Morgunblaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Kl. 2 og 4. Ísl tal
KRINGLAN
Kl. 2 og 4. Ísl tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45. Ísl tal
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur og
frábært handrit." -
HP
KVIKMYNDIR.COM
F R U M S Ý N I N G
AKUREYRI
Kl. 2. Ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.20.
HV MBL
Sýnd kl. 4, 8 og 10.
Sýnd. kl. 3.45.
NÓI ALBINÓI
Rómantísk grínmynd frá
leikstjóra When Harry
Met Sally með
LukeWilson
(Legally Blonde) og
Kate Hudson
(How To Lose A Guy...)
Kvikmynd eftir Sólveigu Anspachi i i
DIDDA JÓNSDÓTTIR ELODIE BOUCHEZ
BALTASAR KORMÁKUR INGVAR E. SIGURÐSSON
Mögnuð mynd eftir
Sólveigu Anspach
sem valin var til
sýninga á
kvikmyndahátíðinni
í Cannes
á þessu ári.
Sjáið sannleikann!
Frábær tryllir
THE TIMES
Spacey er í
toppformi
UNCUT
i
í
i
Ný mynd frá breska
leikstjóranum Alan Parker
með tvöföldum
Óskarsverðlaunahafa,
KevinSpacey.
Vinsælustu myndirnar á
Breskum Bíódögum
sýndar áfram.
Missið ekki af þessum
frábærum myndum
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl. 4, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20.
kl. 6. kl. 6. kl. 8. kl. 3.30 og 10.15.kl. 6.
H.J. MBL
S.G. DV
„Áhrifarík og lofsamleg.“
HJ. MBL
H.K. DV
THE
MAGDALENE
SISTERS
Skonrok Fm 90.9
H.K. DV
SG DV
SV. MBLPlots
With a View
SG DV
SG MBL
"Skotheldur leikur og
frábært handrit." - HP
KVIKMYNDIR.COM
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem færði okkur myndirnar
Gladiator, Hannibal, Blade Runner og Alien
F R U M S Ý N I N G
ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRAPirates of the Caribbean
Sýnd. kl. 3.30. Ísl. tal.Sýnd. kl. 3.30.
GLEÐISVEITIN Rand-
ver naut mikillar hylli
við lok áttunda áratug-
arins og átti m.a. eina
af mest seldu plötum
ársins 1977, en þá kom
út önnur plata sveit-
arinnar, Aftur og ný-
búnir. Sveitin var í upp-
hafi skipuð fimm
ungum kennurum og
var rekin sem frí-
stundasveit.
Plötur þeirra félaga
hafa verið ófáanlegar
um langt skeið og er nú
kominn út safndiskur
með helstu lögum sveit-
arinnar. Aukinheldur
verða þar fimm ný lög. Rætt var við
Ragnar Gíslason, einn meðlima,
vegna þessa.
Lengi ófáanlegt
„Við erum mjög ánægðir með að
þetta sé komið út en einhverjir voru
víst farnir að spyrja eftir þessu,“
segir Ragnar. Hann segir að fjögur
af nýju lögunum fimm hafi verið tek-
in upp í sumar og um þau leiki írsk-
ur blær.
„Eitt lag er svo eftir mig, þriggja
ára gamalt. Þannig að nú er pabbi
Gunna (Bjarna Ragnarssonar, Jet
Black Joe-liða) kominn með lag á
plötu. Pabbinn fetar nú í fótspor son-
arins (hlær).“
Ragnar segir að mikið komi af
fyrstu plötunni, enda hafi hún lengi
verið ófáanleg. Hann
viðurkennir að það
hafi verið gaman að
hlusta á þessi gömlu
lög og honum finnist
þau hafa staðið tímans
tönn ágætlega.
Stjarna Randvers
reis hæst á tímabilinu
’76 til ’79 og var ein-
faldlega gleðisveit eins
og Ragnar orðar það.
„Við skemmtum
fólki og Ellert var al-
ger uppistandari og
sagði brandara á milli
laga. Við komum mik-
ið fram á árshátíðum,
afmælum og úti-
samkomum. Spiluðum líka mikið á
Kleppi, fyrir sjúklingana þar. Það
var mjög gefandi að leika þar og á
fleiri sjúkrahússtofnunum.“
Ragnar segir að sjálfir hafi þeir
alltaf kallað sig söngsveit.
Hærri gír
Randver hefur verið að troða upp
endrum og eins undanfarin ár og er í
fullu fjöri um þessar mundir, að
sögn Ragnars. Nú munu þeir að
sjálfsögðu setja í hærri gír og fylgja
plötunni eitthvað eftir næstu mán-
uðina.
