Morgunblaðið - 28.09.2003, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 23
hreinsiklútar
fjarlægja andlits- og augnfarða á augabragði
Í hreinsiklútunum er andlitsvatn og kamilla, sem hefur róandi
og nærandi áhrif á húðina og viðheldur réttu rakastigi hennar.
Fást í apótekum og stórmörkuðum.
Dr. Fisher hreinsiklútarnir
eru ofnæmisprófaðir
og henta öllum húðgerðum.
Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum
kjörum með beinu flugi í haust. Allsstaðar nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra
okkar sem eru á heimavelli á söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir á
meðan á dvölinni stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum
Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust.
Fegurstu
borgirnar
í beinu flugi í haust
frá kr. 19.950
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Róm
1.-5. okt. - Uppselt
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri
til borgarinnar eilífu, í beinu flugi þann
1. október frá Íslandi til Rómar. Nú get-
ur þú kynnst þessari einstöku borg sem á
engan sinn líka í fylgd fararstjóra
Heimsferða og upplifað árþúsundamenn-
ingu og andrúmsloft sem er einstakt í
heiminum. Péturstorgið og Péturskirkj-
an, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar,
Colosseum, Forum Romanum og
Pantheon hofið. Sjá www.heimsferðir.is
Verð frá kr.65.650
Búdapest
Október - Síðustu sætin
fimmtud. og mánud.,
3, 4 eða 7 nætur
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Ís-
lendingum býðst nú að kynnast í beinu
flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um
góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest
og spennandi kynnisferðir með fararstjór-
um Heimsferða.
Verð kr. 29.550
Flugsæti til Budapest, 9. okt.
Verð kr. 39.550
Helgarferð til Budapest, 9. okt., 4 nætur.
M.v. Tulip Inn, 2 í herbergi, með morgun-
mat.
Prag
Okt. og nóv.
fimmtud. og mánud.,
3, 4 eða 7 nætur
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslend-
inga sem fara nú hingað í þúsundatali á
hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar
Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna
þér sögu hennar og heillandi menningu.
Góð hótel í hjarta Prag.
Verð kr. 19.950
Flugsæti m.v. tvo fyrir einn, 6. okt.
Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til
fimmtudags.
Verð kr. 39.950
Flug og gisting, 9. okt, Expo hótel, m.v. 2
í herbergi með morgunmat.
Barcelona
2./22./26./30. okt. 4 nætur
Einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga
í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú beint flug í
október, sem er einn skemmtilegasti
tíminn til að heimsækja borgina. Menn-
ingarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval
listsýning og tónleika að heimsækja
ásamt spennandi næturlífi og ótrúlegu
úrvali verslana. Fararstjórar Heimsferða
kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér
á heimavelli.
Verð kr. 49.950
Flug og hótel í 4 nætur m.v. 2 í herbergi
á Aragon, 22. okt., 4 nætur. Skattar inni-
faldir.
Verð kr. 36.550
Flugsæti til Barcelona með sköttum.
Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa Tor-
lonia, flug, gisting, skattar, íslensk farar-
stjórn. Ekki innifalið: Forfallagjald, kr.
1.800, valkvætt. Ferðir til og frá flug-
velli, kr. 1.800.
hluta á þjónustugreinum eru við-
kvæmari fyrir faraldri eins og
HABL en þau sem byggjast hlut-
fallslega fremur á iðnaði og fram-
leiðslugreinum.
