Morgunblaðið - 07.10.2003, Síða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 39
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
✝ Guðbjörg Krist-jánsdóttir fæddist
í Móabúð í Eyrarsveit
21. nóvember 1930.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 30.
september síðastlið-
inn. Guðbjörg var
dóttir hjónanna Krist-
jáns Jónssonar, f.
1.11. 1874, d. 16.2.
1967, og Kristínar
Gísladóttur, f. 6.7.
1890, d. 25.1. 1962.
Hún var næst yngst
13 systkina.
Guðbjörg giftist 7. júlí 1951
Þórði Sveinbjörnssyni, f. 15.3.
1926, þau eiga fjögur börn, sem
eru: 1) Kristín V. 2) Björn K. 3) Jón
Örn, maki Sigríður Svansdóttir. 4)
Erna Hlín, maki Rúnar Þrúðmars-
son. Barnabörnin eru tíu á lífi og
eitt barnabarnabarn.
Guðbjörg og Þórður bjuggu
fyrstu búskaparárin sín í Reykja-
vík, 1960 fluttust þau
vestur til Grundar-
fjarðar, til að annast
móður Guðbjargar í
veikindum hennar,
eftir andlát Kristínar
annaðist Guðbjörg
um föður sinn til dán-
ardags. Guðbjörg
starfaði lengst af hjá
Hraðfrystihúsi
Grundarfjarðar sem
matráðskona ásamt
ýmsum öðrum störf-
um. Hún var virkur
félagi í Kvenfélaginu
Gleym-mér-ei, og tók þátt í fé-
lagsstarfi eldri borgara á Grund-
arfirði. Sumarið 2002 fluttust þau
síðan til Reykjavíkur og komu sér
fyrir í Krummahólum 6, en þrjú af
börnum þeirra búa á höfuðborgar-
svæðinu og eitt á Norðurlandi.
Útför Guðbjargar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Okkur systur langar til að minn-
ast ágætrar konu og góðrar mág-
konu. Gugga varð hluti af okkar
fjölskyldu þegar hún giftist Þórði
bróður okkar fyrir meira en 50 ár-
um.
Gugga var lifandi fyrirmynd
kvenna af sinni kynslóð. Starfssvið
hennar var fyrst og fremst heimili
og fjölskylda. Hún var afbragðs
húsmóðir, frábær matreiðslukona
og mikil handavinnukona. Þegar
börnin voru komin á legg, fór hún
að starfa utan heimilisins, sem mat-
ráðskona í Grundarfirði. Auk þess
tók hún þátt í félagsstarfi og var
meðlimur Kvenfélags Grundarfjarð-
ar um langt skeið. Hún vann öll
störf af mikilli skyldurækni og dró
aldrei af sér.
Guggu fannst sjálfsagt að líta eft-
ir öldruðum foreldrum sínum og tók
þau inn á sitt heimili síðustu ár
þeirra. Hún var sífellt reiðubúin að
taka á sig aukna ábyrgð og erfiði til
að létta undir með þeim, sem hjálp
þurftu. Tengdafjölskyldan varð ekki
síst aðnjótandi góðvildar hennar og
aðstoðar. Hjálp hennar kom sér
ákaflega vel, en við vitum nú að
henni var ekki alltaf þakkað sem
skyldi. Það var þegar við sjálfar fór-
um að þroskast og eldast að okkur
varð ljóst hvað mikið fólst í því sem
hún hafði tekið að sér.
Þegar Dússa ætlaði í fyrsta sinn á
„alvöru“ ball, fannst henni það ekk-
ert mál að biðja Guggu að sauma
ballkjólinn. Það var mikið verk og
til mikils ætlast en Gugga taldi það
ekki eftir sér. Heilt sumar leit
Gugga eftir Dísu þegar þau Þórður
bjuggu á Seltjarnarnesi. Eftir að við
systur settumst að erlendis nutum
við gestrisni hennar, sem var slík að
gengið var úr rúmi þegar við kom-
um í heimsókn í Grundarfjörðinn. Í
ágúst í fyrra var Dísa á ferð á Ís-
landi með erlenda gesti. Þó tungu-
málakunnátta Guggu væri takmörk-
uð lét hún það ekki aftra sér frá að
bjóða öllum hópnum í mat. Kveðjur
og blessun til ykkar, Þórður, Krist-
ín, Björn, Jón, Erna og maka ykkar,
barna og barnabarns. Farðu vel,
kæra mágkona. Þín verður saknað.
