Morgunblaðið - 24.09.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÆÐINGAR hér á landi á síðasta
ári voru alls 3.977 og í þeim fædd-
ust 4.070 nýburar. Þetta er nokk-
ur fækkun frá tveimur fyrri árum,
að því er fram kemur í skýrslu
kvennadeildar Landspítalans og
Barnaspítala Hringsins um fæð-
ingarskráningu árið 2002. Svo-
nefndur burðarmálsdauði hefur
aldrei verið fátíðari en á síðasta
ári. Þá fæddust 12 andvana börn
og sex börn dóu á fyrstu viku eftir
fæðingu.
Meðaltal fæðinga fyrir fimm
síðustu ár tuttugustu aldar, 1996–
2000, var 4.170 og var það 6,8%
fækkun miðað við fimm ára tíma-
bilið 1991–1995, þegar meðaltalið
var 4.452 fæðingar. Meðaltal
fyrstu ára nýrrar aldar er 4.120.
Fæddum börnum hefur einnig
fækkað ef meðaltal síðustu ára er
skoðað. Árin 1991–1995 var með-
altalið 4.531, var 4.254 árin 1996–
2000 að meðaltali og meðaltalið yf-
ir fædd börn frá 2000 til loka síð-
asta árs var 4.178.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að sjö af hverjum tíu fæðingum
hér á landi í fyrra (70,2%) fóru
fram á Landspítalanum, sem er
hæsta hlutfall sem sést hefur. Á
kvennadeildinni voru fæðingarnar
2.791 og næstflestar voru á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
(FSA), eða 418. Heimafæðingar
voru 24 á höfuðborgarsvæðinu og
ein á Akureyri.
Næstu staðir í fjölda fæðinga
eru heilbrigðisstofnanirnar í
Keflavík (232), á Akranesi (158) og
Selfossi (147). Sést þetta nánar á
meðfylgjandi töflu, þar sem
heimafæðingum hefur verið bætt
við Reykjavík og Akureyri.
Í skýrslunni kemur fram að
fæðingar séu í auknum mæli að
flytjast á stærri þéttbýlisstaði.
Þar komi til breyttar þjóðfélags-
aðstæður og bættar samgöngur.
Um þessa þróun segir m.a. í
skýrslunni:
„Enda þótt æskilegt sé að kon-
ur utan stærstu staðanna eigi kost
á að fæða í heimabyggð sinni, þá
eru fæðingar sums staðar orðnar
það fáar, að ljósmæður og læknar
fá ekki næga viðhaldsþjálfun. Það
hlýtur að hafa áhrif á öryggi í
fæðingum þegar til lengdar lætur,
enda þótt vandað sé til vals á fæð-
andi konum á minni stöðunum og
reynt að hafa þar viðbúnað vegna
fæðandi kvenna.“
Aukin sala
á frjósemislyfjum
Telja skýrsluhöfundar; þau
Reynir Tómas Geirsson, Guðrún
Garðarsdóttir, Gestur Pálsson,
Ragnheiður I. Bjarnadóttir og
Hildur Harðardóttir, það nauð-
synlegt að starfsfólk á smærri
stöðum fari reglulega í viðhalds-
þjálfun á kvennadeildum Land-
spítalans og FSA, líkt og nokkrar
ljósmæður hafi lagt sig fram um
að gera. Með því móti, ásamt góðu
forvali, megi víða viðhalda fæð-
ingum í heimahéraði eða heima-
húsi fyrir konur sem þess óski.
Af 3.977 fæðingum á landinu í
heild voru 89 fjölburafæðingar,
sem er nokkur fjölgun frá árinu
2001 þegar þær voru 70 talsins. Á
Landspítalanum voru 76 tvíbura-
fæðingar og fjórar þríburafæð-
ingar. Á Akureyri voru átta tví-
burafæðingar og einir tvíburar
fæddust í Keflavík. Alls gerir þetta
182 börn. Fjölgun fjölburafæðinga
milli ára er að mestu skýrð í
skýrslunni með tæknifrjóvgunum
en einnig er tekið fram að sala
frjósemislyfja hafi aukist nokkuð
milli ára. Samkvæmt sölutölum fái
að jafnaði 20 konur frjósemislyf í
hverjum mánuði. Sagt er að 10%
aukning hafi orðið á sölu frjósem-
islyfsins klómífens frá 2001 til árs-
ins 2002.
