem kvaðst útiloka að Íslendingar geti haldið fullum yfir- ráðum yfir fiskimiðum sínum, gangi þeir í Evr- ópusambandið. Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær- kvöld var gerð ítarleg grein fyrir máli Fischlers á fyrirlestri og fyrir- spurnartíma sem hann hélt við Háskólann í Reykjavík í gærdag.     Hann sagði að gengjuÍslendingar í sam- bandið, þyrfti að semja um fiskveiðimál eins og annað. Í samtali við fréttamann sagði hann að útilokað væri að Íslend- ingar héldu fullum yfir- ráðum yfir 12–200 mílna landhelginni.     Þessar fullyrðingarFischlers eru auðvit- að þvert á það sem stuðn- ingsmenn aðildar að ESB hafa haldið fram en sum- ir þeirra hafa jafnvel full- yrt berum orðum að Ís- lendingar gætu samið um nánast hvað sem væri þegar að sjávarútvegs- málum kæmi. Aðrir, jafn- vel virðulegustu sjálf- stæðismenn, sem kjósa að tjá skoðanir sínar á óháð- um vefritum, hafa látið að því liggja að fisk- veiðistjórnunin skipti alls engu máli í umræðum um Evrópusambandið.     Frá stofnun lýðveldinshafa Íslendingar lagt sig alla fram um að tryggja sér yfirráð yfir íslenskri landhelgi og jafnvel háð baráttu vegna auðlindarinnar. Sjávarútvegur er enn sem komið er langmik- ilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar og afkoma okkar byggist að miklu leyti á henni. Þess vegna hlýtur það að skipta gríð- arlegu máli hvernig fisk- veiðistjórnun hér er hátt- að.     Íslendingar eiga aðhalda í yfirráð yfir þessari mikilvægu auð- lind en ekki færa þau í hendur embættismanna í Belgíu,“ segir Jón Hákon Halldórsson á frelsi.is. STAKSTEINAR Aðild að ESB og yfirráð yfir auðlindinni Víkverji skrifar... HVERT er hlutverk OrkuveituReykjavíkur? Víkverji getur ekki annað en velt þessari spurningu fyrir sér eftir að stjórn fyrirtækisins ákvað á þriðjudaginn að hækka gjaldskrá á heitu vatni um 5,8%. Þá var um einn og hálfur mánuður frá því gjaldskráin var hækkuð um 3,4% þannig að alls nemur hækkunin ríf- lega 9% í sumar. Síðasta hækkunin var réttlætt með því að dregið hafi úr notkun á heitu vatni með hækk- andi meðalhita og til þess að vega upp á móti lækkandi tekjum hafi verið þörf á að hækka gjaldskrána. Hækkunin er sem sagt ekki Orku- veitunni að kenna heldur veðrinu og okkur heitavatnsnotendum þar sem við kyndum húsin okkar ekki nægi- lega mikið. Það hlýtur að vera hlut- verk orkuveitu í eigu sveitarfélags, sem er þar að auki í einokunar- aðstöðu, að sjá viðskiptavinum sín- um fyrir eins ódýrri orku og mögu- legt er. Dragi úr notkun ætti fyrirtækið að fagna því að hægar gangi á náttúrulegar auðlindir og hvetja fólk til sparnaðar í stað þess að refsa með hækkun á gjaldskrá. Hækkandi hitastig á varla að koma orkuveitumönnum í opna skjöldu, þetta er þróun sem á sér stað á heimsvísu og hefur verið fjallað ít- arlega um í fjölmiðlum. Vel rekin orkuveita ætti því að hafa svigrúm til að bregðast við minnkandi notkun sem var a.m.k. þokkalega fyrir- sjáanleg. Það hefði t.d. verið mögu- legt að safna í sjóð. Víkverji er eng- inn sérfræðingur í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur en hann tel- ur sig geta fullyrt að það hafi þeir ekki gert. Þvert á móti þá hefur Orkuveitan lagt í miklar fjárfest- ingar á síðustu árum sem Víkverji skilur ekki alveg hvernig tengjast hlutverki fyrirtækisins. x x x VÍKVERJI ætlar ekki að svostöddu að fjalla um málefni Línu.Nets eða fyrirtækja því tengdu. Það er kappnóg að líta upp á Réttarháls til að sjá dæmi um fjár- festingu sem vart tengist hlutverki Orkuveitunnar og nýtist við- skiptavinum hennar tæplega. Þegar teikningar að höfuðstöðvunum voru kynntar árið 2000 átti húsið að kosta um 2 milljarða, í apríl 2002 var gert ráð fyrir 2,3 milljarða kostnaði og sex mánuðum síðar var hann kominn í 2,9 milljarða. Víkverji telur raunar óvíst að öll kurl séu komin til grafar í þessum efnum. Þetta eru engir smá- munir. Sérstaklega ef miðað er við að nýjasta gjaldskrárhækkun á að skila 70 milljónum til ársloka. Og til hvers þarf orkuveita í eigu almenn- ings að eiga flottustu höfuðstöðv- arnar í bænum? Viðskiptavinir eiga þangað sjaldan eða aldrei erindi og ekki þarf glæsibyggingar til að reka arðbært fyrirtæki. Víkverji telur því ljóst að húsið var ekki byggt fyrir viðskiptavini Orkuveitunnar. Þeir þurfa samt að borga reikninginn. Er þetta hlutverk