Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 24
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 24 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES Reykjanesbæ | Nýlegar rann- sóknir á þunglyndi unglinga sýna að ákveðin tegund huglægrar meðferðar skilar mjög góðum ár- angri í að fyrirbyggja þróun sjúkdómsins. Þetta kom fram í kynningu Eiríks Arnar Arn- arsonar, sálfræðings og rann- sóknarstjóra á forvarnarverkefn- inu „Forvörn þunglyndis meðal unglinga“, á skrifstofum Reykja- nesbæjar en bærinn hóf í fyrra þátttöku í verkefninu. Niðurstöðu úr fyrstu eftirfylgni þátttökuhópa er að vænta innan tíðar. Frá árinu 2001 hafa sálfræð- ingar víða um land unnið við rannsóknir á þunglyndi unglinga og mat á árangri hugrænnar at- ferlismeðferðar til að fyrirbyggja þróun þunglyndis. Um er að ræða unglinga sem eru með einkenni þunglyndis og neikvæðan skýr- ingarstíl, en hafa ekki verið greindir með sjúkdóminn. Enginn þekkingargrunnur er til fyrir for- varnir með líkamlegum inn- gripum og því er rannsóknin tal- in mikilvæg. Auk Reykjanesbæjar taka Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær, Reykjavík og Ak- ureyri þátt í verkefninu. Rann- sóknin fer þannig fram að skim- un er framkvæmd meðal nemenda 9. bekkja og ef nið- urstaða skimunar er há er við- komandi boðin þátttaka í verk- efninu. Þátttakendum er skipt niður í tvo hópa, tilraunahóp og samanburðarhóp. Hópunum er síðan boðið á námskeið þar sem stuðst er við aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar, aðlagað þeim sem ekki hafa upplifað djúpt þunglyndi. Í kjölfar námskeiðsins er tilraunahópnum boðið áfram- haldandi meðferð en ekki sam- anburðarhópi. Árangur er síðan mældur að sex mánuðum liðnum, tólf mánuðum og árlega þar til 17 ára aldri er náð. Snarversnar aftur Í rannsókninni kemur fram að á meðan á námskeiði stendur dregur verulega úr þunglynd- iseinkennum en niðurstöður eftir fyrstu eftirfylgd sýnir svo ekki verður um villst að hin hugræna atferlismeðferð er að skila veru- legum árangri. „Rannsóknin sýn- ir að einstaklingar í samanburð- arhóp fá bata á meðan á námskeiði stendur en síðan snar- versnar þeim. Þegar hóparnir eru athugaðir á ný eftir sex mán- uði kemur í ljós meiriháttar geð- lægð hjá tæplega fjórðungi sam- anburðarhóps. Þetta eru sláandi niðurstöður,“ sagði Eiríkur Örn á kynningunni og bætti við í sam- tali við blaðamann að allar líkur væru á því að rannsóknin í Reykjanesbæ myndi gefa sam- bærilegar niðurstöður. Eiríkur kynnti niðurstöður rannsóknarinnar fyrir bæj- arstjóra, bæjarfulltrúum, fulltrú- um í fræðsluráði, barnavernd- arnefnd, skólastjórum, starfs- mönnum bæjarins sem með þessi mál fara og umsjónarkennurum þeirra 9. bekkja sem taka þátt í rannsókninni. Í fyrra var rann- sóknin framkvæmd í öllum grunnskólunum fjórum í Reykja- nesbæ en vegna fjárskorts verður hún einungis framkvæmd í tveim- ur skólum í nánustu framtíð. Sál- fræðingarnir Hafdís Kjartans- dóttir og Ágústa Gunnarsdóttir hafa unnið við rannsóknina í Reykjanesbæ. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Eiríkur Örn: Huglæg meðferð við þunglyndi unglinga skilar góðum árangri í að fyrirbyggja þróun sjúkdómsins. Hugræn atferlismeðferð dregur úr einkennum Fyrirbyggjandi aðgerðir við þunglyndi unglinga Bíræfni | Kona sem skrapp inn á heimili sitt við Háseylu í Njarðvík í fyrradag varð fyrir því að bíræfinn þjófur stal tösku hennar úr bílnum á meðan. Hún var aðeins í um fimm mínútur inni. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglunnar var seðlaveski með um tíu þúsund krónum og greiðslukortum í töskunni og einnig farsími.    Grjótkast | Lögreglumenn urðu vitni að því er maður kastaði grjóti í bifreið við Hafnargötu í Keflavík í fyrrinótt. Maðurinn sem er um tví- tugt var handtekinn. Var hann mjög ölvaður samkvæmt upplýsingum lögreglu og þurfti að hafa hann í fangageymslu á meðan víman rann af honum. Bifreiðin skemmdist.    