Morgunblaðið - 07.10.2003, Síða 48
ÍÞRÓTTIR
48 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐUN Helgason fór meiddur af
velli eftir aðeins 18 mínútna leik
þegar lið hans, Landskrona, mætti
AIK á útivelli í sænsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gærkvöld. AIK
vann öruggan sigur, 3:0, og skoraði
Mats Rubarth öll mörkin.
Hjálmar Jónsson lék allan leikinn
með Gautaborg sem tapaði fyrir
Hammarby á heimavelli, 0:1. Pétur
Marteinsson var ekki í leikmanna-
hópi Hammarby þar sem hann var
tæpur eftir að hafa meiðst á æfingu
fyrir skömmu. Stigin eru dýrmæt
fyrir Hammarby sem fylgir Djur-
gården og Malmö eftir í slagnum
um meistaratitilinn.
Auðun fór
meiddur af
velli í gær RÚNAR Kristinsson, leikjahæsti
landsliðsmaður Íslands í knatt-
spyrnu, er á góðum batavegi eftir
meiðsli sem hann varð fyrir í leik
með Lokeren gegn Genk í belg-
ísku 1. deildinni á laugardaginn.
Hann fékk þá högg á hné og þátt-
taka hans í landsleiknum mikil-
væga gegn Þjóðverjum í Hamborg
næsta laugardag þótti tvísýn.
„Ég er allur að koma til, er mun
skárri í dag en í gær og er bjart-
sýnn á að geta byrjað að æfa á ný
með bolta á miðvikudag eða
fimmtudag. Ég hef verið í mikilli
sjúkraþjálfun undanfarna tvo
daga og framfarirnar eru tals-
verðar. Það er ekki annað að sjá
en að ég verði kominn í gott lag
áður en að leiknum kemur næsta
laugardag,“ sagði Rúnar við
Morgunblaðið í gærkvöld en hann
leikur sinn 103. landsleik í Ham-
borg ef allt fer samkvæmt áætlun.
Rúnar sagði ennfremur að það
væri vissulega slæmt hve margir
íslensku landsliðsmannanna hafa
verið frá keppni að undanförnu.
„Við söknum sterkra leikmanna
og það er að sjálfsögðu slæmt
þegar aðrir fá ekki tækifæri með
sínum félagsliðum. En þeir ættu
þá að koma vel hvíldir til Ham-
borgar og þar reynir fyrst og
fremst á hversu góða stemningu
við náum að byggja upp í okkar
hópi fyrir leikinn,“ sagði Rúnar
Kristinsson.
Góðar horfur með Rúnar
fyrir leikinn í Hamborg
ÞAÐ verður ítalski knatt-
spyrnudómarinn Pierluigi
Collina, sem mun dæma við-
ureign Tyrklands og Eng-
lands í Evrópukeppni lands-
liða, sem fer fram í Istanbúl á
laugardaginn. Danski dóm-
arinn Kim Milton Nielsen átti
upphaflega að dæma leikinn,
en þar sem hann er meiddur
var kallað á Collina.
Leikurinn er hreinn úr-
slitaleikur um farseðil til EM
í Portúgal. England er með
19 stig, Tyrkland 18. Það
verða örfáir enskir áhorf-
endur á leiknum, en enska
knattspyrnusambandið ósk-
aði eftir því að stuðnings-
menn enska landsliðsins
héldu sig heima.
Collina
dæmir í
Istanbúl
KNATTSPYRNA
Svíþjóð
AIK Solna – Landskrona......................... 3:0
Halmstad – Helsingborg ......................... 2:4
IFK Gautaborg – Hammarby ................. 0:1
Sundsvall – Djurgården........................... 1:4
Staðan:
Djurgården 24 16 2 6 53:23 50
Malmö 24 14 6 4 49:19 48
Hammarby 24 14 5 5 47:29 47
Örgryte 24 12 3 9 39:39 39
Helsingborg 24 11 4 9 31:31 37
Halmstad 24 11 3 10 38:32 36
AIK 24 9 7 8 35:32 34
Elfsborg 24 9 7 8 29:31 34
Gautaborg 24 9 6 9 33:26 33
Örebro 24 9 6 9 28:32 33
Landskrona 24 7 7 10 22:37 28
Sundsvall 24 2 10 12 22:40 16
Öster 24 3 7 14 26:48 16
Enköping 24 3 5 16 21:54 14
Noregur
Lyn – Tromsø ........................................... 5:1
Staðan:
Rosenborg 23 18 4 1 63:19 58
Bodö/Glimt 23 11 5 7 36:27 38
Odd Grenland 23 11 4 8 43:35 37
Stabæk 23 9 9 5 41:30 36
Sogndal 23 8 8 7 39:39 32
Viking 23 7 10 6 40:30 31
Lilleström 23 8 7 8 26:33 31
Brann 23 7 7 9 38:46 28
Molde 23 8 3 12 27:36 27
Lyn 23 7 5 11 32:41 26
Tromsö 23 7 5 11 29:48 26
Vålerenga 23 5 10 8 26:29 25
Ålesund 23 6 6 11 26:39 24
Bryne 23 7 1 15 33:47 22
England
2. deild:
Luton – Tranmere.................................... 3:1
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni HSÍ, SS-bikarkeppni kvenna,
16 liða úrslit:
Hlíðarendi: Valur 2 - Fram........................20
Í KVÖLD
Ásgeir Sigurvinsson sagði viðMorgunblaðið í gærkvöld að
vegna þess að þrír leikmenn í hópn-
um væru tæpir vegna meiðsla hefði
ekki verið vogandi annað en að mæta
með 20 leikmenn til Hamborgar.
