Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 49

Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 49
skoða sig um í viku á meðan þeir dvelja hér, kíkja í Bláa lónið o.fl. Með TDF kemur The Motherf***ing Clash sem er eins manns sveit Caroline nokkurrrar, sem er unnusta áður- nefnds Hoak. Leikur hún á kassagítar. Tónleikarnir TDF leika á Boomkikker í kvöld ásamt Dys og Ríkinu. Ókeypis inn. Á föstudagskdvöldið leika þeir á Grand Rokk ásamt The Motherf***ing Clash, Forgarði Helvítis, Kimono og Anger- means. Miðaverð 200 kr. Á laugardaginn leika TDF og The Mother- f***ing Clash í Hinu húsinu kl. 19.00 vegna Menningarnætur. Mjög svo sérstakir leynigestir koma og fram á þeim tónleikum. HÉRLENDIR tónlistaráhugamenn sem aðhyll- ast rokk af þyngstu gerð hafa verið duglegir undanfarin misseri að flytja inn sveitir sem leika myljandi brjálað þungarokk þar sem keyrsla og hávaði fer fram úr öllu valdi. Það má því kalla það hvalreka að fá „grindcore“ sveitina Total F***ing Destruction hingað til lands en stofn- andi hennar er trymbillinn Rich Hoak sem lamdi eitt sinn húðir í hinu goðsagnakennda mulnings- bandi Brutal Truth. Total F***ing Destruction er þriggja manna sveit og spilar, eins og nafnið gefur til kynna, ansi magnaða blöndu af „grind- core“ og keyrslurokki með næsta súrrealískum vinkli. TDF koma hingað á eigin vegum og ætla Total F***ing Destruction á Íslandi Brjálæði! MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 49 SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 70% SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR! FIMMTUDAG - FÖSTUDAG OG LAUGARDAG Síðustu forvöð til að gera góð kaup !!!! (Lokum mán. 18. ágúst - opnum aftur fimmtud. 21. ágúst) NÝTT KORTATÍMABIL KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.10 ára. AKUREYRI Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 10 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. KRINGLAN Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 10 ára. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10. Stórsmellur úr smiðju Jerry Bruckheimer og Disney sem stefnir hraðbyri að vera vinsælasta mynd sumarsins í USA. 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! í f i t tl ! SG. DVSG. DVÓ.H.T Rás2 KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  MBL  SG DVSG DV MBL KVIKMYNDIR.IS KVIK YNDIR.CO ÓHT RÁS 2 Meginmálið (Det Største i verden/ The Greatest Thing) Drama Noregur 2001. Skífan. VHS (114 mín.). Leyfð öllum aldurshópum. Leikstjóri: Thomas Robsahm. Aðalleikendur: Herborg Kråkevik, Thom- as Hanzon, Kristi Stubö, Jesper Langber. RITVERKIÐ Fiskerjenten, um sjómannsdótturina Petru (Kråke- vik), eftir Björnstjerne Björnson er sjálfsævisögulegt uppgjör norska skáldjöfursins við æskuár sín í ein- angruðu fiski- plássi á vestur- ströndinni. Áður en hann lagði land undir fót og hlaut frægð og frama úti í umheiminum. Eins er bókin merkur kafli á rithöfundarferli Björnsons sem hafði fram að Fisk- erjenten fjallað um bændasam- félagið og sveitalíf og skáldinu nauðsyn að færa út landamærin. Rétt eins og Petru, ungri og lífs- þyrstri stúlku, þrunginni sköpun- argáfu sem þráir útrás í grárri til- veru sjávarþorpsins. Í myndarbyrjun er hún hrakin á braut, áhorfendur vita ekki ástæð- urnar fyrr en í lokin, en þær og dulúðin varðandi fortíð stúlkunnar eru léttvægar í táknrænni sögu um óhefta sál sem þráir frelsið og listina. Sættir sig ekki við hlut- skipti sitt og nær settu marki. Óneitanlega er þroskasaga Petru og atburðarásin dálítið reyfara- kennd í ofurraunsæi samtímans en sagan er heillandi og Petra er minnisstæð í túlkun Kråkevik. Aðr- ar persónur sem skipta máli eru nánast tvær, danski presturinn sem tekur hana í fóstur (Hanzon), og Signe (Stubö), dóttir hans, líf- gjafar Petru á hennar merkilegu sigurgöngu. Bókin (og myndin) er óvenju feminísk, þegar haft er í huga að hún er skrifuð á sjöunda áratug 19. aldar. Uppreisnin gegn umhverfinu og þroskasagan er óháð tíma, líkt og ádeilan á fáfræði og afdalamennsku. Kvikmynda- gerðin er vönduð og heilsteypt, þar sem sannfærandi búningar Karls Júlíussonar og leikmyndir skipa stórt hlutverk, leikararnir traustir og upplifunin ánægjuleg.  Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Sigur andans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.