Íþróttahátíð | Ýmislegt er til skemmtunar um helgina í Íþrótta- miðstöðinni í Garði í tilefni 10 ára af- mælis hennar. Eru atburðir helg- arinnar nokkurs konar upphitun fyrir sýningu og menningardaga í Garði um næstu helgi. Í dag verður kynning á öld- ungablaki, badminton og sportköfun og leiðbeint í þreksal. Í kvöld verður síðan hnefaleikakeppni. Á morgun, sunnudag, verður firmamót í knattspyrnu meðal dag- skráratriða. Reykjanesbæ | Ekki hefur verið gengið frá kaupum hæstbjóð- enda á byggingarlandi á Neðra- Nikkelsvæði í Njarðvík þar sem skipulagt hefur verið Hlíðahverfi með um 140 íbúðum. Búist er við því að málið skýrist næstu daga. Reykjanesbær lét skipuleggja Hlíðahverfi á Neðra-Nikkel- svæði eftir að varnarliðið skilaði því til utanríkisráðuneytisins. Stjórnendur bæjarins töldu landið mikilvægt byggingarland þar sem það liggur á milli byggðarinnar í Njarðvík og Keflavík. Ráðuneytið ákvað að fela Ríkiskaupum að auglýsa það til sölu. Þrjú tilboð bárust er tilboð voru opnuð 3. júlí. Hæst buðu Húsagerðin ehf., SEES ehf. og Verkfræðistofa Suðurnesja ehf., 150 milljónir kr. fyrir landið í heild en boðið hafði verið upp á kaup á því öllu eða ákveðnum hlutum. Hin tilboðin voru á ann- an tug milljóna eða aðeins um 10% af hæsta boði. Ríkiskaup tóku tilboði Húsa- gerðarinnar o.fl. og höfðu fyr- irtækin frest fram í byrjun ágúst til að ganga frá samningum og greiðslum fyrir landið. Guð- mundur I. Guðmundsson, skrif- stofustjóri hjá Ríkiskaupum, segir að fulltrúar bjóðenda hafi enn ekki mætt til að ganga frá samningum þótt lokafrestur sem þeim hafi verið gefinn sé runn- inn út. Hann tók fram að fyr- irtækin væru bundin af tilboði sínu. Lætur Guðmundur þess getið að lögmaður bjóðenda hafi óskað eftir fundi og málið skýr- ist væntanlega í næstu viku. Anton Jónsson, framkvæmda- stjóri Húsagerðarinnar, segir að verið sé að vinna í málinu og ekki frá neinu að segja á þessu stigi. Ekki gengið frá kaupum á lóðum á Neðra-Nikkelsvæði Selfossi | Góð þátttaka hefur verið á íbúaþingunum í Árborg sem haldin hafa verið. Þingin eru liður í samráðs- ferli sveitarstjórnar og íbúa í tengslum við gerð nýs aðalskipulags fyrir Sveitarfélagið Árborg. 70 íbúar mættu til þings á Eyrarbakka og Stokkseyri og tæplega 30 manns mættu á kvöldfundinn með íbúum dreifbýlisins. Fyrir þingin hafði einn- ig verið unnið með börnum og ung- lingum úr Barnaskólanum að hug- myndum þeirra um samfélagið sem þau kynntu. Fjórða og síðasta íbúaþingið í Ár- borg verður á Selfossi þann 18. októ- ber og að lokum verða niðurstöður allra þinganna kynntar í sameiningu í Fjölbrautaskólanum á Selfossi þriðju- dagskvöldið 21. október kl. 20. Á íbúaþinginu á Eyrarbakka komu meðal annars fram skýr skilaboð um mikilvægi þess að efla og byggja á þeirri sérstöðu sem felst í gömlum húsum og gamalli götumynd sem gæti styrkt ímynd Eyrarbakka sem alda- mótabæjar. Þátttakendur á Stokks- eyri töldu mikilvægt að skipuleggja miðbæ í kringum Hólmaröst og vilja að byggt verði á góðri sambúð við náttúruna, s.s. fuglafriðlandi, svoköll- uðum dælum (tjörnum) og ströndinni. Á báðum þingunum voru skólamál talsvert til umræðu. Þá var lögð áhersla á að bæta tengingar milli byggðarlaganna í Árborg, annars vegar með góðum almenningssam- göngum og hins vegar með göngu- og hjólastígum, ekki síst milli þorpanna tveggja við ströndina. Íbúar á Eyr- arbakka og Stokkseyrar eru stoltir af þeim kostum sem þorpin hafa upp á að bjóða og sjá mörg sóknarfæri í framtíðinni, sérstaklega í ferðaþjón- ustu. Íbúar í Sandvíkurhreppi fyrrver- andi lögðu helst áherslu á bættar vegasamgöngur í dreifbýlinu, allt frá lagningu sérstakra reiðvega og hjóla- stíga upp í malbikun núverandi vega, ásamt því að þeir geti í náinni framtíð setið við sama borð og íbúar þéttbýlis- ins hvað varðar gæði og gjöld vegna rafmagns- og hitaveitu. Íbúar lýstu einnig yfir vissum áhyggjum af því í hvaða átt byggð á Selfossi mundi vaxa, en það snertir hagsmuni land- eigenda á þessu svæði. Íbúar vilja bættar samgöngur á Árborgarsvæðinu Vel heppnuð íbúaþing haldin í tengslum við gerð nýs aðalskipulags Hveragerði | Hinn 6. október sl. voru fyrstu skóflustungurnar tekn- ar að nýjum leikskóla hér í Hvera- gerði. Með skóflustungunum hófust formlega framkvæmdir við fyrri áfanga leikskóla við Finnmörk í Hveragerði. Það voru leik- skólabörn í bænum, ásamt forstöðu- manni leikskólans á Óskalandi, Gunnvöru Kolbeinsdóttur, sem tóku í sameiningu fyrstu skóflu- stungurnar að byggingunni. Leikskólinn er teiknaður af Arki- tektum Skógarhlíð, og verður hon- um skilað fullfrágengnum með lóð og tækjabúnaði hinn 1. júní 2004. Gerður hefur verið stjórn- unarsamningur við Íslenska að- alverktaka (ÍAV) þar sem þeir taka að sér hönnun, uppsetningu og rekstur vinnubúða og bygging- arstjórn. Gert er ráð fyrir að allir verkþættir utan hönnunar verði boðnir út. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Gunnvör Kolbeinsdóttir ásamt leikskólabörnum við fyrstu skóflustunguna. Nýr leikskóli rís í Hveragerði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.