Morgunblaðið - 16.09.2003, Síða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#
$
%&
'( )*
+
'!( ! ,(
+(
! (
- (
./0%1/..2-(- -
' 3 !- (,
'(
.&
2 -
-
(,!---
(,'
( , -
,
$
-3
45 )(
,
32 ! &3.&6(7'
8 - , -
-
-
( ,
45)(
999,
!"#! $% &'( )!*+!! ,( )!*+!#---
FERÐAKAUPSTEFNAN Vest-
norden, sem Ferðamálaráð Íslands,
Færeyja og Grænlands hafa staðið
að í tæpa tvo áratugi, hófst í Fær-
eyjum í gær og stendur til miðviku-
dags. Á kaupstefnunni, sem haldin
er til skiptis í löndunum þremur,
kynna aðilar í ferðaþjónustu starf-
semi sína og áætlanir.
Um 115 seljendur skráðu sig til
þátttöku í kaupstefnunni, flestir frá
Íslandi. Þá hafa um 90 kaupendur til-
kynnt komu sína. Flestir þeirra
koma frá Danmörku, Þýskalandi,
Bandaríkjunum Hollandi, Svíþjóð og
Frakklandi. Einnig eru skráðir
kaupendur frá Belgíu, Bretlandi,
Kanada, Eistlandi, Færeyjum, Finn-
landi, Grænlandi, Íslandi, Ítalíu,
Kanada, Noregi, Póllandi, Spáni,
Sviss og alla leið frá Ástralíu.
Ferðakaup-
stefnan Vest-
norden sett
í Færeyjum
LYF & heilsa hafa fest kaup á Dal-
víkurapóteki sem hóf starfsemi 1.
september 1963. Óli Þór Ragnarsson
lyfsali mun áfram verða lyfsali í Lyfj-
um & heilsu Dalvík eins og undanfar-
in ár. Þá munu Lyf & heilsa áfram
reka útibú á Ólafsfirði og í Hrísey
eins og Dalvíkurapótek hefur gert.
Í dag reka Lyf & heilsa 31 lyfja-
verslun undir vörumerkjunum Lyf &
heilsa og Apótekarinn. Þar af eru 19
á höfuðborgarsvæðinu, 5 á Suður-
landi, 5 á Norðurlandi, 1 á Vestur-
landi og 1 á Suðurnesjum.
Lyf & heilsa
kaupa Dalvík-
urapótek
SEX íslensk fyrirtæki voru val-
in til þátttöku á norrænu fjár-
festingar-
þingi sem
hefst í dag í
Kaupmanna-
höfn.
Fyrirtæk-
in sex eru
lyfjafyrir-
tækið
Lyfjaþróun,
líftæknifyr-
irtækið
Prokaria, hugbúnaðarfyrirtækið
Hex, hönnunar og skipulags-
stofan Teikn á lofti, tæknifyr-
irtækið Framtíðartækni og hug-
búnaðarfyrirtækið LH-Tækni.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Þórólfur Árnason, verður einn
af aðalræðumönnum fjárfesting-
arþingsins, sem stendur í tvo
daga.
Að sögn Helgu Valfells hjá
Útflutningsráði, sem tekur þátt
í skipulagningu fjárfestingar-
þingsins, var 40 norrænum fyr-
irtækjum boðin þátttaka. Hún
segir að þetta sé í fyrsta skipti
sem samnorrænt fjárfestingar-
þing er haldið en framtaksfjár-
festar hvaðanæva úr Evrópu
munu kynna sér starfsemi þess-
ara fjörutíu norrænu fyrirtækja
sem þátt taka.
Hún segir þingið góða leið
fyrir fyrirtækin að kynna starf-
semi sína og komast í samband
við framtaksfjárfesta. Hins veg-
ar sé óvíst að samningar takist
milli fjárfesta og fyrirtækja en
nauðsynlegt sé að koma á sam-
bandi þeirra á milli.
Auk íslensku fyrirtækjanna
munu fulltrúar Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins og Líftækni-
sjóðsins taka þátt í fjárfesting-
arþinginu auk fleiri íslenskra
aðila.
Íslensk fyrirtæki
á norrænu fjár-
festingarþingi
Þórólfur Árnason
MANCHESTER United kvað í gær í
kútinn frásagnir síðustu daga í ensk-
um fjölmiðlum um að ekki færri en
þrír milljarðamæringar væru að
undirbúa yfirtökutilboð í félagið.
