Morgunblaðið - 11.10.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 275. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Rúnamessa
í Lesbók
Fyrsta greinin um heimsmynd
hinna fornu rúna Lesbók 4
Konur
í stríði
Segja sögu kvenna í Kosovostríðinu
í nýrri kvikmynd Fólk 58
Kókosbollan
lifi
Kókosbollan á sér yfir hálfrar
aldar merka sögu Daglegt líf 4
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti for-
dæmdi í gær kúgunarstefnu ríkisstjórnar Fíd-
els Kastrós Kúbuforseta, og tilkynnti að fram-
vegis yrði harðar fylgt eftir banni við ferðum
bandarískra ríkisborgara til Kúbu. Slíkar ferðir
væru „einungis til þess fallnar að styrkja ein-
ræðisherrann og skósveina hans í sessi“.
Bush sagði í Hvíta húsinu í gær, sama dag og
Kúbumenn minntust upphafs baráttu sinnar
fyrir frelsi undan spænskum yfirráðum 1868, að
núverandi ríkisstjórn á Kúbu, sem er eina
kommúnistastjórnin í Norður- og Suður-Amer-
íku, myndi „ekki af sjálfsdáðum breyta um
stefnu“. Samkvæmt gildandi reglum er Banda-
ríkjamönnum óheimilt að eyða peningum á
Kúbu nema með sérstöku leyfi frá fjármála-
ráðuneytinu.
Þá sagði Bush, að fleiri Kúbumönnum yrði
heimilað að flytjast til Bandaríkjanna. Nú fá um
20 þúsund Kúbumenn að gerast innflytjendur í
Bandaríkjunum á ári hverju. Ennfremur myndu
Bandaríkjamenn gera meira af því að dreifa út-
varpstækjum og prentuðu máli til Kúbumanna.
Væri þetta „einungis fyrsta skrefið í hertum til-
raunum til að ná tengslum við kúbönsku þjóð-
ina“.
Vladimiro Roca, einn þekktasti fyrrverandi
pólitíski fangi á Kúbu, fagnaði tilkynningu
Bush, en kvaðst ekki sjá margt nýtt í spilum
Bandaríkjaforseta. „Með orðum sínum hefur
Bush veitt okkur siðferðilegan stuðning,“ sagði
Roca.
Hann kvaðst ánægður með að Bush ætlaði að
taka harðar á ólöglegum ferðum bandarískra
ferðamanna til Kúbu, og sagði: „Bandarískir
ferðamenn munu ekki færa Kúbumönnum lýð-
ræði.“
En Roca sagði aftur á móti, að það væri „mis-
ráðið“ af Bush að skipa nefnd til að skipuleggja
framkvæmdaáætlun fyrir Kúbu að Kastró
gengnum. Það væri með öllu ógerlegt að segja
fyrir um eða skipuleggja það sem gerast myndi
á Kúbu þegar Kastró, sem hefur verið þar við
völd í 44 ár, færi frá.
Hert á ferðabanni til Kúbu
Reuters
Bush, ásamt Colin Powell utanríkisráðherra,
greinir frá hertri stefnu sinni varðandi Kúbu.
Washington. AFP.
NÍUTÍU og eins árs Texasbúi sem
gengur við staf og er heyrnardaufur
hefur játað á sig bankarán þar sem
hann hafði um 2.000 dollara, eða um
150 þúsund krónur, upp úr krafsinu.
Er þetta þriðja bankaránið sem
hann fremur á innan við fimm árum.
Þegar dómari spurði ræningjann,
J.L. Hunter Rountree „rauða“,
hvort hann kvæðist sekur eða sak-
laus sagði hann fyrst að hann væri
saklaus en leiðrétti sig svo: „Ég
meina sekur. Afsakið.“
Að sögn yfirvalda hófst glæpafer-
ill Rountrees 1998, skömmu áður en
hann varð 87 ára, er hann rændi
banka í Mississippi. Hann náðist og
hlaut skilorðsbundinn dóm. Tæpu
ári síðar rændi hann banka í Flórída.
Þá hlaut hann þriggja ára fangelsi.
Nú á hann yfir höfði sér 20 ára
fangelsi og sekt allt að 250 þúsund
dollurum, um 19 milljónum króna.
91 árs
bankaræn-
ingi játar
Lubbock í Texas. AP.
ÍSLENDINGAR eru orðnir næstríkastir
Norðurlandaþjóða, þeir lifa lengst, versla
mest, fjölga sér hraðast, kaupa flesta bíla
og greiða lægsta skatta. Hins vegar er
verðbólga mest á Íslandi og erlendar
skuldir hæstar. Þetta kemur fram í nýút-
komnum hagtölum Norðurlanda 2003,
sem kynntar voru í gær.
