Morgunblaðið - 07.10.2003, Qupperneq 17
Umhverfisþing 2003
Umhverfisráðherra boðar til Umhverfisþings í þriðja
sinn dagana 14. og 15. október nk. á Nordica Hótel
í Reykjavík og er þingið opið almenningi.
Í ár verða náttúruverndarmál efst á baugi á
Umhverfisþingi og verður fjallað ítarlega um drög að
náttúruverndaráætlun, sem umhverfisráðherra leggur
fyrir Alþingi á haustþingi í formi
þingsályktunartillögu.
Þingið skiptist í þrjá hluta:
Náttúruverndaráætlun og alþjóðlegir straumar.
Náttúruvernd og önnur landnýting.
Framkvæmd náttúruverndar.
Skráning, sem er þátttakendum að kostnaðarlausu, fer
fram dagana 7.-10. október á vef ráðuneytisins
www.umhverfisráðuneyti.is, þar sem einnig er að finna
nánari upplýsingar um dagskrá þingsins og drög að
náttúruverndaráætlun. Einnig er hægt að skrá þátttöku
og fá nánari upplýsingar í umhverfisráðuneytinu
í síma 545 8600.
Umhverfisráðuneytinu,
6. október 2003.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
EFTIR SKAPTA HALLGRÍMSSON BLAÐAMANN
Nokkur tíðindi hafa orðið í verslunarsögu
Akureyrar, svo ekki sé meira sagt. Ísbúðin
við Kaupvangsstræti hætti starfsemi um
helgina. Það var alltaf vinalegt að kíkja þar
inn, fá sér eina með hráum og sinnepi og
skiptast á sögum við eigandann. Og hlusta
aðeins á Steindór. En nú hefur þessari fé-
lagsmiðstöð neðst í Gilinu verið lokað. Slikk-
iríð var enn í hillunum í gær og forsíðan á
Séð og heyrt og Mannlífi í glugganum, en
það var læst. Og verður læst.
Þess er ogað geta að frá og með deginum í
gær kemur Kaupfélag Eyfirðinga ekki leng-
ur nálægt verslunarrekstri. Hver hefði trúað
því fyrir fáeinum árum að ekki yrði hægt að
kaupa brauð, smjör og mjólk af KEA? Fyrir
tveimur áratugum hefði engum dottið í hug
að spyrja, fyrir einum áratug hefði enginn
svarað játandi – en allt er í heiminum hverf-
ult.
Þegar ég var að alast upp var kjörbúð
KEA á öðru hverju horni; ein í Höfðahlíð-
inni, önnur í Ránargötu, sú þriðja skammt
frá, við Eiðsvöllinn – var hún ekki kölluð
Bóla? – hin fjórða aðeins steinsnar þaðan, við
Strandgötuna, sú fimmta í Brekkugötu við
Ráðhústorg og önnur nyrst við sömu götu.
Það var þar sem amma keypti stundum
krebenetturnar. Ein var í Gilinu, gengið inn
um næstu dyr á sjálfan kaupfélagskontórinn.
Var ekki líka ein í Hlíðargötunni? Og ekki
má gleyma kaupfélagsbúðinni í Hoepfner-
húsinu þar sem Balli réð ríkjum.
Það er af sem áður var að KEA-merkið
væri á hverju húsi á Akureyri, nema kirkj-
unni, eins og einhvern tíma var haft á orði.
En kannski er bara spurning hvenær þetta
frægasta merki í sögu Akureyrar verður
málað á hús Útgerðarfélags Akureyringa.
Mér finnst afskaplega stutt, ekki nema
nokkur ár, síðan Jóhannes í Bónus bauð Ak-
ureyringum ódýra matvöru hið fyrra sinni,
en lokaði sjoppunni vegna þess að mikill
meirihluti norðanmanna vildi frekar versla
við kaupfélagið sitt. Nú er öldin önnur;
Baugur/Jóhannes á Hagkaup og 10/11 auk
þess að versla í Bónus í Þorpinu og Kaup-
félag Suðurnesja á næstum því restina.
Hvað gera nú þeir hörðustu? Ja, þeir gætu
enn keypt í matinn í Síðu eða í Brynju.
Eiríkur Tómasson,prófessor viðlagadeild Háskóla
Íslands, flytur erindi um
framtíð laganáms á Íslandi
í dag, þriðjudaginn 7. októ-
ber, á svokölluðu Laga-
torgi við Háskólann á Ak-
ureyri.
Eiríkur fjallar um
hvernig námi í lögfræði
var háttað hér á landi og
þær breytingar sem orðið
hafa á síðustu árum, en inn
í umfjöllun sína fléttar
hann hugleiðingu um gæði
námsins og fjölbreytni
þess, um auknar kröfur til
lögfræðiþekkingar á ólík-
um sviðum þjóðfélagsins
og samanburð við það sem
er að gerast í nágranna-
löndum okkar.
Erindi Eiríks Tómas-
sonar hefst kl. 16.30 í stofu
14 í húsakynnum Háskól-
ans á Akureyri við Þing-
vallastræti.
Framtíð
laganáms
Þegar haustar breytir náttúran um lit, þetta geristoft á mjög stuttum tíma eins og núna þegarkólnaði snögglega eftir mjög hlýtt sumar. Á
Þingvöllum er þessi litabreyting enn meira áberandi
heldur en annars staðar vegna alls trjágróðursins sem
þar skartar ótrúlegustu litum.
