Morgunblaðið - 28.09.2003, Page 47
BRÆÐUR í Kópavogi, Hákon
Guttormur og Höskuldur
Gunnlaugssynir, ræktuðu í
sumar tvö grasker sem náðu
um 30 kílóa þyngd. Fór
ræktunin fram í gróður-húsi
rétt við heimili þeirra.
Fylgdust drengirnir með
vextinum og fannst áhugavert
að fylgjast með vexti
plantnanna, sem fyrst báru
væn blóm og síðan sífellt
stækkandi ávextir.
Fjölskyldan ætlar að borða
graskerin á næstunni en þau
eru talin hinn ágætasti matur.Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hákon Guttormur 12 ára (t.v.) og Höskuldur 9 ára við
graskerin í gróður-húsinu í Kópavogi.
Ræktuðu risa-grasker
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 47
LÖGREGLAN í Stokkhólmi
telur sig nú vita hver myrti
Önnu Lindh,
utanríkis-ráðherra landsins.
Á miðvikudag var 24 ára
gamall maður handtekinn.
Hann er nú í
gæslu-varðhaldi. „Við teljum
okkur hafa upplýst málið,“
var haft eftir starfsmanni
lögreglunnar.
Per Olof Svensson sem
áður var handtekinn vegna
málsins hefur hins vegar
verið sleppt úr haldi. Hann er
mjög reiður að hafa verið
sakaður um morðið. Hann
ætlar að fara fram á bætur.
Maðurinn sem nú er í haldi
lögreglu er sagður eiga við
andlega erfiðleika að stríða.
Hann er þekktur
ofbeldis-maður. Hann stakk
meðal annars einu sinni
föður sinn með eldhús-hnífi.
Hann er sagður hafa átt
mjög erfiða æsku.
Anna Lindh var stungin
með hnífi í verslunar-miðstöð
í Stokkhólmi 10. september
síðast liðinn. Hún lést
daginn eftir. Lindh var einn
vinsælasti stjórnmála-maður
Svíþjóðar.
Tækni-menn sænsku lögreglunnar bera muni út úr íbúð hins
grunaða. Maðurinn var handtekinn á miðvikudag. Telur
sænska lögreglan morðið á Önnu Lindh nú vera upplýst.
Telja morð-
ingjann vera
fundinn
Myndlistar-konunar Sigrún
Huld Hrafnsdóttir og Þórey
Rut Jóhannesdóttir opnuðu
nýlega sýningu í norður-sal
Kjarvals-staða. Verkin eru
fjölbreytt og sýna kraftinn
sem þessar ungu konur búa
yfir. Sýning Sigrúnar og
Þóreyjar er sú fyrsta í röð
myndlistar-sýninga
lista-hátíðarinnar Listar án
landamæra. En hún er haldin
í tilefni Evrópu-árs fatlaðra
2003 og tíu ára afmæli
Átaks, félags fólks með
þroska-hömlun.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Þórey Rut Jóhannesdóttir.
List án landamæra
RAGNHILDUR Sigurðardóttir,
Íslands-meistari kvenna í
golfi, ætlar að reyna fyrir sér á
úrtöku-móti fyrir móta-röð
bestu kylfinga í Evrópu. Mótið
fer fram í Portúgal í október.
Ragnhildur segir
hugmyndina að því að fara á
mótið vera skyndi-ákvörðun.
Verður hún fyrst íslenskra
kven-kylfinga til þess að reyna
fyrir sér á þessum vettvangi í
Evrópu. Áður hafa Ólöf María
Jónsdóttir og Karen
Sævarsdóttir reynt fyrir sér í
Bandaríkjunum.
„Ég var að leita mér að
vettvangi til þess að sjá hvar
ég stæði gagnvart öðrum
kylfingum. Þetta úrtöku-mót
var eini kosturinn. Það verður
gaman að kljást við þetta og
ef vel gengur opnast margar
dyr,“ sagði Ragnhildur.
Ragnhildur
keppir í
Portúgal
EIN vinsælasta hljómsveit
landsins undanfarin ár, Sálin
hans Jóns míns, á 15 ára
afmæli í ár. Af því tilefni hélt
sveitin sérstaka
afmælis-tónleika á
skemmti-staðnum NASA á
fimmtudags-kvöldið við góðar
undirtektir.
Sálin hans Jóns míns var
stofnuð árið 1988 og hélt
sína fyrstu tónleika í
Bíó-kjallaranum 15. mars það
ár. Tilefnið var að votta
sálartónlist 7. áratugarins
virðingu. Fljótlega eftir að
töluverðar mannabreytingar
höfðu átt sér stað fór sveitin
hins vegar að leika sína eigin
tónlist. Stefán Hilmarsson
söngvari og Guðmundur
Jónsson gítarleikar voru með
frá upphafi en síðar slógust
aðrir meðlimir í hópinn hver af
öðrum, þeir Friðrik Sturluson
bassa-leikari, Jens Hansson
saxófón-leikari og Jóhann
Hjörleifsson trommari.
Á næstunni kemur út ný
plata með Sálinni hans Jóns
míns sem tekin var upp með
Sinfóníu-hljómsveit Íslands.
Ný lög verða á plötunni sem
mun heita Vatnið.
Sálin hans Jóns
míns 15 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Stefán Hilmarsson syngur af innlifun á afmælis-tónleikunum.
SNÖRP jarðskjálfta-hrina varð
í Kötlu í Mýrdals-jökli
síðdegis á mánudag.
Páll Halldórsson,
jarðeðlis-fræðingur á
jarðskjálfta-deild Veðurstofu
Íslands, segir að hrinan hafi
verið áköf meðan á henni
stóð. Upptökin hafi verið í
Kötlu en enginn vöxtur hafi
verið í ám á svæðinu. Vegna
skjáfta-hrinunnar kom
almannavarna-deild
ríkis-lögreglustjóra saman til
að meta viðbrögð. Ekki var
talið brýnt að hafa vakt um
nóttina þar sem enginn
gos-titringur fylgdi hrinunni.
Jarð-
skjálfta-
hrina í
Kötlu
Netfang: auefni@mbl.is