Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Eimskipafélags Íslands taldi óeðlilegt að hlutabréf Burðaráss í Flugleiðum yrðu seld til Fjárfesting- arfélagsins Straums á genginu 5,35 þar sem stjórnin hafði nokkrum dög- um áður hafnað tilboði í bréfin á geng- inu 6 þar sem það væri of lágt verð. Þetta kom fram í ræðu Benedikts Jó- hannessonar, fráfarandi stjórnarfor- manns Eimskipafélags Íslands, á hluthafafundi félagsins á fimmtudag. Benedikt rakti í ræðu sinni aðdrag- andann að þeim miklu viðskiptum sem áttu sér stað í september með bréf Eimskipafélagsins og fleiri fyr- irtækja. Að sögn Benedikts taldi hann mik- ilvægt að 6% eignarhlutur Skeljungs í Eimskipafélaginu yrði keyptur af að- ilum sem hefðu skilning á skipulagi félagsins. En Eimskipafélagið leysti hlutinn til sín tímabundið þegar Steinhólar keyptu Skeljung hf. „Ég hafði samband við ýmsa vegna þessa máls, meðal annars Kjartan Gunnarsson, varaformann bankaráðs Landsbankans, og sagði honum frá áhyggjum mínum vegna málsins. Kjartan hefur öðrum mönnum betri yfirsýn yfir viðskiptalífið og það póli- tíska umhverfi sem það starfar í. Ég hef stundum rætt viðkvæm mál við Kjartan og notið þekkingar hans og góðra ráða. Í samtali okkar talaði ég um að menn yrðu að gæta sín vel varðandi Brim, en gáleysislegur leik- ur með það gæti haft mikil pólitísk áhrif, bæði á byggðir víða um landið, en ekki síður á sjálfa undirstöðu fé- lagsins, kvótakerfið,“ sagði Benedikt. Hugmyndum vel tekið Hann sagðist í kjölfarið hafa rætt við Tryggingamiðstöðina og Lands- banka Íslands um kaup á bréfunum þar sem bæði fyrirtækin hafa mikil viðskipti við sjávarútveginn. „Ég fór á fund Gunnars Felixsonar, forstjóra Tryggingamiðstöðvarinnar, og sagði honum erindið. Ég hef kynnst Gunn- ari vel á liðnum árum og hann er án efa í hópi grandvörustu manna í ís- lensku viðskiptalífi. Hann tók strax vel í það að TM keypti nokkurn hluta þessara hlutabréfa. Jafnframt hafði ég um svipað leyti samband við Björgólf Guðmundsson, formann bankaráðs Landsbanka. Ég bar upp erindið með svipuðum hætti og fyrr og hann sagði mér að Kjartan hefði rætt það við sig. Ég lagði áherslu á það að ég teldi að með stofn- un Brims hefði skapast einstakt tæki- færi til þess að reka hagkvæmt sjáv- arútvegsfyrirtæki til lengri tíma litið. Reksturinn væri enn á fyrsta ári í þessu formi en þegar fyrirtækið væri komið á fulla siglingu ætti það mikla möguleika til þess að ná meira hag- ræði en þekktist í öðrum slíkum fyr- irtækjum hérlendis. Jafnframt gæfi svo sterkt fyrirtæki gott tækifæri til útrásar, en hún er þegar hafin með góðum árangri með kaupum á breska fyrirtækinu Boyd Line.“ Viðskipti með Straum ollu tortryggni Í ræðu hans kom fram að Björg- ólfur hefði tekið honum vel og líkað vel hugmyndir Benedikts um Eim- skipafélagið. „en hann gat þess að auðvitað þyrftu þeir Landsbanka- menn að kynna sér reksturinn betur. Við vorum sammála um að mikilvægt væri að allir legðust á eitt um að ná betri árangri og ég sagðist að sjálf- sögðu gjarnan vilja heyra þær hug- myndir sem til heilla gætu horft.