Morgunblaðið - 24.09.2003, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.10. B.i. 10.
ÁLFABAKKI
kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10.
AKUREYRI
kl. 10. B.i. 10.
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
Fullkomið rán.
Svik. Uppgjör.
KVIKMYNDIR.IS
L.A. TIMES
BBCI
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl tal
Stórkostleg
gamanmynd sem er
búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi! Yfir
41.000
gestir
ÁLFABAKKI
Synd kl. 3.45. Ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd. kl. 6. Enskur texti -With English subtitles
NÓI ALBINÓI
Rómantísk grínmynd frá leikstjóra When Harry Met Sally með
LukeWilson (Legally Blonde) og Kate Hudson (How To Lose A Guy...)
Kvikmynd eftir Sólveigu Anspachi i i
DIDDA JÓNSDÓTTIR ELODIE BOUCHEZ
BALTASAR KORMÁKUR INGVAR E. SIGURÐSSON
Mögnuð mynd eftir
Sólveigu Anspach
sem valin var til
sýninga á
kvikmyndahátíðinni
í Cannes
á þessu ári.
Sjáið sannleikann!
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
i
í
i
Ný mynd frá breska leikstjóranum Alan Parker með
tvöföldum Óskarsverðlaunahafa, KevinSpacey.
Vinsælustu myndirnar
á Breskum Bíódögum
sýndar áfram.
Missið ekki af þessum
frábærum myndum
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 6. kl. 8. kl. 8. kl. 10.05. kl. 10.15.
H.J. MBL
S.G. DV
„Áhrifarík og lofsamleg.“
HJ. MBL
H.K. DV
THE
MAGDALENE
SISTERS
Skonrok Fm 90.9
H.K. DV
SG DV
SV. MBLPlots
With a View
SG DV
SG MBL
HIPHOP á íslensku komfyrst fram á sjónarsviðiðfyrir alvöru með útgáfu áplötum Sesars A og XXX
Rottweilerhunda haustið 2001 og síð-
arnefna hljómsveitin varð vinsælasta
hljómsveit landsins. Síðasta ár var
síðan ár hiphopsins á Íslandi því þá
komu út ellefu hljómplötur með ís-
lensku hiphopi: plötur með Afkvæm-
um guðanna, Bent & 7Berg, Bæjar-
ins bestu, Kritikal Mazz, Móra, XXX
Rottweilerhundum og Sesari A og
safnplöturnar Rímur og rapp,
Bumsquad, Rímnamín og Dizorder í
Reykjavík. Nú fer aftur á móti minna
fyrir hiphopinu og í samantekt á fyr-
irhugaðri plötuútgáfu fyrir þessi jól
sem birtist hér í blaðinu fyrir nokkr-
um dögum var til að mynda engin
hiphop-plata nefnd og við blasti að
helstu útgáfufyrirtæki væru búin að
afskrifa hiphopið.
Heilmikið í gangi
Móri var einn þeirra sem sendu
frá sér diska á síðasta ári og hann gaf
sinn disk, sem fékk mjög góða dóma,
út sjálfur. Hann segist og ekki af
baki dottinn, hann sé einmitt að
leggja síðustu hönd á nýjan disk
rappsveitarinnar Forgotten Lores
sem koma eigi út í næsta mánuði eða
þar um bil. Hann er líka með fleiri
járn í eldinum: „Svo er ég líka að
ljúka við tvöfalda safnplötu sem heit-
ir Grænir fingur og hún kemur líka
út fyrir jól, það á bara eftir að mast-
era hana. Önnur plata sem við ætlum
að koma út er Chosen Ground sem
líka er að klárast og svo er enn von til
þess að það takist að ljúka við plötu
með Mezzíasi fyrir jól þótt hún sé
skemmst komin,“ segir Móri en hann
segist ekki beinlínis gefa plöturnar
út, heldur aðstoði hann við útgáfuna.
