Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ var á köflum skondið að fylgj-
ast með tilraunum Þuríðar Back-
man, 5. varaforseta Alþingis, í vik-
unni, til að láta þingmenn segja
„frú forseti“ en ekki „herra for-
seti“, þegar hún sat í forsetastól og
stýrði fundum Alþingis. Svo virðist
nefnilega sem þingmönnum sé tam-
ara að segja „herra forseti“ en „frú
forseti“, þrátt fyrir að æ algengara
sé að verða að konur stýri fundum
Alþingis. Sumar þeirra hafa senni-
lega látið það kyrrt liggja þótt
þingmenn hafi ítrekað ávarpað þær
sem herra, en Þuríður er greinilega
ekki á því. Hún var óþreytandi í
vikunni og áminnti m.a. eigin for-
mann, Steingrím J. Sigfússon, for-
mann vinstri-grænna. Svona hljóð-
aði t.d. upphaf þingræðu hans í
vikunni, þegar Þuríður sat í for-
setastól: „Herra forseti. Ég hef
leyft mér að leggja fram fyrirspurn
til hæstvirts félagsmálaráðherra
varðandi upphæðir …“ Hér greip
Þuríður frammí og sagði: „frú for-
seti“. Áfram hélt Steingrímur:
„… Frú forseti … ég skal bara
kalla félagsmálaráðherra ,,frú fé-
lagsmálaráðherra“ í staðinn.“ Þing-
ræðurnar í vikunni byrjuðu því
gjarnan svona: „Herra … ég meina
frú forseti …“ Þeim fór þó fram,
þingmönnunum, í þessum efnum
eftir því sem leið á vikuna.
Þegar þingmaður tekur til máls
á Alþingi skal hann fylgja
ákveðnum reglum og þingvenjum. Í
þingsköpum segir m.a. að ræðu-
maður skuli jafnan víkja ræðu sinni
til forseta eða fundarins „en eigi
ávarpa nokkurn einstakan þing-
mann“. Er kveðið á um að kenna
skuli þingmann við kjördæmi hans
eða nefna hann fullu nafni. Sam-
kvæmt gamalli þingvenju ber
ræðumanni einnig að segja: „hátt-
virtur þingmaður …“ og „hæstvirt-
ur ráðherra …“
Þingmönnum gengur, eins og bú-
ast má við, misjafnlega vel að venj-
ast þessum reglum. A.m.k. þurfti
forseti Alþingis, Halldór Blöndal, af
og til í vikunni að minna nokkra
nýja þingmenn og glænýjan ráð-
herra á að ekki eigi að ávarpa
beint nokkurn einstakan þingmann,
heldur fylgja fyrrgreindum reglum.
Sennilega eru þetta reglur sem
þingmenn venjast með tímanum, en
stundum verða þær þeim kannski
„of tamar“ ef svo má að orði kom-
ast. Vísa ég til þess að fyrir nokkr-
um árum virtist einn ráðherrann
vera orðinn svo ruglaður á öllum
þessum „háttvirtu“ þingmönnum og
„hæstvirtu“ ráðherrum að hann
sagði „hæstvirtur ræðustóll“.
En auðvitað er það ekki skrítið
þótt þingmenn, sem hafa atvinnu af
að því að ræða málin í þingsal,
skuli einstaka sinnum verða upp-
vísir að því að mismæla sig. Þannig
sagði Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, í vikunni
þegar málefni Impregilo voru til
umfjöllunar: „Telur hann ekki rétt
að styrkja Vinnueftirlitið þannig að
það geti haft fullan mann á virkj-
unarsvæðinu?“ Átti Össur þarna að
sjálfsögðu við að Vinnueftirlitið
hefði mann í fullu starfi á virkj-
unarsvæðinu og hefur það verið
leiðrétt á Alþingisvefnum. Það skal
reyndar tekið fram að ræðutími
Össurar var að renna út þegar
hann lét þessi orð falla og því hefur
honum sjálfsagt legið á að koma
öllu sínu að, áður en hann þurfti að
yfirgefa ræðustólinn.
Já, þingmenn geta mismælt sig,
eins og aðrir, en þeir geta líka ver-
ið orðheppnir. Til dæmis brosti
þingheimur þegar Kolbrún Hall-
dórsdóttir, þingmaður VG, lét eft-
irfarandi ummæli falla í snarpri
orðasennu við landbúnaðarráð-
herra, Guðna Ágústsson, um lög og
reglur í laxeldi. „Herra forseti.
