Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 10. B.i. 12. Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali. Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Ný vídd í skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Settu upp 3víddar gleraugun og taktu þátt í ævintýrinu! 3D gleraugu fylgja hverjum miða l l j j i kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 8 og 10.15. Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að lenda í sínu erfiðasta máli. Mögnuð spennumynd! Frá framleiðanda Fast & the Furious og xXx Beint á toppinn í USA FRUMSÝNING Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 powersýning B.i. 12 ára Powe rsýni ng kl. 1 0.30 . 3D gleraugu fylgja hverjum miða l l j j i Ný vídd í skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Settu upp 3víddar gleraugun og taktu þátt í ævintýrinu! Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B.i. 12 ára Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að lenda í sínu erfiðasta máli. Mögnuð spennumynd! Frá framleiðanda Fast & the Furious og xXx Löggur þurfa líka hjálp! Beint á toppinn í USA Kl. 8. B.i. 16 ára. Kl. 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 2. Grensásvegi 7 Tilboð á bjór til miðnættis Frítt inn laugardag til kl. 24.00 Opið 21.00-01.00 virka daga og 21.00-05.30 um helgar HIN glaðbeitta hljómsveit Ríó-tríó spilar í Þjórsárveri í kvöld þar sem fluttir verða gamlir og góðir smellir í bland við nýtt efni. Meðal annars munu gestir fá forsmekkinn af því sem verður á nýrri plötu sveitarinnar sem kemur út 20. október, en sjö ár eru liðin frá því hún sendi frá sér nýtt efni. „Þetta verður létt og skemmtilegt, bæði gamalt og nýtt,“ segir Ólafur Þórðarson Ríó- maður. Í kringum útgáf- una hyggst hljóm- sveitin spila víðs vegar um landið en Ólafur segir alltaf jafn gaman að halda tónleika. Hljómsveitin gaf út tvöfalda safnplötu í fyrra og spilaði heilmikið á tón- leikum í tengslum við þá útgáfu. „Það kemur okkur alltaf jafn mikið á óvart hvað unga fólkið, jafnvel um tvítugt virðist skemmta sér vel á böllum og kunna textana okkar. Við héldum að bara eldri borgarar hefðu ánægju af okkur,“ segir hann glettnislega. Þeir Ríó-menn hafa spilað saman á fullu síðan um miðjan sjöunda áratug- inn og hvergi slegið af. Leikur blaðamanni forvitni á því hver munurinn er á að spila þá og nú 40 árum seinna? „Við erum bara miklu betri núna, það er eini munurinn,“ segir Ólafur og hlær. „Erum bara miklu betri“ Morgunblaðið/Kristinn Ríó-tríó í fullu fjöri ásamt hjálparkokkum. Ríó-tríó á Tónahátíð í Þjórsárveri í kvöld ÁHRIF stríðs á líf kvenna er viðfangs- efni heimildarmyndarinnar, Konur: hin gleymda ásjóna stríðs eða Women: The Forgotten Face of War eftir Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska en hún var frumsýnd í Há- skólabíói í gær. Verður hún sýnd í kvöld kl. 20 og síðan kl. 18 næstu daga fram til 16. október. Myndin segir sögu fimm kvenna sem upplifðu stríð- ið á Balkanskaga og hefur hún hlotið mikið lof gagnrýnenda þar sem hún hefur verið sýnd erlendis. Gréta og Susan fylgdu konunum eftir í þrjú ár, frá 1999 til haustsins 2001 og fylgdust með því hvernig líf þeirra breyttist á tímabilinu. „Al- gengt er að fólk haldi að þegar stríð- inu sé lokið þá sé allt í lagi, en það er langt því frá, því þá fyrst þurfa kon- urnar að berjast,“ sagði Gréta er Morgunblaðið ræddi við hana stuttu fyrir frumsýningu. Gréta og Susan búa báðar og starfa í New York en mynd þeirra The Brandon-Teena Story frá árinu 1998 vakti mikla athygli og hlaut margar viðurkenningar. Ólíkur bakgrunnur Þótt myndin eigi sér stað í Kosovo segir hún í raun sögu kvenna um all- an heim sem gengið hafa í gegnum stríð, en reynsla þeirra er oft mjög svipuð, að sögn Grétu. Konurnar fimm hafa ólíkan bak- grunn og eru á mismunandi aldri, bæði ungar stúlkur og eldri konur. Meðal annars segir frá hinni 72 ára gömlu Ködu sem misst hefur níu fjölskyldumeðlimi í fjöldaaftökum og Aferditu, konu er sem var nauðg- að af hópi manna í stríðinu. Einnig fá áhorfendur að kynnast tveimur 17 ára stúlkum sem flýðu einar til Albaníu eftir að hafa verið reknar frá heimili sínu. Sýnd í háskólum Í Bandaríkjunum hefur myndin mikið verið sýnd í háskólum og hafa þær Gréta og Susan gjarnan fylgt sýningunum eftir með fyrirlestrum um málefnið. Gréta segir að þær hafi viljað nota myndina á þann hátt. „Við beinum sjónum okkar að órétt- læti rétt eins og við gerðum í Brand- on-Teena Story þótt aðstæður við gerð hennar hafi verið ólíkar. Að mínu mati fá sögur kvenna, sér- staklega um erfið málefni líka allt of litla athygli og við viljum leggja okk- ar af mörkum til að bæta úr því.“ En hvers konar myndum megum við búast við næst frá ykkur? „Í augnablikinu erum við að vinna að heimildarmynd um mótmæli fólks gegn stríðsrekstri. Þar förum við allt frá Víetnam til Íraksstríðsins ár- ið 2003. Svo erum við með fleiri verkefni í bígerð sem má enn ekki tala um,“ segir Gréta leyndardóms- full að lokum. „Beinum sjónum okkar að óréttlæti“ Ema (t.v.) er ein stúlknanna sem rætt er við í myndinni en hún lærði sjúkraþjálfun áður en hún var rekin frá heimili sínu í stríðinu. bryndis@mbl.is                                !" # $%&  '  (') &   ! *+ *%& , $ ,   '  )       * )  - .&  Morgunblaðið/Ásdís Gréta Ólafsdóttir og Susan Muska kvikmyndagerðarmenn segja sögu fimm kvenna í Kosovo eftir stríðið á Balkanskaga. Heimildarmynd um konur og Kosovostríðið sýnd í Háskólabíói
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.