Morgunblaðið - 07.10.2003, Page 44
DAGBÓK
44 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Arina Arctica, Detti-
foss og Skógafoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Stella Pulux
væntanleg.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð. Línudans-
inn hjá Sigvalda hefst í
dag kl. 11.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðsla, kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
vinnustofa, tréskurður,
postulín, kl. 10–11 leik-
fimi, kl. 12.40 versl-
unarferð, kl. 9–12 hár-
greiðsla, kl. 13.15–
13.45 bókabíll.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 10 leir-
list, kl. 12.50 leikfimi
karla, kl. 13 tréskurður
og málun.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
dagblöð, rabb og kaffi.
Prjónastund. Kl. 11.30
leikfimi í Bjarkarhúsi.
Kl. 13 brids og saumar,
kl. 13.30 billjard.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði. Kl.
13 skák, kl. 13.30 alkort
spilað. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar kl. 10.
Söngvaka kl. 20.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og
kl. 9.55 leikfimi, kl.
10.50 róleg leikfimi, kl.
14 ganga, kl. 14.45
boccia, kl. 19 brids.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. S. 575-7720.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–10 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, Kl. 9.45
bankaþjónusta, kl.
13.30 helgistund. Fóta-
aðgerðir, hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín,
kl.10.15–11. 45 enska,
13–16 spilað og búta-
saumur. Haustbingó á
morgun kl. 13.15.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 13 handmennt,
og postulín, kl. 14 fé-
lagsvist.
Leshópurinn í Gull-
smára. Fyrsta bók-
menntakvöld leshóps-
ins í Gullsmára verður í
kvöld frá kl. 20-21.15.
Viðfangsefni ljóð Vil-
borgar Dagbjarts-
dóttur. Skáldkonan
mætir á staðinn. Allir
eldri bóka og ljóðavinir
velkomnir.
Lífseyrisþegadeild
SFR. Sviðaveisla
verður föstudaginn 10.
okt. nk. kl. 12 í Fé-
lagsmiðstöðinni Grett-
isgötu 89, 4. hæð. Þátt-
taka tilkynnist í síma
525 8340.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11. Púttmót í dag við
Laugarneskirkju kl.
13.30.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
FEBK. Brids spilað kl.
19 í Gjábakka.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, kl. 20,
svarað í s. 552 6644 á
fundartíma.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni. Kl. 20
opið hús, Uno.
Í dag er þriðjudagur 7. október,
280. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Eins og faðirinn hefur
líf í sjálfum sér, þannig hefur
hann og veitt syninum að
hafa líf í sjálfum sér.
(Jóh. 5, 26.)
Ari Edwald, fram-kvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, skrif-
ar um komandi kjara-
samninga og væntanlega
kröfugerð stéttarfélaga í
leiðara fréttabréfsins Af
vettvangi.
Óskandi væri að þegarkröfugerðirnar líta
dagsins ljós tækju þær
mið af þeirri stöðu sem
atvinnulífið býr við og
raunhæfu mati á svig-
rúmi til launakostn-
aðarhækkana án þess að
verðbólga og versnandi
samkeppnisstaða hljótist
af,“ skrifar Ari. „Í ljósi
reynslunnar má búast við
því að verkalýðsfélögin
muni leggja áherslu á
stöðugleika í efnahagslíf-
inu og lága verðbólgu en
jafnframt miklar launa-
hækkanir félagsmönnum
sínum til handa. Öruggt
má telja að farið verði
fram á vaxandi kaupmátt
launa og sérstaka hækk-
un á launatöxtum kjara-
samninga. Þar sem mikl-
ar launahækkanir annars
vegar og stöðugleiki og
lág verðbólga hins vegar
eru ósamrýmanleg mark-
mið, sem ekki verður náð
samtímis, er mikilvægt
að menn geri það upp við
sig hvor leiðin verði farin
við gerð komandi kjara-
samninga.“
Ari segir ennfremur:„Hátt gengi krón-
unnar, hár hlutur launa í
verðmætasköpuninni og
lítil fjölgun starfa í efna-
hagslífinu eru stað-
reyndir sem benda til
þess að óvarlegt sé að
efna til kostnaðarhækk-
ana í komandi kjara-
samningum. Eftir mikla
aukningu kaupmáttar
launa undanfarin ár er
varlegra að stuðla að því
að sá árangur festist í
sessi en að freista þess að
sækja mikið fram. Sér-
staklega ber að gjalda
varhug við hugmyndum
um að gera út á vænt-
anlegt „góðæri“ eins og
lenska er að gera hér á
landi og skipta verðmæt-
um sem enn hafa ekki
orðið til. Þá ætti einnig
flestum að vera ljóst að
takmörk eru fyrir því
hversu mikið er hægt að
hækka lægstu launataxta
umfram laun almennt og
má ætla að það svigrúm
hafi verið fullnýtt með
gríðarlegum hækkunum
lægstu taxta undanfarin
samningstímabil.“
Loks segir í leiðara Afvettvangi: „Staðan er
sem sagt sú að lítið sem
ekkert svigrúm er til
launahækkana í miðlæg-
um samningum. Hlutur
launanna í verðmæta-
sköpuninni er hærri en
fær staðist til lengdar og
hlýtur að lækka fyrr en
síðar, annaðhvort með
hægari launabreytingum
hér á landi en í við-
skiptalöndunum eða með
lækkun gengis króunnar.