Í frétt BBC er það haft eftir tals-
manni félagsins að enginn hafi haft
samband við félagið í þessum er-
indagjörðum og frásögnin sé því
getgátur einar.
Í gær sendi félagið síðan yfirlýs-
ingu til Kauphallarinnar í London til
að staðfesta að engin yfirtökutilboð
væru á borði félagsins.
Vangaveltur um hugsanleg kaup
auðmanna á knattspyrnufélögum í
ensku úrvalsdeildinni hafa fengið
byr undir báða vængi eftir að rúss-
neski milljarðamæringurinn Roman
Abramovitz keypti úrvalsdeildar-
liðið Chelsea í júlí sl. Síðan þá hefur
t.d. Aston Villa átt í viðræðum við
milljarðamæring frá Venezuela,
samkvæmt frétt BBC.
Í frásögn breska blaðsins Observ-
er af áhuga milljarðamæringanna
þriggja á Manchester United segir
að allir hafi þeir sótt sér upplýsingar
um hve mikið það kostaði í raun að
kaupa félagið.
Blaðið nefnir ekki neinn aðilanna
þriggja en segir að þeir séu allir
álíka ríkir ef ekki ríkari en Roman
Abramovitz.
Engin yfir-
tökutilboð
Reuters
Manchester United er sigursælt knattspyrnulið.
Manchester United
Hljómplötufyrirtækið
Apple Corps, sem er í
eigu Bítlanna Paul
McCartney, Ringo
Starr og ekkna John
Lennon og George
Harrison, hefur höfðað
mál á hendur Apple-
tölvufyrirtækinu vegna
nota þess á Apple-nafn-
inu og Apple-vöru-
merkinu til að mark-
aðssetja tónlist á
netinu.
Hljómplötufyrirtækið
segir að iTunes tónlist-
arverslun Apple-tölvu-
fyrirtækisins á Netinu,
gangi í berhögg við
samkomulag á milli fyr-
irtækjanna tveggja sem
gert var árið 1991.
Samkvæmt frétt
BBC er þetta ekki í fyrsta skiptið
sem fyrirtækjunum tveimur lendir
saman.
„Því miður hafa Apple og Apple
Corps mismunandi skilning á
hvernig túlka beri samkomulagið og
verða því að leita til dómstóla til að
útkljá málið,“ sagði Katie Cotton
hjá Apple-tölvum í frétt BBC.
Apple Corps krefst skaðabóta og
lögbanns til að knýja fram að
ákvæði samningsins verði haldin.
iTunes-þjónustan býður notend-
um að velja á milli meira en 200.000
laga og hefur selt 10 milljón lög síð-
an þjónustan fór í loftið í apríl sl.
Þjónustan er einungis í boði í
Bandaríkjunum og fyrir Apple
Macintosh-tölvur en Windows-út-
gáfa er væntanleg í lok ársins.
Reuters
Apple og Apple
deila vegna iTunes
MSB 2003 er markaðs- og stefnu-
mótunarkeppni sem fer fram á milli
íslensku viðskiptaháskólanna fimm
nú í septembermánuði. Það er Við-
skiptaháskólinn á Bifröst sem er
gestgjafi og skipuleggjandi keppn-
innar og eru öll sæti þátttakenda
fullskipuð. Næstu tvær vikur munu
tuttugu fjögurra manna lið etja
kappi í gegnum sýndarveruleika þar
sem þau munu reka fyrirtæki sín
sem samsvarar átta hefðbundnum
rekstrarárum.
Staðan að loknu fyrsta rekstrarári
er eftirfarandi: Lið nr. 1 frá Háskól-
anum í Reykjavík leiðir markað AA.
Lið 1 frá Háskólanum á Akureyri er
fremst á markaði BB. Lið númer 3
frá Tækniháskóla Íslands í farar-
broddi á markaði CC. Lið 5 frá Há-
skólanum í Reykjavík leiðandi á
markaði DD. Úrslitin í keppninni
ráðast síðustu helgina í september
en sigurliðið ávinnur sér rétt til þátt-
töku fyrir hönd Íslands í alþjóðlegri
keppni viðskiptaháskóla sem fram
fer í Winnipeg í Kanada í janúar
næstkomandi.
Keppnin
MSB 2003
hafin
!"
!
" !"
#$#%
!!
%&!
'
$ "
((
%&
!"
&% %$
&&!#
& &#$
&&#
$#%!"$
'
$ "
))
!"
!"!%
%##
#
$ %#
%#%
'
$ "
**
!"
%&!
##%&
%
&!
#$"#"
'
$ "
++