Ferðaþjónusta í Toronto varð fyr-
ir þungu höggi þegar Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin gaf út viðvör-
un til þeirra sem hugðust heimsækja
Toronto. Erlendir ferðamenn í Kan-
ada skiluðu á síðasta ári um 1.070
milljörðum króna í þjóðarbúið og er
hlutur Toronto áætlaður um fimmt-
ungur af því. Hagfræðingar gera ráð
fyrir um 50% samdrætti í ferða-
mannaþjónustu á Toronto-svæðinu á
árinu 2003 og um 10% samdrætti í
landinu öllu. Ferðamálaráð Kanada
áætlar að í heild hafi tapast um
662.000 gistinætur í aprílmánuði ein-
um saman og dregur ráðið upp
svarta mynd af atvinnuástandinu
innan ferðaþjónustunnar. Reiknað
er með að stöðugildum í ferðaþjón-
ustunni í Kanada muni fækka um allt
að 5.300 á árinu 2003. Tekjumissir
ferðaþjónustunnar í Toronto vegna
HABL-sjúkdómsins er áætlaður 66
milljarðar króna á árinu 2003. Þó að
Toronto-svæðið verði aðallega fyrir
áhrifum af völdum sjúkdómsins má
greina fækkun ferðamanna um allt
land. Toronto-flugvöllur er stökk-
pallur til margra áfangastaða í Kan-
ada og hefur ferðamönnum til staða í
nágrenni Toronto, eins og t.d. Niag-
ara-fossanna, fækkað mikið og hafa
nánast allir ferðamannastaðir í Kan-
ada orðið fyrir tekjutapi vegna
þessa.
Í upphafi HABL-faraldursins bár-
ust snemma fréttir af tómum versl-
unarmiðstöðvum og veitingastöðum
á Toronto-svæðinu. Mörgum veit-
ingahúsum í Toronto var lokað
vegna fækkunar gesta, ekki síst
heimamanna, þó sérstaklega í þeim
borgarhlutum sem hafa mikil sam-
skipti við Kína og Suðaustur-Asíu.
Til þess að sporna við þessu flykkt-
ust pólitískir leiðtogar á veitinga-
staði í Kínahverfinu til þess að sanna
fyrir almenningi að öruggt væri að
heimsækja veitingastaði og verslanir
í þeim borgarhluta. Hagfræðingar
gera ráð fyrir um 2% minni eyðslu
almennings á Toronto-svæðinu
vegna HABL. Líkur eru á að al-
menningur hafi aðeins frestað inn-
kaupum og talið er að á seinni hluta
ársins megi greina aukningu í smá-
söluverslun. Þó að slæm efnahagsleg
áhrif HABL teygi anga sína víða um
heim hefur tímaritið The Economist
komist að þeirri niðurstöðu að sjúk-
dómurinn hafi skapað veltuaukningu
og rekstrarhagnað hjá fyrirtækjum
sem bjóða þjónustu sína á Netinu.
Forstöðumenn söngleikjanna
Mamma Mia og Lion King hafa
ákveðið að draga saman seglin og
hætta sýningum á söngleikjunum í
haust þar sem þeir telja að ekki sé
lengur grundvöllur fyrir sýningum.
Þá hefur uppsetningum á nýjum
leikhússtykkjum fækkað. Shake-
speare-hátíðin sem haldin er í Strat-
ford í Ontario frá því í aprílbyrjun og
til nóvemberloka ár hvert og dregur
að sér um 600.000 gesti er í ár ekki
svipur hjá sjón þar sem gestum hef-
ur fækkað nú í fyrsta skipti frá því á
árinu 1952.
Toronto er með réttu kölluð Holly-
wood norðursins vegna sívaxandi
kvikmyndaiðnaðar og eru margar
stórmyndir teknar hér árlega. Velta
kvikmyndaiðnaðarins nemur um 60
milljörðum króna á ári og virðist sem
hún ætli að standast áfall HABL og
jafnvel bæta heldur við sig, þar sem
fleiri kvikmyndir verða gerðar hér í
ár en í fyrra þrátt fyrir að hætt hafi
verið við gerð allnokkurra mynda sl.
vor.
Samdráttur í útflutningi
Kanadískt efnahagslíf verður að
líkindum fyrir einhverjum búsifjum
vegna minnkandi útflutnings til
svæða þar sem HABL hefur geisað
eins og Hong Kong, Kína og Singa-
púr. Heildarútflutningur Kanada ár-
ið 2002 til þessara landa var um 342
milljarðar íslenskra króna. Áætlanir
gera ráð fyrir allt að 5% samdrætti
útflutnings eða sem nemur 0,05% af
vergri landsframleiðslu (VLF) (VLF
= heildarverðmæti fullbúinnar vöru
og þjónustu sem framleidd er í land-
inu, án tillits til hver á framleiðslu-
þættina sem notaðir voru). Áhrif
þessa þáttar á VLF Kanada verða
því mjög lítil og vart mælanleg. Allar
líkur eru á að um leið og þessi lönd
ná sér komist viðskipti milli land-
anna í samt horf og áður.
