Morgunblaðið - 07.10.2003, Síða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 37
Það var yndisleg viðbót við vin-
áttu okkar þegar börnin okkar,
Hildur og Kristján, „uppgötvuðu“
hvort annað. Brúðkaupsdagurinn
þeirra fyrir tveimur árum síðan er
einn af ógleymanlegu dögunum. Og
nú eigum við nöfnin okkar saman á
litlum sólargeisla, henni Heiði Dís.
Bjarta brosið hennar hjálpar okkur
öllum á þessum döpru dögum.
Það hafa skipst á skin og skúrir
undanfarin ár í baráttu þinni við
krabbameinið, oft höfum við getað
glaðst yfir góðu gengi en því miður
komu svo verri tímar. Dugnaður
þinn, jákvæðni og þolinmæði eiga
sér varla margar hliðstæður. Það er
sárt að þurfa að lúta í lægra haldi
eftir alla þessa hetjulegu baráttu.
Að lokum viljum við Guðmundur
þakka þér allt yndislegt. Við biðjum
góðan Guð að geyma þig og styrkja
fjölskylduna þína.
Þín vinkona,
Ragna Grímsdóttir.
Þá er komið að kveðjustund elsku
Dísa mín. Það var fallegur dagur
þegar þú kvaddir þennan heim. Þú
ert besta manneskja sem ég hef
kynnst, svo hjartahlý og góð. Þú
tókst öllum opnum örmum og var
alltaf jafn yndislegt að koma á heim-
ili þitt og Hjalta.
Er ég hugsa um þig með söknuði
koma margar minningar upp í hug-
ann, eins og þegar við unnum saman
í Drangey þar sem þú kenndir mér
að hekla og prjóna, þegar ég var
heima hjá þér að æfa sönginn fyrir
brúðkaup þeirra Hildar og Kristjáns
og jólin sem við áttum saman. Þú
hafðir hjálpað mér að sauma
fjólubláan flauelskjól fyrir jólin.
Þegar það var svo ófært vestur til
mömmu og pabba bauðstu mér að
eyða jólunum hjá ykkur fjölskyld-
unni. Þetta voru notaleg og yndisleg
jól, svo mikill friður og hlýja eins og
var alltaf í kringum þig.
Þú varst mikil handverkskona.
Þau eru ófá bútasaumsteppin sem
þú saumaðir fyrir börnin sem fædd-
ust í ættinni. Ég lét skíra alla dreng-
ina mína í fallega skírnarkjólnum
sem þú saumaðir.
Elsku Dísa mín, þú varst alltaf
svo jákvæð og hugulsöm, þú stóðst
þig svo vel í þessari löngu og erfiðu
baráttu. Ég þakka þér fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig, minningin um
þig lifir að eilífu í hjarta mínu, mér
þykir svo vænt um þig.
Elsku Hjalti, Bjarni, Sigrún,
Svenni, Guðný, Hildur, Kristján og
ömmustelpurnar sjö, ykkur votta ég
og fjölskylda mín okkar dýpstu sam-
úð. Þín frænka
Áslaug Fjóla Magnúsdóttir.
Dísa.
Ég veit ekki hvar ég á að byrja
eða enda. Ég verð bara að fá að
þakka allt sem þú ert búin að gefa
mér, þar sem ég varð þess láns að-
njótandi að fá að vera samferða þér.
Þú varst manneskjan sem kennd-
ir mér einna mest, þú kenndir mér
að hekla og prjóna þegar ég var í
vist hjá þér og svo gátum við setið
saman og hlegið og spjallað fram
eftir öllum nóttum og ég fékk að
sofa hjá þér allar næturnar sem
Hjalti var að heiman. Þetta er samt
það minnsta, því þú varst minn
helsti ráðgjafi í gegnum lífið og mér
sem önnur móðir.
Til dæmis varðandi brúðkaupið
mitt þegar þú af þinni snilld hand-
saumaðir gestabókina fyrir mig,
skreyttir bílinn og þú og Hjalti
leyfðuð mér að leggja heimili ykkar
undir mig og mína. En þannig var
þetta alltaf, hvenær sem ég kom eða
hringdi í gleði eða sorg, þá varstu
alltaf til staðar.
Það eru ekki til orð yfir það
hversu heilsteypt og góð manneskja
þú varst og þetta hljómar kannski
þannig að ég sé að reyna að upp-
hefja þig en það er langt því frá,
vegna þess að ég er ekki að segja
hálfan sannleikann um þig með
þessum fáu orðum.
Guð styrki og blessi fjölskylduna
þína sem hefur gefið mér svo mikið.
