Morgunblaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Áhættureiknivél á hjarta.is
TOPP-TÍU-LISTINN
... fyrir heilbrigt hjarta
Hjartadagurinn
2003
Hjartavernd · Holtasmára 1 · 201 Kópavogur · s ími 535 1800 · Minningarkortaþ jónusta s ími 535 1825
Þökkum veittan stuðning á Hjartadaginn
Þitt framlag
1. Slepptu reykingum
2. Hreyfðu þig daglega
3. Borðaðu hollan mat
4. Haltu þig við kjörþyngd
5. Forðastu mikla streitu
Einnig skaltu láta mæla
6. Blóðþrýsting
7. Blóðsykur
8. Kólesteról
9. ... og fara í læknisskoðun
Síðast en ekki síst
10. Hugsaðu vel um hjartað og
hvettu fjölskyldu þína og þá
sem þér þykir vænt um til að
gera slíkt hið sama
K
O
NU
R FÁ EINN
IG
H
J
A
RTASJÚK
DÓ
M
A
Það er ekki laust við að það sé þegar farið að setja hroll að litlu Gunnu og litla Jóni.
Vika nýsköpunar að hefjast
Frumkvöðla-
eðlið er ríkt
NÚ ER að hefjastnýsköpunarvikaog eru það ýmsar
stofnanir sem saman
standa að þessu átaki.
Bryndís Haraldsdóttir
starfsmaður Impru, Ný-
sköpunarmiðstöðvar Iðn-
tæknistofnunar, er í for-
svari fyrir vikuna og
svaraði hún nokkrum
spurningum Morgun-
blaðsins.
Er þetta fyrsta nýsköp-
unarvikan sem haldin er,
eða á þetta sér einhverja
forsögu?
„Þetta er í fyrsta skipt-
ið sem gengist er fyrir
viku nýsköpunar en að
þessari viku standa ásamt
Impru Nýsköpunarmið-
stöð á Iðntæknistofnun,
Rannís, Rannsóknarþjón-
usta Háskóla Íslands, Háskólinn
í Reykjavík og Samtök iðnaðar-
ins. Allir þessir aðilar standa
fyrir viðburðum í vikunni sem
tengdir eru nýsköpun, rannsókn-
um og þróun.“
Hvað er nýsköpunarvika, hvað
verður kynnt og á hvaða hátt?
„Vika nýsköpunar stendur alla
næstu viku frá mánudegi og
fram á föstudag. Á hverjum degi
er staðið fyrir ráðstefnu, mál-
þingi eða námskeiði. Á mánu-
dagsmorgun er opnunarráð-
stefna haldin á Grandhótel og
ber yfirskriftina Gildi nýsköpun-
ar í hefðbundnum atvinnurekstri
og fjármögnun verkefna. Ráð-
stefnunni er ætlað að fjalla um
mikilvægi nýsköpunar og þá ekki
síst í hefðbundnum atvinnu-
rekstri. Starfsumhverfi fyrir-
tækja hefur breyst mikið á hin-
um síðari árum, samkeppni
hefur aukist, líftími vara hefur
styst og því er mikilvægt fyrir
fyrirtæki að huga að nýsköpun
og innleiða formlegar aðferðir
við að takast á við nýsköpun og
vöruþróun.
Á þriðjudagsmorgun verður
haldinn fundur í Tæknigarði
Dunhaga sem ber yfirskriftina
Rannsóknir í þágu atvinnulífsins.
Þar verður rætt um samstarf há-
skóla og atvinnulífs og hvernig
báðir aðilar geti hagnast af slíku
samstarfi.
Á miðvikudeginum verður
staðið fyrir málþingi um starfs-
umhverfi sprotafyrirtækja. Þar
tala frumkvöðlar um reynslu
sína og leitast verður við að
svara spurningum um hverju
þarf að breyta og hlúa betur að
þegar litið er til starfsskilyrða
sprotafyrirtækja.
Á fimmtudaginn er hádegishá-
skóli í Háskólanum í Reykjavík
þar sem frumkvöðullinn Tómas
Hermannsson lýsir ferð sinni um
urðótta stíga íslensks viðskipta-
lífs.
Á föstudeginum endum við svo
með tveimur námskeiðum um 6.
rannsóknaráætlun ESB. Fyrri
hluta dagsins er námskeið um
möguleika lítilla og meðalstórra
fyrirtækja á að taka
þátt í rannsóknarverk-
efnum og hljóta til
þess styrki frá ESB.
Einnig verður farið yf-
ir það hvernig staðið
er að slíkri umsókn.
Seinni hluta dagsins
er svo námskeið um möguleika
fyrirtækjasamtaka til að taka
þátt í rannsóknarverkefnum og
hljóta til þess styrki frá ESB.“
Hver er tilgangurinn með
slíkri nýsköpunarviku?