„Það er betra að vera með þá alla í
hópnum frá byrjun, heldur en að
þurfa að kalla til leikmenn á föstu-
degi. Vonandi verða allir heilir og þá
verður það hlutskipti einhverra
tveggja að vera ekki á leikskýrsl-
unni, en það skýrist betur eftir að við
komum saman í Hamborg hvernig
þessi mál standa,“ sagði Ásgeir.
Rúnar Kristinsson og Pétur Mar-
teinsson virðast eiga góða möguleika
á að ná leiknum þrátt fyrir meiðsli en
tvísýnna er um Hermann Hreiðars-
son. „Það er gott hljóð í Rúnari og
Pétur hefur æft undanfarna daga
með Hammarby. Þjálfari liðsins og
hann tóku hins vegar ekki þá áhættu
að láta hann leika í kvöld,“ sagði Ás-
geir en Pétur spilaði ekki með
Hammarby sem vann Gautaborg,
1:0, á útivelli í gærkvöld. Ásgeir og
Logi sáu þann leik og horfðu á
Hjálmar Jónsson standa sig vel með
Gautaborg. „Það var gaman að sjá til
Hjálmars, hann er fullur sjálfs-
trausts og leikur vinstri bakvarð-
arstöðuna af miklu öryggi. Bo Jo-
hansson, þjálfari Gautaborgar, sagði
við okkur að hann væri mjög ánægð-
ur með Hjálmar,“ sagði Ásgeir.
Hann taldi að tvísýnast væri með
þátttöku Hermanns Hreiðarssonar í
leiknum í Hamborg en sagði að
Kristján Örn Sigurðsson væri til
taks ef hann gæti ekki spilað. „Við
skoðum stöðuna hjá Hermanni og
hinum þegar við komum saman í
Hamborg á miðvikudaginn. Þá skoða
læknir okkar og sjúkraþjálfari þá
sem eru tæpir og það mun síðan
sjást á æfingunum hverjir eru til-
búnir að spila á laugardaginn. Það
verður talsverð keyrsla á þessum
æfingum og menn verða að vera til-
búnir í hana.“
Enginn þremenninganna
hefur leikið landsleik í ár
Þeir Ríkharður og Hjálmar léku
síðast með landsliðinu fyrir 13 mán-
uðum, þegar Ísland tapaði, 0:2, fyrir
Ungverjalandi í vináttulandsleik á
Laugardalsvellinum. Bjarni Guð-
jónsson hefur ekkert leikið með
landsliðinu á þessu ári en hann var
síðast með í vináttuleik gegn Eist-
landi í Tallinn í nóvember í fyrra.
„Það er ánægjulegt hve vel Rík-
harður er að ná sér á strik á ný.
Hann hefur ekki misst úr æfingu síð-
an í maí, því miður fékk hann lítið að
spila með Lilleström en nú er hann
kominn á fullt með Fredrikstad og
farinn að skora á ný. Logi sá til hans
á sunnudag og hann gerði margt gott
í þeim leik. Bjarni kemur inn sem
mögulegur valkostur á hægri væng-
inn á miðjunni en annars hefði Þórð-
ur Guðjónsson verið eini leikmaður-
inn í þá stöðu,“ sagði Ásgeir Sigur-
vinsson.
Ríkharður, Hjálmar
og Bjarni í hópinn
RÍKHARÐUR Daðason, Bjarni
Guðjónsson og Hjálmar Jóns-
son koma allir inn í íslenska
landsliðshópinn í knattspyrnu á
ný eftir mislanga fjarveru.