„Það er heilmikið í gangi þó stór-
fyrirtækin hafi gefist upp á að gefa
út hiphop, það er bara aftur komið
undir jörðina. Menn eru líka að
vanda sig meira núna, gera betri
hluti og þessi Forgotten Lores plata
verður það besta sem komið hefur út
af íslensku hiphopi í langan tíma.“
Þótt nóg sé að gerast neðanjarðar í
hiphopinu er ljóst að það er ekki eins
áberandi og forðum. Móri segir að
það megi að stórum hluta skrifa á
það að ekkert sé spilað af hiphopi í ís-
lensku útvarpi síðan útvarpsstöðin
Músík lagði upp laupana og því ekki
nema von að menn verði ekki eins
varir við það. Hann segir að hann og
fleiri séu að reyna að koma á fót út-
varpsstöð sem helguð yrði hiphopi og
það yrði ekki gefist upp fyrr en í fulla
hnefana.
Hiphop orðið jaðartónlist aftur
Smekkleysa gaf út disk með rapp-
sveitinni Kritikal Mazz á síðasta ári
og Ásmundur Jónsson útgáfustjóri
segir að sala á henni hafi ekki verið
eftir væntingum. Hann segir þó að
fyrirtækið sé ekki búið að gefa hip-
hopið upp á bátinn, þannig sé fyr-
irtækið nú að skoða alvarlega að gefa
út disk með íslenskri hiphopsveit og
segir að ákvörðun um það verði tekin
á næstu dögum.
„Það virðist vera fullt í gangi en
spurning hvort ástand hér sé orðið
eins og í Svíþjóð til að mynda en þar
er mikil gróska í hiphopinu. Ég
ræddi við sænskan samstarfsaðila í
sumar og hann sagði að útgáfa á hip-
hopi þar hefði dregist gríðarlega
saman þótt enn væri mikið á seyði í
hiphoptónlistinni þar í landi, enda
væri salan ekki í neinu samræmi við
áhugann. Að hans mati benti það til
þess að þeir sem áhuga hafa á hip-
hoptónlist séu ekki tilbúnir til að
borga fyrir tónlistina, en sæki hana
frekar á Netið og afriti diska. Fyrir
vikið má segja að hiphop í Svíþjóð sé
orðið að jaðartónlist aftur og spurn-
ing hvort það sama sé að gerast hér á
landi.“
Eiður Arnarson, útgáfustjóri Skíf-
unnar, segir að Skífan muni ekki
gefa út neitt hiphop á þessu ári, en
undanfarin ár hefur Skífan gefið út
plötur XXX Rottweilerhunda og
dreift plötum annarra hiphoplista-
manna. Hann segir að enga slíka
plötu hafi rekið á fjörur þeirra Skífu-
manna til þessa og að ekki sé í bígerð
að dreifa neinni plötu eins og er að
minnsta kosti.
„Það má þó ekki skilja það sem svo
að við höfum tekið ákvörðun um að
gefa ekki út hiphop, það er bara svo
að til okkar hefur ekki borist neitt
sem okkur hefur þótt fýsilegt að gefa
út. Það er í sjálfu sér skiljanlegt að
hiphoplistamenn leiti ekki til okkar
enda höfum við helst sinnt þeirri teg-
und tónlistar sem við kunnum best
að fara með, þ.e. aðgengilegri popp-
tónlist þótt við séum opnir fyrir allri
tónlist. Hvort það sé mikið eða lítið á
seyði í íslensku hiphopi get ég ekkert
sagt um, mig brestur einfaldlega
þekkingu til þess að svara því.“
Síðasta ár var ár hiphopsins í íslenskri tónlistarsögu því þá komu út ellefu plötur með hip-
hopi á íslensku eða sem flutt var af íslenskum tónlistarmönnum. Það vekur því athygli að í
upptalningu á fyrirhugaðri útgáfu fyrir jólin var engin hiphopskífa. Við nánari skoðun
kemur í ljós að ástandið er ekki eins slæmt og gæti virst við fyrstu sýn.
Haustar að
í íslensku
hiphopi?
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Sesar A er einn af brautryðjendum hiphops á íslensku.
