Morgunblaðið - 24.09.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 258. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ungur
ökuþór
Kristján Einar ekur í gokart
14 ára | Bílar
Ragnhildur reynir að komast á
evrópsku mótaröðina | Íþróttir 43
Í hóp þeirra
bestu?
Höfuðborgin | Akureyri
Suðurnes | Landið
Minn
staður
„MÉR finnst það sigur að hafa rutt brautina
fyrir aðrar konur,“ sagði Sophia Hansen í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi, en þá lá fyrir
úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu í
kæru hennar gegn tyrkneska ríkinu. Dómstóll-
inn komst að þeirri niðurstöðu að mannréttindi
hefðu verið brotin á Sophiu þegar tyrknesk
stjórnvöld gripu ekki til ráðstafana sem
tryggðu að hún fengi að sjá dætur sínar, Dag-
björtu og Rúnu, eins og henni bar samkvæmt
úrskurði dómstóla í Tyrklandi. Nú er Dagbjört
orðin 22 ára síðan í júní og Rúna verður 21 árs
í október. Einnig voru henni dæmdar 6,6 millj-
ónir í skaðabætur.
Málaferli Sophiu, til að fá að umgangast dæt-
ur sínar, hafa staðið yfir í tólf ár. Halim Al fór
með þær í frí til Tyrklands árið 1990 en síðan
þá hafa þær ekki komið til Íslands. Sophia seg-
ir í samtali við Morgunblaðið í dag að hún hafi
hvorki séð né heyrt í dætrunum í um eitt og
hálft ár. Síðast er hún vissi bjuggu þær í Ist-
anbúl í íbúð fyrir ofan íbúð Halims Al. Útidyrn-
ar höfðu hins vegar verið læstar, þannig að
þær komust ekki út úr húsi, nema í gegnum
íbúð föður síns. Hún segir að þær fari hvergi út
án leyfis föður síns og séu í raun fangar hans.
Sophia fór til Tyrklands um síðustu áramót til
þess að freista þess að hitta dætur sínar en allt
kom fyrir ekki. Þá segist hún hafa reynt að
hringja í þær en faðir þeirra hafi skipt um
símanúmer. Ómögulegt sé að komast að nýja
símanúmerinu. Sophia segir að óvissan um
dæturnar sé hræðileg. „Mig dreymir þær und-
antekningarlaust á hverri nóttu,“ segir hún.
„Óvissan er gjörsamlega að tæra mig upp.“
Sigurður Pétur Harðarson, stuðningsmaður
Sophiu, segir að í ljósi þess að Tyrkir sækist
eftir því að komast í Evrópusambandið megi
búast við því að þeir breyti sínum laga-
ákvæðum í samræmi við úrskurð Mannrétt-
indadómstólsins, á þann hátt að stjórnvöld
þurfi að vernda rétt forræðislausra foreldra til
að umgangast börn sín.
Sigur að hafa rutt braut-
ina fyrir aðrar konur
Sophia Hansen: „Mig dreymir þær undan-
tekningarlaust á hverri nóttu.“
Sophia Hansen vann
mál fyrir Mannrétt-
indadómstóli Evrópu
Berst svo lengi/Miðopna
SÆNSKU lögreglunni hefur enn
ekki tekizt að færa óyggjandi sönnur
á að maðurinn sem hún er með í
haldi, grunaðan um morðið á Önnu
Lindh utanríkisráðherra, sé sá sem
sést á eftirlitsmyndavélarupptöku
NK-vöruhússins í Stokkhólmi, þar
sem morðið var framið. Trúlega
verður maðurinn látinn laus á föstu-
dag, eftir því sem sænska TT-frétta-
stofan greindi frá í gær.
Rannsóknarlögreglan hefur reynt
að fá úr því skorið hvort sá hand-
tekni sé sá sem sést á myndunum úr
eftirlitsmyndavél NK, en ekki haft
árangur sem erfiði. Leit að lífsýnum
á hnífnum sem Lindh var stungin
með og fatnaður sem morðinginn er
talinn hafa fleygt frá sér á flóttanum
hefur ekki skilað neinum niðurstöð-
um sem sanna að sá handtekni sé
morðinginn. Komi ekki ný sönnunar-
gögn fram, sem tengja hinn hand-
tekna við morðið eða vettvang þess
fyrir vikulok, neyðist lögreglan til að
láta manninn lausan úr gæzluvarð-
haldi, að því er segir í Aftenposten.
