Morgunblaðið - 16.09.2003, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 33
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Starfsfólk – Kjötborð
Ferskar kjötvörur hf. óska eftir að ráða aðila
til afgreiðslustarfa við kjötborð í verslun Hag-
kaups í Spönginni.
Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
Vinnutími er fimmtudaga og föstudaga frá.
09.30 til 19:30 og laugardaga frá kl. 9.30 til
18.30.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
fyrirtækisins í Síðumúla 34 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Kristján í síma
660 6301.
Upplýsingar um fyrirtækið er að finna á heima-
síðu þess www.ferskar.is.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Félagsfundur
Verkalýðsfélagið Hlíf heldur félagsfund
miðvikudaginn 17. sept. kl. 20.00 í
Skútunni, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Kjaramál.
2. Kosning fulltrúa í eftirtaldar samninganefnd-
ir Vlf. Hlífar:
a) Almennra kjarasamninga:
b) Kjarasamninga við ríkið vegna starfs-
manna á sjúkrahúsum og hjúkrunar-
heimilum.
c) Kjarasamninga SGS við ríkið.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Einbýlishús til leigu
Fallegt einbýlisbús við sjávarsíðuna í Kópa-
vogi, til leigu til lengri tíma. 4 svefnherbergi,
bílskúr, einstakt útsýni. Laust nú þegar.
Upplýsingar í síma 848 5414.
ÞJÓNUSTA
Húseigendur ath.!
Er komin móða eða raki milli glerja?
Móðuhreinsun,
símar 587 5232 og 897 9809.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
ÚU T B O Ð
Leiðrétting vegna misritunar
í sunnudagsblaði
13376 Specialist Consulting
Services
The Icelandic State Trading Centre Rikiskaup
on behalf of Austurhöfn-TR ehf., an independ-
ent legal entity, owned by the Icelandic State
and the City of Reykjavík, now invites proposals/
tenders to provide specialist consulting services
for a concert hall and conference centre in
Reykjavík. The services include needs analysis
and programming, operating budget analysis,
space planning and technical specifications reg-
arding acoustics, sound insulation and technical
equipment, assistance in pre-qualification of
contractors, tendering support and supervision
of final design.
The RFP documents will be available at the
offices of The Icelandic Trading Centre Rikis-
kaup, Borgartuni 7, 105 Reykjavik, Iceland from
Monday September 15th. The proposals will
be opened at the same location on 14.00 hrs
October 21, 2003.
Price of RFP documents is IKR 6.000.
13376 Sérfræðiráðgjöf
Ríkiskaup, f.h. Asturhafnar-TR ehf., einka-
hlutafélags í eigu íslenska ríkisins og
Reykjavíkurborgar, óska eftir tilboðum í
sérfræðilega ráðgjöf vegna Tónlistarhúss
og ráðstefnumiðstöðvar í Reykjavík. Verk-
efnið nær til þarfgreiningar og forsagnar,
áætlunar um rekstur, forsagnar um stærðir
og eiginleika, tæknilegra krafna varðandi
hljómburð, hljóðeinangrun og tækni-
búnað, aðstoð við forval og útboð, auk eft-
irlits með endanlegri hönnun.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borg-
artúni 7, 108 Reykjavík, þriðjudaginn
21. október 2003 kl. 14.00, þar sem þau
verða opnuð.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu hjá
Ríkiskaupum mánudaginn 15. septem-
ber.
Verð útboðsgagna er kr. 6.000.
Útboð
Kárahnjúkavirkjun
VINNUBÚÐIR — undirstöður
og uppsetning
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í undirstöður
og uppsetningu á 47 vinnubúðaeiningum í
Norðurdal (Fljótsdal), í samræmi við útboðs-
gögn KAR-91.
Verkið felst m.a. í að:
Setja malarpúða undir vinnubúðir.
Byggja undirstöður.
Leggja raflagnir, vatnslagnir, frárennslis-
lagnir í jörð.
Taka við 47 húseiningum og setja þær á
undirstöður.
Ganga frá samtengingum milli húseininga.
Tengja húseiningar við lagnir í jörð.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá
og með deginum í dag gegn óafturkræfu gjaldi
kr. 2.000 fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
innkaupadeild, Háaleitisbraut 68, 103 Reykja-
vík, fyrir kl. 10:00 mánudaginn 29. september
nk., þar sem þau verða opnuð og lesin upp að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
TILKYNNINGAR
Svæðisskipulag
höfuðborgarsvæðisins
2001-2024. Breyting
Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs 9. september
2003 var samþykkt tillaga að breytingu á Svæð-
isskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024.
Í breytingunni felst að fjölgað er fyrirhuguðum
íbúðum í byggingarsvæðinu „Kópavogur vest-
ur“ úr 350 íbúðum í 900 íbúðir sbr. bls. 47 í
greinargerð svæðisskipulagsins. Í samræmi
við 14. gr. skipulags- og byggingarlaga var um-
rædd breyting kynnt þeim sveitarstjórnum sem
stóðu að gerð svæðisskipulagsins. Tillagan
verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu
til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu. Nán-
ari upplýsingar eru veittar á Bæjarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 6, II hæð frá kl. 8:00 til
16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudög-
um frá 8:00 til 14:00.
Ofangreind auglýsing er endurbirt þar sem
villa slæddist inn í auglýsinguna er hún var
birt í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Bæjarstjórn
Kópavogs samþykkti umrædda breytingu á
svæðisskipulaginu 9. september 2003 en ekki
8. september eins og fram kom í auglýsing-
unni. Er beðist velvirðingar á þessum mistök-
um.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Miðill sem svarar þér í dag.
Hringdu og fáðu einkalestur og
svör við vandamálum í starfi
eða einkalífi í síma 001 352 624
1720.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir, Katrín Sveinbjörns-
dóttir, Matthildur Sveins-
dóttir, tarrot-lesari og Garðar
Björgvinsson, michael-miðill,
starfa hjá félaginu og bjóða
félagsmönnum og öðrum upp á
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, starf-
semi þess, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga árs-
ins frá kl. 13—18. Utan þess
tíma er einnig hægt að skilja ef-
tir skilaboð á símsvara félagsins.
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 1849168
F.l.
I.O.O.F. Rb. 4 1529167-
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
Forskot í fasteignaleitinni
Fasteignavefurinn