Morgunblaðið - 28.09.2003, Síða 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku Fríða mín.
Mig langar með nokkr-
um orðum að þakka þér
fyrir þær sem stundir
sem við áttum saman
frá því ég kynntist Matta syni þín-
um. Þú tókst hlýlega á móti mér og
allt þitt viðmót til mín og stelpnanna
minna var mjög hlýtt.
Þú fylgdist alltaf vel með öllu sem
við vorum að bralla og varst stolt af
Matta þegar hann kláraði sveinspróf
í húsasmíði í vor. Í sumar þegar við
vorum flutt í Yrsufellið komuð þið
Matthías til okkar Matta. Fannst
mér sá dagur alveg yndislegur. Við
sátum úti á pallinum og fengum okk-
ur kaffi og með því. Veðurguðirnir
léku á als oddi og það var alveg
greinilegt að þér leið vel þarna í sól-
inni, þú varst að tala um Svíþjóðar-
MÁLFRÍÐUR ÞOR-
STEINSDÓTTIR
✝ Málfríður ÓlínaÞorsteinsdóttir
fæddist í Reykjavík
2. desember 1935.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja
17. september síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá
Fossvogskirkju 26.
september.
ferðina sem þið Matth-
ías voruð að fara í. En
ekki fór nú allt eins og
það átti að fara og
veiktist þú mikið úti
nóttina eftir að þú
komst út. Við Matti
komum út til Svíþjóðar
daginn eftir að þú
veiktist og heimsóttum
þig á sjúkrahúsið en
þar varstu í mánuð þar
til þú varst flutt heim
og kvaddir okkur svo
tæpum tveim sólar-
hringum eftir að þú
komst heim.
Elsku Fríða mín, ég þakka þér
fyrir samveruna.
Kveðja.
Sigríður.
Elsku amma. Við vonum að þér líði
betur þarna uppi og fáir að hvílast
vel. Við eigum eftir að sakna þín mik-
ið því þú varst alltaf svo góð við okk-
ur. Við eigum allta eftir að muna eft-
ir pönnukökunum þínum og brúnuðu
kartöflunum sem við fengum alltaf
með steikinni þinni þegar við komum
í heimsókn. Þetta er brot af mörgum
góðum minningunum sem við eigum
um þig og þær eiga eftir að geymast
eins lengi og við lifum. Biddu Guð að
hjálpa okkur að hugsa um afa Matta
og börnin þín.
Ástarkveðjur.
Þínar ömmustelpur
Jónína Rut Matthíasdóttir og
Laufey Dröfn Matthíasdóttir.
Elsku amma Fríða. Núna ertu far-
in frá okkur, það er skrýtið að fá ekki
kveðju frá þér á kvöldin eins og var
alltaf þegar mamma var búin að
bjóða þér og afa Matta góða nótt í
gegnum símann. Það er líka skrýtið
að fá ekki bréfin frá þér, elsku amma
mín, en þau munum við alltaf varð-
veita. Við munum líka hringja í afa
Matta og bjóða honum góða nótt og
hugsa um hann fyrir þig. Þúsund
kossa varstu vön að senda okkur og
núna sendum við þér þá, elsku
amma. Guð geymi þig. þú verður
alltaf í hjörtum okkar.
Þín barnabörn
Guðbjörg og Gunnar, Svíþjóð.
Ó, elsku amma mín. Ég vildi ég
gæti hlaupið aftur heim til þín. Séð á
ný þínar rauðu kinnar og breiða
brosið þitt, séð þig taka upp pönnuna
og spæla eggið mitt.
Alltaf varstu máluð, alltaf varstu
fín. En nú verð ég að segja: Sjáumst
seinna, elsku amma mín.
Þitt barnabarn
Matthías Baldur Kjartansson.
Elsku Binna mín, nú er komið að
kveðjustundinni. Nú ertu horfin yf-
ir móðuna miklu og hefur hlotið
hvíldina sem þú varst farin að þrá.
Veit ég að þú hefur hlotið góða
BRYNHILDUR
BALDVINSDÓTTIR
✝ Brynhildur Bald-vinsdóttir fædd-
ist 6. febrúar 1915.
Hún lést á Elli- og
hjúkrunarheimilinu
Grund hinn 9. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Vilborg Jakobs-
dóttir verkakona, f. á
Ísafirði 22. júní 1893,
og Baldvin Halldórs-
son, f. í Næfurholti í
Rang. 16. nóvember
1889, togaraskip-
stjóri í Hafnarfirði
um árabil.
Brynhildur eignaðist tvo syni,
Alfreð Alfreðsson, f. 23.11. 1942,
og Björn Þór Jónsson, f. 22.10.
1943. Faðir þeirra var Banda-
ríkjamaður, Alfred A. Kemper.
Síðustu árin vann Brynhildur á
Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund.
Brynhildur var jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 24. sept-
ember.
heimkomu, enda gerð-
irðu góðverk hér. Ég
man þegar ég byrjaði
á Grund fyrir 24 árum
en kynntist þér ekki
alveg strax, ekki fyrr
en eftir stuttan tíma,
þá fórum við að vinna
saman. Þú varst á
minni ganginum og ég
á stærri, við vorum
bara tvær. Ég verð
ævinlega þakklát
henni Guðrúnu Gísla
fyrir að hafa fengið að
vinna á þessum gangi,
annars hefði ég ekki
fengið að kynnast þér svona náið.
