Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 11
Sýniken
nsla í
haustskr
eytingum
lau. og s
un. kl. 1
3-17
í Blóma
vali Sigt
úni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
24
81
10
/2
00
3
50% afsláttarhelgi
Haustvendir 50% afsl.
Garðhúsgögn
50% afsláttur
1.499
799
Stór
Minni
kr. verð áður 2.998 kr.
kr. verð áður 1.598 kr.
Blómstrandi
plöntur 50% afsl.
Rýmingarsala
á pottaplöntum
50% afsláttur
SIGURÐUR Guðjónsson staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
áttundi laxinn hefði nú verið
greindur Norðfirðingur. Nýjasti
laxinn fannst í kistu í Hofsá þar
sem veiðimenn hafa sett laxa til
sleppingar á ólaxgenga hluta árinn-
ar.
Bragi Vagnsson, formaður Veiði-
félags Hofsár, sagði bændur og
leigutaka safna löxum sem veiði-
menn vilja leggja til ræktunar í
kistur og í lok veiðitíma séu kist-
urnar tæmdar og laxarnir færðir í
tankbíl inn á afrétt. Í einni kistunni
var umræddur lax, 5,4 kg kyn-
þroska hængur, 79 cm. Laxinn var
veiðiuggalaus og við skoðun fannst
í honum örmerki sem staðfesti upp-
runann.
„Ég er hræddur um að það finn-
ist ekki fleiri eldislaxar að þessu
sinni, allri veiði er lokið og það er
enginn að fylgjast með ánum. Þess-
ir fiskar hafa verið að koma núna í
haust, undir lok veiðitímans og það
er engin leið að átta sig á því hvað
þetta eru eða verða margir fiskar í
haust,“ bætti Sigurður við.
Fækkar stórlöxum 2004?
Mjög lítið var af smálaxi í ám á
Norður- og Norðausturlandi og
mikið af fiskinum sem var á ferð-
inni var óvenjusmár. Guðni Guð-
bergsson telur að menn „geti vel
óttast að í kjölfarið verði lítið af
stórlaxi í viðkomandi ám að ári,“
eins og hann komst að ári. Guðni
nefndi sem dæmi, að af 291 laxi
sem veiddist í Svalbarðsá í sumar
hefðu smálaxar verið aðeins 82 og
meðalþyngd þeirra 2,3 kg, eða inn-
an við 5 pund. Stórlaxar voru hins
vegar 208 og meðalvigt þeirra 4,5
kg. „Það var mikið af smálaxi í
þessum ám í fyrra og við sjáum
hér þá fylgni sem alltaf er, mis-
mikil þó, milli smálaxa eitt árið og
stórlaxa á því næsta. Að þessu
sinni var fylgnin mjög hagstæð
stórlaxinum, en það gæti breyst
næsta sumar þó ekkert verði full-
yrt um það,“ sagði Guðni.
25 pundari í klakið
Veiðimenn og bændur við Eystri-
Rangá voru nýverið að draga á til
að ná klakfiski. Náðist fullt af fiski
og yfrið nóg, enda mikill lax í ánni.
Á Tunguvaði kom sá stærsti, 25
punda grútlegið tröll sem á vænt-
anlega eftir að reynast vel. Óvenju-
margir 20 punda laxar veiddust í
báðum Rangánum í sumar, og einn
daginn gerðist meira að segja sá
fáheyrði atburður í Eystri-Rangá
að þrír slíkir fiskar veiddust sama
daginn.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Óli Björgvinsson er hér með 10 punda sjóbirting sem hann
fékk á spón í Vatnamótunum í björtu veðri fyrr í vikunni.
Áttundi
eldislaxinn
kominn
fram
FLUGLEIÐAVÉL á leið til
Portúgals var snúið við skömmu
eftir flugtak vegna smávægi-
legrar bilunar í vængbarði.
Lenti vélin aftur á Keflavíkur-
flugvelli laust eftir klukkan
fimm í fyrradag. Engin vand-
ræði sköpuðust vegna þessa at-
viks önnur en töfin og lenti vélin
átakalaust.
Farþegum var vísað í aðra vél
og lagði hún af stað til Portúgals
laust eftir klukkan átta.
Flugleiða-
vél var
snúið við
MIKILL áhugi er á tilboðs-
ferðum Flugleiða til Minnea-
polis og þess vegna hefur ver-
ið ákveðið að framlengja
sölutímabilið um viku, að
sögn Steins Loga Björnsson-
ar, framkvæmdastjóra mark-
aðs- og sölusviðs.
Fyrir tæplega hálfum mán-
uði var auglýst vildartilboð til
Minneapolis til handhafa vild-
arkorts VISA og Icelandair
og var ferðatímabilið í októ-
ber og nóvember. Fyrir tæp-
lega viku var síðan auglýst
sambærilegt tilboð fyrir alla
og átti sölutímabilið að vera
frá 5. til 15. október. „Við-
brögðin hafa verið mjög góð
og við höfum selt um 100
miða að meðaltali á dag í
þessar tilboðsferðir, en vegna
þessa verður sölutímabilið
framlengt um eina viku,“ seg-
ir Steinn Logi.
Steinn Logi segir að hópar
eins og saumaklúbbar og
ýmsir aðrir hópar notfæri sér
sérstaklega þessi tilboð og
ekki síst með verslun í huga.
„Dollarinn hefur lækkað mik-
ið og það hefur greinilega
áhrif,“ segir hann.
Mikill áhugi
á tilboðs-
ferðum til
Minneapolis