Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 43
Opna Sparisjóðsmótið í golfi verður haldið laugardaginn
16. ágúst hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði
Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni. Hámarksgefin forgjöf 18
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir fyrstu 6 sætin
1. sæti að verðmæti kr. 40 þús.
2. sæti að verðmæti kr. 30 þús.
3. sæti að verðmæti kr. 25 þús.
4. sæti að verðmæti kr. 15 þús.
5. sæti að verðmæti kr. 10 þús.
6. sæti að verðmæti kr. 10 þús.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum • Dregið verður úr skorkortum í mótslok
Ræst út frá kl. 8:00 • Mótsgjald kr. 3000 • Skráning í síma 565 3360 og á golf.is
Sparisjóðsmótið
Golfklúbbur Selfoss stendur fyrir Opna Precept mótinu
laugardaginn 16. ágúst.
Mótið er höggleikur með og án forgjafar.
Hæsta gefinn grunnforgjöf er 24.0 sem gerir 28 í vallarforgjöf.
Verðlaun veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki
auk mælingarverðlauna.
Rástímar frá kl. 8.30–10.30 og frá kl. 13.20–14.30.
Upplýsingar og skráning í síma 482 3335 á skrifstofutíma
og á golf.is. Mótsgjald 2.500.
Golfklúbbur Selfoss, Svarfhólsvelli.
Opna
PRECEPT-mótið
FÓLK
PÉTUR Marteinsson lagði upp
mark með glæsilegri sendingu þegar
Stoke City gerði sér lítið fyrir og sigr-
aði Englandsmeistara Manchester
United, 3:1, í ágóðaleik á Britannia-
leikvanginum í Stoke í gærkvöld. Það
var Marc Goodfellow, fyrrverandi
leikmaður ÍBV, sem fékk boltann frá
Pétri og skoraði hjá Fabian Barthez
en Goodfellow skoraði tvö mörk í
leiknum. Það þriðja gerði Chris Iwel-
umo en Diego Forlan skoraði fyrir
Manchester United, jafnaði þá 1:1.
BARTHEZ þótti ekki sannfærandi
í markinu hjá United og á erfiða bar-
áttu fyrir höndum um stöðuna við
hinn bandaríska Tim Howard sem
hefur leikið mjög vel að undanförnu.
Barthez fékk hinsvegar á sig þrjú
mörk annan leikinn í röð. Í lið Man-
chester United vantaði þá Ruud van
Nistelrooy, Paul Scholes, Rio Ferdin-
and, Ryan Giggs og Roy Keane.
TODI Jónsson, færeyski sóknar-
maðurinn, tryggði FC København
dýrmætt jafntefli gegn Glasgow
Rangers á útivelli, 1:1, í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Daninn Peter Lø-
venkrands kom Skotunum yfir áður
en sá færeyski jafnaði fyrir Danina.
OLIVER Kahn, landsliðsmark-
vörður Þjóðverja í knattspyrnu, er af-
ar rólegur yfir þeirri staðreynd að öll
fjögur skotin sem Bæjarar hafa feng-
ið á sig í fyrstu tveimur leikjum sínum
í 1. deildinni hafa ratað í netið. „Þetta
er bara tölfræði en í lok tímabilsins
verður þetta líkt og áður. Ég á eftir að
fá fæst mörk á mig,“ sagði Kahn eftir
æfingu Bæjara í gær.
BAYERN sigraði Frankfurt, 3:1, í
fyrstu umferðinni og gerði 3:3 jafn-
tefli við Hannover í 2. umferðinni.
Ég vissi ekki að þetta væri marknúmer 200,“ sagði Olga kampa-
kát eftir að Morgunblaðið hafði fært
henni fréttirnar.
„Markið var ágætt,
góð fyrirgjöf og gott
að það var skalla-
mark. Ég vissi að
mörkin voru 198 fyrir nokkrum leikj-
um en svo gleymdi ég að telja. Það er
gott að það er í höfn og nú er bara að
byrja að telja upp að næsta hundr-
aði. Þetta breytir svo sem engu fyrir
mig en það er alltaf ánægjulegt að
skora tímamótamark. Ég er alltaf
grimm í að skora og það er alltaf
gaman þegar það tekst.“
Hún sagði bikarúrslitaleikinn við
Val næsta sunnudag hafa haft áhrif á
þennan leik. „Fyrri hálfleikur bar
þess merki að við ættum mikilvægan
leik á sunnudaginn. Við lögðum upp
með að hugsa ekkert of mikið um
þann leik en vitaskuld er það í undir-
meðvitundinni og það bar á stressi
og agaleysi í fyrri hálfleik. Við náð-
um síðan að spýta í lófana eftir hlé og
í heildina fannst mér við betra liðið á
vellinum með undirtökin allan tím-
ann. Við fengum nokkur færi fyrir
hlé og enn fleiri eftir hlé,“ bætti Olga
við, ánægð með að eiga enn von um
að skáka KR á toppnum.
