Morgunblaðið - 28.09.2003, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 25
Skapandi skrif- námskeið
UtanSviga ehf. auglýsir námskeið:
Leikritun mánudagskvöld
Smásagnagerð þriðjudagskvöld
Söngtextagerð miðvikudagskvöld
Glæpa, og spennusagnagerð fimmtudagskvöld
Leiðbeinendur:
Andri Snær Magnason, skáld, Árni Ibsen, leikskáld, Karl Ágúst
Úlfsson, leikskáld og rithöfundur, Kristján Hreinsson, skáld og
söngtextahöfundur, Ólafur Haukur Símonarson, leikskáld,
Viktor Arnar Ingólfsson, rithöfundur o.fl.
Námskeiðin hefjast 13 október og þeim lýkur
4. desember 2003.
Hvert námskeið er 24 klukkustundir. Kennt er á kvöldin í
Félagsheimili Félags íslenskra leikara, Lindargötu 6, 101 Rvík.
Ath. að stéttarfélög styrkja meðlimi sína til að sækja námskeið.
Allar aðrar upplýsingar eru á heimasíðu UtanSviga
Skráning er hafin á heimasíðu UtanSviga.
www.utansviga.is
Upplýsingar í síma 561 0070 á milli kl. 21.00 og 23.00.
ÞAÐ er heldur rýmra um Erling og
Kalla Bjarna í Loftkastalanum í vest-
urbæ Reykjavíkur en í Freyvangi í
Eyjafjarðarsveit. Sviðsmyndinni er
ekki breytt heldur er fjarlægðin milli
einstakra hluta hennar heldur meiri.
Hvað þessa mannfáu sýningu sem
gerist að mestu leyti í sömu íbúðinni
varðar er þetta ekki kostur þar sem
innilokunarkenndin sem einkenndi
sýninguna á þröngu sviðinu í Frey-
vangi verður minna áberandi á sviði
Loftkastalans.
Ástæða þess að aftur er tæpt á sýn-
ingunni er að Gísli Pétur Hinriksson
leikur Frank Heiðar, stuðningsfull-
trúa þeirra félaga, í Reykjavík í stað
Skúla Gautasonar sem gegnir sama
hlutverki fyrir norðan. Gísli Pétur er
sennilega þekktastur fyrir að leika
Gretti sterka Ásmundarson í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu í vetur sem leið.
Frank Heiðar hans er af allt öðrum
meiði, mjúki maðurinn út í gegn, og
Gísla Pétri tekst að skapa mjög sann-
færandi persónu sem er ávallt trú-
verðug og samkvæm sjálfri sér og
umhverfi sínu.
Nokkur frumsýningarskjálfti
hrjáði Stefán Jónsson í byrjun en
þegar hann komst yfir hann sýndi
hann jafnvel enn sterkari leik en á
frumsýningunni nyrðra. Kalli Bjarni
var þunglyndislegri út í gegn hjá Jóni
Gnarr en áður, leikurinn því jafnari
og þau augnablik þar sem Jón brá á
leik færri og áhrifameiri. Hildigunnur
Þráinsdóttir lét ekki sitt eftir liggja
frekar en fyrri daginn og leikurinn í
heild er betri en í Freyvangi.
Það láðist að minnast á þýðingu
verksins og staðfærslu í umsögn um
sýninguna í Freyvangi og því stutt-
lega minnst á hana hér. Þýðandanum,
Hallgrími Helgasyni, tekst hér vel
upp við að ljá persónunum sérkenni
með orðavalinu. Verkið er látið gerast
á höfuðborgarsvæðinu fyrir skömmu
og tekst dável til. A.m.k. er lýsingin af
gönguförinni úr Hátúni niður á
Grandrokk vel til fundin. Samt verða
ákveðin atriði hálfótrúleg í þessu
samhengi, t.d. framkoma Gunnhildar
og Franks Heiðars við skjólstæðinga
sína. Ísland er einhvern veginn of
einsleitt samfélag til að allt gangi upp
þegar staðfært er þótt hér séu ekki á
stórir hnökrar. Í raun má segja að
Hallgrímur hafi gengið eins langt og
hægt er að gera án þess að fara að
krukka í innviði verksins. Segir Tóm-
as ekki að hjörtum mannanna svipi
saman í Súdan og Grímsnesinu? Þetta
verk sannar að þó ekki sé sérlega
langt milli Óslóar og Reykjavíkur er
eitthvað svo sérstaklega norskt við
persónu Erlings að aldrei verður
hægt að laga hann fullkomlega að ís-
lenskum aðstæðum.
Sérsinna félagar
sunnan heiða
LEIKLIST
Sögn og LA í Loftkastalanum
Höfundur upphaflegra skáldsagna: Ingv-
ar Ambjörnsen. Höfundur leikgerðar: Ax-
el Hellstenius. Þýðing og staðfærsla:
Hallgrímur Helgason. Leikstjóri: Bene-
dikt Erlingsson. Leikmynd og búningar:
Axel Hallkell Jóhannesson. Hönnun lýs-
ingar: Björn Bergsteinn Guðmundsson og
Ingvar Björnsson. Hljóðmynd: Hallur Ing-
ólfsson. Förðun: Sigríður Rósa Bjarna-
dóttir. Leikarar: Hildigunnur Þráinsdóttir,
Jón Gnarr, Gísli Pétur Hinriksson og Stef-
án Jónsson. Laugardagur 13. september.
ERLING
Morgunblaðið/Ásdís
„Gísla Pétri tekst að skapa mjög sannfærandi persónu sem er ávallt trú-
verðug og samkvæm sjálfri sér og umhverfi sínu,“ segir í umsögn.
Sveinn Haraldsson
HARALDUR Árnason og Jóna G.
Hermannsdóttir færðu á dögunum
Landsbókasafni Íslands – Háskóla-
bókasafni að gjöf tvo glerskápa
með blekbyttum og margvíslegum
áhöldum sem tengjast hinni fjöl-
breytilegu rittækni er þróast hefur
í aldanna rás. Haraldur hefur safn-
að þeim munum sem hér um ræðir
um árabil, og þótti honum vel við
hæfi að finna þeim stað innan
veggja Þjóðarbókhlöðunnar vegna
skyldleikans við það efni sem þar er
varðveitt.
Hjónin Jóna G. Hermannsdóttir og Haraldur Árnason afhenda lands-
bókaverði, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, gjafabréfið.
Landsbóka-
safn fær
blekbyttur
að gjöf
KAMMERKÓR Reykjavíkur
hefur hafið vetrarstarfið.
Nokkur pláss eru laus í alt og
sópran en kórinn er að mestu
skipaður fólki með mikla
reynslu af söng. Æfingar eru í
húsakynnum Nýja tónlistar-
skólans undir stjórn Sigurðar
Bragasonar.
Dagskráin í vetur verður
nokkuð blönduð en fyrirhugað-
ir eru tónleikar í mars í og utan
Reykjavíkur.
Kammerkór
hefur vetr-
arstarfið
FRÉTTIR
mbl.is