Morgunblaðið - 16.09.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.09.2003, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 7 LÍFSÝNARANNSÓKNIR eiga að gefa af sér nauðsynlegar upplýsing- ar í þágu almennings en ekki vera byggðar upp sem gróðastarfsemi. Þetta segir David Winickoff, aðstoð- arlektor við John F. Kennedy School of Government við Harvard-háskóla, sem hélt erindi á vegum Mannvernd- ar nú á dögunum. „Ákjósanlegast væri ef fólk gæfi blóð og læknisfræðilegar upplýsing- ar til aðila að eigin vali. Þeim aðilum bæri síðan skylda til að láta almenn- ing njóta góðs af þeim rannsóknum sem fram færu,“ segir Winickoff. „Ef lífsýnarannsóknir væru byggðar upp á slíkan hátt, skref fyrir skref, myndi það laða að bæði rannsóknarmenn og fjárfesta. Koma ætti upp sér- stakri nefnd um slíkar rannsóknir sem semdi um sameiginlegan eign- arrétt á þeim uppgötvunum sem þær leiddu í ljós. Þetta myndi einnig hjálpa til við að fjármagna uppbygg- ingu rannsókna.“ Ofangreindar hugmyndir voru meðal þess efnis sem Winickoff kynnti Íslendingum í erindi sínu um nýjar leiðir við lífsýnarannsóknir og rekstur lífsýnabanka. Telur hann að hér hefði getað blómstrað iðnaður á sviði slíkra rannsókna, en segir að sú einokun deCODE sem hér virðist ríkja hafi útilokað slíkt. Hvað varðar lífsýnarannsóknir framtíðarinnar segir Winickoff: „Það er mikilvægast að upplýsa fólk nánar um það sem fram fer í lífsýnarannsóknum víða um heim í dag. Á slíkum rannsókn- um eru margir vankantar sem fólk veit ekki af. Við erum á leið inn í tíma þar sem líkaminn er lagður til jafns við veraldlegar eignir eins og geisla- diska og þvíumlíkt. Fólk verður að fylgjast vel með og afla sér upp- lýsinga, annars heldur óæskileg starfsemi lífsýnarannsókna áfram. Það getur leitt til enn meiri misnotk- unar sem er mjög alvarlegt. Þetta verður fólk að hafa í huga og hugsa í þessu sambandi til framtíðar og komandi kynslóða.“ Lífsýnarannsóknir í þágu almennings Íslendingar höfðu tækifærið, segir bandarískur lektor ÞAÐ var fremur kalt víða um land í gærmorgun og margir töluðu um fyrsta „alvöru“ haustdaginn þar sem notast varð við vettlinga og jafnvel húfu. Veðrið var þó fallegt yfir daginn og sólin skein og vindur lét vera að blása. Það var því kjörið veður til að lesa Morgunblaðið úti við og það gerði þetta par í miðbæ Reykjavíkur. Morgunblaðið/Ásdís Lesið undir haustsól                                                                                    !    "                   #           $                             % &            $ &      ' (  )  %         &    ! * +          * ,                &  * -        * (     %        * .           #      # !   ! // $ #0/   "    12  '  01344#/4344       ,  352444             !"#$ % & '   !"#$""   () Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2003, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2003 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2003 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru: Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. september 2003. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.