Orkuveitu Reykjavík- ur? Morgunblaðið/Golli Eru ekki allir til í að borga? VIÐ vorum fjórir ellilíf- eyrisþegar, sem keyrðum til Skagastrandar um verslunarmannahelgina (sunnudag) og vonuðumst til að heyra góða kántrý- músík, en allri útidagskrá var lokið, þegar við kom- um um kl. 4. Svo að við kíktum inn í Kántrýbæ, eins og lög gera ráð fyrir. Þarna var fólk á ýmsum aldri og nokkrir karl- mannanna voru vel við skál. Við spurðum hvort ekki yrði einhver uppá- koma þarna um kvöldið. Stúlkan sagði að þar yrði ball með hljómsveit, sem hún vissi lítil deili á, en aldrei að vita nema Hall- björn kæmi og syngi nokkur lög. Við gengum þá út að skoða staðinn og komum aftur um kvöldið og feng- um okkur hefðbundinn hamborgara. Ég spurði hvort ég gæti fengið pilsn- er með. Pilturinn leit á mig í forundran og sagði Pilsner, nei. En þarna var nóg af sterkum bjór og áfengi. Það örlaði ekkert á hljómsveitinni, svo að við gengum upp á loft, en þar eru sófar og borð og í magnara heyrðist í Hall- birni kynna lögin á svæð- isrásinni. Þar settumst við niður og létum fara vel um okkur. Eftir u.þ.b. klukkustund heyrum við í ungri stúlku í stiganum, sem segir hátt og skýrt „Það er gamalt fólk hérna“ og fer svo niður aftur. Rétt á eftir blikka ljósin í loftinu, en síðan kemur önnur ung stúlka og segir, að því miður verði hún að biðja okkur að fara, en okkur sé vel- komið að setjast í stóra tjaldið utandyra, en þar var hvorki músík né ann- að, svo við svo búið yfir- gáfum við svæðið. Ég mundi vilja spyrja: Er bannaður aðgangur fyrir ellilífeyrisþega og bindindisfólk í Kántrýbæ? Að lokum viljum við þakka Soffíu og manni hennar fyrir frábærar móttökur á gistiheimili þeirra, sem var hreinlegt, þægilegt og ódýrt. 230932-5229. Tapað/fundið Gulur sími í gleðigöngu Á LAUGARDAG, Gay- pride-daginn, týndist gul- ur GSM-sími af Philips- gerð. Hans er sárt saknað og er skilvís finnandi vin- samlega beðinn að hafa samband í síma 551 3938 eða 551 0204. Lyklakippa á Laugavegi LYKLAKIPPA með mörgum lyklum á fannst fyrir utan vinnustofu neð- arlega á Laugavegi um helgina. Nánari upplýs- ingar í síma 552 1990. Dýrahald Veikar fyrir Potter TVÆR afar fallegar 9 vikna læður sem hafa gaman af Harry Potter fást gefins. Upplýsingar í síma 895 7471. Selfysskir kettir TÓLF vikna gamlir kett- lingar fást gefins. Þeir eru kassavanir og ljúfir dæmi- gerðir heimiliskettir, svartir, hvítir og gulir. Eins og vill verða með kettlinga eru nokkur ærsl í þeim en þeir eru kelnir fyrir því. Kettirnir eru sem stendur búsettir á Selfossi en af selfysskum köttum fer ágætis orð- spor. Vilji einhver taka einhvern þessara ágætu kettlinga að sér má sá hinn sami hringja í síma 482 1396. Mali er týndur KÖTTURINN Mali hvarf af heimili sínu í byrjun júní. Mali er rúmlega tveggja ára, afskaplega gæfur og góður köttur, hvítur og svartur og nokk- uð háfættur enda síams- blandaður en hann haltr- ar. Hann er eyrnamerktur R1163 og þegar hann hvarf var hann með bláa ól og köflóttan klút um hálsinn, enda gæi. Þeir sem vita um hann mega hringja í síma 894 5282. Finnum Birtu LÆÐAN Birta er týndist frá heimili sínu að Fella- smára 1, Kópavogi, laug- ardaginn 5. júlí sl. Birta er með græn augu og eina brotna vígtönn, eyrna- merkt en ber enga ól. Hún er 10 ára gömul og er mjög mannelsk. Fólk er vinsamlegast beðið að líta í bílskúra og geymslur. Birtu er sárt saknað og vilja eigendur hennar vita hvort hún er lífs eða liðin. Þeir sem hafa upplýsingar um Birtu hringi í síma 564 2001, 690 3920 eða 820 7055. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Vandræði eldri borg- ara á Kántrýbæ LÁRÉTT 1 settur hjá, 8 korn, 9 fróð, 10 rödd, 11 hagn- aður, 13 dimma, 15 hol- ur,18 safna saman, 21 fugl, 22 þvoi, 23 skellur, 24 vafamáls. LÓÐRÉTT 2 kona, 3 bragðvísar, 4 drengs, 5 fiskar, 6 rán- fugl, 7 spotti, 12 ýlfur, 14 snák, 15 hrósa, 16 dug- legur, 17 dylgjur, 18 litlum, 19 stétt, 20 kjáni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kjúka, 4 þokar, 7 eðlan, 8 kumls, 9 auk, 11 kúts, 13 fráa, 14 larfa, 15 strý, 17 rakt, 20 ótt, 23 pukur, 23 ennið, 24 næðið, 25 tóman. Lóðrétt1 kverk, 2 útlát, 3 arna, 4 þykk, 5 kamar, 6 ræsta, 10 umrót, 12 slý, 13 far,15 súpan, 16 rokið, 18 af- nám, 19 taðan, 20 óráð, 21 tekt. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.