Eldislaxinn fer nákvæmlega þang-
að sem honum dettur í hug. Hann
veit ekki að ráðherra hefur sett
reglugerð um að einhverjir firðir
eigi að vera honum lokaðir. Það er
bara þannig.“ Hins vegar veit und-
irrituð ekki hvort þingheimur hefur
brosað þegar landbúnaðarráðherra
sagði eftirfarandi: „Þetta slys sem
átti sér stað í Neskaupstað var
hörmulegt slys og ég harma þá nið-
urstöðu. Fiskurinn hlaut einhvers
staðar að koma upp. Við skulum
vona að sem mest af honum hafi
drepist eða fari til Færeyja eða
eitthvað annað. Ég býst við að hluti
af honum sé svona eins og Keikó,
ósjálfbjarga í hafinu, en það er
önnur saga.“ Ráðherra kom reynd-
ar aftur upp og tók fram að hann
bæði ekki færeysku fiskeldi böl-
bæna. „Færeyingar stunda það
hins vegar að veiða lax í sjó og ég
vona að þeir nái þessum laxi sem
hér slapp þannig að það er mik-
ilvægt.“
Herra … frú forseti!
EFTIR ÖRNU SCHRAM
ÞINGFRÉTTAMANN
arna@mbl.is
FORELDRARÁÐ Mýrarhúsaskólasamþykkti í fyrradag að skora á bæj-arstjóra Seltjarnarness og formannskólanefndar að mæta á almennan
foreldrafund til að skýra sjónarmið sem liggja
til grundvallar samþykkt bæjarstjórnar að
sameina yfirstjórn grunnskólanna í bænum.
Þorsteinn Magnússon, formaður foreldraráðs-
ins, segir að jafnframt verði leitað eftir sam-
starfi við foreldraráð Valhúsaskóla við skipu-
lagningu slíks fundar.
Mikil óánægja er meðal kennara og starfs-
fólks skólanna vegna fyrirhugaðrar samein-
ingar sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi
Seltjarnarness á miðvikudag. Óánægjan beinist
fyrst og fremst að aðdraganda ákvörðunar-
innar og að ekkert samráð hafi verið haft við
skólastjórnendur, kennara eða foreldrafélög.
Hún sé tekin án nokkurrar úttektar á kostum
sameiningar og faglegar forsendur séu veikar.
Formaður skólanefndar Seltjarnarness, Bjarni
Torfi Álfþórsson, og Jónmundur Guðmarsson
bæjarstjóri áttu fund með skólastjórum og að-
stoðarskólastjórum beggja skólanna á fimmtu-
dag. Bjarni, sem lagði fram umrædda tillögu í
bæjarstjórn, segist hafa lagt áherslu á að mark-
mið þeirra væri að gera skólasamfélagið betra.
Þetta sé síst af öllu aðför að kennurum, for-
eldrum eða börnum.
Höfnuðu að hitta formann skólanefndar
Fulltrúar foreldrafélaga og foreldraráða
beggja skólanna áttu fund í gær með bæj-
arstjóra og skólanefndarformanni. Bjarni segir
að þar hafi verið greint frá afstöðu bæjaryf-
irvalda. „Það eru allir nokkuð sáttir við það að
þessi breyting verði gerð en menn greinir á um
aðferðafræðina, sem við völdum að fara. En
hún var mjög meðvituð,“ sagði Bjarni eftir
fundinn. Bjarni segir að bæjaryfirvöld í sam-
ráði við foreldrafélögin muni boða til almenns
fundar um skólamál á Seltjarnarnesi með for-
eldrum allra barna skólanna í annarri viku héð-
an í frá. Jafnframt hefur hann óskað eftir fundi
með kennurum skólanna og fer til fundar við
kennara Valhúsaskóla á þriðjudaginn. Hins
vegar höfnuðu kennarar í Mýrarhúsaskóla að
hitta hann.
Sigurður Þór Ágústsson, kennari í Mýr-
arhúsaskóla, segir að því boði hafi verið hafnað
þar sem Bjarni hafði nægan tíma til að ráðfæra
sig við kennara áður en hann lagði fram tillög-
una.
Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri segir
þetta stefnumótandi ákvörðun og nú hefjist
undirbúningur að framkvæmd tillögunnar í
fullu samráði við skólasamfélagið allt. Hann
segir það hlutverk lýðræðiskjörinna fulltrúa
bæjarbúa að móta framtíðina. Þessi breyting sé
gerð með hagsmuni nemenda að leiðarljósi og
þeir fari saman við hagsmuni skólafólks. Eðli-
legt sé að það heyrist hæst í þeim sem gagn-
rýna málsmeðferðina en flestum finnist samein-
ing skólanna góður kostur til framtíðar.
Grunnskólar helst sem eina heild
Hann segir að lengi hafi verið fjallað um
þessi mál formlega og óformlega innan bæj-
arins og Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla
íslands hafi skrifað greinargerð um málefni
grunnskóla Seltjarnarness árið 1999. Í henni
segir að æskilegt sé að líta á grunnskólana báða
á Seltjarnarnesi sem eina skipulags- og stjórn-
unarheild. Þannig sé hægt að skapa sem mest-
an sveigjanleika í nýtingu starfsliðs, húsrýmis,
gagna, tækjabúnaðar og sérfræðiþekkingar.