Það er erfitt að kveðja svo góða
manneskju sem þig og reyna að
skilja hvers vegna þú fórst svo
snemma, en ég veit að vel hefur ver-
ið tekið á móti þér þar sem þú ert.
Hlakka til að hitta þig aftur.
Gyða Hrönn Gerðarsdóttir.
Kæra vinkona.
Lítil kveðja með stuttu ávarpi,
sem segir þó svo óendanlega mikið.
Aldrei hugsar maður til þess um æv-
ina að eiga eftir að skrifa síðustu
kveðjuna til þeirra sem eru manni
hvað kærastir.
Við áttum samleið, Dísa mín. Ég
þekkti þig allvel áður en við hitt-
umst fyrst, en það var í gegnum
frænkur mínar á Dvergasteini, sem
var næsti bær við þitt æskuheimili,
Hlíð. Á hverju hausti fékk ég að
heyra sögurnar þeirra úr sveitinni
þinni, Álftafjörður svo spegilglamp-
andi, djúpur og kyrr, um bæina,
fólkið og systkinin frá Hlíð. Loks 15
ára gömul komst ég vestur og
fannst þá allt gamalkunnugt. Allar
sögurnar stóðust, þá hittumst við
Dísa mín í fyrsta sinn og síðan hafa
leiðir okkar farið saman.
Mörg sumrin á fyrstu búskapar-
árum okkar á Akranesi, þegar karl-
arnir okkar unnu á jarðýtum út um
allar sveitir, undum við okkur sam-
an með börnin flesta daga og skipt-
um hiklaust um heimili, einn dag hjá
þér og hinn hjá mér. Lífið var bjart,
við svo bjartsýnar og hláturmildar
og að óþekktinni í krökkunum gerð-
um við bara grín að. Við eignuðumst
báðar fjögur börn, og voru þau öll á
mjög líkum aldri. Síðustu börnin
okkar fæddust með þriggja daga
millibili, en þá kom reiðarslagið.
Litli drengurinn þinn dó. Þá reyndi
á þrekið, elsku Dísa mín og hvað þú
varst sterk. Komst í heimsókn,
fékkst litlu stúlkuna mína í fangið,
lokaðir að þér og komst svo fram ró-
leg í fasi. Svo fetuðum við sporin
hægt áfram. En það var þetta, Dísa
mín, æðruleysi, það áttir þú, allt til
síðasta dags.
Minningarnar steyma fram. Eitt
sinn fórum við vestur í berjaferð.
Djúpið var eins og ævintýraheimur,
sólskinið og haustlitirnir glóðu. Á
leiðinni heim fórum við yfir Þorska-
fjarðarheiði um miðdimma nótt, þar
þurftum við að stoppa til að opna
hlið. Þarna stóðum við í myrkrinu
með þúsundir stjarna yfir okkur í al-
gerri þögn, þá sagðir þú, Dísa mín,
,,er hægt að komast nær himnaríki
hér á jörð“. Nú veist þú svarið, Dísa
mín, komin alla leið.
Það er dýrmætt að hafa verið þér
samferða í gegnum lífið, þakka þér
samfylgdina, kæra vina.
Kristín Jónsdóttir (Kiddý).
Elsku kæra vinkona, þá ert þú
laus úr viðjum þjáninganna, Guði sé
lof fyrir það. En það er sama þótt ég
hafi vitað að hverju stefndi, ég var
ekki tilbúin þegar Hildur mín
hringdi og tilkynnti mér lát þitt. Það
helltist mikil sorgar- og saknaðartil-
finning yfir mig og minningarnar
streymdu fram ein af annarri og
margs er að minnast.
Þótt ég sé eldri að árum fannst
mér ég oft vera litla stelpan þegar
ég hlustaði á útskýringar þínar um
fatasaum og hannyrðir, því allt sem
þú lærðir geymdir þú í minninga-
bankanum og áttir svo auðvelt með
að sækja þangað þegar mig og aðra
vantaði upplýsingar og hjálp.
Svo voru það árlegu boðin ykkar
hjóna á þrettándanum, þegar þið
buðuð vinum til veislu eftir brennu,
þá var setið við arineld og spjallað
saman og notið góðra veitinga.
Árið 1992 greindist þú fyrst með
krabbamein, en þér tókst að komast
yfir það og áttir átta góð ár, en svo
kom þessi ófögnuður aftur og hefur
verið barátta í þrjú ár með stöð-
ugum lyfjagjöfum og þjáningum
sem því fylgdi, en öllu þessu tókst
þú með æðruleysi. Þú unnir lífinu og
hafðir gaman af öllu sem þú tókst
þér fyrir hendur.