Búast má við sveiflum
í burðarmálsdauða
Burðarmálsdauði kom upp í öll-
um tilvikum á kvennadeild Land-
spítalans, utan andláts á Ísafirði á
fyrstu viku eftir fæðingu, og í
þremur tilvikum höfðu mæður
barnanna verið sendar til Reykja-
víkur vegna fyrirliggjandi áhættu.
Varðandi tölur um burðarmáls-
dauða benda skýrsluhöfundar á að
á fámennu Íslandi megi búast við
talsverðum sveiflum í tíðni slíks
dauða. Hluti af skýringu á færri
andvana fæddum börnum er rak-
inn til „batnandi fósturgreininga á
alvarlegum sköpulagsgöllum“. Ný
snemmskimun, eða snemmómun,
er sögð bæta þar nokkru við. Kem-
ur fram í skýrslunni að 2⁄3 hlutar
ófrískra kvenna á höfuðborg-
arsvæðinu og Norðausturlandi fari
í snemmskimun á meðgöngu.
Fæðingum fækkaði í fyrra
!
!
"
#$
%%
&'(((
)'&((
)'(((
*'&((
*'(((
+'&((
+'(((
,'&((
,'(((
&((
(
-$
.!
+'/,&
),0
+*+
,&/
,)1
2+
))
++
*)
&
,,
+
2
*
,1
)'
,)
*
-$
.$$
3
+'/00
)+1
+**
,&/
,)1
2+
))
++
*)
&
,,
+
2
*
,1
)'
++
1
)'
(&
,
)'
,)
&
)'
+2
0
)'
*&
,
)'
()
*
)'
,,
)
*'
01
1
)'
(1
(
-.! -.$$%3
Andvana fædd börn aldrei verið
færri á Íslandi en árið 2002
Morgunblaðið/Kristinn
KULDINN bítur ekkert á skokkurum sem láta ekki smá vind eða færri
hitastig á sig fá. Þeir halda sínu striki margir hverjir og skokka um höf-
uðborgina hvernig sem viðrar.
Morgunblaðið/Kristinn
Á skokki í kuldanum
STJÓRNENDUR bæði Íslands-
banka og Landsbanka segjast geta
tekið undir þau ummæli forsætisráð-
herra og viðskiptaráðherra að ekki sé
æskilegt að bankar eigi stór atvinnu-
fyrirtæki til lengdar. Viðskiptaráð-
herra tók raunar fram að bankar
gætu ekki verið kjölfestufjárfestar í
öðrum fyrirtækjum en fjármálafyrir-
tækjum.
Eðlilegt að banki geti verið
áhrifafjárfestir um tíma
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka Íslands, segist
vera alveg sammála sjónarmiðum for-
sætisráðherra að það sé ekki verkefni
banka að vera langtímakjölfestir í at-
vinnufyrirtækjum. „Við í Landsbank-
anum erum sammála þessum sjónar-
miðum að það sé ekki hlutverk banka
að vera kjölfestufjárfestir í fyrirtækj-
um í óskyldum atvinnurekstri til
langs tíma.“
Halldór tekur þó fram að það sam-
ræmist vel hlutverki banka sem
hreyfiafls í umbreytingu og hagræð-
ingu að hann geti verið áhrifafjárfest-
ir til einhvers tíma eins og forsætis-
ráðherra hafi einnig vikið að.
Í tveimur tilvikum eigi þetta við,
þ.e. í fyrsta lagi í tengslum við um-
breytingar, skráningu á markað,
samruna og önnur slík verkefni. Í
annan stað þegar fyrirtæki komast í
eigu banka fyrir þá sök að þau lenda í
rekstrarerfiðleikum og bankinn taki
þátt í að aðstoða fyrirtækin á þeim
grundvelli.
