Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Harmonikuleikur | Fyrirhugað er að
halda fyrsta landsmótið fyrir unga harm-
onikuleikara í Skagafirði næsta vor.
Gunnar Ágústsson formaður Félags
harmonikuunnenda í Skagafirði segir að
meðfram annarri starfsemi félagsins væri
undirbúningur þegar hafinn, og send hefðu
verið gögn til allra harmonikufélaganna í
landinu auk bréfs til skólanna þar sem mót-
ið er kynnt, og óskað eftir skráningu á net-
fangið: stefang@krokur.is, fyrir 18. októ-
ber næstkomandi, en þetta væri gert
einmitt núna þar sem greinilega hefði kom-
ið í ljós mjög aukinn áhugi ungs fólks fyrir
að leika á þetta skemmtilega hljóðfæri og
því fyrr sem unnt væri að sjá umfang þessa
móts þeim mun betur yrði hægt að und-
irbúa það til þess að vel mætti til takast.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Leiklist | Nemendur Fjölbrautaskóla Suð-
urlands frumsýna í dag kl. 15.00 barna-
leikritið Búkollu. Önnur sýning, sem er há-
tíðarsýning, verður svo sama dag kl 17.00.
Þriðja og fjórða sýning eru fyrirhugaðar á
morgun, sunnudag 12. október, einnig kl. 15
og 17. Sýnt verður í sal Fjölbrautaskólans á
Selfossi.
Leikritið er í mjög nútímalegum stíl, leik-
mynd, búningar og tal. „Þetta er rosalega
skemmtilegt leikrit sem höfðar til svona 3–
10 ára barna og foreldrar eru að sjálfsögðu
velkomnir með. Í hléinu verða svo mjólk-
urafurðir frá MBF til sölu gegn mjög lágu
verði. Undirbúningstímabilið hefur verið
sex vikur og hafa allir staðið sig mjög vel,“
sagði Sigga Karlsdóttir formaður nem-
endafélagsins.
Aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir alla ald-
urshópa, en 800 kr. ef keypt er fyrir 20
manna hópa eða fleiri.
Dagur iðnaðarins | Félagsmenn í Meist-
arafélagi iðnaðarmanna halda upp á dag iðn-
aðarins í dag. Almenningi er boðið í opið hús
á tólf stöðum í Hafnarfirði, þar sem iðn-
aðarmenn kynna framleiðslu sína og þjón-
ustu. Sérstök móttaka gesta og sýning verð-
ur í nýjum samkomusal Íþróttamiðstöðvar
Hauka á Ásvöllum. Rík áhersla verður lögð á
að kynna fagmennsku meistaranna og fram-
kvæmdir í Firðinum, íslenska byggingavöru
og húshluti og síðast en ekki síst verður lögð
áhersla á að fólk velji sér öðrum fremur
meistara þegar vanda skal til verks.
Hafnarfjarðarbær kynnir m.a. deiliskipu-
lag íbúðahverfis og skrifstofu- og þjón-
ustusvæði á Völlum, nýjasta byggingarsvæð-
inu bæjarins. Auk þess kynnir fjöldi
iðnfyrirtækja þjónustu sína og framleiðslu.
Á morgun, sunnu-daginn 12. októ-ber, fagnar
Íþróttafélagið Þróttur í
Neskaupstað áttatíu ára
afmæli sínu. Verður
blásið til hátíðar í
íþróttahúsi bæjarins og
við sundlaugina. Hefst
hátíðin kl. tíu um morg-
uninn við sundlaugina
þar sem foreldrar etja
kappi við unga Þróttara.
Eftir hádegi verður í
íþróttahúsinu dagskrá,
þar sem flutt verða
ávörp og fólk getur
spreytt sig í bolta-
leikjum. Hófinu lýkur
með kaffiboði. Innan vé-
banda Þróttar eru nú
fjórar deildir; blak-,
knattspyrnu-, skíða- og
sunddeild.
Þróttur 80 ára
Nemendur Háskólans á Akureyri gerðu sér glaðandag í gær og settu skemmtilegan svip á bæinn;héldu svokallaðan sprelldag. Fatnaðurinn var
ekki hefðbundinn og hver deild annarri skrautlegri. Er
blaðamaður rakst á hópinn á Ráðhústorgi var ekki annað
að heyra en hver deild reyndi að yfirgnæfa hinar með
söng sínum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Háskólanemar sprella
Stærsta einstaka nám-skeið sem Sjúkra-flutningaskólinn hef-
ur efnt til hófst í vikunni, en
um er að ræða svonefnt
neyðarflutninganámskeið,
sem er framhaldsnámskeið
fyrir þá sem eru með nokk-
urra ára starfsreynslu sem
sjúkraflutningamenn. Nem-
endur eru á tveimur stöð-
um, 15 í Reykjavík og 6 á
Akureyri eða alls 21 nem-
andi. Fyrirlesarar verða
ýmist á Akureyri eða
Reykjavík en notaður er
fjarfundabúnaður.