Þú tókst mér eins og ég væri þín
eigin dóttir, ég mun geyma það í
hjarta mínu. Það var oft erfiður
tími hjá mér á vinnustaðnum og þá
varst það þú sem stóðst við hliðina
á mér, þegar ég var alveg við það
að gefast upp, en þú sagðir alltaf
svona: „Lóló, stattu með sjálfri
þér.“ Þú varst eina sem sagðir allt-
af af og til: „Sko Lóló,“ og þegar ég
kom og heimsótti þig á Grund þá
kom þetta nafn aftur af og til og
þér leið vel á Grund. Og hvað
starfsfólkið var gott við þig. Þú
spurðir alltaf hvernig móðir mín
hefði það og börnin mín. Við áttum
líka eitt sameiginlegt að við þurft-
um að láta börnin frá okkur sem
var nú ekki það besta en maður
þarf að læra að lifa með ýmsu.
Lífið hjá þér var ekki alltaf dans
á rósum, en aldrei kvartaðir þú, en
svona er nú lífið, það verður nú
ekki á allt kosið. En við gátum oft
hlegið að ýmsu, oft var ekki hægt
að stoppa hláturinn, og á ég líka
góðar minningar frá því að við unn-
um saman, og hvað Guðrún Gísla
var mér góð og hennar fjölskylda.
Það tekur því ekki bara að minnast
á það slæma.
Ég vil þakka þér samfylgdina og
allt það góða sem frá þér stafaði og
mér þykir afar vænt um þig og
geymi góðar minningar um þig.
Fjölskyldan mín sendir þér innilega
kveðju. Bið ég til þér blessunar
Guðs og sendi Alla og Rósu innilega
samúðarkveðju. Minningin um góða
móður og vinkonu mun lifa.
Sárt er vinar að sakna,
sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna,
svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta,
húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta
vinur þó falli frá.
Góðar minningar geyma,
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Með bestu kveðju.
Þín vinkona,
Ólöf Jónsdóttir.
Við viljum með nokkrum línum
minnast hennar Binnu okkar. Binna
var tíður gestur á heimili okkar og
þótt vegalengdin væri ekki löng á
milli heimila okkar var hún hjá okk-
ur yfir heila helgi í hvert sinn. Það
var alltaf gaman þegar Binna kom
og mikið var hlegið og vakað lengi
um nætur við spilamennsku. Mörg
voru sumrin sem Binna fór með
okkur í ferðalög, bæði um landið og
til útlanda. Alltaf var hún mið-
punktur á þeim ferðalögum.
Binna var mjög barngóð og
hændust öll börn að henni. Hún bjó
í Hafnarfirði í mörg ár og starfaði
aðallega við fiskvinnslu og á yngri
árum var hún mikið hjá sængur-
konum.
Við þökkum Binnu fyrir allar
skemmtilegu stundirnar sem við
áttum með henni.
Jóhanna Jóhannsdóttir og
fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓSAFATS J. LÍNDAL
fyrrverandi sparisjóðsstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar í
Kópavogi fyrir hlýtt viðmót, gott atlæti og frá-
bæra umönnun.
Erla Líndal,
Jóhanna Líndal Zoëga, Tómas Zoëga,
Kristín Líndal, Jónas Frímannsson,
Jónatan Ásgeir Líndal, Helga Þorbergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um ástkæra eiginkonu mína,
dóttur okkar, móður, tengdamóður, ömmu,
systur og mágkonu,
ÓLÖFU HÖLLU HJARTARDÓTTUR
CHENERY,
verður haldin í Þingvallakirkju mánudaginn
29. september kl. 13.30.
David Chenery,
Jónína Ólöf Walderhaug,
Belinda Chenery, Ægir Már Þórisson,
Scott Andrew Chenery,
Mark David Chenery, Danielle Marcellino,
Anna Lilja Ægisdóttir,
Ólafur Már Ægisson,
Helga Hjartardóttir, Sveinn Skúlason,
Ragnhildur Hjartardóttir, Sigurður Jónsson,
Jóhann Hjartarson, Dóróthea Jónsdóttir.
Hjartkær sonur minn,
DAVÍÐ EIÐSSON,
sem lést sunnudaginn 21. september, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn
30. september kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrkt-
arfélag vangefinna.
Eiður Árnason.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR JÓNSSON,
Dunhaga 23,
andaðist á Landspítala Landakoti mánudaginn
22. september.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Þökkum hlýhug og samúð.
Sérstakar þakkir til alls stafsfólks deildar L1 Landakoti fyrir kærleika,
góðvild og einstaka umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
María Matthíasdóttir,
Sigurlína G. Sigurðardóttir, Magnús J. Kristinsson,
Jón Sigurðsson, Alda Harðardóttir,
Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, Ragnar Gunnarsson,
María Marta Sigurðardóttir, Ásgeir M. Jónsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA ÁRNADÓTTIR
frá Bakka,
Kópaskeri,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að morgni
miðvikudagsins 24. september verður
jarðsungin frá Breiðholtskirkju miðvikudaginn
1. október kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á líknarstofnanir.
Gígja Friðgeirsdóttir, Örn Erlendsson,
Árni Hrafn Árnason, Hlín P. Wíum,
Örlygur Örn Oddgeirsson, Jóhanna Hauksdóttir,
Þorbjörg Á. Oddgeirsdóttir, Óttar Geirsson,
Auður Oddgeirsdóttir, Árni Viðar Árnason,
Pétur Oddgeirsson, Kristrún Tómasdóttir,
Sigurgeir Oddgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.