Sá hand-
tekni líklega
látinn laus
RAFMAGNSLAUST varð á öllu
Sjálandi og í Suður-Svíþjóð í fjóra
tíma frá hádegi í gær. Allar lestar-
og flugsamgöngur lágu niðri og
Eyrarsundsbrúnni var lokað.
Mikið öngþveiti skapaðist á
Kastrup-flugvelli í Kaupmanna-
höfn í kjölfar rafmagnsleysisins.
Sagðist Hrafn Þorgeirsson, starfs-
maður Icelandair og fyrrverandi
stöðvarstjóri félagsins á Kastrup-
flugvelli, aldrei hafa orðið vitni að
öðru eins í flughöfninni. Var hann
sjálfur staddur í biðröð með fleiri
hundruð manns þegar Morgun-
blaðið náði tali af honum.
„Þetta var svo altækt, færibönd-
in virkuðu ekki, það var ekki hægt
að koma töskum út í vélarnar, það
var ekki hægt að pumpa eldsneyti
á vélarnar – það var allt stopp
hérna. Það var ekki einu sinni
hægt að afgreiða mat eða neitt
þess háttar hérna á veitingastöð-
unum vegna þess að ekki var hægt
að taka við kortum,“ sagði Hrafn.
Þótt rafmagnsleysið hafi skollið
á um leið og hausthvassviðri gekk
yfir svæðið vildu talsmenn raf-
veitnanna beggja vegna Eyrar-
sunds ekki staðfesta að veðrið
væri orsakavaldurinn. Það væri
enn verið að rannsaka hvað olli
þessu ástandi.
Tvö kjarnorkuver í Suður-Sví-
þjóð voru stöðvuð er raforku-
dreifikerfið lá niðri.
Reuters
Ferðafólk á Kastrup-flugvelli stendur fyrir framan auða tilkynningatöflu í rafmagnsleysinu um miðjan dag í gær.
Íslendingur segist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins
Milljónir manna/14
Í ávörpum sínum við upphaf 58. alls-
herjarþings SÞ í New York sögðu þó
báðir leiðtogarnir að samtökin ættu
að samþykkja myndun fjölþjóðlegs
friðargæzluliðs og að ríki heims að-
stoði við endurreisnarstarf í Írak.
Í ræðu sinni varði Bush ákvörðun
Bandaríkjastjórnar um innrásina í
Írak, sem fulltrúar margra hinna
tæplega 200 ríkja sem í salnum voru
gagnrýndu opinskátt. Sagði Bush að
Bandaríkjamenn væru að vinna að
nýrri ályktunartillögu, sem myndi
„útvíkka hlutverk SÞ í Írak“. SÞ ættu
að aðstoða við að þróa nýja stjórn-
arskrá, þjálfa opinbera starfsmenn og
að halda frjálsar og sanngjarnar
kosningar í Írak.
Í opnunarræðu sinni gagnrýndi
Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
hina „fyrirbyggjandi árás“ Banda-
ríkjanna á Írak, án þess þó að nefna
stjórnina í Washington berum orðum.
Slíkar árásir „gætu sett fordæmi sem
leiddu til þess að fleiri ríki beittu valdi
einhliða og í trássi við alþjóðalög, með
eða án trúverðugrar réttlætingar að
baki,“ sagði Annan. Hann lagði
áherzlu á að heimsbyggðin ætti að
sameinast um að taka á þeim ógnum
sem kölluðu á fyrirbyggjandi aðgerð-
ir, þ.e. skipulagða hryðjuverkastarf-
semi og gereyðingarvopn. En Annan
hvatti ráðamenn heims ennfremur til
þess að leggja ágreining sinn um
Íraksstríðið til hliðar og taka höndum
saman um uppbyggingu friðsamlegs
lýðræðis þar í landi.
Deilt í SÞ
um valdaaf-
sal til Íraka
Jacques Chirac og Kofi Annan gagn-
rýna Íraksstefnu Bandaríkjastjórnar
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti tjáði Sameinuðu þjóðunum í
gær að ekki væri unnt að hraða því að færa stjórnartauma Íraks í
hendur lýðræðislega kjörinnar stjórnar heimamanna, en Jacques
Chirac Frakklandsforseti krafðist „raunhæfrar tímaáætlunar“ fyrir
valdaafsal hernámsstjórnar bandamanna, undir eftirliti SÞ.
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
AP
George W. Bush og Kofi Annan
heilsast í höfuðstöðvum SÞ í gær.
♦ ♦ ♦
Strandaglópar á Kastrup