Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 45
sagði Rebekku að langafi væri dáinn
sagði hún að líklega hafi Guð vantað
einhvern til að sjá um hænurnar, og
kannski það sé rétt hjá henni, alla-
vega hjálpar það til við að finna
ástæðuna fyrir þessu öllu saman.
Eftir sitjum við ástvinir þínir með
minningarnar um þig og tímana í
Holti, því ég þekkti þig ekki öðru vísi
en þar. Elsku Didda, takk fyrir að
sjá svona vel um hann. Um leið og ég
kveð þig í síðasta sinn, þakka ég þér
fyrir samveruna og alla viskuna.
Góða nótt og sofðu vel,
Daði.
Elsku afi minn. Ég á margar ynd-
islegar minningar um þig, síðast
þegar við hittumst eyddum við mikl-
um tíma saman sem mér þótti vænt
um, þú sagðir mér sögur af þér þeg-
ar þú varst ungur, frá ömmu, börn-
unum þínum og dýrum. Við töluðum
um þann tíma þegar ég var barn og
við fórum saman á hestbak.
Ein sérstök saga sem ég gleymi
aldrei er þegar ég og Hilda ætluðum
að fara með brauð til hestanna og
þegar hestarnir sáu að við vorum að
koma með eitthvað góðgæti í poka
komu þeir hlaupandi á móti okkur,
við urðum svo hræddar að við köst-
uðum pokunum frá okkur og hlup-
um. Þegar við komum upp á hlaðið
móðar og másandi, stóðst þú þar og
hlóst og varst búinn að fylgjast með
okkur allan tímann.
Þú hafðir einstakt lag á dýrum og
ég man að þú gast kallað til hestana
þinna og þá komu þeir hlaupandi.
Það verður erfitt að koma til
Breiðdalsvíkur og sjá þig ekki koma
gangandi á móti mér með fallega
silfurslegna hárið og hundana í eft-
irdragi.
En ég geymi allar minningar um
þig í hjarta mínu.
Og ég veit að það eru margir sem
hafa tekið á móti þér, bæði dýr og
menn.
Elsku Didda, og aðrir aðstandend-
ur ég, Kim og Sólon Svan vottum
ykkur dýpstu samúð okkar.
Hjördís.
Elsku afi.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Ragnheiður Diljá.
Margar góðar minningar eru
tengdar honum afa og samveru-
stundunum með honum.
Afi, eyjarnar úti af Breiðdalnum
og fjöllin þar í kring er eitthvað sem
maður hélt að yrði þarna að eilífu, en
svo er víst ekki því nú er hann afi
farinn. Að koma út í Holt og hlusta á
stofuklukkuna og skynja kyrrðina
þar og hlusta á afa segja sögur frá
því er hann var ungur, og hvernig
hlutirnir voru þá, er eitthvað sem
maður á eftir að sakna. Í Holti var
alltaf nóg að gera, hvort sem það var
í heyskap, sauðburði, girðingarvinnu
eða umhirðu dýranna. Að fara að
austan var allt annað en aðvelt fyrir
mig og fjölskyldu mína og spurðu
synir mínir iðulega hvort við þyrft-
um nokkuð að fara, hvort við gætum
ekki bara átt heima á Breiðdalsvík,
því það væri svo stutt að fara í
pönnsur til afa og Diddu.
Með söknuði kveðjum við þig
elsku afi. Minning þín mun lifa í
hjörtum okkar um ókomna tíð. Guð
geymi þig.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Kæra Didda. Við sendum þér og
fjölskyldunni allri innilegar samúð-
arkveðjur og biðjum guð að styrkja
ykkur og styðja um ókomin ár.
Gauti, Þórdís,
Jökull Haukur
og Kristvin Þór.
Þegar þessi fátæklegu orð eru sett
á blað, hvílir bróðir minn, Haukur
Gíslason, á líkbörum og bíður þess
að vera borinn til grafar. Í gegnum
hugann renna óteljandi endurminn-
ingar frá liðnum árum og áratugum.