Stefanía og Vilborg
(Dússa og Dísa).
GUÐBJÖRG
KRISTJÁNSDÓTTIR
LILJA
PÁLSDÓTTIR
✝ Lilja Pálsdóttirfæddist í Stykkis-
hólmi 11. júní 1944.
Hún andaðist á
krabbameinsdeild
11G á Landspítalan-
um við Hringbraut
28. september síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá Bú-
staðakirkju 6. októ-
ber.
og verð mínum lausnara hjá,
það verður dásamleg dýrð
handa mér.
Ástvini sá ég sem unni ég hér,
árstraumr fagnaðar berast að
mér,
blessaði frelsari, brosið frá
þér
það verður dásamleg dýrð
handa mér.
(Lárus Halld.)
Hafðu þökk fyrir allt
og allt. Guð blessi
maka, dætur og fjöl-
skyldur þeirra.
Ragnheiður Pálsdóttir, Sig-
urrós, Guðbjörg, Páll, Ágústa,
Gunný, Jón Axel og Aron Ísar.
Elsku Lilja mín, nú
er stríð þitt á enda við
grimman sjúkdóm sem
tók öll völd. Guð geymi
minningu þína.
Þegar ég leystur verð þrautunum frá,
þegar ég sólfagra landinu á lifí
BERGSTEINN Einarson er
með forystu á MP-mótinu þegar
aðeins tvær umferðir eru eftir.
Hann gerði jafntefli við Ingvar Þór
Jóhannesson í sjöundu umferð.
Davíð Kjartansson, sem sigraði
Stefán Bergsson, er aðeins hálfum
vinningi á eftir Bergsteini og ljóst
er að annar hvor þeirra mun sigra
á mótinu. Úrslit í sjöundu umferð:
Björn Þorsteinss. – Sigurður P.
Steindórss. 1–0
Tómas Björnsson – Jón Árni
Halldórss. fr.
Júlíus Friðjónsson – Áskell
Kárason ½–½
Ingvar Þ. Jóhanness. – Berg-
steinn Einarss. ½–½
Davíð Kjartansson – Stefán
Bergsson 1–0
Staðan í A-flokki:
1. Bergsteinn Einarsson 5 v.
2. Davíð Kjartansson 4½ v.
3. Jón Árni Halldórsson 3½ v. +
fr.
4.–6. Sigurður Páll Steindórsson,
Björn Þorsteinsson, Ingvar Þór Jó-
hannesson 3½ v.
7. Tómas Björnsson 3 v. + fr.
8.–10. Júlíus Friðjónsson, Áskell
Kárason, Stefán Bergsson 2½ v.
Í B-flokki urðu úrslit sjöundu
umferðar þessi:
Kjartan Maack – Guðmundur
Kjartansson fr.
Halldór Garðarsson – Sverrir
Sigurðsson ½-½
Halldór Pálsson – Dagur Arn-
grímsson fr.
Jóhann H. Sigurðss. – Þorvarður
Ólafss. ½–½
Torfi Leósson – Stefán F. Guð-
mundss. ½–½
Torfi Leósson er með forystu í
B-flokki, en staðan er óljós vegna
frestaðra skáka:
1. Torfi Leósson 5½ v.
2. Dagur Arngrímsson 5 v. + fr.
3. Þorvarður Ólafsson 4½ v.
4. Jóhann Helgi Sigurðsson 4 v.
5. Kjartan Maack 3 v. + fr.
6. Sverrir Sigurðsson 3 v.
7.–8. Guðmundur Kjartansson,
Halldór Pálsson 2½ v. + fr.
9. Stefán Freyr Guðmundsson
2½ v.
