Morgunblaðið - 16.09.2003, Síða 20
NEYTENDUR
20 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
hvað segir fólkið?
ÓVENJU mikill verðmunur er milli
verslana á ávöxtum og grænmeti,
samkvæmt niðurstöðum mánaðar-
legrar verðkönnunar Samkeppnis-
stofnunar. Segir stofnunin verðmun
milli verslana hafa verið mikinn í
könnuninni í ágúst og svo sé einnig
nú.
Samkeppnisstofnun hefur frá því í
febrúar 2002 gert mánaðarlegar
verðkannanir á grænmeti og ávöxtum
til þess að fylgjast með verðþróun á
þessum vörum.
Lækkun á eplum,
banönum og perum
„Þegar meðalverð á ávöxtum er
skoðað kemur í ljós að þróunin hefur
verið sú að meðalverð á flestum al-
gengum ávaxtategundum hefur
lækkað verulega frá því í febrúar
2002. Eins og sjá má í línuriti hefur
meðalverð á appelsínum, banönum,
rauðum og grænum eplum og perum
lækkað um meira en 20% á þessu
tímabili,“ segir Samkeppnisstofnun.
Fram kemur að meðalverð á mörg-
um tegundum grænmetis hafi einnig
lækkað, en erfiðara sé að átta sig á
þróun grænmetisverðs vegna árstíða-
bundinna sveiflna í verði. „Eins eru
íslenskar og innfluttar grænmetisteg-
undir á boðstólum í verslunum til
skiptis,“ segir enn fremur.
Verð á agúrkum lækkaði snarlega
eftir niðurfellingu tolla í febrúar 2002,
en hefur farið upp á við. Þó er það enn
mun lægra en fyrir afnám tolla. „Verð
á tómötum sýnir hins vegar verð-
breytingar sem eru dæmigerðar fyrir
vörur sem mikið framboð er af í
nokkra mánuði á ári,“ segir í niður-
stöðum könnunarinnar. Sjá línurit.
Mest hækkun
á melónum og selleríi
Í töflu með niðurstöðum sem birt
er á heimasíðu Samkeppnisstofnunar
kemur fram að meðalverð á ananas
hefur hækkað um 16% frá 11. ágúst til
10. september. Meðalverð á kíví hefur
hækkað um 14% milli mánaða, á mel-
ónum um 29%, um 17% á jarðarberj-
um, 16% á papriku og 107% á selleríi.
Meðalverð á appelsínum hefur hins
vegar lækkað um 10% milli mánaða, á
mandarínum og blómkáli um 15%, um
23% á gulrófum, 31% á íslenskum gul-
rótum, 20% á hvítkáli, 10% á bökun-
arkartöflum, 20% á gullauga og 23% á
rauðum kartöflum. Þá hefur meðal-
verð á kínakáli lækkað um 14% milli
mánaða.
Sjá nánar: www.samkeppni.is.
4
(
* 5$
657 # 7
9
9+:
$""$;
' )$""<
<""
$ "
$""
! "
!""
"
"
=
> 7 * 7 ? ? @ & 3 A B ? > 7 * 7 ? ? @ &
+
$
,
- , *,,
.//. .//0
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meðalverð hefur lækkað um 20% á
mörgum tegundum ávaxta.
4
(
* 5!! 6&
6$*6
7
9
9+:
$""$;
' )$""<
8""
,""
#""
""
C""
<""
$""
!""
"
=
> 7 * 7 ? ? @ & 3 A B ? > 7 * 7 ? ? @ &
1 &
*!2
.//. .//0
Samkeppnisstofnun fylgist með verðþróun á ávöxtum og grænmeti í hverjum mánuði
„Óvenju mikill verð-
munur milli verslana“
BÍLLAUSI dagurinn í Evrópu verður haldinn hátíð-
legur innan skamms, nánar tiltekið 22. september.
Því er tilvalið að helga vistverndardálkinn sam-
göngum í þessum mánuði. Nýjar rannsóknir á veg-
um Umhverfis- og heilbrigðisstofu sýna svart á
hvítu að þörf er á að taka höndum saman til að
stemma stigu við mengun af völdum einka-
bílaumferðar á höfuðborgarsvæðinu. Og að sjálf-
sögðu eigum við að hugsa hnattrænt og minnka hana
alls staðar á landinu. Í vor fjölluðum við um mjúkakstur og hreyf-
ilhitara í dálkinum, en nú vindum við okkur að fækkun bílferða og
betri nýtingu bílsins.
Samgöngur
Því meira sem þú veist um ferðavenjur þínar og möguleikana
sem þú hefur í samgöngumálum, þeim mun léttara er að breyta
þeim. Með því að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum leggur þú
grunninn að langtímaverkefni sem hefur í för með sér mikinn um-
hverfislegan ávinning en ekki síður fjárhagslegan sparnað og betri
heilsu.
Haltu dagbók yfir allar ferðir fjölskyldunnar sem farnar eru á
heili viku.
Útbúðu kort sem sýnir þær leiðir sem þið farið daglega; merk-
ið inn á verslanir og þjónustustofnanir sem þið notið.