Þú varst góð við bæði menn og
málleysingja. Fjölskylda þín er sér á
parti, alveg yndislegar manneskjur.
Hjalti eins og kletturinn í hafinu og
börnin ykkar þrjú og tengdabörn
hafa staðið fast við bakið á þér. Það
uppsker hver eins og hann sáir og
það sýndi sig best þegar halla tók
degi að þú uppskarst ríkulega. Ég
minnist allra gönguferðanna okkar
og heimsókna þinna í sumarbústað-
inn okkar Jóns. En skærast skín
minningin um kveðjustund okkar
skömmu áður en þú kvaddir þennan
heim, sú stund er mér dýrmæt og
þakka ég Guði fyrir hana.
Við Jón sendum Hjalta, Bjarna,
Svenna og Hildi, tengdabörnum og
ömmustelpunum sjö, og einnig
systkinum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum Guð að veita
þeim styrk og blessun í þeirra miklu
sorg.
Þó kveðji vinur einn og einn
og aðrir týnist mér,
ég á þann vin, sem ekki bregst
og aldrei burtu fer.
(Margrét Jónsdóttir.)
Kæra vinkona, ég kveð þig með
söknuði, en veit að við hittumst aft-
ur. Guð blessi þig,
Alma Garðarsdóttir.
Þegar Ásdís Ragnarsdóttir er
kvödd reikar hugurinn allt aftur til
þess tíma er við vorum unglings-
stelpur á balli í Ögri. Við vissum
Elsku amma Dísa. Takk
fyrir að vera yndisleg amma
og kenna mér að prjóna og
hekla. Takk fyrir að kenna
mér bænirnar. Afi, þú verður
aldrei einn.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Kveðja,
Stefanía Sól Sveinbjörnsd.
Ég man þegar ég gisti hjá
þér nokkrar nætur. Þú gerð-
ir svo mikið fyrir okkur syst-
urnar. Þú varst alltaf svo
rosalega góð. Við fjölskylda
mín söknum þín rosalega
mikið.
Bæn til þín sem þú kennd-
ir mér:
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Þín
Ásdís Rún Bjarnadóttir.
Elsku amma Dísa.
Takk fyrir allt.
Þínar ömmustelpur,
Ólöf Lilja og Sandra Björk.
HINSTA KVEÐJA
SJÁ SÍÐU 38
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju
við andlát og útför dóttur okkar, systur og
barnabarns,
DAGMARAR HRUNDAR HELGADÓTTUR.
Með þessari kveðju þökkum við öllum þeim,
er sýnt hafa okkur samúð með blómum, bréf-
um, símhringingum og ekki síst með skrifum í
gestabók á heimasíðu Dagmarar Hrundar,
www.barnaland.is/barn/4489 .
Bryndís Hjartardóttir, Helgi Þór Gunnarsson,
Bjartur Þór Helgason,
Aðalheiður Vilhjálmsdóttir, Gunnar Ólafsson,
Ása Guðjónsdóttir, Rúnar Friðgeirsson.
Innilegt þakklæti vegna auðsýndrar samúðar
og vinarhugs við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ERNU ERLENDSDÓTTUR,
Dalbraut 20,
Reykjavík.
Bjarni Ólafsson Alda Magnúsdóttir,
Haukur Ólafsson, Björg Friðriksdóttir,
Hrefna Ólafsdóttir,
Ólafur Árni Bjarnason,
Erna Björg Bjarnadóttir,
Markús Bjarnason,
Brynhildur Hauksdóttir,
Margrét Hauksdóttir,
Bjarni Haukur Þórsson
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
EYDÍSAR EINARSDÓTTUR,
áður til heimilis
í Víðilundi 2F,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Kjarnalundi og dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Hlíð fyrir hlýtt viðmót, gott atlæti og frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður B. Jónsson, Alda Ingimarsdóttir,
Ólafur B. Jónsson, Jóna Anna Stefánsdóttir,
Þórarinn B. Jónsson, Hulda Vilhjálmsdóttir
og öll ömmubörnin.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
föður míns, tengdaföður og afa,
FRIÐRIKS J. EYFJÖRÐ,
Lönguhlíð 3.
Jórunn Erla Eyfjörð, Robert Magnus,
Edda Magnus,
Friðrik Magnus.
Elskuleg móðir okkar,
BJÖRG ÓLÖF HELGADÓTTIR,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
sunnudaginn 5. október.
Helga Soffía Aðalsteinsdóttir,
Guðný Aðalsteinsdóttir,
Jenný Aðalsteinsdóttir,
Jón Hlífar Aðalsteinsson,
Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir,
Kristján Aðalsteinsson.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur