Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 20
Skotveiði | Lögreglan í Keflavík
fékk um það tilkynningu síðastliðinn
þriðjudag að fundist hefðu þrír
ruslapokar með dauðum gæsum við
hitaveiturör á Stapanum. Lét lög-
reglan farga fuglunum sem veiði-
maðurinn hefur af einhverjum
ástæðum skilið eftir á þessum stað.
Hraðakstur | Lögreglan kærði
ökumann fyrir að aka á 135 km
hraða á Garðvegi að morgni síðast-
liðins laugardags. Hámarkshraði
þar er 90 km. Ökumaðurinn getur
átt von á því að fá 30.000 kr. sekt.
Grindavík | Þrír ESSO-fánar hurfu
af stöngum fyrir utan bensín-
afgreiðslu við Víkurbraut um
helgina. Þjófnaðurinn var kærður
til lögreglu. Málið er í rannsókn.
Flöggum stolið
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fíkniefni | Lögreglumenn úr
Keflavík mældu bifreið á 113 km
hraða á Reykjanesbraut síðastlið-
inn miðvikudag þar sem hámarks-
hraði er 90 km. Ökumaður sinnti
ekki merkjum lögreglunnar um að
stöðva bílinn en verðir laganna
náðu að hafa tal af honum eftir
nokkra eftirför. Grunur vaknaði
um fíkniefnamisferli og við leit
fundust á ökumanninum um það
bil þrjú grömm af efni sem talið
var hass. Maðurinn er 18 ára gam-
all. Með honum í bílnum var 25
ára gamall maður og tveir sextán
ára unglingar, stúlka og drengur.
Vegna ungs aldurs þeirra síðast-
nefndu var haft samband við for-
eldra þeirra.
Kettir | Ekið var á tvo ketti í Kefla-
vík síðastliðinn föstudag. Báðir
drápust og voru slysin tilkynnt til
lögreglu. Kettirnir voru ómerktir.
Annar var gulbröndóttur og var á
Vesturgötu. Hinn svartur með hvíta
flekki á maganum og var á Vatns-
nesvegi við Hrannargötu þegar
hann lenti í slysinu.
3.800 lítrar af afísing-
arvökva láku niður
Keflavíkurflugvelli | Tæplega 3.800
lítrar af afísingarvökva láku niður á
veginn frá varnarstöðinni út að sorp-
urðunarsvæðinu á Stafnesi síðastlið-
inn föstudag. Starfsfólki varnarliðs-
ins tókst að hreinsa upp meirihluta
vökvans. Ekki er talið að spjöll verði
á umhverfinu, að mati Heilbrigðis-
eftirlits Suðurnesja.
Afísingarvökvinn er notaður til að
úða yfir flugvélar fyrir flugtak að
vetrarlagi og er notað mikið af hon-
um á flugvöllum. Samkvæmt upplýs-
ingum varnarliðsins láku 3.800 lítrar
niður á veginn. Ekki fást upplýsing-
ar um það hvort ætlunin var að farga
vökvanum þarna eða hvort hann lak
niður fyrir slysni en tildrög atviksins
eru til athugunar hjá varnarliðinu og
Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Hreinsunarmenn umhverfisdeild-
ar varnarliðsins og slökkviliðsmenn
gengu í að hreinsa upp vökvann.
Tókst þeim að ná upp 2.800 lítrum og
skoluðu síðan veginn.
Lekinn er brot á mengunarvarna-
reglum. Í yfirlýsingu frá varnarlið-
inu er vakin athygli á því að afísing-
arvökvinn er vatnsleysanlegur og
ekki talinn hættulegur umhverfinu.
Keflavík | Viðbygging við lög-
reglustöðina í Keflavík var tekin í
notkun við athöfn síðdegis síðastlið-
inn föstudag. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra var viðstaddur.
Dómsmálaráðherra opnaði hurð-
ir bílgeymslunnar með fjarstýringu
og fylgdist með fyrsta bílnum aka í
gegn. Jón Eysteinsson sýslumaður
afhenti honum nýja hljómplötu
Hljóma frá Keflavík og bækur um
byggðarlögin.
Viðbyggingin er liðlega 160 fer-
metrar að stærð og hófust fram-
kvæmdir síðastliðið vor. Í húsinu er
meðal annars tvöfaldur bílskúr og
kaffistofa stöðvarinnar.
Húsnæði sem losnar verður notað
sem skjalageymslur fyrir lögregl-
una og sýslumannsembættið.