“ Benedikt sagði í ræðu sinni á fund- inum frá þremur atburðum sem vöktu með honum umhugsun. „Sá fyrsti var þegar stærstu eigendur Landsbank- ans og aðilar þeim tengdir keyptu stóran hlut í Fjárfestingafélaginu Straumi. Ástæða þess að ég tók eftir þessu var ekki sú að ég hefði ein- hverra sérstakra hagsmuna að gæta í Straumi. Ég minntist þess hins vegar að Íslandsbanki og Landsbanki höfðu gert með sér samkomulag um að halda með sér jafnræði í félaginu og með þessum kaupum hallaði mjög á Íslandsbanka. Hér ætla ég ekki að rifja upp þrætur um þetta mál en ljóst er að með því jókst mjög tortryggni manna milli. Næst vil ég nefna, að mér barst af því spurn að viðræður hefðu átt sér stað í fyrri hluta september milli Landsbankans og fjársterks aðila um hugsanlega sölu á einu dótturfélaga Eimskipafélagsins. Ég bar þetta und- ir forráðamann Landsbankans, en hann sagði mér að engin loforð hefðu verið gefin. Þetta fannst mér ónota- legt að heyra, en bankinn hafði ekki viðrað þessar hugmyndir við mig eða aðra forráðamenn fyrirtækisins á þeim tíma. Loks vil ég geta þess sem snart mig verst. Ég átti samtal við ágætan mann um viðskipti sem snerta að- draganda þeirra miklu samninga sem hér á eftir verða teknir fyrir. Við vor- um ekki sammála um hvort þessi fyr- irhuguðu viðskipti væru heppileg eða eðlileg. Hann sagði þá: „Þetta snýst bara um krónur og aura.“ Þessi orð komu illa við mig. Auðvitað snúast viðskipti um krónur og aura. En í mínum huga snúast þau um margt fleira. Viðskipti snúast um fólk, starfsmenn og viðskiptavini. Vel rekið fyrirtæki hugar ekki bara að arðsemi, heldur líka ánægju þeirra sem hjá því starfa, heiðarlegum viðskiptaháttum, ánægðum viðskiptavinum sem vita að þeir geta komið aftur og aftur og not- ið hlýlegs viðmóts og gæða í vöru og þjónustu. Krónur og aurar kaupa hlutabréf, en vinátta, virðing og traust verða ekki keypt eða metin til fjár,“ að því er fram kom í ræðu Bene- dikts Jóhannessonar á hluthafafundi Eimskipafélagsins. Benedikt Jóhannesson um aðdraganda þeirra miklu viðskipta sem áttu sér stað 19. september Óeðlilegt að selja Flug- leiðabréfin á genginu 5,35 ÞAÐ sem hefur drifið breytingar og umrót í ís- lensku atvinnulífi áfram á liðnum árum er hag- kvæmari nýting á fjármunum, þ.e. framleiðni fjár- magns hefur aukist, og aukin dýpt verð- bréfamarkaðarins. Þetta kom fram í máli Bjarna Ármannssonar, forstjóra Íslandsbanka, á morgun- fundi bankans í gær sem haldinn var undir yfir- skriftinni „Hagnast fyrirtækið þitt á hagsveifl- unni?“ Bjarni sagði alltof litla áherslu lagða á það hversu dýpt markaðar skipti miklu máli. Þó svo að hags- munir kaupenda og seljenda fari ekki alltaf saman þá hafi báðir hagsmuni af því að viðskipti verði. Þess vegna sé lykilatriði að til sé markaður og þar fari fram mikil viðskipti. Dýpt markaðarins væri mjög mikilvæg fyrir hagkerfið. „Velta í Kauphöll- inni hefur tvöfaldast á tveimur árum og það er til marks um þá byltingu sem hefur orðið og hefur leitt af sér miklu betri nýtingu fjármuna,“ sagði Bjarni. Meginástæður betri nýtingar fjármagns sagði hann tilkomu hlutabréfamarkaðarins og þroskaðri fjármálamarkað. Hann benti á að góð nýting fjár- muna í Bandaríkjunum gerði það að verkum að það hagkerfi væri það ríkasta í heimi. „Drifkrafturinn á bakvið þetta er frjálsræði og samkeppni. Það er meginbreytingin.