10. Halldór Garðarsson 1½ v.
Í C-flokki er staðan þessi:
1. Svavar Guðni Svavarsson 5½
2.–5. Helgi Jason Hafsteinsson,
Atli Freyr Kristjánsson, Hjörvar
Steinn Grétarsson, Ingi Tandri
Traustason 5 v.
6.–8. Rafn Jónsson, Arnar Sig-
urðsson, Sveinn Arnarsson 4½ v.
9.–15. Gylfi Davíðsson, Viðar
Másson, Geir Waage, Ólafur Evert,
Ingvar Ásbjörnsson, Svanberg Már
Pálsson, Matthías Pétursson 4 v.
Áttunda umferð verður tefld á
miðvikudag og hefst klukkan 19.
Hjörvar Steinn sigraði á barna-
og unglingamóti MP-verðbréfa
Hjörvar Steinn Grétarsson sigr-
aði á barna- og unglingaskákmóti
MP-verðbréfa, sem fram fór sl.
laugardag. Hjörvar fór taplaus í
gegnum mótið og hlaut 5½ vinning
úr 6 skákum. Unglingameistari
Taflfélags Reykjavíkur varð Arnar
Sigurðsson með 5 vinninga, en
hann varð efstur félagsmanna TR í
mótinu. Efst í stúlknaflokki varð
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir með
5 vinninga. Þátttakendur voru alls
35. Úrslit í stúlknaflokki urðu
þessi:
1. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
5 v.
2. Birta Marlen Lamm 4 v.
3. Margrét Jóna Gestsdóttir 3 v.
(20 stig)
Heildarúrslit:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson 5½
v.
2. Helgi Brynjarsson 5 v. (21,5)
3. Arnar Sigurðsson 5 v. (19,5)
4. Jóhanna Björg Jóhannsd. 5 v.
(17,5)
5. Sverrir Þorgeirsson 4 v. (21)
6. Sverrir Ásbjörnsson 4 v. (20)
7. Ólafur Evert Úlfsson 4 v.
(19,5)
8. Ingvar Ásbjörnsson 4 v. (19)
9. Senbeto Gebeno Guyola 4 v.
(18,5)
10. Eiríkur Örn Brynjarsson 4 v.
(16,5)
11. Ívar Örn Jónsson 4 v. (15)
12. Birta Marlen Lamm 4 v. (13)
13.–14. Matthías Pétursson 3½ v.
13.–14. Aron Hjalti Björnsson
3½ v.
o.s.frv.
NAO sigraði á EM taflfélaga
Franska taflfélagið NAO Chess
Club sigraði í Evrópukeppni tafl-
félaga sem lauk á laugardaginn á
Krít á Grikklandi. Í kvennaflokki
sigraði júgóslavneska félagið Int-
ernet CG Podgorica. Karlasveit
Hellis tapaði fyrir Asker Schak-
klubb 2½–3½ í lokaumferðinni.
Sigurður Daði Sigfússon (2.323)
sigraði stórmeistarann og Noregs-
meistarann Berge Ostenstad
(2.469). Sigurbjörn Björnsson
(2.302) vann enn en árangur hans
samsvarar 2.492 skákstigum sem
hefði dugað til áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli nema hvað Sig-
urbjörn tefldi ekki við nógu marga
titilhafa. Kvennaliðið tapaði ½–3½
fyrir ofurliði Ladya-Kazan-1000.
Lenka Ptacnikova gerði jafntefli
við þriðju stigahæstu skákkonu
heims, Alisa Galliamova (2.502).
Skáksveit Hellis hafnaði í 39.
sæti með 4 stig og 16 vinninga en
Hellisliðinu var raðað í 35. sæti
fyrirfram miðað við skákstig. Ár-
angur er því í samræmi við það
sem búast mátti við. Sigurbjörn
Björnsson stóð sig frábærlega en
Ingvar Ásmundsson var alveg
heillum horfinn. Aðeins 4 skák-
menn náðu betri árangri en Sig-
urbjörn á fjórða borði. Sigurður
Daði og Sigurbjörn hækka á stig-
um og sá síðarnefndi verulega eða
um 25–30 stig. Röð efstu liða:
1. NAO Chess Club (Frakklandi)
13 stig (30 v.)