Bættu strætisvagnaleiðum og hjólreiðastígum inn á kortið.
www.landvernd.is/vistvernd
Vistvernd í verki – Ráð vikunnar
HAUST- og
vetrarlisti
ClaMal er
kominn út.
Vörulína
ClaMal er
ætluð konum
25 ára og
eldri sem
vilja klassísk föt, að því er segir í
fréttatilkynningu. Stærðirnar
eru 38 til 46. Í listanum er líka
herralína fyrir 25 ára og eldri í
stærðum 38-46. Umboð fyrir
ClaMal er í höndum Balco, sem
er jafnframt með Freemans.
NÝTT
Haust- og vetr-
arlína ClaMal
BÚR vekur athygli á fleiri nýj-
ungum á Náttúrulínunni. Annars
vegar er um að ræða túnfisk í olíu
og vatni með heilum bitum, ekki í
mauki. Maísinn er stökkur og til-
gangurinn sá að líkja sem mest
eftir ferskum maís. Vörurnar fást
í verslunum Kaupáss og víðar.
Túnfiskur
og maís
FORVAL
hefur
einnig
byrjað inn-
flutning á
varalita-
pallettu
frá Chanel
í fjórum
litbrigðum. Litirnir eru í rauð-
um, brúnum og bleikum tónum
og tilheyra haust- og vetrarlín-
unni 2003-2004. Áferðin er sögð
kremuð og flauelsmjúk til þess
að auðvelda notkun. Litirnir eru
bornir á með bursta sem fylgir
umbúðunum og auðvelda mótun
varanna.
Varalitir
með bursta
NÝTT fyrirtæki, Yngis fólk, hefur
byrjað innflutning á barnafatnaði.
Um er að ræða tvö merki,
Kiekeboe og Week-end a la mer.
Fyrra merkið er hollenskt og með
föt í stærðunum 50-152. Hið síð-
ara er ætlað börnum sex ára og
yngri. Eigendur eru hjónin Sig-
urður Örn Reynisson og Signý
Guðbjartsdóttir og er verslunin
við Hrísrima í Grafarvogi. Einnig
selur verslunin Sparta á Sauð-
árkróki vörur frá fyrirtækinu.
Ný merki í
barnafatnaði
HEILSUHORNIÐ á Akureyri
hefur byrjað innflutning á lúsa-
bananum Robi Comb, kambi sem
drepur lýs með rafstraumi. Í til-
kynningu segir að tennur kambs-
ins séu einangraðara með
keramiki svo notandinn finni
ekki fyrir rafstrauminum.
Lúsakambur
með rafstraumi
FORVAL vekur athygli á nýrri
förðunarlínu frá Chanel fyrir
haust og vetur 2003-2004. Um er
að ræða augnskugga í gallabuxna-
litum. Litirnir eru ljóshiminblár,
„navy“-blár, lavender-blár og blá-
svartur í einni dós, með áferð sem
minnir á „denim“. Einnig eru
gullsaumar og merki Chanel á yf-
irborðinu. Augskuggasettið er í
takmörkuðu upplagi og er komið
á markað í Hygeu, Clöru og
Snyrtivöruversluninni í Glæsibæ.
Augnskuggar
í gallabuxnalit
KARTÖFLUUPPSKERAN er í full-
um gangi um þessar mundir og eiga
neytendur að geta gengið að nýjum
íslenskum kartöflum áfram næstu
vikurnar, segja talsmenn garðyrkju-
bænda.
Kartöflu- og
mangósalat
1 kg nýjar rauðar kartöflur
1 stk. rauðlaukur, fínt saxaður
1 stk. mangó vel þroskað, skorið í bita
100 ml ólífuolía
30 ml ristuð sesamolía
Handfylli af saxaðri myntu
Handfylli af saxaðri steinselju
Salt og pipar
Sjóðið kartöflurnar í söltu vatni.
Sigtið og látið kólna Skerið kartöfl-
urnar niður í hæfilega bita. Bætið í
steinseljunni, myntunni, mangó og
lauknum og einnig ólífu- og sesam-
olíunni. Kryddið til með salti og pipar.
Kartöflustappa
með rósmarín og
hvítlauk
1 kg kartöflur, skrældar
300 ml rjómi
8 stk. hvítlauksrif
3 stk. rósmarínstilkar
Salt og pipar
Kartöflurnar soðnar í söltu vatni.
Rjómi og hvítlaukur eru sett yfir til
suðu. Soðið rólega í fímm mínútur, þá
er rósmarín sett í. Slökkt undir pott-
inum, lokið sett á og leyft að standa
þar til kartöflurnar eru tilbúnar.
Þegar kartöflurnar eru soðnar eru
þær pressaðar með kartöflupressu
ásamt hvítlauknum. Síðan eru þær
settar í pott, rjóminn er hrærður í
með sleif og smakkað til með salti og
pipar. Rétt er að vara við því að nota
matvinnsluvélar við kartöflumús.
Slíkar vélar henta ekki því þær gera
stöppuna límkennda.
Enn verið að taka upp
íslenskar kartöflur