Sú fyrri er leið stöð-
ugleikans en hin síðari
hefur oftast verið kennd
við kollsteypur. Þeir sem
setja stöðugleikann á
oddinn hljóta að taka mið
af þessum staðreyndum.“
STAKSTEINAR
Stöðugleikann
á oddinn
Víkverji skrifar...
MARGIR hafa rekið upp rama-kvein yfir þeirri ákvörðun að
banna veiði á rjúpu. Vísindalegar
forsendur bannsins hafa verið
dregnar í efna, margir vilja frekar
setja á sölubann (þótt hugmyndir
um hvernig eigi að framfylgja því
virðist heldur óljósar) og margir
líta svo á að það verði bara engin
jól nema rjúpa sé á borðum.
Víkverji furðar sig á því að ekki
skuli vera talað meira um jákvæðu
hliðarnar á rjúpnaveiðibanninu.
Þær eru ekki fyrst og fremst að
hans mati að blessaðri rjúpunni
verði gefin grið um sinn. Nei, Vík-
verja eru önnur rök efst í huga;
annars vegar þjóðhagslegur sparn-
aður vegna rjúpnaveiðibannsins og
hins vegar sálarró þúsunda fjöl-
skyldna víða um land.
x x x
ÞJÓÐHAGSLEGI sparnaðurinnfelst í því að nú þarf ekki að
kalla út þyrlur og björgunarsveitir
með ærnum tilkostnaði til að leita
að týndum rjúpnaskyttum. Þetta
vesen er strax byrjað í nágranna-
löndunum; í Aftenposten í Noregi í
gær var frétt um að þyrlur og
fjöldi hermanna og rauðakrossliða
hefði leitað að rjúpnaskyttu, sem
fannst svo reyndar heil á húfi.
Fyrir Víkverja rifjuðust upp línur
úr ljóði þeirra Jolla og Kóla (Val-
geirs Guðjónssonar og Sigurðar
Bjólu), sem út kom á vínyl hér um
árið og var einhvern veginn svona:
Síkorskíþyrla frá varnarliðinu
var um daginn kölluð
í heiðjöklahring
til að bjarga rjúpnaskyttum á sköllunum
sem voru búnar að týna öllu
nema byssunum.
Vonandi eru nú sem fæstar
rjúpnaskyttur á skallanum, en
alltént sparast bara heilmikið
þyrlubenzín og tímakaup við að
ekki þurfi að leita að þeim uppi um
fjöll og firnindi á veturna.
x x x
SVO má ekki gleyma því að núsparast alls konar áhyggjur og
hugarangur sem makar (aðallega
eiginkonur) og börn hafa haft af
skotveiðimönnum, sem eru á fjöll-
um að telja sjálfum sér trú um að
þeir séu að draga björg í bú fyrir
fjölskylduna, þegar þeir gætu auð-
vitað rétt eins farið í Nóatún og
keypt svínahrygg eða einhvern
innfluttan fugl til að hafa í jóla-
matinn. Víkverji viðurkennir að á
móti gæti vegið pirringurinn í
djúpt sokknum skyttum, sem æða
um heima hjá sér friðlausar yfir
því að komast ekki í sportið og
gera aðra fjölskyldumeðlimi sturl-
aða. Þessu fólki verður bara að
benda á aðra skapandi tóm-
stundaiðju, t.d. að setja saman
flugmódel.
Morgunblaðið/Sverrir
Nú fær rjúpan ekki bara hvíld, heldur líka björgunarsveitirnar.
Sígarettusóðar
ÉG reyki, það er stað-
reynd.
Oft hef ég óskað Þor-
grími Þráinssyni og hans
pótintátum út í hafsauga
með þeirra ofstækisfulla
boðskap og bann persónu-
frelsis.
