Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 37
MESSUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 37 krakkar fá biblíumynd af Jóhannesi skír- ara og Jesúm, besta vini barnanna. Rebbi fær brúðuheimsókn. Mikill söng- ur, bænir og biblíusaga. Sr. Fjölnir Ás- björnsson og barnafræðararnir. Kl. 14.00 Guðsþjónusta. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Joönnu M. Wlaszcs- yk organista. Fermingarbörn lesa ritn- ingarlestra. Prestur sr. Þorvaldur Víð- isson og sr. Fjölnir Ásbjörnsson. Kl. 20.00 Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM&K í kirkjunni. Kynnt verður Fa-menningin, sem er þema Lands- mótsins í Ólafsvík sem verður 17.–19. október næstkomandi. LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjudagur Kvenfélags Lágafells- sóknar. Ræðumaður Elísabet Kristjáns- dóttir kennari. Einsöngur Hanna Björk Guðjónsdóttir. Kirkjukaffi í skrúðhúss- alnum. Sunnudagaskóli í safnaðarheim- ilinu kl. 13. Sameiginleg kvöldguðsþjón- usta Lágafellssóknar og Fríkirkjunnar í Reykjavík verður í Fríkirkjunni kl. 20.30. Jón Þorsteinsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjöl- skylduhátíð kl. 11.00. Allir leiðtogar sunnudagaskólans taka þátt. Barnakór- inn syngur undir stjórn Helgu Lofts- dóttur. Sr. Þórhallur Heimisson segir glærusögu og leiðir fólk á „Afr- íkuslóðir.“ Góðgæti í Strandbergi. Kirkjurútan fer sína venjulegu ferð til og frá kirkjunni og strætisvagn fer frá Hval- eyrarskóla kl. 10.55 og þangað aftur eftir hátíðina. Dægurlagamessa kl. 20.30. Fjarðarbandið, sem Hjörtur Howser hljómborðsleikari stýrir, leikur þekkt dægurlög í messunni sem hafa trúarlega skírskotun og eru með ís- lenskum texta. Að þessu sinni syngur Sigríður Guðnadóttir með Fjarðarband- inu. Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason, sóknarprestur. Kökubasar Æskulýðs- félagsins eftir messu. KRÝSUVÍKURKIRKJA: Messa kl.14.00 Helga Björk Arnarsdóttir leikur á klarin- ettu. Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason, sóknarprestur. Altaristafla kirkjunnar, eftir Svein Björnsson, tekin niður í messulok til vetursetu í Hafnarfjarð- arkirkju. Sveinshús opið eftir messuna og boðið þar upp á, gegn vægu gjaldi, kaffi, jólaköku og kleinur. Leiðsögn veitt um húsið og sýninguna „Bláhöfði í Krýsuvík“. Sætaferðir frá Hafnarfjarð- arkirkju kl. 13.00 og heim aftur eftir messuna og kirkjukaffið. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna. Þjóðlagamessa kl. 14. Magnea Tómasdóttir syngur trúarleg þjóðlög. Organisti Úlrik Ólason. Allir velkomnir. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Umsjón hafa Edda, Hera og Örn. Kvöldvaka við kertaljós kl. 20. Kór Fríkirkjunnar leiðir sönginn ásamt hljómsveit kirkjunnar. Tónlistar- stjóri er Örn Arnarson. Sérstakt íhug- unarefni kvöldsins er Davíðssálmurinn þekkti nr. 23 „ Drottinn er minn hirðir“. Tvær safnaðarkonur fjalla í stuttu máli um upplifun sína á þessum sálmi og þá mun Margrét Scheving flytja hugleiðingu en hún samdi þekkt og fallegt lag við þennan texta sem mikið er sungið. ÁSTJARNARSÓKN, Samkomusal Hauka að Ásvöllum. Barna- og fjölskyldumess- ur á sunnudögum kl. 11.00–12.00. Djús, kex og kaffi ásamt hlýju sam- félagi eftir helgistundir. Ponzý unglinga- starf á mánudögum kl. 20.00 - 22.00. KÁLFATJARNARSÓKN, Vatnsleysu- strandarhreppi. Kirkjuskóli í Stóru- Vogaskóla laugardaga kl. 11.15– 12.00. Messa í Kálfatjarnarkirkju sunnudaginn 12. september kl. 14.00. Léttar veitingar eftir messu. VÍDALÍNSKIRKJA: „Léttmessa“ – Klassísk messa með nýjum söngvum og sveiflu kl. 11.00. Óskar Guðjónsson saxófónleikari og Ómar Guðjónsson gít- arleikari sjá um tónlistina ásamt org- anistanum, Jóhanni Baldvinssyni. Kirkjukórinn leiðir sönginn og kennir nýja söngva. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún djákni þjóna. Að messu lokinni býður sóknarnefnd upp á léttan málsverð í safnaðarheimilinu sem Lionsfólk annast. Allir velkomnir. Prest- arnir. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn kl. 11.00 í Álftanesskóla. Umsjón- armenn: Ásgeir Páll og Kristjana. Styðj- um börnin til þátttöku. Allir velkomnir. Prestarnir. BESSASTAÐAKIRKJA: Kirkjudagur safn- aðarins verður haldinn hátíðlegur í kirkj- unni kl. 14.00. Álftaneskórinn, kór kirkj- unnar, hefur undirbúið sérstök verk til flutnings og mun leiða safnaðarsöng undir stjórn organistans, Hrannar Helgadóttur. Yngri hópur barnakórs Álftanesskóla kemur og syngur undir stjórn Lindu Margrétar Sigfúsdóttur og Helgu Loftsdóttur. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta Konráðsdóttir djákni þjóna. Kirkjurúta ekur hringinn fyrir og eftir – hafið samband við Linda í síma 5650952. Að athöfn lokinni verður kaffisala Kvenfélagsins til styrktar Líkn- arsjóði Bessastaðahrepps í hátíðarsal íþróttahússins. Styðjum starf kirkjunnar og fjölmennum. Prestarnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskól- inn kl. 11.00. „Allir eitt – enginn eins“. Léttir söngvar, stutt fræðsla. Krakkar úr Tónlistarskólanum koma í heimsókn af og til í vetur og spila á hljóðfærin sín. Sögustund og brúðuleikþættir. For- eldrar, ömmur og afar velkomin með börnunum. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Létt gospelsveifla með hljómsveit og kór. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega velkomin. Eigum góða kvöldstund saman. Prestur og sókn- arnefnd. ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Fermingarbörn lesa ritningartexta. Söngfélag Þorláks- hafnar. Julian Isaaks á orgelinu. Kl. 10.00 verður fyrri hluti myndar um Jes- úm Krist sýndur í „safnaðarheimilinu“. Sterkt Merrild-kaffi á könnunni. Nánar á www.Thorlakskirkja.is Sóknarprestur. STRANDARKIRKJA. „Veiðimanna- messa“ kl. 14.00. Söngfélag Þorláks- hafnar. Julian Isaaks á orgelinu. Veiði- menn og aðrir velkomnir. Opið í T-bæ. Nánar á www.Strandarkirkja.is Sókn- arprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli sunnudaginn 12. október kl. 11. Umsjón Ástríður Helga Sigurðardóttir, Ingibjörg Erlendsdóttir og Natalía Chow organisti. NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Sunnudagaskóli sunnudaginn 12. októ- ber kl. 11 í umsjá Arngerðar Maríu Árnadóttur organista, Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sigurðardóttur. KIRKJUVOGSKIRKJA (Höfnum): Sunnu- dagaskóli sunnudaginn 12. október kl. 13. Umsjón Margrét H. Halldórsdóttir og Gunnar Þór Hauksson. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson. HVALSNESKIRKJA: Laugardagurinn11. október. Safnaðarheimilið í Sandgerði. Kirkjuskólinn kl. 11. Allir velkomnir. Sunnudagurinn 12. október: Hvals- neskirkja: 17. sunnudagur eftir Þrenn- ingarhátíð. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti Steinar Guðmundsson NTT-starfið er á mánu- dögum kl. 17.30. Umsjón með starfinu hefur Erla Björg Rúnarsdóttir. ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 11. október. Safnaðarheimilið Sæborg. Kirkjuskólinn kl. 14. Allir velkomnir. Sunnudagurinn 12. október: Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Útskálakirkju syngur. Organisti Steinar Guðmundsson. Garð- vangur. Helgistund kl. 15.30. NTT- starfið - Níu til tólf ára starfið er á fimmtudögum kl. 16.30. Umsjón með starfinu hefur Kristjana Kjartansdóttir. Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur sunnudagaskóli kl. 11 árd. Elín Njáls- dóttir, umsjónarmaður eldri barna. Mar- grét H. Halldórsdóttir umsjónarmaður yngri barna. Aðrir starfsmenn sunnu- dagaskólans eru: Arnhildur H. Arn- björnsdóttir, Einar Guðmundsson og Sigríður Helga Karlsdóttir. Guðsþjón- usta kl. 14. Barn borið til skírnar. Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Ræðu- efni: Eftirfylgdin við Krist og staða þjóð- kirkjunnar. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti: Hákon Leifsson. Meðhjálpari: Laufey Kristjánsdóttir. HNÍFSDALSKAPELLA: Sunnudagaskóli kl. 13.00. ÍSAFJARÐARSÓKN: Fjölskyldumessa kl. 11.00. Barnakór Tónlistarskólans syng- ur undir stjórn Rúnu Esradóttur. Sókn- arprestur. HOFSÓS- OG HÓLAPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta í Hóladómkirkju sunnudaginn 12. október kl. 14. Upp- haf barna- og fermingarstarfsins í vetur. Kirkjukór Hóladómkirkju leiðir sönginn, Jóhann Bjarnason er við orgelið og sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari. Foreldrar og börn, afar og ömmur, frænkur og frændur, já – allir hvattir til að koma og tilbiðja Guð, færa honum þakkir og fagna lífinu saman. Kaffi og nýbakaðar vöfflur í Bændaskólanum að athöfn lokinni. Sóknarprestur. ÓLAFSFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Sr. Gylfi Jónsson þjón- ar. Barnastarfið alla sunnudaga kl. 11. Allir velkomnir. Sóknarprestur. LAUGALANDSPRESTAKALL: Messa í Kaupangskirkju sunnudag kl. 11 og sama dag í Möðruvallakirkju kl. 13.30. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta fyrir allt prestakallið sunnudag kl. 11. Léttir söngvar, mikil stemning. Messa verður í Glæsibæjarkirkju sama dag kl. 14. Allir velkomnir. Sókn- arprestur. HRÍSEYJARKIRKJA: Helgistund laug- ardaginn 11. okt. kl. 16 í umsjá kvenna úr Kvennakirkjunni. Sunnudagaskóli sunnudag kl. 11. AKUREYRARKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttþjónar fyrir alt- ari. Kvennaraddir úr Kór Akureyrarkirkju leiða almennan söng ásamt konum úr Kvennakirkjunni. Organisti Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Fyrst í kirkju, síðan í Safnaðarheimili. Fræðsla og léttar veitingar í Safnaðarheimili eftir messu. „Konur eru konum bestar“ kl. 20. Samskipta- og sjálfstyrking- arnámskeið fyrir konur. Upplýsingar og skráning í síma 462 7700 kl. 9–12 virka daga. Í tengslum við heimsókn Kvennakirkjunnar: Námskeið í lífsgleði kl. 13–14.30 í Safnaðarheimili. Leið- beinendur: Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir og hjúkrunarfræðingarnir Margrét Há- konardóttir og Þóra Friðriksdóttir. Nám- skeiðsgjald kr. 1.000. GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Fé- lagar úr Kór Glerárkirkju. Organisti Hjörtur Steinbergsson. Fermingarbörn og foreldrar hvött til að mæta. Barna- samvera kl. 11 alla sunnudaga í vetur með tvískiptu barnastarfi fyrir yngri og eldri börn. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl. 11 sunnudagaskóli. Kl. 15 samvera fyr- ir Heimilasamband og Hjálparflokk. Kl. 17 almenn samkoma í umsjón kvennanna. Allir velkomnir. Rannveig Óskarsdóttir talar. LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja Guðsþjónusta sunnudaginn 12. okt. kl. 14. Grenivíkurkirkja : Kyrrðarstund mánudagskvöldið 13. okt. kl. 20. (Ath. breytta dagsetningu). Grenilundur: Guðsþjónusta sunnudaginn 12. okt. kl. 16. ÁSSÓKN í Fellum: Sunnudagaskólinn hefst á sunnudag kl. 11 í Kirkjuselinu, nýju húsnæði sóknarinnar við Smiðju- sel. Í tilefni af þessum merku tímamót- um verður boðið upp á djús, kaffi og kökur á eftir. Mömmumorgnar verða alla þriðjudaga kl. 10–12 í Kirkjuselinu. KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTA- KALL: Prestsbakkakirkja: Guðsþjón- usta kl. 14. Fermingarbörn lesa ritn- ingalestra. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn Brians R. Bacon, organista. Sr. Bryndís Malla Elí- dóttir. SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal: Guðs- þjónusta sunnudag kl. 14. Organisti Kristín Björnsdóttir. Kór Skeiðflat- arkirkju syngur. KELDNAKIRKJA á Rangárvöllum: Mess- að verður sunnudag kl. 14. Alt- arisganga. Safnaðarfundir eftir messu. Sr. Skírnir Garðarsson. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Messa nk. sunnudag kl. 13.30. Sr. Gunnar Björnsson messar í sumarleyfi sókn- arprests. Fermingarfræðsla hefst í næstu viku. Organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Vænst er þátttöku ferming- arbarna og aðstandenda þeirra. Krist- inn Ág. Friðfinnsson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður sunnudag 12. október kl. 11.00. Sókn- arprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11 og sunnudagaskólinn á sama tíma. Léttur hádegisverður að messu lokinni. Morguntíð sungin þriðjudag, miðviku- dag, fimmtudag og föstudag kl. 10. Kaffisopi á eftir. Foreldrasamvera miðvikud. kl. 11–12. Kirkjuskóli í Valla- skóla, útistofu nr. 6, á fimmtudögum kl. 14–14.50. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta og orgelvígsla kl. 13.30 á afmælisdegi Páls Ísólfssonar 12. okt. nk. Björn Steinar Sólbergsson organisti leikur lög eftir Pál á nýtt orgel kirkjunnar hálftíma fyrir guðsþjónustu sem hefst kl. 14.00. Orgelið er 14 radda og smíðað af Björg- vin Tómassyni orgelsmið. Biskup Ís- lands, hr. Karl Sigurbjörnsson, predikar og vígir orgelið. Sr. Anna Pálsdóttir og sóknarprestur þjóna fyrir altari. Eftir messuna verður opnað Tónminjasetur Íslands á Stokkseyri. Sóknarprestur. Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÉTTIR BORIST hefur eftirfarandi yfirlýsing frá FÍA, Félagi íslenskra atvinnuflug- manna. „Vegna yfirlýsingar stjórnarfor- manns Air Atlanta í Morgunblaðinu 9. október sl. vill FÍA koma að eft- irfarandi: FÍA er eina frjálsa og opna stétt- arfélag flugmanna á Íslandi. Félagar í FÍA eru á fimmta hundrað. FÍA er með kjarasamninga við alla stærstu flugrekendur á Íslandi eða Flugleiðir, Íslandsflug, Flugfélag Íslands, Land- helgisgæsluna, Bláfugl og Air Atlanta auk ýmissa smærri flugrekenda. Fyrir nokkrum árum var að und- irlagi Air Atlanta stofnað hið svokall- aða Frjálsa flugmannafélag eða FFF. Í því eru í dag um 33 flugmenn af um 200 flugmönnum Air Atlanta. Stjórn- endur Atlanta ráða því hverjir fá inn- göngu í það félag. Aðrir flugmenn, bæði íslenskir og erlendir, eru ráðnir hjá félaginu í gegnum erlenda áhafna- leigu, Air Crew Executive Limited (ACE), sem hefur höfuðstöðvar sínar á smáeyjunni Niue, sem tilheyrir Nýja-Sjálandi. Skráð heimilsfang er: „No. 5 Commercial Square P.O. Box 71, Alofi, Niue.“ Rétt væri að Atlanta upplýsti hvort áhafnaleigan sé að ein- hverju leyti í eigu Air Atlanta eða tengdra aðila. Í nýlegri auglýsingu á Netinu frá ACE er nýjum flugmönnum boðnir 175 USD á dag. Miðað við 21 vinnu- dag í mánuði gerir þetta um 279.000 kr. á mánuði. Af þessari fjárhæð þurfa flugmennirnir að greiða í skatt 38,55%, greiða tryggingargjald 5,73% og að lágmarki 10% í lífeyrissjóð. Auk þess fá þeir ekki greidd laun í orlofi. Þorri flugmanna Air Atlanta tekur ekki laun skv. kjarasamningi FFF. FÍA hefur í þessari umræðu ekki gagnrýnt launakjör hjá FFF og myndi gleðjast mjög yfir því ef Air Atlanta réði alla sína flugmenn í gegnum það félag. Það gerir