Morgunblaðið - 11.10.2003, Síða 18

Morgunblaðið - 11.10.2003, Síða 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ * 5 línur, tilboðið gildir til 31. desember 2003 Smáauglýsing á aðeins 500 kr.* Alltaf á laugardögum Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.* Almennt verð er 1.689 kr. Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum. Hafðu samband! Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is EFRAÍN Ríos Montt geturum flest talist óvenju-legur frambjóðandi í for-setakosningum. Í heima- landi sínu, Guatemala, er hann í hópi þekktari manna enda var hann um skeið einræðisherra og illræmdur fyrir grimmd og hörku. Hann er einnig trúmaður mikill og messaði á sínum tíma yfir alþýðu manna í sjón- varpi. Nú leitar hann eftir stuðningi í embætti forseta Guatemala og segir að hann muni leita til guðs eftir hjálp við að leysa djúpstæðan vanda lands- manna. Í viðtölum segir Ríos Montt að mikilvægasta verkefnið í Guatemala sé að tryggja friðinn og fá landsmenn til að halda áfram vegferð sinni í stað þess að festast í fortíðinni. Ekki kem- ur á óvart að frambjóðandinn haldi þessum framtíðar-boðskap á lofti þegar hafður er í huga hlutur hans í sögu landsins. Ríos Montt heldur nú kosningafundi vítt og breitt um land- ið. Og hann virðist eiga sér ýmsa bandamenn; hann hefur m.a.s. komið fram með fyrrum foringja skæruliða í Guatemala. Kannanir gefa til kynna að margir séu tilbúnir að hlusta. Ríos Montt heldur því fram að hann sæti árásum fyrir þær sakir ein- ar að ríkisstjórn hans fór með sigur af hólmi í borgarastyrjöldinni blóð- ugu í landinu sem stóð í 36 ár. Frambjóðandinn er 77 ára gamall og kveðst bjartsýnn fyrir hönd þjóð- arinnar. Landsmenn megi hins vegar ekki festast í hinu liðna; þeir þurfi að horfa fram á við. Guatemala er lítið ríki í Mið- Ameríku. Þar búa rúmar 12 miljónir manna. Landsmenn eru flestir fátæk- ir og búa við einhverja þá mestu mis- skiptingu auðsins sem þekkist í þess- um heimshluta. Tæp 2% þjóðarinnar eru talin ráða yfir 58% þjóðarauðsins og níu af hverjum tíu íbúum draga fram lífið undir fátæktarmörkum. Glæpaverk og trúboð Efraín Ríos Montt herforingi rændi völdum í Guatemala árið 1982. Hann ríkti aðeins í eitt ár því und- irsátarnir risu upp gegn honum. Hann fór hins vegar með völdin þeg- ar borgarastríðið var í hámarki og stjórnarherinn og vinstrisinnaðir skæruliðar háðu marga blóðuga orr- ustuna. Hann er sakaður um að hafa staðið fyrir fyrir ýmsum hroðalegum aðgerðum. Einræðisherrann fyr- irskipaði m.a. hermönnum að upp- ræta þorp fjalla-indíána til að koma í veg fyrir að skæruliðar gætu fengið þar skjól og vistir en hann fullyrti að uppreisnaröflin nytu aðstoðar þeirra. Þyrlur voru sendar til loftárása á vopnlausa indíana. Tugir þúsunda manna féllu. Dauðasveitir stjórn- valda voru einnig stofnaðar að und- irlagi einræðisherrans. Friður komst loks á í Guatemala í desember 1996. Þá höfðu um 200.000 manns týnt lífi í borgarastríðinu. Mannréttindasamtök segja að stjórn Ríos Montt beri ábyrgð á mörgum hroðalegustu grimmdarverkunum í sögu Rómönsku-Ameríku. Einræð- isherrann fyrrverandi hefur m.a. ver- ið ákærður fyrir þjóðarmorð vegna óhæfuverka sem framin voru í valda- tíð hans. Ríos Montt stofnaði Lýðveldisfylk- ingu Guatemala (Frente Republicano Guatemalteco, FRG), flokkinn sem nú ræður forsetaembættinu í land- inu. Hann var forseti þingsins í Guatemala en hefur nú tekið sér leyfi frá störfum til að taka þátt í forseta- kosningunum sem