Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag fer út Kuroshio Maru. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag kemur Eldborg. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Morg- ungangan er frá Hraunseli kl. 10. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Farið verður í Borgarhleikhúsið 18. október að sjá Kvetch kl. 20. Skráning ísíma 565 6622 og á skrifstofu félagsstarfsins í Kirkju- hvoli. Gerðuberg, félagsstarf. Á þriðjudögum og föstudögum kl. 10 „Gleðin gerir limina létta“. Létt ganga og útvisti o.fl. Umsj: Júlíus Arnars., íþróttakenn- ari. Allir velkomnir. Kristniboðsfélag karla. Kaffisala verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60 sunnudaginn 12. októ- ber kl. 14–17.30. Allur ágóðu af kaffisölunni rennur til starfsins í Konsó og Kenýa. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krumma- kaffi kl. 9. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14 á morgun sunnudag kl. 14. Allir velkomnir. Kaffiveitingar. ITC Harpa. Kynning- arfundur verðu þriðju- daginn 14. október, kl. 20 á 3. hæð í Borgartúni 22. Stef fundar er „Að hika er sama og tapa“. Gestir velkomnir. Tölvupóstfang ITC Hörpu er itc- harpa@hotmail.com, heimasíða http:// www.life.is/itcharpa. Nánari upplýsingar gefur Guðbjörg í síma 553 0831 Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. TaiChi. Skráning stendur yfir í námskeið í kínverskri leikfimi í Félagsstarfi aldraðra í Garðabæ, sími 525 8590 og 820 8553. GA-Samtök spilafíkla, fundir spilafíkla, Höf- uðborgarsvæðið: Þriðjudagur kl 18.15 – Seltjarnarneskirkja, Valhúsahæð, Seltjarn- arnes. Miðvikudagur kl. 18 – Digranesvegur 12, Kópavogur. Fimmtu- dagur kl. 20.30 – Síðu- múla 3–5, Göngudeild SÁÁ, Reykjavík. Föstu- dagur kl. 20 – Víðistaða- kirkja, Hafnarfjörður. Laugard. kl.10.30 – Kirkja Óháða safnaðar- ins, v/ Háteigsveg, Reykjavík. Austurland: Fimmtudagur kl.17 – Egilsstaðakirkja, Egils- stöðum. Neyðarsími GA er opinn allan sólar- hringinn. Hjálp fyrir spilafíkla. Neyðarsími: 698 3888. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa-samtökin. Átröskun / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 genga að Kattholti. Blóðbankabílinn. Ferð- ir blóðbankabílsins: sjá www.blodbankinn.is Minningakort Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar ( K.H. ), er hægt að fá í Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 64, 220 Hafn- arfirði s. 565-1630 og á skrifstofu K.H., Suð- urgötu 44,II. hæð, sími á skrifstofu 544-5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótek- um. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Í dag er laugardagur 11. októ- ber, 284. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Þá segir Jesús við þær: Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum að halda til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig. (Matt. 28, 10.)     Össur Skarphéðinsson,formaður Samfylk- ingarinnar, skrifar grein á vef flokksins um deilu verkalýðshreyfing- arinnar og Impregilo vegna aðbúnaðar starfs- manna við Kárahnjúka- virkjun.     Það er hægt að verastoltur af verkalýðs- hreyfingunni þessa dag- ana,“ skrifar Össur. „Grétar Þorsteinsson og félagar hafa staðið sig einmuna vel í slagnum um grundvallarrétt verkafólks við Kára- hnjúka. Munurinn á þeim og félagsmálaráð- herra gæti ekki verið meiri. Þeir standa í lappirnar meðan Árni kiknaði í hnjánum við fyrstu raun.“ Össur segir að ASÍ hafi hitt hina erlendu verkamenn augliti til auglitis. „Svona eiga menn að vinna. Á meðan svitnaði félagsmálaráð- herrann við skrifborðið og lét ekki í sér heyra. Af hverju í ósköpunum fór hann ekki og skoðaði aðstæður á vinnusvæð- inu við Kárahnjúka?