Safnplata með Randver komin út
Hreinræktuð gleðisveit
Svona lítur Randver út í dag, frá vinstri: Ragnar Gíslason, Sigurður Björg-
vinsson, Jón Jónasson og Ellert Borgar Þorvaldsson.
Randver tileinkar safnplöt-
una Guðmundi Sveinssyni,
sem skipaði sveitina upp-
haflega, en hann lést 1995.
…aftur og loksins búnir?
er komin út.
FRIÐRIK Þór Friðriksson er nú önnum kafinn við eft-
irvinnslu á kvikmyndinni Niceland, sem segir nokkuð
óhefðbundna ástarsögu. Við framleiðslu myndarinnar
starfar einvalalið, en nýjasta viðbótin í hópinn er Dan-
inn Anders Refn, sem hefur getið sér gott orð sem leik-
stjóri, klippari og handritshöfundur. Hann var meðal
höfunda sjónvarpsþáttanna Taxi og gerði einnig mynd-
ina og sjónvarpsþættina Strömmer. Anders hefur einn-
ig starfað sem aðstoðarleikstjóri hins heimsfræga Lars
von Trier í myndunum Myrkradansarinn (Dancer in the
dark), Brimbroti (Breaking the waves) og Dogville.
Anders Refn hefu dvalist hér á landi síðustu daga við
fínklippingu á Niceland en Sigvaldi Kárason sá einnig
um að klippa myndina.
Ómúsíkalskir menn geta ekki klippt
Friðrik Þór segist hafa mikla trú á sameinuðum
kröftum þessara miklu fagmanna, Sigvalda og Revn:
„Anders er svona maður sem hefur rosalega reynslu,
en hann er tíu árum eldri en ég, og ég tek alltaf mark á
mér eldri mönnum,“ segir Friðrik Þór í samtali við
Morgunblaðið. Hann telur margt líkt með klippingu og
tónlist. „Klipping er mikið nákvæmnisatriði og einn af
áhrifamestu þáttum hverrar kvikmyndar er klippingin,
hvernig þú raðar saman myndskeiðum og lætur þau
vinna saman í samhljóm. Ómúsíkalskir menn hafa ekk-
ert að gera í að verða klipparar, þeir sem geta ekki látið
myndskeiðin dansa í takt. Mér sýnist Refn vera sá mað-
ur sem menn treysta best fyrir sínum afurðum, hann er
mjög fljótur að átta sig á hlutunum. Það er líka alveg
frábært að fá mann svona ferskan að myndinni.“
Klippt í höfðinu á handritshöfundi
„Klipparar segja að myndin verði til í klippitölvunni,
þó ég telji að hún verði til fyrst í hausnum á handrits-
höfundinum, í þessu tilfelli Huldari, og síðan í hausnum
á mér, og svo þegar Árni Páll og tökumaðurinn Morten
Søborg leggja höfuðin saman í bleyti og svo heldur hún
áfram og áfram og vex og mótast sem samvinna þeirra
sem koma að myndinni.“
Leikmyndahönnuðurinn Árni Páll Jóhannsson, hefur
verið náinn samstarfsmaður Friðriks Þórs í gegnum
tíðina og hefur unnið með honum í mörgum af hans
frægustu myndum, þar á meðal Djöflaeyjunni, Skytt-
unum, Börnum náttúrunnar, Bíódögum og Á köldum
klaka.
Morten Søborg, sem stjórnaði kvikmyndatöku á
Niceland, hefur tekið nafntogaðar danskar myndir á
borð við Elska þig að eilífu (Elsker dig for evigt) og Í
Kína borða menn hunda (I Kina spiser de hunde).
Friðrik segist afar ánægður með það samstarfsfólk
sem hann hefur fengið til liðs við sig við gerð Niceland.
„Við erum að byrja að leggjast yfir tónlistina núna,
Hilmar Örn Hilmarsson hefur alltaf gert tónlistina í
mínum myndum og hann kemur vonandi að þessu líka
og einnig fleiri góðir tónlistarmenn.
Þetta er mjög „nice“ lið, valinn maður í hverju rúmi,
það þýðir að ég þarf lítið að gera, hver einasti maður,
leikarar, tökumenn, leikmynd og búningar, klipping,
þetta er allt alveg úrvals lið. Við stefnum á að skapa
andrúmsloft sem er vonandi einstakt ef vel tekst til.“
Daninn Anders Refn klippir kvikmyndina Niceland
Morgunblaðið/Jim Smart
Daninn Anders Refn og Sigvaldi Kárason unnu saman
við að að fínklippa Niceland í liðinni viku.
Morgunblaðið/Kristinn
Friðrik Þór segist afar ánægður með samstarfsfólkið.
Frá tökum á Niceland sem fram fóru á Íslandi í sumar.
Náinn samstarfs-
maður Lars
von Triers