„Við verðum að treysta á að KR
misstígi sig og að við vinnum okkar
leiki svo það var lykilatriði að sigra í
dag. Nú getum við haldið áfram af
fullum krafti en tap hefði gert sum-
arið endasleppt og leikirnir ekki
skipt neinu máli.“
Fyrstu mínúturnar voru Blika-
stúlkur aðgangsharðari en fljótlega
brá af gestunum úr Eyjum, hægt og
bítandi færðu þeir sig framar á völl-
inn. Blikar fengu þó eitt færi á 19.
mínútu þegar Greta Mjöll Sam-
úelsdóttir slapp í gegnum vörn ÍBV
en skaut rétt framhjá. Það dugði til
að koma Eyjastúlkum í gang og mín-
útu síðar gaf Lind Hrafnsdóttir bolt-
ann upp hægri kant á Elenu Ein-
isdóttur sem gaf fyrir inn í markteig
þar sem Olga skallaði boltann af ör-
yggi í netið. Mínútu síðar small bolt-
inn í slá Blika eftir aukaspyrnu Kar-
en Burke. Fleiri umtalsverð færi létu
bíða eftir sér en Eyjastúlkur sofnuðu
á verðinum þegar Greta Mjöll gaf
inn fyrir vörn þeirra á Ólínu G. Við-
arsdóttur, sem jafnaði leikinn, 1:1.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks
voru Blika og Rachel Brown, mark-
vörður ÍBV, varði gott skot Gretu en
það var síðasta færi Breiðabliks. Eft-
ir það fóru Eyjastúlkur að vanda
meira til sókna sinna, halda boltan-
um og sýna þolinmæði. Það skilaði
mörgum færum og þremur mörkum
Karenar Burke, fyrst þegar Olga gaf
fyrir og síðan tveimur eftir góðan
undirbúning Margrétar Láru Við-
arsdóttur.
„Við náðum ekki að halda út leik-
inn,“ sagði Dúfa Ásbjörnsdóttir,
markvörður Breiðabliks. „Þær nýttu
sín færi en við ekki þótt við fengjum
fullt af þeim. Það átti að vera alveg
nóg að fá á sig eitt mark til að kom-
ast af stað en það gerðist ekki, kæru-
leysið var of mikið.“
KR nálgast titilinn
Það var ekki mikið ris á meist-araefnum KR þegar þær sóttu
Þór/KA/KS heim til Akureyrar. Þær
gerðu þó nóg til að
sigra 2:1 en baráttu-
glaðar norðanstúlk-
ur hefðu með örlítilli
heppni getað fengið
eitthvað út úr leiknum. Nú þarf KR
varla nema sigur í öðrum af leikjum
sínum til að tryggja sér titilinn.
KR komst yfir í uppbótartíma
fyrri hálfleiks, fékk þá vítaspyrnu er
Ásthildur féll í markteignum um-
kringd varnarmönnum Þórs/KA/KS
og úr henni skoraði Ásthildur af ör-
yggi. KR bætti við marki snemma í
síðari hálfleik en þar var Hólmfríður
Magnúsdóttir að verki.
Hugsanlega hafa KR-stúlkurnar
talið ísinn brotinn og ætlað að raða
inn mörkum en annað kom á daginn
því norðanstúlkur svöruðu strax í
næstu sókn. Guðrún Soffía Viðars-
dóttir hirti þá boltann af varnar-
manni og sendi hann í boga yfir Þóru
Helgadóttur. KR-stúlkurnar voru
síðan sterkari aðilinn það sem eftir
lifði leiksins og áttu þær nokkur
færi. Sandra varði þó allt sem á
markið kom en tvívegis söng boltinn
í markslánni.
Morgunblaðið/Kristinn
Olga Færseth skorar 200. mark sitt í efstu deild á Kópavogsvellinum í gærkvöld, skallar boltann í
mark Breiðabliks án þess að Eva Sóley Guðbjörnsdóttir komi vörnum við.
OLGA Andrea Færseth varð í gærkvöld fyrsti íslenski knatt-
spyrnumaðurinn sem skorar 200 mörk í efstu deild þegar Eyja-
stúlkur lögðu Breiðablik örugglega að velli með 4:1 sigri á Kópa-
vogsvelli. Olga braut ísinn með fyrsta marki ÍBV í leiknum.
KR-stúlkur halda samt enn efsta sæti deildarinnar eftir 2:1 sigur á
Þór/KA/KS fyrir norðan en Valsstúlkur eygja enn von um að ná þeim
eftir 6:0 sigur á Haukum/Þrótti. Stjarnan vann FH 5:2 í Kaplakrika
og er með því nánast sloppin úr fallhættu.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Einar
Sigtryggsson
skrifar
Olga Færseth skor-
aði 200. markið