Markmiðið er að gera
nemendur færa um að meta
ástand mikið veikra og slas-
aðra sjúklinga, taka ákvörð-
un um og beita allri bráða-
meðferð. Námskeiðið tekur
fimm vikur og er bæði bók-
legt og verklegt, en nemar
verða í starfsþjálfun á
sjúkrahúsum á Akureyri og
Reykjavík eftir að bóklega
hlutanum er lokið.
Sjúkraflutn-
ingamenn á
skólabekk
Hafnarfirði | Aníta Guðlaug
Axelsdóttir, 13 ára nemandi í
Setbergsskóla í Hafnarfirði
fékk fyrir skömmu þá hug-
mynd að leita til Þorgríms
Þráinssonar hjá Tóbaksvarn-
arráði og fá hann til þess að
búa til boli gegn reykingum á
alla bekkjarfélaga sína í 8NA.
Aníta hannaði merki gegn
reykingum framan á bolina
með slagorðunum 2 COOL 2
SMOKE, nokkuð sem á hefð-
bundinni ensku væri skrifað
Too cool too smoke, og gæti
útlagst Of svöl til að reykja, á
íslensku. Aníta sendi Tóbaks-
varnaráði merkið, þar á bæ var
tekið mjög jákvætt í hugmynd-
ina og drifið í að framkvæma
hana. Myndin er af stoltun
nemendum 8NA í Setbergs-
skóla í bolunum fínu. Aníta
Guðlaug er fremst fyrir miðju.
Of svöl til að reykja …
Forvarnir
Fljótum | Lokið var við það í gær að slátra
þeim barra sem fyrirtækið Sægull ehf. hef-
ur alið síðustu misseri í eldisstöðinni á
Lambanes-Reykjum
í Fljótum. Sægull
ehf. sem er í eigu Ný-
sköpunarsjóðs hóf
starfsemi eftir að
Máki hf. var gjald-
þrota fyrir rúmu ári.
Jón Sigvaldason, sem
starfað hefur hjá
Máka frá upphafi,
segir að tveimur og
hálfu tonni hafi verið
slátrað á viku síðan í
febrúar en barrinn
hefur farið á markað
í Bandaríkjunum.
Skilaverð hefur verið nokkuð breytilegt
vegna gengisbreytinga en nú undir lokin
hefur það verið um 490 krónur fyrir kílóið.
Hann sagði í samtali að eldið á fiskinum
hefði gengið alveg prýðilega og hann vaxið
ágætlega þetta síðasta ár.
Jón sagði að vissulega væri eftirsjá í
þessari starfsemi því það hefði sýnt sig að
allur búnaður í stöðinni hefði virkað ágæt-
lega eftir að búið var að yfirstíga vissa
byrjunarörðugleika. Hann sagðist ekkert
vita um hvað yrði um eldisstöðina sem er í
eigu Nýsköpunarsjóðs eins og áður sagði
en ljóst væri að ákveðnir aðilar væru með
vissar hugleiðingar varðandi mannvirkin.
Hvort það yrði til þess að þar yrði hafið eldi
fljótlega aftur ætti eftir að koma í ljós.
Barrinn í
Fljótunum
á þrotum
Reykjanesbæ | Nú stunda 1.740 börn og
unglingar nám við grunnskóla í Reykja-
nesbæ, 48 færri en á sama tíma á síðasta
ári þegar nemendurnir voru 1.788.
Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri seg-
ir að sveiflur í stærð árganga sé megin-
skýringin á fækkun nemenda. Síðastliðið
vor hafi stór árgangur lokið námi í 10. bekk
en frekar lítill árgangur hafið nám í fyrsta
bekk. Útlit er fyrir fækkun næsta haust af
sömu ástæðum. Eiríkur lætur þess þó get-
ið að fjöldi nemenda hafi verið að aukast á
síðustu árum, hafi til dæmis verið innan við
1.700 fyrir fimm árum.
Heiðarskóli í Keflavík er fjölmennasti
grunnskólinn í Reykjanesbæ. Þar er nú
481 nemandi. 462 stunda nám við Holta-
skóla í Keflavík, 415 við Njarðvíkurskóla
og 380 nemendur eru í Myllubakkaskóla í
Keflavík.
Fækkar um 48
í grunnskólum
♦ ♦ ♦
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060 • www.stepp.is