Við systkinin ólumst upp í öðrum
endanum á, til þess að gera, stóru
timburhúsi og í hinum endanum bjó
önnur fjölskylda, barnmörg, alls um
og yfir 20 manns. Haukur var fimm
árum eldri en ég. Lengst af var það
hann sem réð ferðinni í öllum verk-
um, eins og gefur að skilja, og líklega
kom það sér vel, því hann var afar
röskur við allt sem hann tók sér fyrir
hendur. Mér er það minnisstætt hve
erfitt það reyndist hópnum að halda
í við hann á göngu, hvort heldur
stefnt var í berjamó eða til messu.
Við bræðurnir ólumst upp við gamla
búskaparhætti eins og víðast var í
okkar byggðarlagi um þær mundir.
Á heyskapartíma fór mest af
orkunni í það að slá með orfi og ljá.
Ég held að ég halli ekki á neinn þótt
ég fullyrði, að þar sem ég þekkti til,
hafi Haukur bróðir minn verið með
allra röskustu mönnum við slátt.
Einhvern tíma var það á fimmta ára-
tug liðinnar aldar, að karl faðir minn
réð til sín þá Brekkuborgarbræður,
Nanna og Einar, til að flýta fyrir
með sláttinn. Þeir voru annálaðir
dugnaðarmenn og þarna hitti bróðir
minn líklega jafningja sína, en ég
ofjarla. Sá háttur var hafður á þessa
daga að sleginn var svonefndur
„þrælasláttur“ þar sem ég var hafð-
ur fremstur en Haukur rak lestina.
Þetta var bæði erfitt og skemmti-
legt. Á mettíma skáruðum við alla
Drangalækjarbakkana þar sem göt-
urnar Sólbakki og Sólheimar enda
núna. Þrátt fyrir ómælt erfiði og
langan vinnudag, gafst tími til áfloga
og gamanmála þar sem sveitungarn-
ir voru teknir fyrir með skrítlum og
eftirhermum.
Svona væri lengi hægt að halda
áfran að ausa úr brunni endurminn-
inganna. Segja má að við bræðurnir
höfum starfað hlið við hlið í æsku
okkar, árið um kring, árum saman:
Göngur, sjósókn, veiðar, daglauna-
vinna, vertrarstörfin, heyannir og
skemmtanir.
Á þeim árum urðu miklar breyt-
ingar í þjóðfélaginu á öllum sviðum
sem óþarfi er að tíunda mikið: Vélar
leystu af hólmi ljái og árar. Rafmagn
kom í stað týru og olíulampa og bíll-
inn leysti hestinn af hólmi. – Flestir
uppkomnir, sem þetta lesa hafa upp-
lifað þetta að miklu leyti svipað og
barnahópurinn á Selnesi gerði á
sinni tíð. Og þó. Ætli heljarstökkið
úr „forneskjunni“í vinnubrögðum og
aðbúnaði þar sem Haukur ólst upp,
yfir í nútímann hafi ekki verið enn
stærra en gengur og gerist.
Þrátt fyrir gott atgervi Hauks
bróður míns, að mörgu leyti, eins og
að framan er lýst „gekk hann ekki,
að öllu leyti heill til skógar“, til að
takast á við vandamál í lífsbarátt-
unni. Þar á ég við þann vanda sem
hann stríddi við alla ævi, sem nú er
kallaður lesblinda. Ómögulegt er að
segja nú hve mikil áhrif þetta hafði á
allt hans líf. En sem kennari kynnt-
ist ég vel lesblindunni hjá nemend-
um mínum og sá hve geigvænleg
áhrif hún hafði á hvern og einn.
Nú þegar ég kveð bróður minn
hinstu kveðju, er mér mikill sökn-
uður í huga. Í æsku naut ég bæði
skjóls og ögunar hjá honum. Hann
var mér bæði leikbróðir, fyrirliði,
samverkamaður, jafningi og oft fyr-
irmynd.
Guðbjörgu Steinsdóttur, afkom-
endum hans öllum og öðrum að-
standendum sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Heimir Þór Gíslason.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 45
Elsku afi minn, mikið vildi ég að
ég hefði getað komið til þín eitt
skipti til viðbótar og farið með þér
að skoða fjósið og hitta hundana.
Svo mundum við fara inn í stofu til
ykkar Diddu og þú mundir segja
mér sögur frá því í gamla daga.
Þú gafst mér alltaf svo mikið og
við áttum saman áhugamál sem
voru dýrin. Alltaf var gaman að
horfa á dýrin elta þig út um allt,
hvort sem það voru hundar eða
endur. Þau þekktu þig vel og þú
þekktir þau.
Stefán Svan.
HINSTA KVEÐJA
Elsku langafi, mig langar að
kveðja þig og þakka fyrir allt með
uppáhalds bæninni minni.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Guð blessi þig og minningu
þína.
Þinn
Rafn Svan.
HINSTA KVEÐJA
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin verður
gerð og klukkan hvað. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í grein-
unum sjálfum.
Formáli
minningar-
greina
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL SÖLU
Beitusíld — beitusíld
Góð beitusíld á heilum brettum.
Upplýsingar í síma 892 8655.
Stóri
fornbókamarkaðurinn
á Laugavegi 105. Allar bækur á 50-100.
Opið í dag kl. 11-19.
Bókamarkaðurinn,
Laugavegi 105.
ÞJÓNUSTA
Fagflísar ehf.
geta bætt við sig verkefnum í flísalögn-
um, múrverki og viðgerðum.
Einungis faglærðir menn. Sími 866 6291.
TILKYNNINGAR
Bryggjuhverfi í Kópavogi
Kynning
Mánudaginn 13. október nk.verða kynnt drög
að skipulagi Bryggjuhverfis í utanverðum Foss-
vogi. Kynningin fer fram í Félagsheimili Kópa-
vogs, Fannborg 2, og hefst hún kl. 20.00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Frímerki — gömul bréf —
póstkort
Alþjóðlegt uppboðsfyrirtæki heimsækir Reykja-
vík dagana 16.—19. október. Okkur verður að
finna á frímerkjasýningunni NORDIA 2003 á
Kjarvalsstöðum og einnig er hægt að hitta okkur
á kvöldin samkvæmt samkomulagi.
Við tökum á móti efni á hin alþjóðlegu frímerkja-
uppboð okkar í Osló. Efnið er meðhöndlað og
því lýst í uppboðsskrá af viðurkenndum alþjóð-
legum sérfræðingum.
ENGERS FRIMERKER
N-2836 BIRI, NOREGI,
s. 0047 61181555, bréfs. 0047 61181737.
Veffang: www.engers-frimerker.no
Setti upp á sér stýri...
Næst síðasta helgin - 60% afsláttur
...Úti er ævintýri
Gvendur dúllari — alltaf góður
Kolaportinu
FÉLAGSLÍF
11. okt. Jepparæktin
Farið verður á Vigdísarvelli á
Reykjanesskaga. Allir eru vel-
komnir í Jepparæktina, jafnt
óbreyttir sem breyttir jeppar –
ekkert þátttökugjald. Brottför frá
skrifstofu Útivistar kl. 10:00.
12. október. Dagsferð. Fjallið
eina — Hrútagjá
Gengið af Krýsuvíkurvegi á
Fjallið eina og þaðan í Hrútagjá.
Göngunni lýkur í Móhálsadal.
Fararstjóri er María Berglind
Þráinsdóttir. Brottför kl. 10:30 frá
BSÍ. Verð 1.700/1.900 kr.
14. okt. Deildarfundur Jeppa-
deildar Útivistar verður hald-
inn nk. þriðjudag kl. 20:00 á skrif-
stofu Útivistar, Laugavegi 178.
Dagskrá: Kynning næstu ferða,
myndasýning frá ferðum um
Breiðbak og norðan Hofsjökuls.
Kaffispjall um: starf jeppadeild-
arinnar, drög að ferðum næsta
árs kynnt og hugað að undirbún-
ingi bílsins fyrir ferðir. Félagar
eru hvattir til að mæta og taka
þátt í mótun starfsins.
Nánari upplýsingar á
www.utivist.is .
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Starfsfólk óskast
í Efnalaugina og þvottahúsið Drífuna
Æskilegur aldur 25—55 ára. Íslenskukunnátta
skilyrði. Upplýsingar í síma 562 7740 eða á
staðnum, Hringbraut 119, Reykjavík.
SMÁAUGLÝSINGAR
Frímerki
Í tilefni af „NORDÍA“ seljum við nú um
helgina:
Ýmis landasöfn, bæði stór og smá með miklum
afslætti. Kaupum einnig íslensk frímerkjasöfn.
www.icestamps.com, sími 561 1409.
icestamp@islandia.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is