Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 49
Á AÐALFUNDI Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs í Kópavogi fimmtudaginn 9. október, var kosin ný stjórn og var Sigursteinn Másson kjörinn formaður. Aðrir í stjórn eru: Guðný Dóra Gestsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Emil Hjörvar Petersen og í varastjórn voru kjörnar Guðrún Gunnarsdóttir og Kolbrún Valvesdóttir. Nýr formaður hjá VG í Kópavogi IMPREGILO og Íslensk almanna- tengsl hafa samið um að Íslensk al- mannatengsl sjái um miðlun upplýs- inga frá Impregilo til fjölmiðla á Íslandi. Ómar R. Valdimarsson, framkvæmdastjóri Íslenskra al- mannatengsla, mun taka að sér hlut- verk upplýsingafulltrúa Impregilo á Íslandi og verður hann með aðstöðu á skrifstofum Íslenskra almanna- tengsla á Laugavegi 66. Miðla upplýs- ingum fyrir Impregilo KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 49 Fjölskylduhátíð í Hafnarfjarðarkirkju Á MORGUN, sunnudag, verður haldin önnur fjölskylduhátíð vetr- arins í Hafnarfjarðarkirkju en slík- ar hátíðir eru haldnar einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Hefst hátíðin kl. 11.00. Þá mæta báðir sunnudagaskólarnir til kirkju, en Hafnarfjarðarkirkja rek- ur sunnudagaskóla bæði í safn- aðarheimilinu og Hvaleyrarskóla. Allir leiðtogar sunnudagaskólanna mynda hljómsveit og leika undir söng. Barnakórinn kemur í heim- sókn og syngur nokkur lög undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Sr. Þór- hallur Heimisson sýnir glærusögu og stjórnar hópleik með öllum í kirkjunni. Síðast mættu um 300 á hátíðina. Hefur þú nokurn tímann tekið þátt í 300 manna leik? Eftir söng, leik og gleði í kirkjunni er boðið til nammiveislu í safnaðarheimilinu. Kirkjurútan ekur að venju. Stræt- isvagn ekur frá Hvaleyrarskóla kl.10.50 og heim aftur 12.30. Dægurlagamessa í Hafnarfjarðarkirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 12. októ- ber nk. kl. 20.30 fer fram Dæg- urlagamessa í Hafnarfjarðarkirkju. Fjarðarbandið, sem Hjörtur Hows- er hljómborðsleikari stýrir, leikur þekkt dægurlög í messunni. Textar þessara sígildu laga Bítlanna, Holl- ies o.fl. hafa verið þýddir á ís- lensku. Þegar þessi lög eru sungin og leikin í helgu Guðshúsi kemur fram að textarnir hafa trúarlega skírskotun og lögin snerta sál og hjartastrengi. Sigríður Guðnadótt- ir söngkona syngur með Fjarð- arbandinu að þessu sinni. Prestur er sr. Gunnþór Þ. Ingason. Köku- basar Æskulýðsfélagsins eftir messu. Dægurlagamessa að hausti hefur ávallt verið mjög vel sótt og er þess vænst að svo verði einnig að þessu sinni. Kvöldvaka í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði Á SUNNUDAGSKVÖLD kl. 20 verður mánaðarleg kvöldvaka Frí- kirkjunnar í Hafnarfirði. Á þessum kvöldvökum er leitast við að skapa hlýja og notalega stemningu. Örn Arnarson, tónlist- arstjóri kirkjunnar, hljómsveit hans og kór kirkjunnar leiða tón- list og fallega sálma og söngva. Sérstakt íhugunarefni er valið hverju sinni og nú er það Davíðs- sálmurinn þekkti nr. 23 „ Drottinn er minn hirðir“ sem fjallað verður um. Tveir góðir fulltrúar úr hópi safnaðarfólks hafa verið beðnir að fjalla í örstuttu máli um upplifun sína á þessum sálmi og þá mun Margrét Scheving verða gestur kvöldvökunnar en hún samdi hið fallega lag við þenna texta sem all- ir þekkja. Margrét mun fjalla um sálminn. Að lokinni kvöldvöku verður svo kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Nýr messustaður í Grafarvogi FRÁ því að safnaðarstarfið hófst í haust hefur verið messað kl. 11.00 á sunnudögum í Borgarholtsskóla. Skemmtilegt er að greina frá því að þátttaka hefur verið mjög mikil í starfinu þar og er aðstaða þar góð til messuhalds og umhverfið aðlað- andi. Eins og venjulega er einnig messað í Grafarvogskirkju kl. 11.00 á sunnudögum. Almenn messa í aðalsal kirkjunnar og barnamessa á neðri hæð. Prestar safnaðarins messa ásamt barna- starfsfólki. Prestar Grafarvogskirkju. Klassísk messa ÁHUGAHÓPUR um klassíska messu og iðkun gregorssöngs stendur nú í haust fyrir messu með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 í Friðrikskapellu. Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Kynning og æfingar á messunum verða deginum áður, laugardag, kl. 12–13 í Friðrikskapellu. Sungin verður VIII. messan, Missa de Angelis. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Næsta messa verður sunnudag- inn 12. október kl. 20, prestur sr. Flóki Kristinsson. Fyrsta messan var sungin 14. september síðastlið- inn og messaði þá sr. Kristján Val- ur Ingólfsson. Sú síðasta fyrir ára- mót verður 9. nóvember, sungin af sr. Arngrími Jónssyni. Klassísk messa og gregors- söngur er dýrmætur arfur kirkj- unnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vettvangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trú- arinnar. Fjölskylduguðsþjón- usta í Árbæjarkirkju EINS og undanfarna vetur eru fjöl- skylduguðsþjónustur í Árbæj- arkirkju annan sunnudag hvers mánaðar. Þar er kynslóðabilið brúað og stórfjölskyldan boðin velkomin í sameinginlega guðsþjónustu. Prestar og sunnudagaskólakenn- arar safnaðarins sameina krafta sína. Það er mikið sungið, gamlir og góðir barnasálmar ásamt sunnu- dagaskólasöngvum, nýjum og gömlum. Sagðar verða sögur, brúður koma í heimsókn auk hefð- bundinna liða guðsþjónustunnar. Við vonumst til að sjá sem flesta Árbæinga í kirkjunnu á sunnudag- inn kl. 11. Kaffi, djús og kex í boði eins og alltaf að stundinni lokinni. Prestar og sunnudagaskólakenn- arar. Fundur um íslam í Safnaðarfélagi Dómkirkjunnar VETRARSTARF Safnaðarfélags Dómkirkjunnar er nú hafið. Fundir eru á sunnudögum kl. 12.00 einu sinni í mánuði yfir vetrarmán- uðina. Safnaðarfélag Dómkirkjunnar var stofnað til þess að vera vett- vangur sóknarbarna og annarra velunnara Dómkirkjunnar. Þátt- taka í Safnaðarfélaginu er því ekki bundin við þá sem búa í Dóm- kirkjusókn heldur er öllum þeim sem áhuga hafa hjartanlega vel- komið að sækja fundi. Fundarmenn byrja á því að borða saman súpu og brauð og síðan er flutt stutt erindi. Erindin geta bæði verið um það sem snertir kirkjuna og starf henn- ar eða það sem er efst á baugi í þjóðfélaginu. Ennfremur hefur stundum verið farið í vettvangs- heimsóknir á staði í nágrenni Dóm- kirkjunnar. Fimm manna stjórn leikmanna stýrir Safnaðarfélaginu og er Ingi- björg Hjaltadóttir hjúkrunarfræð- ingur núverandi formaður félags- ins. Á næsta fundi félagsins sunnu- daginn 12. október kl. 12.00 mun Salmann Tamimi, formaður félags múslima á Íslandi, segja frá því hvað islam er. Sem fyrr segir eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Stefna þjóðkirkjunnar HVAÐA stefnu hefur þjóðkirkjan? Hvaða stefnu mun hún taka og beita sér fyrir á næstu árum? Á vegum þjóðkirkjunnar hefur á liðnu ári verið unnið að svonefndri svót-greiningu til að grundvalla framtíðarstefnu og starf kirkj- unnar. Yfir eitt þúsund manns hef- ur komið að því verki. Stofnanir kirkjunnar hafa beitt sér og kirkjuráð hefur nýlega sam- þykkt að leggja drög að stefnu- mörkun þjóðkirkjunnar fyrir kirkjuþing 2003, sem verður haldið síðari hluta októbermánaðar. Á sunnudagsfundi í Hallgríms- kirkju á morgun, sunnudag, mun Adda Steina Björnsdóttir ræða um þetta stórmál kirkjunnar. Hún