Myndin er tekin við Flosagjá á Þingvöllum en snjóað
hafði aðeins í fjöll nóttina áður.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Litadýrðin skoðuð
Íslenska vitafélagiðhefur uppi áform umað setja upp sögu-
sýningu á vitaminjum í
Garðskagavita. Hefur fé-
lagið óskað eftir sam-
vinnu við Gerðahrepps
sem tók erindinu vel.
Byggðasafn Gerða-
hrepps er í húsnæði við
Garðskagavita og gestir
safnsins hafa átt þess kost
að heimsækja vitana tvo.
Íslenska vitafélagið sem
stofnað var í vor hefur
áhuga að setja upp sýn-
ingu í vitanum í vetur og
opna hana næsta vor eða
sumar. Telur stjórn fé-
lagsins upplagt að vita-
sögusýningunni verði
sinnt af starfsliði Byggða-
safnsins enda megi ætla
að slík sýning gæti aukið
aðdráttarafl safnsins.
Vitaminjar
Hákon Aðalsteinsson,
skógarbóndi og skáld í
Fljótsdal, yrkir svo:
Gulna lauf á breiðum bala
blöðin fella víðirunnar,
þar sem leika lausum hala
lýs á höfði fjallkonunnar.
Haust við
Kárahnúka
Akureyri | Um 40 kylfingar
tóku þátt í styrktarmóti í golfi
fyrir Sigurpál Geir Sveinsson
atvinnumann úr GA, sem haldið
var á Jaðarsvelli sl. sunnudag.
Að auki mætti hópur fólks á
svæðið, rétt til að greiða móts-
gjaldið, án þess þó að taka þátt
og sýndi þannig Sigurpáli
stuðning í verki. Aðstæður til að
leika golf voru frekar erfiðar á
sunnudag, snjór á öllum flötum
og þurftu keppendur að vera
með strákústana á lofti við að
sópa flatirnar áður en þeir pútt-
uðu. Sigurpáll fylgdist grannt
með keppendum og hann var að
vonum ánægður með þann
stuðning sem honum var sýnd-
ur. Hann heldur til Spánar síðar
í mánuðinum í boði Úrvals/
Útsýnar, þar sem hann mun æfa
fyrir annað stigið í úrtökumóti
fyrir evrópsku mótaröðina. Þrír
íslenskir atvinnumenn verða
með þegar þar að kemur.
Vilji er allt sem þarf: Einar Sigtryggsson púttar af miklu öryggi á 9. flöt þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Margir sýndu
Sigurpáli stuðning
Snjógolf
Morgunblaðið/Kristján
Rafn Sveinsson fagmannlegur
með strákústinn á 2. braut.
Skagaströnd | Heimamenn á Skagaströnd
hafa óskað eftir viðræðum við Landsbanka
Íslands og væntanlega nýja stjórnendur
Eimskipafélags Íslands um kaup á sjávar-
útvegsfyrirtækinu Skagstrendingi ehf. af
Brimi, dótturfélagi Eimskipafélagsins.
Skagstrendingur er eitt þriggja fyrir-
tækja sem mynda Brim, sjávarútvegsstoð
Eimskipafélagsins. Adolf H. Berndsen,
oddviti Höfðahrepps, segir hóp heima-
manna standa að fyrirspurninni til Lands-
bankans. Málið sé á frumstigi en skýrist
væntanlega sýni bankinn áhuga á þessari
umleitan. Hann segir að vilji heimamanna
sé að gera allt sem í þeirra valdi stendur til
að fyrirtækið verði áfram á Skagaströnd.
„Fyrirtækið er undirstaða atvinnu á stað-
anum, með um 40% íbúa á launaskrá. Þar
fyrir utan tengjast 20-30% annarra starfa á
Skagaströnd fyrirtækinu á beinan eða
óbeinan hátt. Það þarf því enginn að velkj-
ast í vafa um hvað er hér í húfi.“
Adolf var um langt skeið stjórnarfor-
maður Skagstrendings og á sæti í stjórn
Brims. Höfðahreppur á í dag um 1,4% hlut
í Eimskipafélagi Íslands, að markaðsvirði
um 500 milljónir. Við stofnun Brims var
markaðsverðmæti Skagstrendings nærri 2
milljarðar og átti Höfðahreppur um fjórð-
ung hlutafjár í félaginu.
Forráðamenn Haraldar Böðvarssonar
hf. á Akranesi hafa óskað eftir viðræðum
um að kaupa félagið af Brimi og KEA vill
kaupa Útgerðarfélag Akureyringa.
Heimamenn
vilja kaupa
Skag-
strending
Svarfaðardal | Hestamaður slasaðist þegar
hann datt af reiðskjóta sínum við bæinn
Þverá í Svarfaðardal á laugardag. Féll hann
í götuna og var fluttur á slysadeild FSA.
Grunur lék á að hann hefði höfuðkúpubrotn-
að. Hann var ekki með hjálm á höfði.
Þá varð stúlka fyrir bifreið seinnipart
laugardagsins við Stóragerði. Ætlaði stúlk-
an, sem hjólað hafði eftir gangstétt, að hjóla
þvert yfir götuna en gætti ekki að aðvífandi
bifreið. Var stúlkan með hjálm á höfði og
slapp án meiðsla.
Hestamaður
slasaðist
♦ ♦ ♦