„Helsti tilgangur nýsköpunar-
vikunnar er að vekja athygli á
mikilvægi nýsköpunar fyrir
þjóðarbúið allt svo og fyrirtæki.
Ástæða þess að við förum af stað
með þennan viðburð nú er fyrst
og fremst þau tækifæri sem fyr-
irtæki standa frammi fyrir í dag
og möguleika þeirra á aðstoð og
samstarfi við ólíka aðila.“
Hverjar verða helstu áherslur
vikunnar?
„Áherslur vikunnar verða að
efla umræðuna um nýsköpun og
mikilvægi hennar. Að hvetja fyr-
irtæki til að tileinka sér form-
legar starfsaðferðir þegar feng-
ist er við nýsköpun og þróun og
síðast en ekki síst mikilvægi víð-
tæks samstarfs ólíkra aðila þeg-
ar kemur að nýsköpun, þ.e. fyr-
irtækja, stofnana og háskóla.“
Hver er staða nýsköpunar á
Íslandi í dag og hvernig er hlúð
að henni?
„Erlendar kannanir sýna það
að frumkvöðlaeðli okkar Íslend-
inga er mikið og að við virðumst
standa ágætlega þegar litið er til
stöðu nýsköpunar og því stuðn-
ingsumhverfi sem hér hefur ver-
ið byggt upp í samanburði við
önnur lönd. En betur má ef duga
skal og því er mikilvægt að við
séum öll meðvituð um mikilvægi
nýsköpunar. Nýlega opnaði
Impra Nýsköpunarmiðstöð
starfsstöð á Akureyri og er
henni ætlað að auka enn frekar
við þá þjónustu sem frumkvöðl-
um og fyrirtækjum stendur til
boða. Einnig eru miklar vænt-
ingar til nýrra laga um vísinda-
og tæknisjóð og stefnu
stjórnvalda í þeim efn-
um.“
Hvar liggja helstu
sóknarfærin að þínu
mati?
„Ég tel að sóknar-
færin liggi ekki síst
hjá fyrirtækjum í hefðbundnum
atvinnurekstri. Því er nauðsyn-
legt að þau fyrirtæki skoði
starfshætti sína til að nýta þau
tækifæri sem tæknin og breytt
samkeppnisumhverfi býður
uppá, en í því sambandi má
nefna vefsamskipti, sjálfvirkni
og nýjungar á sviði örtækni.“
Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís Haraldsdóttir er fædd
í Reykjavík 29. desember 1976.
Hún er BSc í alþjóðamarkaðs-
fræði frá Tækniskólanum 2001.
Hóf fljótlega störf hjá Impru, Ný-
sköpunarmiðstöð á Iðntækni-
stofnun þar sem hún stýrir
stuðningsverkefni fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki. Stundar
samhliða því mastersnám í Há-
skóla Íslands í opinberri stjórn-
sýslu. Maki Bryndísar er Örn-
ólfur Örnólfsson rafvirkjameist-
ari og eiga þau eina dóttur,
Eydísi Elvu, sem fædd er árið
2000.
Að efla um-
ræðuna um
nýsköpun og
mikilvægi
hennar
RÍKISKAUPUM hafa borist upp-
lýsingar frá átta aðilum sem vilja
leigja ríkinu húsnæði undir nýja
heilsugæslustöð í Voga- og Heima-
hverfi.
Auglýst var eftir fullinnréttuðu
húsnæði til langtímaleigu, staðsett á
svæðinu milli Dalbrautar, Klepps-
vegs-Sæbrautar, Suðurlandsbrautar
að Grensásvegi og að Laugardal
austan og norðanverðum. Í auglýs-
ingu kom fram að stærð húsnæðisins
skyldi vera á bilinu 800–900 fermetr-
ar.
Fram kemur í fréttabréfi heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytisins,
að á næstunni verði farið yfir upplýs-
ingarnar sem bárust. Stefnt er að því
að taka nýja heilsugæslustöð í Voga-
og Heimahverfi í notkun seinni hluta
næsta árs.
Þá kemur fram að innrétting hús-
næðis undir nýja heilsugæslustöð í
Salahverfi sé á áætlun og verði hús-
næðið tilbúið í byrjun nóvember.
Rekstur þessarar stöðvar verði með
nokkuð öðrum hætti en tíðkast hafi
þar sem hann var boðinn út og samið
við einkafyrirtæki um reksturinn.
Reiknað er með að heilsugæslustöð
Salahverfis taki til starfa í byrjun
janúar.
Á næstu mánuðum er fyrirhugað
að auglýsa eftir húsnæði fyrir heilsu-
gæslustöð í Hafnarfirði, til viðbótar
þeirri sem er rekin er á Sólvangi.
Átta bjóðast til að leigja hús-
næði undir nýja heilsugæslustöð