Air Atl- anta hins vegar ekki. Nú nýlega hafn- aði Air Atlanta íslenskum flugmanni um þau sjálfsögðu mannréttindi að ráða sig á ísl. kjarasamning. Hvað er orðið um árangur af bar- áttu launafólks á Íslandi í áratugi ef fyrirtæki geta í dag neitað fólki um ráðningar í gegnum kjarasamninga stéttarfélaga og þess í stað ráðið það í gegnum erl. vinnumiðlanir. Þar stendur það án orlofs-, veikinda- og lífeyrisréttar og er gert að standa skil á sköttum sjálft. Enginn samnings- réttur. Aðeins er boðið upp á meinta verktakasamninga, en með því fyrir- komulagi kemst fyrirtækið hjá því að greiða öll launatengd gjöld. Það er einmitt þetta atriði í starfs- mannastefnu Air Atlanta gagnvart flugmönnum sem FÍA hefur gagn- rýnt. Í nýlegu ákvarðandi bréfi Rík- isskattstjóra nr. 8 frá 27. ágúst 2003 segir m.a. orðrétt: „Ríkisskattstjóri telur að samningar launagreiðanda við svonefnda vinnuleigu um að hún láti í té starfsmenn geti aldrei breytt stöðu hans sem launagreiðanda.“ Af dómavenju um vinnuréttarmál, úr- skurðum ríkisskattstjóra o.fl. dregur FÍA þá ályktun að Air Atlanta hljóti í raun að vera launagreiðandi þeirra flugmanna sem ráðnir eru hjá ACE og beri því að halda eftir staðgreiðslu skatta og skila tryggingargjaldi af greiðslum til þessara aðila og öðrum launatengdum gjöldum. Það hefur Air Atlanta ekki gert, væntanlega á þeim grundvelli að um verktaka- samninga sé að ræða. FÍA bendir á að skv. 4. tölulið. 1. greinar laga nr. 90 frá 2003 um tekju- og eignarskatt eru menn skattskyldir þar sem skip þeirra eða loftfar er skrásett, en flug- vélar Air Atlanta eru skráðar á Ís- landi. Jafnframt er rétt að vísa til 3. gr. 1. tl. sömu laga þar sem vikið er að takmarkaðri skattskyldu en þar segir svo: „Allir menn sem dvelja hér á landi og njóta launa fyrir störf sín hér skulu greiða tekjuskatt af þeim laun- um. Hér með teljast þeir menn sem atvinnu stunda hér á landi, eða um borð í loftfari eða skipi sem skráð er hér á landi, þar með talið á grundvelli samninga um útleigu á vinnuafli, þótt dvöl þeirra eða starf vari 183 daga samtals eða skemur á sérhverju 12 mánaða tímabili.“ Ætla má af frétt Fréttablaðsins um málið frá 4. október sl. að FÍA telji að Air Atlanta hafi brotið af sér gagn- vart starfsmönnum. Fréttina verður að lesa í heild sinni, og sést þá að FÍA er að benda á hugsanleg skattalaga- brot með vísan til álits Ríkisskatt- stjóra eins og kemur fram í lok frétt- arinnar. Eina samlíking FÍA á Air Atlanta við Impregilo er sú að fyr- irtækin hafast bæði líkt að hvað varð- ar ráðningar í gegnum erl. starfs- mannaleigur. Einnig koma sjónarmið FÍA fram í frétt í Morgunblaðinu 7. október og í fréttabréfi FÍA sem er að finna á heimasíðu félagsins. FÍA vísar því algerlega á bug að gagnrýni félagsins sé aðeins aðdrótt- anir og hálfkveðnar vísur eða tilraun til að sverta Air Atlanta. FÍA hefur hér fært rök fyrir máli sínu og mun áfram verða eini skjöldur íslenskra flugmanna í kjara- og réttindabaráttu þeirra.“ Yfirlýsing frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna Eini skjöldur ís- lenskra flugmanna í réttindabaráttu NÝLEGA gaf Kvennadeild Reykja- víkurdeildar Rauða kross Íslands fæðingardeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss gjöf sem er ABS5- blóðgasmælir frá Radiometer. Tækið sem hér um ræðir er notað til að mæla blóðgös í blóði ófæddra og nýfæddra barna. Niðurstaða úr þeim mælingum hjálpar til við að meta líðan ófædds barns, svo og til að mæla sýrustig í blóði barns strax eftir fæðinguna. Myndin er tekin við afhendingu á tækinu. Gáfu blóðgasmæli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.