“ Bjarni sagðist telja að nú, við upphaf hagsveiflu, væru vissulega mörg tækifæri fyrir atvinnulífið en varaði við því að ógnanirnar væru jafnvel fleiri en tækifærin. „Ég held að stærsta ógnunin séum við sjálf. Að við ætlum okkur um of og trúum um of á eigin getu. Það ríki of mikil bjartsýni og það verði of mikil ásókn í vöxt. Það er eitthvað sem þarf að hemja og stýra. Þetta er það sem ég óttast mest og allir ættu að elska og óttast sjálfan sig mest í þess- um efnum, að ofmeta ekki sjálfan sig og vanmeta ekki samkeppnina.“ Hagvaxtarskeið 2003 til 2006 Bjarni varaði einnig við efnahagslegum ógnunum sem fælust m.a. í háu eignaverði og áhrifum af virkjana- og álversframkvæmdum, ógnunum sem fælust m.a. í breyttu mynstri samkeppni og meiri hörku. Ennfremur varaði hann við áhættu fyrir hagkerfið sem stafar af of stórum fyrirtækjum og stofnunum fyrir Ísland og loks væru pólitískar ógn- anir hvað varðar þróun eftirlitsstofnana og aukins frelsis. Bjarni sagði tækifærin liggja í hagsveiflunni framundan, opnu samfélagi, ungu fólki, háu mennt- unarstigi, miklum athafnavilja auk þess sem hér væri fjármagn. Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri eignastýringar, fjallaði í erindi sínu um verðbréf við upphaf nýrrar hagsveiflu. Hann benti á að hluta- bréfamarkaðurinn byrjaði að jafnaði að hækka áður en hagvöxturinn tæki við sér og færi vaxandi. Hlutabréfamarkaðurinn næði líka hámarki á undan hagsveiflunni. Hann sagði líklegt að árið 2003 væri við upphaf nýrrar hagsveiflu. Sigurður sagði umhugsunarvert að Bandaríkja- menn hefðu á árunum 1990 til 2003 náð 10% meiri aukningu þjóðartekna en Íslendingar. Íslendingar yrðu því að gera betur í næstu sveiflu. Hann sagði ennfremur að ástæða væri til að ætla að góð ár og jafnvel mjög góð ár væru framundan á íslenskum hlutabréfamarkaði. Í máli Ingólfs Bender, forstöðumanns greining- ar, um efnahagsumhverfi íslenskra fyrirtækja kom fram að Íslandsbanki spái því að framundan sé styttra hagvaxtarskeið en það síðasta. Það verði þó nokkuð kröftugt og muni standa yfir frá 2003 til 2006. Meðalhagvöxtur muni vera um 4% á tíma- bilinu en fara hæst í 5,2%. Ingólfur sagði að hag- kerfið yrði í nokkru jafnvægi 2004 en þensla væri líkleg 2005–6. Þá er gert ráð fyrir samdrætti 2007–8 í lok virkjanaframkvæmda. Erum líklega við upphaf nýrrar hagsveiflu Forstjóri Íslandsbanka segir of mikla bjartsýni helstu ógnunina við atvinnulífið LANDSBANKI Íslands hefur stofn- að 26 kjarnaútibú víða um land í stað 6 svæðaútibúa. Þessar breyt- ingar eru liður í þeirri stefnu Lands- bankans að auka vægi útibúanna og gera þau sjálfstæðari. Þá hefur ver- ið stofnað Einstaklings- og markaðs- svið bankans í stað Viðskipta- bankasviðs, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Verkefni þess eru samhæfing á starfsemi útibúakerfis, stuðningur við einstaklingsútlán í útibúum, um- sjón með markaðs- og vöruþróun, bakvinnslu útibúa, þjónustuveri, heimilislánum og aðalféhirði. Útibú- in munu hér eftir heyra beint undir bankastjórn en dagleg stjórn heyrir undir öll svið eftir eðli mála hverju sinni. Samfara breytingum á útibúa- neti bankans hafa eftirtaldar mannabreytingar átt sér stað: Ing- ólfur Guðmundsson hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri einstaklings- og markaðssviðs. Kristín Rafnar hefur verið ráðin regluvörður auk þess sem hún hefur umsjón með starfsmannaútibúi bankans. Starf regluvarðar verður gert sjálfstætt og heyrir regluvörður beint undir bankastjórn. Kristín var áður fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs. Guðmundur