Halldór minnir á hinn bóginn á að
um þátttöku bankanna í verðbréfavið-
skiptum, þar sem um skammtímavið-
skipti sé að ræða, sé ekki deilt. Þar
sækist bankinn ekki eftir áhrifum
heldur sé hann í slíkum tilvikum einn
margra þátttakenda á verðbréfa-
markaði.
Bankar oft langtímafjárfestar
í tengdri fjármálaþjónustu
Þá segir Halldór að bankar séu oft
langtímafjárfestar í tengdri fjármála-
þjónustu, eins og t.d. greiðslukorta-
fyrirtækjum, líftryggingarfélögum,
hugsanlega tryggingarfélögum, er-
lendum bönkum greiðsluþjónustu
o.s.frv. „Þá eiga önnur sjónarmið við
enda er alveg eðlilegt að bankinn sé
langtímafjárfestir í þjónustu sem
tengist fjármálaþjónustu beint. Ekki
er deilt um þann þátt,“ segir Halldór.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, sagðist vilja ítreka fyrri
ummæli sín í Morgunblaðinu í þessu
sambandi en almennt séð geti hann
tekið undir sjónarmið forsætisráð-
herra.
Bjarni bendir á að eignarhlutur
banka í atvinnulífinu geti átt sér ýms-
ar ástæður og það eigi jafnt við um ís-
lenska banka og erlenda. Stærsti
hluti eigna bankanna í fyrirtækjum
séu í svokölluðum veltubókum. Þar
fari fram stöðutaka þeirra í verðbréf-
um með það að markmiði að skila há-
marksávöxtun verðbréfasafns með
kaupum og sölu bréfa. Slík viðskipti
séu hluti af starfsemi banka um allan
heim. Bjarni tekur fram að yfirleitt sé
hlutabréfaeign banka hugsuð til
skamms tíma með skýr markmið í
huga.
Bankastjórar sammála sjónarmiðum
forsætisráðherra og viðskiptaráðherra
Ekki stefnt að
beinni þátttöku í
óskyldum rekstri
EFTIR síðustu mánaðamót kvörtuðu
fjórar konur til Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur yfir að vera sagt
upp störfum eftir að þær tilkynntu
vinnuveitanda að þær væru þungað-
ar. Að auki tilkynntu tvær konur að
þær gætu ekki gengið aftur að störf-
um sínum eftir töku fæðingarorlofs,
sem jafngildir uppsögn í fæðingaror-
lofi. Þetta eru óvenjulega mörg mál
að mati Önnu J. Sævarsdóttur, sér-
fræðings í kjaramáladeild VR.
Óheimilt er að segja
upp þungaðri konu
Hún segir að samkvæmt lögum sé
óheimilt að segja upp þungaðri konu
eða konu sem nýlega hefur alið barn.
Óvenjulegt sé að svona margar þung-
aðar konur kvarti yfir uppsögnum og
þessi tilvik snúi aðeins að félagsmönn-
um VR. Ekkert ákveðið munstur sé
að finna í þessum uppsögnum og kon-
urnar vinni allar hver hjá sínu fyr-
irtækinu. Aðspurð segir hún almennt
ekki meira um uppsagnir um þessi
mánaðamót en önnur.
„Í nýjum lögum um fæðingar- og
foreldraorlof segir að þegar starfs-
maður hefur tilkynnt um töku fæðing-
arorlofs er hann kominn með vernd
fyrir uppsögnum. Gildir einu hvort
um karlmann eða kvenmann er að
ræða,“ segir Anna. Gildar ástæður
þurfi að vera fyrir hendi sé starfs-
manni sagt upp og skriflegur rök-
stuðningur að fylgja. Óski starfsmað-
ur eftir því er byrjað á því að hafa
samband við vinnuveitanda þegar
svona mál kemur upp, segir Anna. Ef
um ólögmæta uppsögn er að ræða þá
á starfsmaður rétt á launum fram að
fæðingu barns og eftir töku fæðing-
arorlofs taki uppsagnarfrestur við. Ef
uppsögn er ekki dregin til baka segir
Anna málið oftast enda með sam-
komulagi við vinnuveitanda.
Uppsögnum
þungaðra
kvenna
fjölgar