10.000 manns í einangrun
Framleiðni minnkaði hjá þeim fyr-
irtækjum sem misstu starfsmenn
sína í einangrun en dæmi voru um að
nokkur hundruð starfsmanna í fyr-
irtækjum væru sendir í sóttkví. Þar
sem engin meðferð er til gegn
HABL-veirunni var eina ráðið að
treysta borgurum til að fara sjálfvilj-
ugir í sóttkví í allt að tíu daga til að
hafa einhver tök á að hefta út-
breiðslu sjúkdómsins. Um tíma voru
allt að 10.000 manns í einangrun
heima hjá sér eða á stofnunum.
Ýmislegt hefur komið í ljós sem
vakið hefur pólitískar deilur eftir að
menn fóru skoða afleiðingar HABL.
Í faraldrinum var fólki bannað að
fara á milli sjúkrahúsa, en þá kom í
ljós að um helmingur allra hjúkrun-
arfræðinga í Toronto vann á fleiri en
einum vinnustað til þess að hafa fulla
vinnu þar sem mikið er um íhlaupa-
vinnu og hlutastöður en með þessu
móti hafði sjúkrahúsunum tekist að
spara ýmis útgjöld sem fylgja heilum
stöðugildum. Þetta fyrirkomulag var
harðlega gagnrýnt af Félagi hjúkr-
unarfræðinga í Ontario en félagið
hafði margoft bent á þetta. Hjúkr-
unarfræðingar hafa líka gagnrýnt
yfirvöld fyrir ónógar smitvarnir og
fyrir að hafa ekki tekið alvarlega
ýmsar ábendingar og telja að hefði
slíkt verið gert hefðu afleiðingar
HABL ekki orðið eins stórfelldar og
raunin varð. Auðvelt er hins vegar að
átta sig á hlutunum eftir á og ekki
eru allir sammála þessum ganrýn-
isröddum.
Áður en HABL breiddist út í Tor-
onto voru sjúkrahús þá þegar í
nokkrum fjárhagskröggum eins og
áður sagði og er kostnaður fylkisins
vegna HABL-sjúkdómsins metinn á
um 67,8 milljarða íslenskra króna.
Kostnaður heilbrigðisþjónustunnar
einnar og sér er um 56,7 milljarðar
króna og fer vaxandi með hverjum
degi. Sjúkrahús í Ontario-fylki voru
um tíma svo fjárvana að bankastofn-
anir íhuguðu að loka á fyrirgreiðslu
til þeirra. Til að ná endum saman
vantar 161 sjúkrahús í Ontario rúma
83 milljarða króna og hefur fylkis-
stjórnin óskað eftir því að ríkis-
stjórnin greiði um 90% af þessum
„hamfarakostnaði“ eins og hún hefur
áður gert þegar hamfarir hafa geisað
í öðrum fylkjum Kanada. Ríkis-
stjórnin hefur hins vegar boðist til að
reiða fram 15 milljarða króna aðstoð
þar sem hún skilgreinir HABL-far-
aldurinn ekki sem hamfarir. Nýjustu
fréttir herma þó að ríkisstjórnin
muni væntanlega leggja fram veru-
legan fjárstuðning til að rétta úr
fjárþörf sjúkrahúsa í Ontario.
Toronto lifir og blómstrar
Óhætt er að segja að Torontobúar
hafi barist af fullri hörku við HABL
og nú virðist sem sú barátta hafi bor-
ið árangur. Þegar HABL-faraldrin-
um var endanlega lokið ákváðu borg-
aryfirvöld að vekja borgina til lífs á
nýjan leik með hjálp Rolling Stones
og vina þeirra. Hinn 26. júlí sl. voru
haldnir stærstu popptónleikar í sögu
Kanada þar sem um 450.000 manns
komu saman til þess að hlusta á Mick
Jagger og félaga hans. Tónleikarnir
heppnuðust frábærlega og voru víta-
mínsprauta í allt líf borgarinnar. Líf-
ið hér er nú að mestu leyti komið í
sitt fyrra horf og er óhætt að mæla
með Toronto sem spennandi áfanga-
stað.
