Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi
í gær að nýleg ummæli Kjells Magnes Bondeviks,
forsætisráðherra Noregs, um Noreg og Evrópu-
sambandið, breyttu ekki afstöðu hans til hugsan-
legrar aðildar Íslands að ESB. Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingarinnar, vakti í
fyrirspurnartíma á Alþingi í gær máls á ummæl-
um Bondeviks, sem hann lét falla í ræðu í Berlín,
og spurði í kjölfarið Davíð Oddsson um afstöðu
hans til þeirra orða. „Í netútgáfu Aftenpostens í
gær er greint frá merkilegri ræðu sem Bondevik
hélt í Berlín, þar sem hann bendir á að vegna
stækkunar sambandsins [...] sé mögulegt að sam-
runinn verði ekki eins djúpur og menn óttuðust
eins og Bondevik kýs að orða það. Vísar hann til
þess að sum ríkjanna standi utan Schengen og
önnur standi t.d. utan myntbandalagsins. Bonde-
vik segir að það opni áhugaverða möguleika sem
hann vilji skoða.“
Össur sagði að norskir fjölmiðlar túlkuðu þessi
orð Bondeviks á þann veg að hann væri að skoða
þann möguleika að Noregur yrði aðili að ESB en
semdi sig undan ákveðnum skuldbindingum eins
og önnur ríki hefðu gert tímabundið. „Í ljósi þess
hversu samferða þeir hæstvirtir forsætisráð-
herrar Davíð Oddsson og Kjell Magne Bondevik
hafa verið í Evrópumálunum þá langar mig að
spyrja hvort hæstvirtur forsætisráðherra Íslands
telji mögulegt að þarna sé um að ræða raunhæfa
leið sem hann gæti hugsanlega skoðað varðandi
Ísland.“
Ekki mikil tímamót
Davíð sagði að hann hefði rétt haft tíma til að
skoða fyrrgreind ummæli Bondeviks og að sér
sýndist að Bondevik hefði sett afar marga fyr-
irvara við orð sín. „Ég sé ekki að ummæli míns
ágæta vinar, norska forsætisráðherrans, gefi til-
efni til þess að ég endurskoði afstöðu mína,“ sagði
Davíð og bætti því við að hann teldi ummæli
Bondeviks „ekki eins mikil tímamót og þeir hjá
netútgáfu Aftenpóstsins.“
Óbreytt afstaða til
mögulegrar aðildar
Morgunblaðið/Kristinn
ÞINGMENNIRNIR Kolbrún Halldórsdóttir, Birg-
ir Ármannsson og Pétur Blöndal hlusta á umræð-
ur af athygli.
Hlustað af athygli
ARNGRÍMUR Jóhannsson, stjórnarformað-
ur Atlanta, segir að kröfur Félags íslenskra
atvinnuflugmanna, FÍA, um að íslenskir
flugmenn, flugliðar og flugvirkjar hafi for-
gang í störf hjá félaginu raski rekstrarfor-
sendum þess. Laun og kjör starfsfólks hljóti
að taka mið af þeim mörkuðum sem Atlanta
starfi á og því leitist fyrirtækið við að hafa
jafnvægi á milli Íslendinga og heimamanna á
starfsstöðvum og í áhöfnum. Hefur FÍA
gagnrýnt ráðningarmál hjá flugfélaginu.
„Því má segja að kröfur FÍA ógna starfs-
öryggi allra þeirra um 300 Íslendinga sem
starfa hjá félaginu,“ segir Arngrímur.
Hann segir að hér sé um aðdróttanir að
ræða í garð félagsins og hvergi sé að finna
neinar staðreyndir. Tilgangurinn virðist að-
eins vera sá að sverta Atlanta og valda skaða
með „aðdróttunum og hálfkveðnum vísum“.
Hann segir að Atlanta sé alþjóðlegt fyr-
irtæki sem hafi kosið að hafa höfuðstöðvar
sínar á Íslandi. „Líkt og önnur fyrirtæki sem
eru í útrás, líkt og íslensku bankarnir,
Bakkavör, Össur, Pharmaco og fleiri, erum
við með alþjóðlegt starfslið. Í flestum til-
vikum hefur þetta fólk rætur á því markaðs-
svæði sem við vinnum á. Við erum í venju-
legu árferði með um eitt þúsund manns í
vinnu, þar af eru um 300 Íslendingar. Á
álagstímum, t.d. í pílagrímaflugi, fer starfs-
mannafjöldinn upp í um 1.400 manns. Af um
200 flugmönnum hjá okkur eru 70 íslenskir,“
segir Arngrímur.
Hann bendir á að nær allar ferðir Atlanta
séu á milli erlendra áfangastaða, lítið sem
ekkert sé flogið frá Íslandi og þá einkum
nokkrar leiguflugsferðir á ári. Hann segir
Atlanta vera í harðri samkeppni við önnur
alþjóðleg flugfélög og kjör starfsfólks séu í
samræmi við þann markað.
