Morgunblaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 37
✝ UnnsteinnBjörnsson fædd-
ist í Sporðhúsum í
Vestur-Húnavatns-
sýslu hinn 3. júní
1925. Foreldrar hans
voru hjónin Björn
Leví Þórðarson, f. á
Litlu-Ásgeirsá 29.
júlí 1887, d. 12. apríl
1957, og Andrea Sól-
veig Bjarnadóttir, f.
28. ágúst 1897 á Þór-
eyjarnúpi, d. 11. jan-
úar 1998. Unnsteinn
tilheyrði stórum
systkinahópi. Hin
eru: Þórður Leví, f. 1917, d. 1922;
Þóra Margrét, f. 1919, d. 1996,
Jakob, f. 1920, d. 1998, Þórður
Leví, f. 1922, d. 2003, Heiðrún, f.
1926, d. 1987, Aðalheiður Ey-
steinsína, f. 1930, d. 1980, Hörður,
f. 1937, Eygló, f. 1942 og tvíbur-
arnir Ágúst Bjarni Hólm og Helgi
Guðmundur Hólm, f. 1933.
Þegar Unnsteinn var 14 ára
flutti fjölskyldan í Bjarghús og
var þar eitt ár, síðan
á Gauksmýri og fór
svo þaðan að Neðri-
Þverá í kringum árið
1946. Hann sótti far-
skóla í æsku eins og
tíðkaðist á þessum
árum. Hann vann
vegavinnu og brúar-
vinnu heima í héraði
á unglingsárum sín-
um en einnig vann
hann við bú foreldra
sinna. Hann tók svo
við búi foreldra
sinna. Fyrri kona
Unnsteins er Edda
Edwords. Eignuðust þau fjögur
börn. Þau eru Rúnar Sólberg, f.
1961, Björn Viðar, f. 1963, Kol-
brún Huld, f. 1965, og Helga Jón-
ína, f. 1967. Eftirlifandi eiginkona
Unnsteins er Ásdís Arnardóttir.
Börn þeirra eru: Hafdís Eygló, f.
1971, Edith Edda, f. 1977, og Unn-
ur Aðalheiður, f. 1986.
Útför Unnsteins fór fram í kyrr-
þey.
Vesturhópið er fallegur staður á ís-
lenskan mælikvarða og í þessari
fögru sveit stendur bærinn Neðri
Þverá. Þar réðu ríkjum höfðingshjón-
in Steini og Dísa systir og stjórnuðu
búi. Á þennan stað, Neðri Þverá, var
gott að koma, dvelja og una sér í hún-
vetnskri sveitasælu við hlið þeirra
hjóna og með þeim. Eiga með þeim
unaðsstundir í heimsóknum sem ófá-
ar voru norður yfir heiði.
Steini var gegnheill maður, hress
og kátur, lék á als oddi og tók okkur
ávallt vel eins og sönnum manni
sæmdi. Það var gott að eiga stundir
með slíkum manni, sem var traustur
félagi og vinur og sannur eiginmaður.
Sannur sagnaþulur sem endalaust
gat sagt sögur úr sveitinni og af sveit-
inni sinni. Hann og Dísa systir voru
samhent hjón, sem studdu hvort ann-
að með ráðum og dáð og voru hvort
öðru mikilsvirði. Í sameiningu sköp-
uðu þau skemmtilegan brag á heim-
sóknir til þeirra, heimsóknir sem
ógleymanlegar eru í minningunni.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Elsku Dísa systir. Við vottum þér
og fjölskyldu þinni okkar dýpstu sam-
úð. Megi Guð styrkja ykkur á erfiðri
stundu.
Guðjón, Svava og börn.
Elsku afi. Okkur langar til þess að
minnast þín með nokkrum orðum.
Það var alltaf gaman og gott að koma
í sveitina þína og ömmu. Þar var líka
gott að vera og fá að vera með þér.
Vinna með þér og hjálpa þér í bústörf-
unum þínum sem við höfðum svo
gaman af. Þú varst svo laginn og nat-
inn við dýrin í sveitinni og kenndir
okkur að umgangast þau af nærgætni
og bera virðingu fyrir þeim. Sagðir
okkur að dýrin væru ekki skynlausar
skepnur. Þú sagðir að við ættum að
koma betur fram við dýrin, heldur en
okkur sjálf, því þau væru með jafn-
miklar tilfinningar og við, en gætu
ekki svarað fyrir sig á sama hátt og
mannfólkið.
Á kvöldin lastu aldrei fyrir okkur
sögur, heldur sagðir þú okkur sögur
fyrir svefninn. Sögur sem þú bjóst til
sjálfur jafnóðum og þú sagðir þær.
Þetta voru mest dýra- og draugasög-
ur og voru draugasögurnar mjög
kröftugar og góðar. Við urðum stund-
um dálítið hræddar eftir góða drauga-
sögu frá þér, en þá breyttir þú bara
draugasögunni í góða sögu. Þá var
mjög gaman að heyra þig flytja allar
dýravísurnar og þá sérstaklega
hestavísurnar.