hef- ur verið starfsmaður stefnumót- unarvinnu og fylgst með málinu á öllum stigum. Nokkrir félagar Grettisakademíunnar munu bregð- ast við drögunum að stefnumörk- un, sem hægt er að lesa á vef þjóð- kirkjunnar, www.kirkjan.is. Sunnudagsfundur í Hallgríms- kirkju hefst kl. 13. Allir eru vel- komnir til fundarins því stefna þjóðkirkjunnar varðar alla íslensku þjóðina! Gospelmessa í Glersalnum Á MORGUN, sunnudaginn 12. október kl. 20, heldur Lindakirkja Gospelmessu í Glersalnum við Sala- veg í Kópavogi (í sama húsi og Nettó, gengið inn bakatil inn í lyftu og upp í sal). Um tónlistarflutning sér Kór Lindakirkju ásamt Hannesi Bald- urssyni organista. Leynigestur kvöldsins er ung söngkona sem örugglega á eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Sr. Guð- mundur Karl Brynjarsson flytur hugleiðingu. Allir eru velkomnir og aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis. Lofgjörð í Hjallakirkju SUNNUDAGINN 12. október kl. 11 verður lofgjörðarguðsþjónusta í Hjallakirkju í Kópavogi. Þorvaldur Halldórsson, hinn vel þekkti tón- listarmaður, mætir með hljóm- borðið sitt og leikur undir létta og skemmtilega lofgjörðartónlist. Í vetur mun Þorvaldur heim- sækja söfnuðinn einu sinni í mán- uði og leiðalofgjörðarstundir af þessu tagi. Eftir hádegi kl. 13 verð- ur barnaguðsþjónusta í kirkjunni. Hin fríska Tóta trúður kemur í heimsókn og skemmtir börnunum. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kaffisala Kristniboðs- félags karla KAFFISALA Kristniboðsfélags karla verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60, sunnudaginn 12. október frá kl. 14–17. Þetta er árleg fjáröflun félagsins fyrir kristniboðs- og þróunarverk- efnum Kristniboðssambandsins. Að venju hella karlarnir upp á ljúf- fengt kaffi og bjóða jafnframt með því gómsætar kökur og holl- ustubrauð. Hver getur staðist slík- ar freistingar? Fjölmennum í kaffið og hjálpum um leið bræðrum og systrum í Afríku sem fengið hafa minna en við af velsældarkökunni. Morgunblaðið/ÓmarHafnarfjarðarkirkja FRÉTTIR GUÐMUNDUR Pálmason jarðeðl- isfræðingur var kjörinn heið- ursfélagi Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins í apríl sl. Ákveð- ið var að afhenda honum heið- ursfélagaskjalið við setningu Al- þjóðajarðhitaráðstefnunnar í Reykjavík 15. september sl. vegna hins mikla framlags Guðmundar til alþjóðlegs jarðhitasamstarfs í þrjá áratugi. Á ráðstefnunni voru rúmlega tvö hundruð þátttakendur frá 32 lönd- um. Hann er þriðji heiðursfélagi Jarðhitafélags Íslands. Jón Jónsson jarðfræðingur og Jóhannes Zoega fv. hitaveitustjóri voru kjörnir heið- ursfélagar 2001. Heiðursfélagi Jarðhitafélags Íslands Guðmundur Pálmason tekur við heiðursfélagaskjalinu úr hendi Ingvars Birgis Friðleifssonar, for- manns Jarðhitafélags Íslands. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ BÓKIN um bakið er komin út hjá Landlæknisembættinu í prentaðri útgáfu. Sigurður Guðmundsson landlæknir afhenti Guðmundi Haukssyni, sparisjóðsstjóra SPRON, fyrsta eintak bæklingsins í aðalstöðvum sparisjóðsins við Ár- múla. SPRON veitti Landlækn- isembættinu styrk, að upphæð 500.000 kr., til að standa undir kostnaði. Landlæknisembættið hefur mælst til þess að læknar, sjúkra- þjálfarar og kírópraktorar afhendi sjúklingum sínum Bókina um bakið til að hjálpa þeim að ráða við bak- verki strax á bráðastiginu. Hægt verður að nálgast prentútgáfu bæklingsins á heilsugæslustöðum innan tíðar, en vefútgáfuna má nálgast á vefsetri Landlæknisemb- ættisins: www.landlaeknir.is. SPRON styrkir Bókina um bakið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.