„FÍA er aðallega félag flugmanna hjá
Flugleiðum. Félagið gerir kröfu um að upp-
runi flugmanns sé íslenskur og að Íslend-
ingar eigi að hafa forgang í öll störf. Þar sem
við fljúgum eingöngu erlendis getum við
ekki fallist á slík rök. Flestir okkar íslensku
flugmanna eru í Frjálsa flugmannafélaginu,
FFF, og því er FÍA okkur að mestu óvið-
komandi,“ segir Arngrímur.
Gagnrýni FÍA beinist m.a. að því að ís-
lenskir flugmenn hafi ekki forgang í störf
hjá félaginu en eins og kom fram í Morg-
unblaðinu sl. föstudag stefnir í að um 30
flugmenn verði atvinnulausir eftir 1. nóv-
ember.
Svipað og hjá Impregilo, segir FÍA
Örnólfur Jónsson, stjórnarmaður í FÍA og
formaður samninganefndar, segir að Atlanta
hafi um langa hríð ráðið til sín flugmenn og
flugfreyjur í gegnum vinnumiðlun á Bresku-
Jómfrúreyjunum. Svipaðir hlutir séu að ger-
ast hjá Impregilo við Kárahnjúkavirkjun
varðandi portúgalska starfsmannaleigu. Örn-
ólfur segir laun þessa Atlanta-fólks vera lé-
leg, það fái eina launafjárhæð greidda, eng-
um sköttum og tryggingargjaldi sé haldið
eftir og ekkert greitt í lífeyrissjóði. Sam-
kvæmt nýlegu áliti ríkisskattstjóra beri Atl-
anta að halda eftir sköttum og skila trygg-
ingargjaldi.
„Við gagnrýnum einnig að í stórum stíl
koma hingað flugmenn frá Bandaríkjunum,
Ástralíu og víðar sem Flugmálastjórn veitir
ákveðna fullgildingu á þeirra skírteini. Þar
með eru þeir farnir að fljúga hjá Atlanta á
íslenskt skráðum flugvélum og innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins, EES, án þess að fá
sérstakt atvinnuleyfi. Allir þeir sem koma
hingað frá löndum utan EES þurfa að fá at-
vinnuleyfi hjá Vinnumálastofnun. Okkur er
ekki kunnugt um að flugmenn hjá Atlanta
hafi gert það og aldrei hefur FÍA verið beðið
um umsögn vegna starfsemi erlendra flug-
manna, líkt og gerist hjá öðrum stéttarfélög-
um. Allt önnur lögmál virðast gilda um flug-
menn og það finnst okkur mjög ámælisvert,“
segir Örnólfur.
Atlanta segir félagið
vera með aðdróttanir
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
13.30 í dag. Þar mun Geir H.
Haarde fjármálaráðherra m.a.
mæla fyrir frumvarpi til fjárauka-
laga þessa árs.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagðist á Alþingi í gær for-
dæma árásir Ísraelsmanna á Sýr-
land um helgina. Kom þetta fram í
máli ráðherra í fyrirspurnartíma á
Alþingi.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum gerðu ísraelskar herþotur
sprengjuárásir á ákveðin skotmörk í
Sýrlandi á sunnudag. „Ég eins og
margir aðrir fordæmi árás Ísr-
aelsmanna á Sýrland þó að ég skilji
vel réttláta reiði Ísraelsmanna
vegna sjálfsmorðsárásar í Haifa,“
sagði ráðherra. Tók hann þó fram að
hann teldi það ekki bæta ástandið að
ráðast inn í Sýrland.
Þurfa að taka betur
á öryggismálum
Síðan sagði ráðherra: „Það hefur
lengi legið fyrir að Palestínumenn
þurfa að taka betur á sínum öryggis-
málum og koma með viðvarandi
hætti í veg fyrir það að slíkar árásir
[sjálfsmorðsárásir ] geti átt sér
stað.“ Hann sagði á hinn bóginn
nauðsynlegt að Ísraelsmenn stæðu
betur við það sem gert væri ráð fyr-
ir í friðaráætluninni. „Ég er sann-
færður um að þessi árás inn í Sýr-
land hjálpar ekki til í þeim efnum.
Það mun aðeins stigmagna þessi
átök.“
Vilji ekki fyrir hendi
Utanríkisráðherra kvaðst þeirrar
skoðunar að ekki yrði komið á friði á
þessu svæði nema með aðstoð al-
þjóðasamfélagsins og alþjóðlegra
friðargæsluliða.
Sagði hann flesta vera þeirrar
skoðunar. Hann sagði þó að friðar-
gæslulið færu ekki þarna inn nema
með samþykki beggja aðila, þ.e. Ísr-
aelsmanna og Palestínumanna. Sá
vilji væri ekki fyrir hendi nú.