FRANK Bruno,
fyrrum hnefa-
leikaheimsmeist-
ari í þungavigt,
var færður undir
læknishendur á
mánudag og gert
skylt að gangast
undir geðrann-
sókn. Hinn 41 árs
gamli Bruno var tekinn með valdi á
heimili sínu í nágrenni Lundúna af
sjúkraflutningamönnum eftir að ná-
grannar og fjölskylda hans höfðu
lýst áhyggjum sínum yfir geðheilsu
hans. Hann skildi við eiginkonu sína
fyrir tveimur árum og í fyrra lést yf-
irþjálfari hans. Síðan þá hefur
Bruno átt við þunglyndisvandamál
að stríða og vilja samstarfsmenn
hans úr hnefaleikaheiminum einnig
meina að hann hafi heldur aldrei
jafnað sig á því að vera hættur að
fara í hringinn …Eftir átta mánaða
rannsókn hefur dánardómstóll í Los
Angeles úrskurðað andlát Lönu
Clarkson á heimili upptökustjórans
Phils Spectors sem manndráp. Hin
fertuga leikkona var skotin til bana
af öðrum aðila, einu byssuskoti sem
fór í höfuð hennar og háls. Spector
sem handtekinn
var fyrir að hafa
framið verkn-
aðinn og fékk
fangelsislausn
gegn einnar millj-
ónar dala trygg-
ingu hefur stað-
fastlega haldið
fram sakleysi
sínu. Stangast úrskurður dánardóm-
stólsins þó á við yfirlýsingar hans
um að Clarkson hafi framið sjálfs-
morð og staðfestir um leið grun lög-
regluyfirvalda í Los Angeles. Ekki
hefur enn verið lögð fram formleg
kæra á hendur Spector í tengslum
við dauða Clarkson …Karl Breta-
prins hefur mein-
að Harry syni sín-
um að umgangast
Michael Jack-
son. Sjálfskip-
aður konungur
poppsins var bú-
inn að finna
stund og stað fyr-
ir stefnumót
þeirra Harrys þegar hann fékk þær
upplýsingar að Harry myndi ekki
mæta til fundarins, jafnvel þótt það
hafi upphaflega verið prinsinn sem
lýsti yfir áhuga á að hitta átrún-
aðargoðið sitt. Blaðafulltrúi Jack-
sons segir Jackson afar sáran yfir
því að hafa verið snuðaður svona,
sérstaklega í ljósi þess að hann og
Díana móðir Harrys voru svo náin.
Er Karli föður hans kennt um allt
saman …Natalie Appleton, fyrr-
verandi söngvari í All Saints, á von
á sínu öðru barni með manni sínum
Liam Howlett, úr The Prodigy.
FÓLK Ífréttum
HARRY Bretaprins ætlar að dvelja
í Ástralíu næstu þrjá mánuðina og
vinna m.a. á búgörðum við að reka
nautgripi og fé. Að sögn talsmanns
bresku hirðarinnar mun Harry fá
sömu laun og aðrir lærlingar á bú-
görðunum, en það svarar til um 13
þúsund króna á viku.
Harry, sem er 19 ára sonur Karls
Bretaprins og Díönu prinsessu,
lauk menntaskólanámi í vor og ætl-
ar að taka sér árs hlé frá námi en
mun væntanlega setjast í herskóla
að því loknu. Tilstandið í kringum
komu Harrys til Ástralíu var
nokkru meira en þegar venjulegir
kúasmalalærlingar koma þangað.
Honum fylgdu 12 lífverðir frá
bresku lögreglunni Scotland Yard
og einnig mun áströlsk lögregla sjá
um að gæta öryggis prinsins.
Harry heimsótti dýragarðinn í
Sydney í gær og að sögn BBC
sýndu gestir þar prinsinum meiri
áhuga en dýrunum; tvær tánings-
stúlkur gáfu honum m.a. símanúm-
erið sitt.
Ekki hefur verið gefið upp hvar
Harry ætlar að æfa sig að sveifla
kúasnörunni.
Bretaprins
í búskapinn
Bretaprinsinn komst að því á ferð
sinni um Ástralíu að sárt er að
klappa broddgelti.