Morgunblaðið - 28.09.2003, Qupperneq 21
um kemur hann við á leið vestur til
Los Angeles. Þá höfum við stund-
um kvöldmat saman og morgun-
mat. Mér finnst það vera nauðsyn-
legt að hafa samband við
skyldfólkið og vinafólk og ég vil
síður gleyma íslenskunni. En það
tala hana orðið fáir hérna. Það er
mest að fólk hérna heilsist og
kveðjist á íslensku, en ég hef tekið
á móti bændahópum frá Íslandi og
ég hef dálítið gaman af því.“
Þegar Torfi lítur yfir farinn veg
segir hann að ferðirnar til Íslands
standi upp úr. „Það gat ekki verið
mikið betra. Áður en ég fór fyrstu
ferðina hafði ég hugmynd um land-
ið af því að mamma og pabbi sögðu
okkur svo mikið um Ísland. Þegar
ég kom þangað og sérstaklega
þegar ég kom á Vestfirðina, þar
sem þau ólust upp, sá ég alveg
plássin sem þau höfðu útlýst fyrir
okkur. Mér fannst eins og ég ætti
næstum því heima þar. Samt var
ég ekki alveg tilbúinn að flytja. En
það var líka gaman að kynnast
fólkinu. Ég vissi af skyldfólkinu en
að sjá það og tala við það og vera
með því var skemmtilegt. Þar sem
ég ólst upp í Norður-Dakóta vor-
um við bara fjögur. Engin önnur
skyldmenni neins staðar fyrr en
norður í Kanada. Það var ekki fyrr
en ég var orðinn tólf eða þrettán
ára að ég fór fyrst norður til Kan-
ada og hitti skyldfólk. En ég hef
alltaf verið Íslendingur. Þegar ég
var í hernum þá var ég í skóla fyr-
ir tíma. Við vorum fjórir menn í
hverjum hópi og það var verið að
kenna okkur að gera við her-
mannabíla og svoleiðis. Fyrsta sem
kennarinn gerði var að kynnast
hópnum og spurði okkur að nafni.
Þegar hann spurði mig sagði ég
Torfi Guðbjartur. Hann horfði á
mig og spurði svo: Hverrar þjóðar
ertu? Ég segi ég er Íslendingur.
Íslendingur? segir hann. Ég hélt
að þeir væru eskimóar. Lít ég út
fyrir að vera eskimói? sagði ég og
þá sagði hann ekkert. Ég fann út
seinna að hann var fæddur og upp-
alinn í Kaliforníu og það var ekki
nema von að hann spyrði því hann
hafði örugglega aldrei heyrt um Ís-
lendinga áður enda vissi fólk hérna
ekki mikið um Ísland fyrr en eftir
stríðið.“
steg@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 21
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri á skíði til eins vinsælasta skíðabæjar í Austurrísku ölpunum, Zell
am See. Beint leiguflug til Salzburg, þaðan sem er aðeins um klukkustund-
arakstur til Zell. Í boði eru góð þriggja og fjögurra stjörnu hótel í hjarta
Zell, rétt við skíðalyfturnar, veitingastaði, verslanir og kvöldlífið. Í Zell er
að finna frábærar aðstæður fyrir skíðamanninn. 55 lyftur eru á svæðinu þ.a.
hægt er að velja um allar tegundir af brekkum, allt eftir getu
hvers og eins. Úrval verslana, veitinga- og skemmtistaða er í
bænum sem og í næstu
bæjum.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.950
Salzburg, flugsæti og skattar.
Verð kr. 59.950
Flug, skattar og gisting, m.v. hótel án
nafns, Zell am See/Kaprun. Vikuferð
með morgunverð, m.v. 2 í herbergi.
· 31. jan.
· 7. feb.
· 14. feb.
Beint flug til Salzburg
Skíðaveisla Heimsferða
Austurríki
Zell am See – St. Anton - Lech
NÁMSAÐSTOÐ
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
íslenska - stærðfræði - enska - danska - spænska - þýska
- franska - eðlisfræði - efnafræði - bókfærsla o.fl.
Nemendaþjónustan sf. www.namsadstod.is
Innritun í síma 557 9233 kl. 17-19 virka daga
! !
" !
# $ % %&
' #(#
)## %&
Ítölsk undirföt
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Síðumúla 3
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111