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir
Sigurvinsson og Logi Ólafsson
tilkynntu í gærkvöld 20 manna
hóp fyrir leikinn mikilvæga gegn
Þjóðverjum í Hamborg næsta
laugardag og munu þremenn-
ingarnir leysa af hólmi þá Heið-
ar Helguson og Lárus Orra Sig-
urðsson, sem eru meiddir, og
Jóhannes Karl Guðjónsson,
sem tekur út leikbann.
Morgunblaðið/Kristinn
Pétur Marteinsson er einn af þremur leikmönnum í landsliðs-
hópnum sem tvísýnt er með vegna meiðsla.
CHELSEA hefur farið vel af stað í
ensku úrvalsdeildinni og þeir eru
margir sem spá því að þetta rán-
dýra lið geti velgt Manchester Unit-
ed og Arsenal verulega undir ugg-
um í baráttunni um enska
meistaratitilinn. Chelsea er stigi á
eftir toppliði Arsenal eins og Man-
chester United en hefur leikið ein-
um leik færra og hefur því tapað
fæstum stigum en Chelsea og Ars-
enal eru einu taplausu liðin í deild-
inni.
Ranieri er hins vegar mjög jarð-
bundinn og eftir sigurinn á Middl-
esbrough í fyrradag sagði hann að
bæði Manchester United og Arsenal
væru með forskot á sitt lið og allt
tal um meistaratitil væri óraun-
hæft.
„Það er bara á stigatöflunni sem
hægt er að bera saman Chelsea á
móti Arsenal og Manchester Unit-
ed. Ég tel þessi tvö lið hafa forskot
á önnur lið, þar á meðal Chelsea, en
við erum að vinna í því að minnka
bilið. Það tekur bara sinn tíma,“
sagði Ranieri.
Ranieri útskýrir leikaðferð sinna
manna fyrir Rússanum Roman
Abramovich fyrir hvern einasta
leik sem liðið leikur.
„Abramovich er geysilega
áhugasamur um félagið sitt. Hann
skiptir sér ekkert af því hvaða leik-
mönnum Ranieri teflir fram eða
setur út á leikaðferðina,“ sagði
Paul Smith, stjórnarformaður
Chelsea, við fjölmiðla. Smith segir
að Ranieri njóti mikils traust hjá
Abramovich og allar fréttir um að
Svíinn Sven Göran Eriksson taki
við af Ítalanum séu úr lausu lofti
gripnar.
Ranieri
kveður
niður
titlatal
LYN komst í gær úr fallsæti í
norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu með því að vinna stórsigur
á Tromsö, 5:1, á heimavelli sínum í
Ósló. Helgi Sigurðsson lék síðasta
stundarfjórðunginn með Lyn en
Jóhann B. Guðmundsson var ekki í
leikmannahópnum.
Sigurinn var ákaflega mikil-
vægur fyrir Lyn sem var næst-
neðst fyrir leikinn en komst með
sigrinum upp fyrir Tromsö, Våler-
enga og Ålesund. Fallbarátta
deildarinnar er orðin gífurlega
spennandi en sjö lið eru enn í tals-
verðri hættu þegar þremur um-
ferðum er ólokið.
Lyn úr fall-
sæti með
stórsigri
Markverðir
Birkir Kristinsson, ÍBV ....................................................73
Árni Gautur Arason, Rosenborg......................................31
Aðrir leikmenn
Rúnar Kristinsson, Lokeren .......................................102/3
Arnar Grétarsson, Lokeren ..........................................63/2
Hermann Hreiðarsson, Charlton..................................51/3
Helgi Sigurðsson, Lyn .................................................49/10
Þórður Guðjónsson, Bochum.......................................48/12
Ríkharður Daðason, Fredrikstad ...............................42/14
Brynjar B. Gunnarsson, Nottingham Forest ..............38/3
Arnar Þór Viðarsson, Lokeren.........................................28
Pétur H. Marteinsson, Hammarby...............................27/1
Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea................................26/9
Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík ....................................13
Indriði Sigurðsson, Genk..................................................12
Bjarni Guðjónsson, Bochum..........................................12/1
Marel Baldvinsson, Lokeren ............................................11
Ívar Ingimarsson, Wolves ................................................11
Hjálmar Jónsson, IFK Gautaborg.....................................5
Veigar Páll Gunnarsson, KR ..............................................3
Kristján Örn Sigurðsson, KR.............................................0
Hópurinn gegn Þýskalandi