Hagvöxtur hefur verið mestur á Íslandi
af norrænu ríkjunum fimm á síðustu sjö
árum. Landsframleiðslan hefur aukist um
30% hér á landi á þessum tíma og hið sama
á við um rauntekjur. Þetta er helmingi
meiri vöxtur en í Danmörku á sama tíma-
bili, þannig að Ísland hefur nú skotist
fram úr Danmörku með tilliti til velmeg-
unar, mælt í landsframleiðslu á íbúa. Ein-
ungis Norðmenn búa við betri lífskjör.
Íslendingar hafa slegið öll Norð-
urlandamet í smásöluverslun og sölu á
einkabílum á undanförnum sjö árum. Er-
lendar skuldir eru þó hvergi hærri á
Norðurlöndum en á Íslandi, 75% af vergri
landsframleiðslu. Á Íslandi hafa verðlags-
hækkanir jafnframt verið mestar. At-
vinnuleysi hefur á hinn bóginn verið
minnst á Íslandi árið 2002, eða 3,2%.
Fólksfjölgun er meiri á Íslandi en í hin-
um norrænu ríkjunum, eins og verið hefur
lengi. Meðalævi bæði karla og kvenna er
lengst á Íslandi.
Skattbyrði langminnst á Íslandi
Atvinnuþátttaka er mest á Íslandi og
veikindadagar fæstir. Ennfremur kemur
fram að skattbyrði sé langminnst á Ís-
landi. Álögur hins opinbera á Íslandi
námu 38,7% af landsframleiðslu á síðasta
ári. Hlutfallið er hæst í Danmörku, 56,6%,
í Svíþjóð er það 54,8%, í Noregi 54% og í
Finnlandi 49,4%.
Langlífust
og kaup-
glöðust
Íslendingar fram úr
Dönum í velmegun
KVIKMYNDIN Nói albínói var ótví-
ræður sigurvegari Edduverðlaun-
anna í ár, sem afhent voru við há-
tíðlega athöfn á Hótel Nordica í
gærkvöldi. Nói albínói hlaut alls sex
verðlaun, þar á meðal fyrir bestu
mynd, handrit, leikstjóra og leik-
ara. Hér tekur Dagur Kári Pét-
ursson, leikstjóri myndarinnar, við
einum af mörgum verðlaunum Nóa
albínóa og var honum vel fagnað af
íslensku kvikmyndagerðarfólki. Að
baki Degi Kára standa Sigurður
Sigurjónsson og Guðný Ragn-
arsdóttir, sem á sínum tíma voru
aðalleikarar í kvikmyndinni Landi
og sonum.
Morgunblaðið/Þorkell
Nói albínói
sópaði að
sér Eddum
Edduverðlaunahafar/4
JOHAN Friso Hollandsprins,
annar sonur Beatrix drottningar,
afsalaði sér í gær réttinum til að
erfa krúnuna til þess að geta
gengið að eiga unnustu sína sem
er umdeild vegna fyrra sam-
bands síns við þekktan glæpa-
mann.
Jan Peter Balkenende, for-
sætisráðherra Hollands, tilkynnti
að ríkisstjórnin gæti ekki fallist á
að væntanleg eiginkona prinsins,
Mabel Wisse Smit, yrði meðlimur
konungsfjölskyldunnar þar sem
Wisse Smit hefði veitt „ófullnægj-
andi og rangar upplýsingar, er
hafa dregið úr trausti“ á henni.
Ráðahagur meðlima hollensku
konungsfjölskyldunnar þarf að
hljóta blessun þingsins, en stjórn-
in hefur tilkynnt að hún muni
ekki leita samþykkis þingsins við
hjónabandi Frisos.
Wisse Smit hefur viðurkennt
að hafa villt um fyrir stjórnvöld-
um er hún neitaði því að hafa
verið meira en málkunnug Klaas
Bruinsma á háskólaárum sínum.
Bruinsma var fíkniefnabarón, og
var skotinn til bana þegar ráðist
var gegn glæpamönnum 1991.
Það var fyrrverandi lífvörður
Bruinsma sem greindi hollenskri
sjónvarpsstöð frá því, að Wisse
Smit hefði oft setið næturlangar
veislur í báti Bruinsmas.
Hollandsprins
afsalar sér
erfðaréttinum
AP
Prinsinn og heitkona hans
JOHAN Friso Hollandsprins og konuefni hans, Mabel Wisse Smit, eru
bæði 35 ára. Friso starfaði sem greinir hjá Goldman Sachs-bankanum í
London, en lét af því starfi þegar tilkynnt var um væntanlegt hjónaband
hans. Wisse Smit hefur unnið fyrir ýmis mannréttindasamtök, nú síðast
hjá Open Society-stofnuninni í Brussel, sem auðjöfurinn Georg Soros
starfrækir. Brúðkaup Frisos og Wisse Smit verður haldið í vor.
Haag. AP.