2. Polonia Plus GSM Warszawa
(Póllandi) 12 stig (29 v.)
3. Kiseljak (Bosníu) 12 stig (29
v.)
Kasparov og félagar í rússneska
félagainu Ladya-Kazan urðu að
sætta sig við fimmta sæti. Fráfar-
andi Evrópumeisturum Bosna Sar-
ajevo gekk enn verr og höfnuðu í
16. sæti. Í sveit NAO voru m.a. 3 af
10 sterkustu skákmönnum heims.
Kvennasveit Hellis hafnaði í 13.
sæti með 3 stig og 7 vinninga.
Hellisliðið var langstigalægsta liðið
sem tók þátt í mótinu en þetta var
í fyrsta sinn í íslenskri skáksögu
sem íslenskt taflfélag sendir sveit
til alþjóðlegrar keppni. Lenka stóð
sig mjög vel hlaut 2½ vinning gegn
mjög stigaháum andstæðingum.
Bæði Lenka og Lilja hækka á stig-
um og Anna Björg ætti að birtast á
næsta lista.
Kasparov stóð sig mjög vel í
keppninni, en í einni skákinni fat-
aðist honum flugið alvarlega.
Hvítt: Alexander Huzman
Svart: Garry Kasparov
Hálfslavnesk vörn
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 c6 4.
Rc3 e6 5. e3 a6 6. b3 Bb4 7. Bd2
0–0 8. Bd3 Rbd7 9. Dc2 Bd6 10.
Re2 –
Þessi óvirki leikur er nýjung í
stöðu, sem ekki býður upp á mikla
möguleika fyrir hvít. Þekkt er 10.
0–0 e5, t.d. 11. cxd5 cxd5 12. dxe5
Rxe5 13. Rxe5 Bxe5 14. Had1 Bg4
15. f3 Bh5 16. Re2 Hc8 17. Db1
Bg6 18. Hc1 De7 19. b4 b5 20. Rf4
Bxf4 21. exf4 Hxc1 22. Hxc1 Da7+
23. Kf1 Dd4 24. Hc3 Re4 25. fxe4
fxe4 26. De2 exd3 27. De7 Bh5 28.
g3 Dd5, með mun betra tafli fyrir
svart (Arlandi-Godena, Reggio
Emilia 1994).
10. …c5 11. 0–0 b6 12. cxd5
exd5 13. Rg3 Bb7 14. Rf5 Bc7 15.
dxc5 bxc5 16. b4 c4 17. Be2 Re4
18. Bc3 Rxc3 19. Dxc3 Rf6
Eftir 19. …Df6 hefði svartur
ekki þurft að hafa áhyggjur af
stöðunni.
20. Hfd1 Bc8??
Ótrúlegur afleikur hjá Kasparov,
sem sýnir vel, að jafnvel mestu
meistarar eru stundum utan við
sig. Eftir 20. …Hc8 21. Rd2 Dd7
22. Rd4 Dd6 23. R4f3 Rd7 24. Hac1
Re5 á svartur örlítið betra tafl.
21. Hxd5! –
Huzman kemst í sögubækurnar
fyrir þennan leik á móti sjálfum
Kasparov.
21. …De8
Ekki gengur að drepa hrókinn,
21. …Dxd5? 22. Re7+ Kh8 23.
Rxd5 Rxd5 24. Dxc4, eða 21.
…Rxd5 22. Dxg7+ mát.
Eftir 21. …Bd7 22. Had1 Ha7
23. Bxc4 (23. Hxd7? Bxh2+ 24.
Kxh2 Hxd7) á hvítur tvö peð yfir,
án þess að svartur eigi nokkuð
mótspil.
22. Bxc4 og svartur gafst upp.
Hann á tveimur peðum minna, án
þess að nokkur gagnfæri séu sjá-
anleg fyrir hann.
Bergsteinn Einarsson
efstur á MP-mótinu
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
21. sept.–10. okt. 2003
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
dadi@vks.is
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til-
greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi
Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun-
blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrif-
uðum greinum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar
og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað.
Birting afmælis- og
minningargreina