Ég hef undrað mig á því
að þeir ekki leggi meiri
áherslu á það við þá sem
reykja, og geta ekki eða
vilja ekki hætta þeim leiða
sið, þá sem ólust upp á tím-
um áróðurs reykingaaug-
lýsinga, að snyrtimennska
fylgi löstum, hverjir sem
þeir eru.
Að reykingamenn gangi
með litlar dósir á sér og
setji þar í stubbana en
fleygi þeim ekki frá sér vítt
og breitt um borg og bæ.
Að skilyrði sé að við op-
inberar byggingar og versl-
anir séu ker er taka við við-
bjóðnum að þeirra mati.
Því miður virðist það ekki
nóg.
Alveg ofbauð mér er ég
kom að Háskólabókasafni
við Arngrímsgötu. Þar er
jú ker utandyra til vinstri
en eflaust er hraðinn svo
mikill hjá því unga fólki er
leitar sér þekkingar þar
innan dyra að stubbunum
er fleygt út um allt, alveg
að dyrunum liggja stubb-
arnir á mottunni. Einnig er
svo við verslanir og hvar
sem litið er.
Hvað er hægt að gera við
þvílíkum sóðaskap? Það
væri verðugt verkefni fyrir
andstæðinga reykinga að
taka þessi mál föstum tök-
um, því reykingar eru því
miður staðreynd.
Upp með pennann og
áróðurinn gegn þessum
reykingasóðum, ötulu
menn reykingabannsins.
Krefjist snyrtimennsku í
hvívetna. Berjist fyrir
snyrtimennsku staðreynd-
anna.
S.E.
Sakna
Árna Snævarr
UNDIRRITAÐUR saknar
Árna Snævarr fyrrverandi
fréttamanns á Stöð 2. Árni
var ekki bara glöggur
fréttamaður heldur eftir-
minnilegur fréttamaður.
Hann bar með sér góðan
þokka og ætíð skeleggur og
hress á skjánum. Slíkir
menn lýsa upp grámósku
hversdagsins. Þá var Árni
líka afar laginn spyrjandi í
hvers kyns fréttatengdum
hólmgönguþáttum.
Sem áskrifandi að Stöð 2
frá fyrsta útsendingardegi
tel ég mig eiga rétt á að
birta þennan saknaðarstúf.
Ólafur M. Jóhannesson.
Tapað/fundið
Úr týndist
JACQUES Droz-úr með
vínrauðri ól týndist 25.
sept. líklega í miðbæ
Reykjavíkur. Skilvís finn-
andi vinsamlegast hafi
samband við Örn í síma
691 5595.
Húfa og vettlingar
týndust
SVÖRT húfa og hvítir lopa-
vettlingar týndust á leið-
inni frá Hörðuvöllum í
Hafnarfirði að Tjarnar-
braut. Finnandi hafi sam-
band í síma 555 4215.
Dýrahald
Páfagaukur fannst
LJÓSBLÁR páfagaukur
fannst í Granaskjóli í vest-
urbæ Reykjavíkur á föstu-
dag. Uppl. í síma 551-5810.
Bröndótt læða týndist
í Garðabænum
HÚN er svört, brún og grá
og með lítinn hvítan flekk
undir hökunni. Hún er loðin
og með þykkt skott, svolítið
skógarkattarleg. Hafi ein-
hver orðið hennar var er
hann beðinn að hringja í
síma 554 6284 eða 897 9007.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
LÁRÉTT
1 makráðar, 8 ásýnd, 9
húsgögn, 10 elska, 11 rót-
artaugin, 13 þráðar, 15
deila, 18 gerjunin, 21
skaut, 22 nurla saman, 23
múlinn, 24 sjópoki.
LÓÐRÉTT
2 heiðarleg, 3 kvendýrið,
4 þjálfun, 5 korn, 6 daun-
illt, 7 handfangs, 12
greinir, 14 kraftur, 15
sæti, 16 minnast á, 17 aul-
ans, 18 grikk, 19 örkuðu,
20 ófrægja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 mergs, 4 velur, 7 rjúfa, 8 tæpum, 9 pat, 11 að-
al, 13 bana, 14 japla, 15 hrjá, 17 kjör, 20 hrá, 22 ögrar,
23 rósin, 24 Lárus, 25 skapi.
Lóðrétt: 1 merla, 2 rjúpa, 3 skap, 4 vott, 5 loppa, 6
remma, 10 aspir, 12 ljá, 13 bak, 15 hroll, 16 jagar, 18
jaska, 19 rengi, 20 hrós, 21 árás.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16