Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ                    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ALÞINGI var sett, glansandi fínt. Ösku hefði þurft að bera á völlinn svo ekki skini uppundir fyrirfólkið. Nýju gólfin og endurgerð salarkynnin vekja sérstaka athygli í aðhaldsum- ræðunni sem upp er hafin eins og jafnan þegar kjarasamningar eru í nánd. Gæfa og gjörvuleiki eru fráleitt eitt og hið sama. Að láta sér detta í hug að höggva enn í sama knérunn og sækja fé til sjúkra; að kafa í þeirra léttu vasa með því að hækka gjöld vegna læknisþjónustu og lyfja er ótrúlegt siðleysi. Í stað þess að vera á blússandi ferð að bæta velferð á hag- vaxtartímum, jafna kjör og létta sjúk- um og mæddum lífið skal á þá ráðist til að létta ríkissjóði róðurinn! Þessi gjörð og kvein ráðamanna um aðhald í ríkisútgjöldum er ekki í stíl við stæl- inn á þingsölum. Lítill stíll yfir lág- kúru og lágkúra er það! Að bíta í skottið á sjálfum sér Hin sérstaka árás á öryrkja, gam- alt fólk og veikt (lítið gagnar að rétta öryrkjum aura með annarri hendinni en taka þá síðan aftur með hinni) tek- ur steininn úr. Það er ekki glansinn yfir ríkisstjórninni. Á sama tíma dekrar hún á alla lund við peningaút- gerð í landinu. Sköttum á peninga- gróða er haldið í lágmarki en neyslu- og launasköttum háum. Viðskipta- bankar, sem hafa til varðveislu laun og persónuupplýsingar almennings, ganga kaupum og sölum. Braskað er með sparifé jafnt og skuldir fólks. Meirihluti alþingis hefur verið óþreytandi við að hlaða undir pen- ingabraskið. Á sama tíma drabbast velferðarkerfið niður hér og heilu byggðirnar eru án samfelldrar heilsu- gæslu og annarrar samfélagsþjón- ustu. Allt bítur þetta í skottið á sjálfu sér enda er misskipting, fátækt og áhyggjur ein meginorsök heilsuleysis sem aftur eykur kostnað við heil- brigðisþjónustu. Án heilsugæslu í rúm 40 ár Gott atlæti, góð almenn heilsu- gæsla og sú heilsuvernd sem í því felst að allir hafi sinn heimilislækni með yf- irsýn yfir heilbrigði hvers og eins dregur úr veikindum og minnkar sjúkrakostnað samfélagsins. Þetta vita þeir sem vilja. Samanburður á heilbrigðisþjónustu hér og í öðrum löndum er út í hött. Hvað væri t.d. að marka samanburð á tannheilsu hér og á Norðurlöndum? Tennur voru lengst af rifnar úr fullorðnum hér á landi og þeim fengnar falskar. Í almennri heil- brigðisþjónustu höfum við ekki fyrr en á allra síðustu árum komist með tærnar þar sem grannþjóðir hafa haft hælana árum saman. Fólk leyfir sér einnig að lifa lengur nú en áður og það jafnvel með fullan munninn af tönn- um. Ekki nema von að ráðamönnum blöskri að halda lífi í þjóð sem eldist og þarf að halda við og „smælar“ auk heldur framan í heiminn með fullan munninn af tönnum! Sannleikurinn er sá að heilsu- gæslukerfið er krosssprungið og þús- undir eru án heimilislæknis eða heilsugæslu í höfuðborginni og víðar. Í hverfinu mínu, Kleppsholti, Sunda-, Voga- og Heimahverfi hefur aldrei starfað heilsugæsla í þá fjóra áratugi sem ég hef búið hér. Er ekki mál að linni? Ég höfða til betri vitundar heil- brigðisráðherra og þingmanna með siðvitið í lagi og bið þá að hugsa vand- lega um mál mitt. Ég trúi vart að þeim eða heiðursmanninum Jóni Kristjánssyni hugnist hin veika staða sjúkra og hrjáðra hér á landi. Ég veit að þorri þjóðarinnar vill vernda vel- ferðarkerfið. Ég trúi þess vegna á samstöðu al- mennings fyrir bættri almennri vel- ferð og heilsuvernd og baráttu gegn auknum skattaálögum á sjúka. Hrindum þessari árás á okkar minnstu systur og bræður. ELÍN G. ÓLAFSDÓTTIR, fyrrv. borgarfulltrúi. Lítill stíll yfir lágkúru og lágkúra er það! Frá Elínu G. Ólafsdóttur KÆRU landlausu ungu stjórn- málaáhugamenn! Um fátt hefur verið meira rætt en ákvörðun fyrr- verandi stjórnar Heimdallar (ung- liðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík) um að hafna skrán- ingarbeiðnum ykkar í félagið. Ung- ir jafnaðarmenn eiga erfitt með að horfa upp á það ranglæti sem þið hafið verið beitt. Það er sárt að vita af slíkum fjölda ungs fólks án heimahafnar í pólitík. Við höfum því ákveðið að bjóða ykkur að ganga til liðs við Unga jafnaðar- menn (ungliðahreyfingu Samfylk- ingarinnar), enda teljum við líklegt að Samfylkingin eigi betur við ykk- ur en Sjálfstæðisflokkurinn. Ekki bara vegna þess að Samfylkingin er opinn og lýðræðislegur flokkur heldur líka vegna þess að okkur virðist sem þið eigið flest meiri samleið með Samfylkingunni en Sjálfstæðisflokknum hvað varðar hugsjónir og skoðanir. Þetta þykj- umst við ráða af skrifum sumra ykkar á vefritinu Deiglunni. Ungir jafnaðarmenn eru góður kostur fyrir fólk sem hefur brenn- andi áhuga á að starfa í stjórn- málum og vill hafa áhrif á þjóð- málaumræðuna. Ekki þarf að ákveða að vera í félaginu það sem eftir er ævinnar eða greiða til þess gjöld nema menn kjósi það sjálfir. Öllum er jafnframt frjálst að bjóða sig fram og taka þátt í kosningum í félaginu. Við förum fram á það eitt af ykkur að þið vinnið með okkur að því að bæta samfélagið með því að vinna að framgangi stefnu sem er byggð á jöfnum tækifærum, fjölskyldugildum og frjálsræði. Hlakka til að sjá ykkur. ANDRÉS JÓNSSON, formaður Ungra jafnaðarmanna. Opið bréf ungra áhugamanna Frá Andrési Jónssyni, formanni FUJ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.