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra
Fordæm-
ir árásina
á SýrlandÞINGMENN stjórnarand-
stöðuflokkanna gagnrýndu í utan-
dagskrárumræðu á Alþingi í gær
aðbúnað og kjör erlendu verka-
mannanna sem starfa við Kára-
hnjúka. Árni Magnússon félags-
málaráðherra svaraði því m.a. til í
umræðunum að ekkert hefði komið
fram sem gæfi tilefni til að halda að
íslenskir kjarasamningar hefðu ver-
ið brotnir.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar og málshefjandi
umræðunnar, sagði m.a. að það væri
ömurlegt og „hreint grátlegt“ að
fylgjast með fregnum af því hvernig
farið væri með erlendu verkamenn-
ina. „Mér er skapi næst að segja að
allar þær eftirlitsstofnanir sem hlut
eiga að máli hafa gripið inn í allt of
seint,“ sagði hann. „Og ég verð líka
að segja að mér hefur fundist þögn
hæstvirts félagsmálaráðherra æp-
andi á stundum. Mér hefur fundist
sem sá góði maður hefði mátt láta
sína miklu raust heyrast oftar og
fyrr heldur en raunin varð.“
Unnið með Vinnueftirlitinu
Félagsmálaráðherra sagði í upp-
hafi máls síns að það ylli honum
áhyggjum að dregið væri í efa að
farið væri að lögum og reglugerðum
og að dregið væri í efa að íslenskir
kjarasamningar væru virtir. „Í mín-
um huga væri slík framkoma ólíð-
andi með öllu ef satt reyndist.“
Hann sagðist hafa ítrekað þetta
sjónarmið sitt að undanförnu og
kvaðst undrandi á því að Össur
Skarphéðinsson skyldi ekki hafa
heyrt það. Ráðherra sagði enn-
fremur að félagsmálaráðuneytið
hefði verið í sambandi við Vinnueft-
irlit ríkisins vegna umræddra mála
við Kárahnjúkavirkjun. „Sameig-
inlegir fundir hafa verið haldnir og
hefur eftirlitið gert ráðuneytinu
grein fyrir þeim vanda sem við er að
glíma.“ Ráðherra sagði að áfram
yrði fylgst með þessum málum; hér
eftir sem hingað til.
Allt í ólestri
Margir þingmenn tóku þátt í um-
ræðunum. Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, sagði
m.a. að það væri ekki eitt heldur
nánast allt sem væri í ólestri á
Kárahnjúkasvæðinu; s.s. laun, ör-
yggismál og starfsréttindi. Og Guð-
jón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sagði að
þessar vikurnar væri verið að gera
„atlögu að kjörum og aðbúnaði sem
launþegar á Íslandi og samtök
þeirra hefðu barist fyrir árum og
áratugum saman.“ Þingmenn
stjórnarflokkanna tóku hins vegar
upp hanskann fyrir félagsmálaráð-
herra. Hjálmar Árnason, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, benti m.a.
á að við Kárahnjúka væri verið að
byggja heilt þorp og að þar væri
m.a. stór erlendur verktaki að vinna
í samstarfi við ýmsa innlenda verk-
taka. „Það segir sig sjálft að við
slíkar aðstæður hljóta mörg vanda-
mál að skjóta upp kollinum.“ Hann
sagði að því skipti mestu máli að
bregðast við „með eðlilegum hætti,“
eins og hann orðaði það. Sagði hann
að félagsmálaráðherra hefði gert
einmitt það. Kjartan Ólafsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, tók í
svipaðan streng. „Það skal engan
undra að í jafnstórri og mikilli fram-
kvæmd og raun ber vitni á Austur-
landi, komi einhverjir hnökrar sem
þessir upp.“ Kvaðst hann treysta fé-
lagsmálaráðherra og viðkomandi
eftirlitsstofnunum fullkomlega til
þess að fylgja því eftir að farið yrði
að lögum við Kárahnjúka.
Stjórnarandstæðingar gagnrýna kjör og aðbúnað starfsmanna við Kárahnjúka
Ráðherra segir ekkert benda til þess
að kjarasamningar hafi verið brotnir
FLUGMÁLASTJÓRN hefur birt á
vefsíðu sinni svar við fyrirspurn FÍA
um fullgildingu stofnunarinnar á skír-
teinum erlendra flugmanna í störfum
hjá íslenskum flugfélögum. Þar segir
m.a. að starf Flugmálastjórnar varði
hvorki atvinnu- né dvalarleyfi. Meðal
þess sem FÍA spurði var hvort Flug-
málastjórn hefði haft samráð við sam-
gönguráðuneytið og Vinnumálastofn-
un og hvort horft væri til þess að
viðkomandi flugfélag gæti mögulega
ráðið íslenska flugmenn sem væru at-
vinnulausir. Í svarinu segir að með
fullgildingu skírteina felist faglegt
mat Flugmálastjórnar á hæfni og
færni flugmanna. „Starf Flugmála-
stjórnar varðar ekki vinnumark-
aðsmál,“ segir í svarinu á www.caa.is.
Flugmálastjórn
ekki í vinnu-
markaðsmálum
Félag íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir ráðningarmál flugfélagsins Atlanta í Mosfellsbæ