Þetta sé því gert til að efla skólastarfið, auka
sóknarfæri kennara og bæta menntun nem-
enda.
Við sameiningu skólanna verður aðeins einn
skólastjóri. Jónmundur tekur skýrt fram að
ekki verði fækkað í starfsliði skólanna vegna
þessarar breytingar. Ef til vill þurfi að fjölga
millistjórnendum. Markmiðið sé ekki að skera
niður fjármagn sem bæjarfélagið leggi í
skólana heldur nýta hverja krónu betur.
Í tillögunni, sem samþykkt var af bæj-
arstjórninni í fyrradag, segir að grunnskólar
Seltjarnarness verði frá og með skólaárinu
2004–2005 gerðir að sameiginlegri fag- og
rekstrareiningu er lúti stjórn eins skólastjóra í
stað tveggja eins og nú er. Tilgangurinn sé að
skapa ölfuga skólaheild sem í senn búi yfir
sveigjanleika og frelsis smærri skóla og styrk-
leika og hagræði stærri skóla.
Deilan snýst að sumu leyti um það hvort ekki
hafi verið byrjað á vitlausum enda. Fyrst hefði
átt að ráðfæra sig við fólkið sem komi að skóla-
starfinu og skipuleggja undirbúninginn í sam-
ráði við það. Gagnrýni á efnislegan þátt málsins
heyrist síður. Þó hafa kennarar og starfsfólk í
Valhúsaskóla mótmælt harðlega hvernig sam-
eining skólanna var kynnt í fylgigögnum á fundi
bæjarstjórnar. Í ályktun segja þeir rökstuðning
við tillöguna algerlega marklausan og mót-
sagnakenndan.
Andstaðan er einnig mikil í starfsliði Mýr-
arhúsaskóla. Boðað var til skyndifundar á mið-
vikudagskvöld, strax að loknum bæjarstjórn-
arfundi. Þar var yfirlýsing samþykkt þar sem
fullum stuðningi við núverandi stjórnendur
skólans var lýst yfir og sagt að valdníðsla af
þessu tagi væri ekki viðunandi.
Yrði fimmti stærsti grunnskólinn
Í rökstuðningi kennara Valhúsaskóla segir
að það sé ekki rétt, sem fram komi í tillögu um
sameiginlega stjórn grunnskóla Seltjarnarness,
að í bænum starfi tveir fremur fámennir skólar
hvor á sínu skólastigi. Samkvæmt tölum frá
Hagstofu Íslands sé meðalstór grunnskóli á
landinu með 232 nemendur. Í Valhúsaskóla séu
313 nemendur en 453 í Mýrarhúsaskóla. Alls
séu þetta því 766 nemendur og yrði sameinaður
skóli sá fimmti stærsti í landinu.
Bent er á að í greinargerð Rannsóknarstofn-
unar Kennaraháskóla Íslands leggja höfundar
sérstaka áherslu í lokaorðum sínum að reynsl-
an sýni að affarasælast sé að vinna að öllum
skólabreytingum í nánu samráði við starfslið
skólanna og freldra. Góð umræða, kynning og
undirbúningsstarf sé mikilvæg forsenda þess
að vel takist til. Í nýsamþykktri tillögu sé ekki
gert ráð fyrir faglegri ákvarðanatöku, skóla-
nefnd sé ekki látin fjalla um málið og ekki sé
leitað eftir áliti foreldra.
Skýrslan fjallaði ekki um
sameiningu skólanna
Ingvar Sigurgeirsson, prófessor í Kenn-
araháskóla Íslands og annar höfundur skýrslu
Rannsóknarstofnunar KHÍ um grunnskóla Sel-
tjarnarness, segir greinargerðina sem vitnað er
til í þessu samhengi fjalla með engum hætti um
sameiningu skólanna. Sé greinargerðin notuð
til að mæla með eða gegn sameiningu skólanna
sé efni hennar slitið úr samhengi.
Aðspurður hvað honum finnist um samein-
ingu skólanna segir hann afskaplega æskilegt
að það sé einhver yfirsýn yfir skólastarfið í
bænum. Þegar skýrslan hafi verið rituð var í
umræðunni að setja t.d. fræðslustjóra yfir
skólana. Það komi til greina að sameina þessa
skóla en um leið sé ákaflega mikilvægt hvernig
að því sé staðið.
Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjóra-
félags Íslands, segir sameiningu ekki hafa kom-
ið inn á borð félagsins. Hennar skoðun sé sú að
þetta sé ekki rétt aðferð burtséð frá því hvort
sameiningin sé góð eða slæm. Hún segir það af-
ar siðlaust að ákveða þessa sameiningu án þess
að hafa samband við stjórnendur þessara skóla
og annað starfsfólk.
Þorsteinn Magnússon, formaður for-
eldraráðs Mýrarhúsaskóla, segir að ráðið hafi
fyrir nokkru pantað fund með bæjarstjóra. Þá
hafi þetta mál ekki verið komið upp. Fundinn
sátu auk bæjarstjóra, formaður skólanefndar
og grunnskólafulltrúi og var samþykkt bæj-
arstjórnar frá því á miðvikudag að sjálfsögðu
rædd en Þorsteinn vildi ekki greina frá efni
samtala á fundinum.
Hann segir að stjórn foreldraráðsins hafi í
kjölfarið komið saman og ákveðið að skora á
bæjarstjóra og formann skólanefndar Seltjarn-
arness að mæta á almennan foreldrafund til að
skýra sjónarmið sem liggja til grundvallar sam-
þykkt bæjarstjórnar, að sameina yfirstjórn
grunnskólanna í bænum. Jafnframt að leitað
yrði eftir samstarfi við foreldraráð Valhúsa-
skóla um að halda slíkan fund.
Katla Kristvinsdóttir, formaður foreldraráðs
Valhúsaskóla, segir fulltrúa foreldra ekki á
móti tillögu bæjarstjórnarinnar sem slíkri held-
ur meðferð hennar. Grundvöllur fyrir áfram-
haldandi farsælu starfi í skólanum sé samráð og
samvinna allra aðila. Því sé fólk svekkt og finn-
ist að betur hefði átt að standa að þessum mál-
um í þessu góða bæjarfélagi. Ályktun for-
eldraráðsins þar sem lýst var yfir óánægju með
þessi vinnubrögð var lesin upp á fundi bæj-
arstjórnar. Var óskað eftir faglegum undirbún-
ingi og kynningu á framkvæmdinni.
Katla minnir á að á skólanefndarfundi í mars
á þessu ári var rætt um að fá viðurkennda aðila
til að kanna kosti og galla sameiningar skól-
anna og hefja undirbúningsvinnu. Sú vinna hafi
ekki farið fram svo hún viti til.
Hálmstrá rökþrota manns
Sunneva Hafsteinsdóttir, sem situr í bæj-
arstjórn Seltjarnarness fyrir minnihluta Nes-
listans, segist hafa lagst gegn þessari tillögu og
lagt til á bæjarstjórnarfundi að henni yrði vísað
frá. Það hafi verið fellt af meirihluta sjálfstæð-
ismanna.
Hún segir eins og fram kom í máli Kötlu að
sameining skólanna hafi verið í eðlilegum far-
vegi í mars sl. Þá hafi verið samþykkt að fá fag-
legt mat á kostum og göllum sameiningar skól-
anna sem unnið væri af hlutlausum aðilum sem
vinni að skólamálum. Síðan komi þessi tillaga
frá meirihlutanum eins og þruma úr heiðskíru
lofti með fundargögnum fyrir bæjarstjórn-
arfund síðasta föstudag. Þar sé skrefið tekið til
fulls án nokkurrar faglegrar skoðunar eða sam-
ráðs við skólanefnd.
Sunneva segir bæjarstjóra vitna aftur og aft-
ur í skýrslu frá árinu 1999 sem var alls ekki um
sameiningu skólanna. Höfundur skýrslunnar
styður þá frásögn Sunnevu. Hún segir Jón-
mund leiða umræðuna á villigötur með því að
vitna í þessa skýrslu og það endurspegli mál-
flutning rökþrota manns að hennar mati. Hann
grípi þetta hálmstrá og það sé ekki vel gert
gagnvart fræðimönnunum.
Breytingar á skólum verða ekki gerðar með
því að ýta á einn takka að mati Sunnevu. Það
þurfi samvinnu allra ef snúa eigi skipinu og
taka aðra stefnu í málaflokknum. Henni finnst
allar breytingar og framfarir í skólastarfi
spennandi en ekkert gerist nema fólkið sé haft
með í ráðum og ákvörðunin hvíli á sterkum fag-
legum rökum. Starfið sé þess eðlis.
Bæjarstjóri komi á foreldrafund
Bæjarstjóri Seltjarnarness og formaður skólanefndar hafa
verið harðlega gagnrýndir í bæjarfélaginu fyrir máls-
meðferð tillögu þegar bæjarstjórnin samþykkti að sameina
yfirstjórn grunnskólanna á næsta ári. Björgvin Guðmunds-
son hefur fylgst með framvindu málsins.
Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Kristinn
bjorgvin@mbl.is