Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 39

Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 39 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú hefur kröftugt fas og leiðtogahæfileika. Þú sýnir einbeitta og ráðríka fram- komu við aðra og greinir kjarnann fljótt frá hisminu. Þú gerir oft miklar vænt- ingar til sjálfs þín. Spenn- andi ár er framundan. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Síðan 1996 hefurðu verið að endurskilgreina þig á ýmsa vegu. Nú verðurðu að gera upp við þig hver staðan er heima- fyrir og hverju þú vilt bindast. Naut (20. apríl - 20. maí)  Síðan 1999 hefur lífið verði undarlegt. Reyndu að fá tíma í einrúmi til að velta vöngum yfir breytingum á starfi eða búsetu sem framundan kunna að vera. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ræddu við vin í dag, máski vinkonu, um verðmætamat þitt. Það mun draga úr streitu- álagi ef þú veist hvar þú stend- ur varðandi mikilvæg mál. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Enn þarf að hnýta nokkra lausa enda varðandi fasteignir og önnur verðmæti sem þú deilir með öðrum. Nú er rétti tíminn fyrir slíkt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Tungl hrútsins er rísandi í sól ljónsins í dag. Gerðu eitthvað óvenjulegt í dag. Þig þyrstir í spennu og nýjan fróðleik. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Sinntu bankamálum og skatta- málum í dag. Reyndu að skýra óskýr smáatriði. Þér mun líða betur þegar færri hlutir bíða afgreiðslu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Í dag er tunglið í andstöðu við stjörnutákn þitt. Það merkir að áríðandi er að ræða við aðra en þú verður hins vegar að sýna mikla tillitsemi og gefa mikið eftir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Í dag mun þér reynast auðvelt að koma miklu í verk. Kven- kyns vinnufélagar geta reynst sérstaklega hjálplegir. Treystu á innsæi þitt í dag. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn í dag hentar mjög vel til að skemmta sér, daðra og glensa. Gættu þess að taka frá tíma fyrir eitthvað létt sprell í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Æskuminningar gætu flotið upp á yfirborðið í dag í sam- ræðum við aðra. Hvort sem þú vilt tjá þig um það eða ekki er algjörlega undir þér komið. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nú er góður tími til að versla, fara í stuttar ferðir og ræða við kollega. Að skiptast á ein- hverju við systkin getur verið sérstaklega umbunandi. Fólki er nokkuð heitt í hamsi í dag og til í rökræður. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft tvímælalaust að stunda meiri líkamsrækt. Spenna hefur verið að byggj- ast upp innra með þér og hún þarf að fá útrás einhvers- staðar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. STÖKUR Sunna háa höfin á hvítum stráir dreglum. Veröld má sinn vænleik sjá í vatna bláum speglum. Sólin klár á hveli heiða hvarma gljár við baugunum. Á sér hár hún er að greiða upp úr bárulaugunum. Dagsins runnu djásnin góð, dýr um hallir vinda. Morgunsunnu blessað blóð blæddi um fjallatinda. Dýrin víða vakna fá, varpa hýði nætur. Grænar hlíðar glóir á, grösin skríða á fætur. Hreiðrum ganga fuglar frá, flökta um dranga bjarga, sólar vanga syngja hjá sálma langa og marga. Sigurður Breiðfjörð LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60ÁRA afmæli. BjarniGuðmundsson, kenn- ari á Hvanneyri, verður sex- tugur mánudaginn 18. ág. nk. Hann og fjölskyldan bjóða frændfólki og vinum til kvöldhressingar og söngva í matsal Landbúnaðarháskól- ans á Hvanneyri laugardag- inn 16. ág. kl. 20–24. SUÐUR er gjafari og þagg- ar niður í öllum við borðið með opnun á fimm laufum: Norður ♠ ÁKG54 ♥ 92 ♦ G87 ♣K87 Suður ♠ 732 ♥ K4 ♦ -- ♣ÁDG109643 Útspil vesturs er tígul- kóngur. Hver er áætlunin? Blindur kemur þægilega á óvart og það gæti jafnvel unnist slemma ef vestur á spaðadrottningu. En verk- efnið sem við blasir er að tryggja 11 slagi í slæmri legu, það er að segja, þegar austur er með spaðadrottn- inguna valdaða og vestur hjartaásinn: Norður ♠ ÁKG54 ♥ 92 ♦ G87 ♣K87 Vestur Austur ♠ 96 ♠ D108 ♥ Á873 ♥ DG1065 ♦ KD1063 ♦ Á9542 ♣52 ♣– Suður ♠ 732 ♥ K4 ♦ – ♣ÁDG109643 Það þarf ekki að hafa um það mörg orð, sagnhafi tap- ar spilinu ef hann trompar fyrsta slaginn! Austur kemst óhjákvæmilega inn á spaðadrottningu til að spila hjarta í gegnum kónginn. Svarið við þessari hættu er að henda spaða í tígul- kónginn og fría svo spaðann með trompun. Það væri góð tilraun hjá austri að yfir- drepa tígulkónginn, en það dugir ekki til. Suður tromp- ar, spilar blindum inn á lauf, síðan tígulgosa og hendir spaða. Sama niðurstaða. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 d5 2. c4 Bf5 3. cxd5 Bxb1 4. Da4+ c6 5. Hxb1 Dxd5 6. e3 Rd7 7. Bd2 Rgf6 8. Rf3 Df5 9. Hc1 e6 10. Db3 Hb8 11. Bd3 Dh5 12. 0-0 Bd6 13. Bb4 Bc7 14. e4 g5 15. e5 Rd5 16. Hfe1 Rf4 17. Bf1 Hg8 18. Rd2 Bb6 19. Re4 Bxd4 20. Hcd1 Bxe5 21. Rd6+ Bxd6 22. Bxd6 b6 Staðan kom upp í stórmeistaraflokki alþjóðlegs skákmóts í Árósum í Dan- mörku sem lauk fyr- ir skömmu. Davor Palo (2.510) hafði hvítt gegn Rasmus Skytte (2.404). 23. Bxf4! gxf4 24. Hxe6+ fxe6 25. Dxe6+ Kf8 26. Hxd7 Hg5 27. Dd6+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman hjá Sýslumanninum í Reykjavík hinn 14. júní sl. þau Naira Voskanian og Raim- ond Maciavskas. Heimili þeirra er að Hraunbæ 107, Reykja- vík. Ljósmynd/Svipmyndir, Fríður Eggertsdóttir ÞESSAR brosmildu vinkonur söfnuðu á tombólu til styrkt- ar SOS-barnaþorpunum 3.100 kr. Þær heita Magnea, Andrea og Dagmar. Morgunblaðið/Sigríður HLUTAVELTA Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Útsala Útsala Útsala COS Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575Og eitt í viðbót! Þú kannt ekki að taka tapi!! Bankastræti 3, sími 551 3635, www.stella.is Frábærar ítalskar förðunarvörur MAKE UP MILANO

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.