Og svo var það súkkulaðið í skúff-
unni þinni. Á kvöldin þegar við fórum
að sofa spurðum við þig alltaf hvort
ekki væri súkkulaði í skúffunni. Og
það brást ekki að það var alltaf til. Og
það var gott að naga í súkkulaðið með
draugasögunum þínum.
En núna ertu farinn, afi minn, og
við vitum að þér líður vel þar sem þú
ert núna. En við eigum ekki eftir að
hittast oftar í sveitinni þinni, sinna
dýrunum með þér, biðja þig um
súkkulaði og hlusta á skemmtilegu
sögurnar þínar.
Bless elsku afi. Við munum aldrei
gleyma þér.
Steinunn og Ásdís.
UNNSTEINN
BJÖRNSSON
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 37
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILJA BJARNADÓTTIR,
áður til heimilis
í Hjaltabakka 8,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
21. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Börn, tengdasonur
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
EIRÍKS ELISSONAR,
Bláskógum 8,
Egilsstöðum.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Fjórð-
ungssjúkrahússins í Neskaupstað og gjör-
gæsludeildar Landspítala við Hringbraut.
Ingigerður Benediktsdóttir,
Elis B. Eiríksson, Eygló H. Ægisdóttir,
Viðar Eiríksson, Guðný H. Jónsdóttir
og afabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa og bróður,
VALDIMARS KRISTINSSONAR
bónda og fyrrum skipstjóra,
Núpi, Dýrafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar-
heimilinu Eir.
Áslaug Sólbjört Jensdóttir,
Ásta Valdimarsdóttir, Herman Berthelsen,
Gunnhildur Valdimarsdóttir,
Rakel Valdimarsdóttir, Sigurður Björnsson,
Hólmfríður Valdimarsdóttir, Birgir Sigurjónsson,
Kristinn Valdimarsson, Guðrún Ína Ívarsdóttir,
Jensína Valdimarsdóttir, Georg V. Janusson,
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir,
Sigríður Jónína Valdimarsdóttir,
Viktoría Valdimarsdóttir, Diðrik Eiríksson,
afabörn, langafabörn,
Guðný Kristinsdóttir.
Elskuleg frænka okkar,
SIGURBORG HJARTARDÓTTIR
frá Gröf í Þorskafirði,
sem lést sunnudaginn 21. september, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
30. september kl. 13.30.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Aðalbjörg Jónsdóttir,
Lilja Jónsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang-
ömmu,
SVÖVU LÚTHERSDÓTTUR,
Hringbraut 50,
áður Laugavegi 27B.
Guð blessi ykkur öll.
Hermann S. Ágústsson,
Elínbjörg J. Ágústsdóttir, Rúnar Ingi Finnbogason,
Bjarni J. Ó. Ágústsson, Ásta M. Marínósdóttir,
Kristín Th. Ágústsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við frá-
fall og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ELSU S. MELSTED.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjarta-
deildar 14E, Landspítala við Hringbraut og
dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar.
Páll Melsted,
Victor Melsted, Rannveig Árnadóttir,
Halldór Melsted, Þórunn Kristinsdóttir,
Hansína Melsted, Ævar Sigurðsson,
Stefán Melsted, Kristín Árnadóttir,
Páll Melsted, Guðlaug Elíasdóttir,
Ruth Melsted,
Ólafur Melsted, Valgerður Ásta Sveinsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SVERRIS HERMANNSSONAR,
Sóltúni 9,
Reykjavík.
Þakkir færum við öllu því frábæra starfsfólki á
Landspítalanum í Fossvogi og Landspítalanum við Hringbraut sem
annaðist hann í veikindum hans.
Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir,
Sigrún Sverrisdóttir, Arnar Sigurbjörnsson,
Margrét Sverrisdóttir, Viðar Guðmundsson,
Hermann Sverrisson, Margrét Erlingsdóttir,
Erna Sverrisdóttir, Viktor Jens Vigfússon,
Gunnar Sverrisson, Halla Bára Gestsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð, vinarhug og stuðning
við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
sonar, tengdasonar og bróður,
RÚNARS KOLBEINS ÓSKARSSONAR,
Gilsbakka 1,
Bíldudal.
Lára Dís Sigurðardóttir,
Salome Rúnarsdóttir,
Sigurður Hlíðar Rúnarsson,
Margrét Guðjónsdóttir, Jóhann Auðunsson,
Herdís Jónsdóttir, Sigurður Hlíðar Brynjólfsson,
Guðjón Óskarsson, Sigurrós Svavarsdóttir,
Unnur Óskarsdóttir, Viðar Arason,
Steinunn Ósk Óskarsdóttir
og systkynabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
Útfararstjóri
Sími 5679110, 8938638
Heimasíða okkar er
www.utfarir.is
Þar eru upplýsingar um
allt er lýtur að útför:
- Söngfólk og kórar
- Erfidrykkja
- Aðstoð við skrif
minningargreina
- Panta kross og frágang á leiði