Ingi Hauksson hefur verið ráðinn útibússtjóri í aðal- banka, Austurstræti 11 í stað Ingólfs Guðmundssonar. Í júní síðastliðinn tók Guðmundur Ingi við starfi for- stöðumanns áhættukrafna hjá Landsbankanum en hann starfaði áður hjá Búnaðarbankanum. Þorkell Jónsson, aðstoðarmaður svæðisstjóra í Austurstræti 11 verð- ur forstöðumaður útlánaþjónustu útibúa. Þórunn Ragnarsdóttir, verður að- stoðarmaður útibússtjóra í aðal- banka. Þórunn hefur verið for- stöðumaður heimilislánadeildar síðustu 4 ár. Ásta Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður umsjónar úti- búa, sem er ný deild á lögfræðisviði og útlánaeftirliti. Ásta var áður for- stöðumaður á viðskiptabankasviði Kaupþings-Búnaðarbanka. Hulda G. Kjærnested hefur verið ráðin í stöðu aðalféhirðis, Hulda hef- ur verið þjónustufulltrúi í Höfða- bakkaútibúi. Morgunblaðið/Sverrir Í gær var haldinn fundur með öllum útibússtjórum Landsbankans og var þar hið breytta fyrirkomulag og hinar nýju áherslur bankans til umræðu. Breytingar á útibúasviði Landsbankans ● AFTURKÖLLUÐ hefur verið beiðni um hluthafafund í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem stjórn félagsins barst frá Afli fjárfestingarfélagi hf. og Fjárfestingarfélaginu Atorku hf. þar sem þessir aðilar hafa nú selt alla hluti sína í Sjóvá-Almennum. Eins og fram hefur komið seldu Afl og Atorka Íslandsbanka allan hlut sinn í Sjóvá- Almennum, samtals 10,8%. Þá hafa MP Verðbréf selt bankanum 2,8% af 6,9% eign sinni í Sjóvá-Almennum. Eftir eiga MP Verðbréf 4,1% í Sjóvá- Almennum, en hafa gert framvirkan sölusamning vegna þess hlutar. Beiðni Íslandsbanka frá 26. sept- ember 2003 um hluthafafund í Sjóvá-Almennum hefur einnig verið afturkölluð. Að sögn Bjarna Ár- mannssonar forstjóra Íslandsbanka kemur afturköllunin til vegna þess að bankinn telur ekki þörf á að halda hluthafafund að svo stöddu. Íslandsbanki hafði beðið um hlut- hafafund til að kjósa nýja stjórn og jafnframt fækka stjórnarmönnum. Stjórn Sjóvár-Almennra hefur hætt við boðun hluthafafundar. Beiðni um hluthafa- fund afturkölluð ● SIGURÐUR Einarsson stjórn- arformaður Kaupþings Búnaðarbanka hefur verið tilnefndur af hálfu bank- ans í stjórn finnska fjárfestingarsjóðs- ins Norvestia sem bankinn keypti ráð- andi hlut í í síðasta mánuði og telst nú dótturfélag hans. Sigurður er til- nefndur sem stjórnarformannsefni. Ný stjórn verður kosinn í Norvestia og í dótturfélagi Norvestia, Neo- markka, á hluthafafundi sem halda á þann 20. október nk. Aðrir sem tilnefndir eru í stjórn af hálfu Kaupþings Búnaðarbanka eru samkvæmt upplýsingum frá bank- anum þeir Mika Lehto stjórnar- formaður Kaupþings Sofi sem vara- formaður, og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings Búnaðarbanka sem stjórnarmaður. Sigurður Einarsson tilnefndur í stjórn Norvestia ● SALA bresku matvörukeðjunnar Iceland sem er í eigu Big Food Group jókst um 1,7% á öðrum ársfjórðungi en hafði hins vegar dalað á fyrsta fjórðungi ársins. Sala Big Food Group-keðjunnar jókst hins vegar um 2,2% á öðrum ársfjórðungi. Sam- kvæmt fréttum í breskum miðlum er helst hægt að þakka sölu á ís, grill- mat og gosdrykkjum, sem jókst veru- lega vegna hlýinda um mitt árið, um- skipti í rekstrinum. Ís selst vel hjá Iceland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.