“     Framsóknarmenn ogVinstri-Grænir eru haldnir sömu meinlok- unni, segir Össur. „For- ystumenn beggja flokka tala einsog þeir sem studdu virkjunina hljóti að styðja Impregiló líka í ranglæti þeirra við verkamenn á hálendinu. Halldór Ásgrímsson féll í þann fúla pytt á fundi fyrir austan að taka andköf yfir gagnrýni á Impregíló og sagði efn- islega að án þeirra væri ekki víst að menn hefðu virkjað. Steingrímur Joð er jafn áttavilltur í mál- inu. Hann talar einsog menn geti ekki verið á móti fautaskap Impreg- íló nema þeir séu líka á móti virkjun. Þetta er mikill eintrjáningsháttur Steingríms og Halldórs. Vitanlega geta menn stutt ákvörðun um virkj- un, án þess að sam- þykkja ofríkið sem verk- takinn ítalski hefur beitt starfsmenn sína. Þing- menn Samfylking- arinnar studdu lang- flestir virkjun, en enginn þeirra myndi nokkru sinni verja frá- leita framkomu Impreg- iló.“     Þá skrifar formaðurSamfylkingarinnar: „Það sem erlendu starfs- mannaleigurnar komast upp með við Kárahnjúka mun óhjákvæmilega ryðja sér til rúms annars staðar. Sameiginleg lög- mál samkeppni og arðs- vonar munu sjá um það. Þess vegna þarf að stoppa þær í framferði sínu. Hér er hins vegar um tiltölulega nýjan vanda að ræða. Jafn- aðarmenn á alþjóðavísu þurfa því að samræma aðgerðir, og lagasetn- ingar, til að stemma stigu við ófögnuði eins- og þeim sem við höfum kynnst síðustu vikur.“ STAKSTEINAR Verkalýðshreyfingin og Impregilo Víkverji skrifar... VINKONA Víkverja ákvað á dög-unum að endurnýja tvenn skil- ríki, ökuskírteini og vegabréf, á sama tíma. Hún komst að því að það er ekki góð hugmynd. Vega- bréfið var að renna út og öku- skírteinið var gallað þannig að hún ákvað að drífa í að endurnýja þessi skilríki hvor tveggja í einu. Þegar hún kom með gamla öku- skírteinið í afgreiðslu lögreglunnar og sagðist þurfa nýtt þar sem nú- verandi skírteini væri nær ónýtt og myndin máð af því, var það um- svifalaust tekið af henni. Hún fékk í staðinn í hendurnar bráðbirgðaöku- skírteini, sem er pappírssnifsi með áletrun sem gefur til kynna að það sé ígildi ökuskírteinis. Þegar þessi vinkona Víkverja vildi fá að halda skírteininu eftir þar til hún fengi nýtt (ökuskírteinið var nota bene ekki útrunnið, heldur gallað) var henni neitað og sagt að pappírinn dygði þar til nýtt skírteini hefði verið gefið út. x x x NÆST var komið að því að fávegabréfið endurnýjað og hélt vinkona Víkverja til Útlendinga- stofnunar í þeim erindagjörðum. Hún útskýrði erindi sitt og rétti vegabréfið í afgreiðsluna þar sem það var gatað med det samme og henni tjáð að nýtt vegabréf yrði tilbúið nokkrum dögum síðar. Þar með stóð umrædd vinkona Víkverja uppi skilríkjalaus. Allt vegna þess að hún ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og drífa í að endurnýja persónuskilríkin eins og lög kveða á um. Þykir Víkverja í meira lagi undarlegt að þjónustan sé ekki betri hjá þessum stofnunum. VÍKVERJI getur ekki látið hjálíða að nefna að þessi sama vin- kona þurfti nokkru síðar að end- urnýja debetkort hjá bankanum sínum. Þar var allt annað uppi á teningnum. Títtnefnd vinkona fékk að halda gamla kortinu þar til það nýja var tilbúið. Ekkert vesen. x x x FÁTT er Víkverja verr við en aðfá vonda þjónustu. Honum þyk- ir sýnt að þær reglur sem lögreglan og Útlendingastofnun fara eftir eru ekki til þess fallnar að skapa ánægju þeirra sem þurfa að leita til þeirra. Með því að leyfa fólki ekki að halda eftir gömlu skilríkjunum þar til hin nýju eru tilbúin er ekki verið að þjóna neinum. Í tilviki vin- konu Víkverja stóð hún uppi án skilríkja eftir heimsóknir til þess- ara tveggja opinberu stofnana. Þar sem debetkort eru ekki lögleg og gild skilríki var í raun útilokað fyrir hana að sanna hver hún var í þessa rúmu viku sem það tók að fá ný skilríki. Það eina sem hún hafði í höndunum var pappírssnifsið frá lögreglunni. Ekki merkilegur papp- ír það en þó greinilega nógu merki- legur til að gilda sem lögleg skil- ríki. Reglur sem lögreglan og Útlend- ingastofnun fara eftir eru ekki til þess fallnar að skapa ánægju þeirra sem þurfa að leita til þeirra. Brosandi fólk Í HELGARBLAÐI DV 4. október sl. las ég skemmtilega grein, sem heitir, Brosandi fólk, fílar og te. Þessi grein vakti upp hjá mér gamlar minning- ar, en hún fjallar um Sri Lanka (Ceylon). 