Þrátt fyrir þau áföll sem fylgdu
HABL stendur kanadíska hagkerfið
sterkt sem fyrr, leiðir G8-löndin og
sýnir meiri hagvöxt en það banda-
ríska fimmta árið í röð. Ekki verður
þó litið framhjá þeim fjölmörgu fyr-
irtækjum og einstaklingum sem orð-
ið hafa fyrir gríðarlegum tekjumissi
og jafnvel orðið gjaldþrota vegna
HABL. Ef borin eru saman áhrif
HABL-veikinnar á kínverska hag-
kerfið og það kanadíska verða áhrif-
in hlutfallslega mun minni í Kína en í
Kanada þar sem eingöngu 28 %
vinnuaflsins í Kína starfa í þjónustu-
greinum en um 78% í Kanada.
HABL hefur minnt okkur á að
þrátt fyrir miklar framfarir í lækna-
vísindum eru margir smitsjúkdómar
ólæknanlegir og eru raunveruleg
ógn við almannaheilsu. Með nútíma-
samgöngum þarf lítið til að þeir
breiðist hratt út og í Toronto var það
einn sjúklingur sem kom af stað far-
aldri sem olli margmilljarða tjóni og
44 dauðsföllum hér í borg. Það hefur
líka sýnt okkur að heilbrigðisstarfs-
fólk er tilbúið að setja sig og sína
nánustu í talsverða hættu í starfi
sínu við að hjálpa öðrum. Eins sést
hve viðkvæm atvinnugrein ferða-
þjónustan er og hvað hún er van-
burðug gagnvart áföllum sem þess-
um.
Nú hafa borist fréttir af nýjum til-
fellum HABL í Singapúr og er því
ljóst að ekki hefur tekist að ráða nið-
urlögum veirunnar. Ekki er ólíklegt
að mannkyninu standi ógn af sjúk-
dóminum HABL um ókomna tíð.
Heilbrigðisstéttir og almenningur í
Toronto eru án efa betur undirbúin
til að mæta næsta faraldri.
Helstu heimildir
BMO Financial Group. Economic Depart-
ment Commentary. 29. apríl 2003.
Briem H. Heilkenni alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu (HABL). Læknablaðið 2003;
89: 442–44.
Cumulative number of reported probable
cases of severe acute respiratory syndrome
(SARS). http://www.who.int/csr/sars/
country/2003_07_03
Fowler RA, Lapinsky SE, Hallett D, o.fl.
(Toronto SARS Critical Care Group). Crit-
ically ill patients with severe acute respira-
tory syndrome. JAMA. 2003 Jul. 16; 290 (3):
367–73.
Fréttavefur CBC, kanadíska ríkissjón-
varpsins (www.cbc.ca/news/). Júlí 2003.
Kuiken T, Fouchier RAM, Martin Schutten
M, o.fl. Newly discovered coronavirus as
the primary cause of severe acute respira-
tory syndrome. Lancet 2003; 362: 263–70.
Lew TW, Kwek TK, Tai D, o.fl. Acute re-
spiratory distress syndrome in critically ill
patients with severe acute respiratory
syndrome. JAMA. 2003 16; 290: 374–80.
Sibbald B. Right to refuse work becomes
another SARS issue. CMAJ. 2003 22; 169:
141.
The Economic Impact of SARS. The Con-
ference Board of Canada. Maí 2003.
The Economist.
The Toronto Star (www.thestar.com). Ýms-
ar greinar frá maí til september 2003.
Þorsteinn Gunnarsson er heilaskurð-
læknir og Kristinn Þór Jakobsson er
viðskiptafræðingur. Báðir eru búsettir
í Kanada.