Viðbygging tekin í notkun
Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Fyrsti bíllinn í gegn: Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vígir viðbyggingu við lögreglustöðina í Keflavík en hon-
um til halds og trausts við það verk eru Jón Eysteinsson sýslumaður og Karl Hermannsson yfirlögregluþjónn.
Ný bílageymsla
og kaffistofa
Keflavíkurflugvöllur | „Allur hóp-
urinn hefur unnið fyrir þessu en
það kemur í minn hlut sem for-
ingja hans að taka við viðurkenn-
ingunni,“ segir Haraldur Stef-
ánsson, slökkviliðsstjóri á
Keflavíkurflugvelli, sem nýlega
tók við æðstu viðurkenningu
Bandaríkjaflota fyrir brunavarnir
úr hendi Mark S. Laughton
kafteins, yfirmanns flotastöðvar
varnarliðsins.
Slökkviliðið á Keflavíkur-
flugvelli tekur þátt í samkeppnum
í brunavörnum innan Bandaríkja-
flota og hefur unnið til fjölda verð-
launa. Þannig hefur liðið verið í
sautján ár samfleytt í einu af
þremur efstu sætunum í sínum
flokki og vinnur nú í þriðja skipti
til æðstu verðlauna.
Slökkviliðið er skipað íslenskum
starfsmönnum, samtals 160 manns.
Meirihluti þeirra annast bruna-
varnir og vekur Haraldur athygli á
því að ekki hafi orðið brunatjón á
varnarsvæðinu síðastliðin fimm ár.
Hann segist líta á þátttöku í
samkeppni sem þroskatæki, þar fái
starfsemin dóm annarra og stjórn-
endur liðsins og starfsmenn sjái
hvað þeir eru að gera rétt og hvað
rangt. En hann viðurkennir líka að
gott sé að fá klapp á bakið.
Enn ein viðurkenningin til slökkvi-
liðsins á Keflavíkurflugvelli
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Haraldur og Mark S. Laughton kafteinn: Gott að fá klapp á bakið.
Allur hópurinn hef-
ur unnið fyrir þessu
Henti frá sér
amfetamíni
Keflavík | Farþegi í bíl sem lög-
reglan í Keflavík stöðvaði henti frá
sér litlum poka með amfetamíni.
Meira fannst í vistarverum hans.
Ökumaður og farþegi bifreið-
arinnar voru handteknir vegna
gruns um fíkniefnamisferli. Engin
efni fundust í bifreiðinni enda hafði
farþeginn hent frá sér poka sem
reyndist innihalda amfetamín. Við
leit í vistarverum mannanna fannst
rúmt gramm af amfetamíni í við-
bót.
Fram kemur í dagbók lögregl-
unnar í Keflavík að farþeginn hafi
viðurkennt að eiga efnið. Honum
var sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Njarðvík | Hálfþrítugur karlmaður
hefur verið dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás
sem átti sér stað í félagsheimilinu
Stapanum í Njarðvík aðfaranótt
þriðja í jólum í fyrra.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa slegið 19 ára fórnarlamb sitt
með bjórglasi sem brotnaði á andliti
þess með þeim afleiðingum að brota-
þoli marðist og bólgnaði á hægra
kinnbeini, hlaut fjölda smáskurða á
hægri kinn og langan skurð frá
hægra kinnbeini og fram með kjálka.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness
segir að árásin hafi verið tilefnislaus
og sérstaklega hættuleg vegna
þeirrar aðferðar, sem notuð var, en
ákærði var ofurölvi og beitti bjór-
glasi á dansgólfi gegn manni sem átti
sér einskis ills von.
Brotaþoli bar fyrir dómi að ákærði
hefði skömmu áður verið að gera sér
dælt við kærustu vinar síns á dans-
gólfinu og hefði hann ætlað að koma í
veg fyrir rifrildi eða átök milli mann-
anna og rætt við ákærða. Eftir stutt
og endaslepp orðaskipti sökum mik-
ils hávaða á dansgólfinu hefði hann
gengið í burtu en síðan snúið sér aft-
ur við og þá fengið umrætt högg í
andlitið.
Fullnustu refsingarinnar var
frestað um tvö ár og fellur hún niður
að þeim tíma liðnum haldi ákærði
skilorðið. Var hann og dæmdur til að
borga allan sakarkostnað, þar með
talin 100 þúsund króna málsvarnar-
laun skipaðs verjanda síns.
Bótakrafa fórnarlambsins upp á
280 þúsund krónur kom ekki til með-
ferðar hjá dómstólnum þar sem
ákærði hafði áður samþykkt hana og
gert upp.
Dæmdur fyrir að slá mann með bjórglasi í Stapanum
Tilefnislaus og hættuleg árás