1960 átti ég þess kost, að kynnast þessari fallegu eyju, landi og þjóð, í fyrsta sinn. Undrun minni á fegurð verður ekki lýst hér í stórum dráttum. Sömuleiðis kom ég til Ind- lands, Pakistan, og Burma í sömu ferð. Þó fannst mér Ceylon heilla mig mest, kannski vegna þess, að þar áttum við lengsta við- dvöl, eða 26 daga. Nátt- úrufegurð eyjarinnar er ólýsanleg. Vegna monsún- rigninga, tafði það okkur mjög, þar sem við lestuð- um aðallega gúmmí, te og krydd til Evrópu. Ég hafði því nægan tíma til að kynnast staðháttum og fólkinu og miklum and- stæðum hvað varðar ríki- dæmi og fátækt, sem kom mér svo sannarlega á óvart. Í grein DV er getið um duglega stúlku sem getur haft um 160 rúpíur á dag við tínslu á 25 kg af tei. Þessi daglaun hennar samsvara 130 krónum ísl. Skyldi henni endast aldur til að eignast þak yfir höf- uðið á þessum launum, hvað þá glæsihöll, en nóg er af þeim á þessum slóð- um. Munurinn á miklu ríkidæmi og sárustu fá- tækt er svo skelfilegur að vart er um það hugsandi. Svona er það bara, um all- an heim. Allt frá því, að ég kynntist austurlenskum kryddvörum hefur mér fundist sú matreiðsla standa fremst, ekki síst ef eldað er af innfæddum. Hver kannast ekki við hið fræga Madras karrý, ekki síst ef það er nógu sterkt, og aðrar kryddvörur frá þessum heimshluta, jafn- vel frá Indonesíu. Væri svo ekki tilvalið að fá sér góðan bolla af Ceyl- on-te þess í milli? Virðingarfyllst, Svanur Jóhannsson. Inniskór með nuddtökkum ER einhver sem getur gefið mér upplýsingar um hvar hægt sé að fá inniskó með nuddtökkum? Þeir sem gætu gefið upplýsing- ar hafi samband við Frið- rik í síma 893 2012. Tapað/fundið Svartur bakpoki týndist SVARTUR Adidas-bak- poki týndist við Þingholts- stræti í Reykjavík, föstu- daginn 5. september síðastliðinn. Í honum voru gleraugu í svörtu Diesel- hulstri. Þeir sem gætu gefið upplýsingar hafi samband við Ólaf Hauk Johnson, sími 820-0662, oli@h.is. Gönguskór týndist GRÆNN og blár göngu- skór hefur dottið af bíl á höfuðborgarsvæðinu. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 869 1843. Plastveski týndist LÍTIÐ plastveski með debet-, visakortum og ökuskírteini týndist senni- lega í Kópavogi við Skóla- vörubúðina eða við Furu- grund. Skilvís finnandi hafi samband í síma 554 1602 eða 847 1383. Dýrahald Persneskur fress MIG vantar að komast í samband við einhvern sem á persneskan kött (fress) sem getur hjálpað læð- unni minni við að eignast kettlinga. Þeir sem gætu liðsinnt mér hafi samband í síma 566 7074 og 692 2048. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Götulíf í Hafnarfirði. LÁRÉTT 1 vörugeymslan, 8 ljúk- um við, 9 daufa ljósið, 10 flana, 11 fífl, 13 króks, 15 deilu, 18 póll, 21 kusk, 22 dáni, 23 viljugt, 24 fugl. LÓÐRÉTT 2 ávöxtur, 3 náðhús, 4 sýnishorn, 5 syndajátn- ing, 6 skjóta undan, 7 klettanef, 12 elska, 14 tré, 15 vers, 16 veið- arfæri, 17 eyddur, 18 bjuggu til, 19 stétt, 20 stútur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 gáski, 4 gegna, 7 fátæk, 8 golan, 9 agn, 11 alin, 13 maur, 14 ýlfra, 15 snær, 17 trúr, 20 sný, 22 padda, 23 sötri, 24 iðrar, 25 niðja. Lóðrétt: 1 gifta, 2 setti, 3 iðka, 4 gagn, 5 gilda, 6 annar, 10 gufan, 12 nýr, 13 mat, 15 seppi, 16 ældir, 18 rotið, 19 reisa, 20 saur, 21 ýsan. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.