fram fara 9. nóv- ember. Vinir einræðisherrans fyrr- verandi í hæstarétti Guatemala tryggðu honum rétt til að bjóða sig fram þrátt fyrir að lög séu í gildi í landinu þess efnis að fyrrum valda- ræningjar megi ekki gefa kost á sér til opinberra embætta. Sigri Ríos Montt mun hann áfram njóta þeirrar friðhelgi sem komið hefur í veg fyrir að hann hafi verið dreginn fyrir rétt. Tapi hann á hann á hættu að glata friðhelginni. Ríos Montt kveðst telja að íbúar Guatemala geti upprætt spillinguna, bætt efnahaginn og stöðvað ofbeldis- ölduna sem riðið hefur yfir með því að fylgja kristnum siðareglum. Hann forðast að gera nákvæmari grein fyr- ir stefnu sinni en segir að sem forseti muni hann „aldrei þvinga þjóðina“. Hann kveðst hins vegar fylgjandi því að afdráttarlaust, kristilegt gildismat verði upphafið í samfélaginu því ella muni þjóðin villast af leið. Stjórn hins „góða fordæmis“ Er Ríos Montt fór með völdin í Guatemala voru reglur skýrar og af- dráttarlausar. Útgöngubanni var komið á. Hann hefti sölu á áfengi og bannaði notkun þess við ákveðin tækifæri. Á hverjum sunnudegi flutti hann síðan stólræður í beinni útsend- ingu í sjónvarpi þar sem hann mess- aði yfir kaþólskum söfnuði. Verði hann forseti hyggst hann stjórna landinu með „góðu fordæmi“, gera aðeins það sem er „viðeigandi, réttlátt og sanngjarnt“. Hann kveðst einn frambjóðenda geta skapað „við- eigandi siðferðisgrundvöll“ í landinu. „Ef við viljum tryggja siðlegt fé- lagslegt kerfi verður það að byggjast á andlegum og siðferðislegum gildum sem eru öllum hagsmunum æðri,“ segir hann. Fyrrum vinir skipta um skoðun Stjórnvöld í Bandaríkjunum studdu á sínum tíma einræðisstjórn Efraín Ríos Montt. Í desem- bermánuði árið 1982 sagði Ronald Reagan, þáverandi forseti Bandaríkj- anna, að Ríos Montt væri „vammlaus maður“ sem yrði fyrir óréttmætum árásum á sviði mannréttinda. Frambjóðandinn er sýnilega stolt- ur af vináttunni við Reagan og sýnir gjarnan ljósmynd af þeim tveimur. Afstaða ráðamanna í Bandaríkjunum hefur hins vegar breyst. Bandaríska utanríkisráðuneytið skýrði frá því fyrr í ár að sigur hans í forseta- kosningunum myndi hafa skaðleg áhrif á samband Bandaríkjanna og Guatemala. Frambjóðandinn segir það engu breyta: „Það er vilji fólksins sem skiptir máli.“ Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum mun Rios Montt tæpast fara með sigur af hólmi. Hann er nú í þriðja sæti. En fylgi við hann fer vax- andi. Hugsanlegt er að hann nái öðru sætinu og tryggi sér þar með þátt- tökurétt í seinni umferð kosninganna sem fram fer 28. desember fái enginn frambjóðandi hreinan meirihluta í þeirri fyrri. Frambjóðandinn hvatti stuðningsmenn sína í fyrradag til að herða róðurinn á lokasprettinum en virtist sýnilega hafa af því áhyggjur að aðdáendurnir væru fullsáttir við fylgisaukningu síðustu vikna. „Þið er- uð orðin södd en baráttuhugur minn fer enn vaxandi. Við munum ná 50,1% og vinna. Nú eru fáir dagar til kosn- inganna og við getum ekki leyft okk- ur að nýta ekki tímann,“ sagði Ríos Montt á kosningafundi að sögn dag- blaðsins Prensa Libre í Guatemala. Margir virðast telja að Ríos Montt einn geti sigrast á glæpaöldunni sem riðið hefur yfir Guatemala frá því að borgarastríðinu lauk. „Ef ferill minn er skoðaður í ljósi laganna sést að ég virti alltaf lögin,“ segir Efraín Ríos Montt. Hann hefur einnig reynt að nýta til fullnustu óánægju með einka- væðingu undangenginna ríkisstjórna sem hann segir hafa það eitt í för með sér að auðurinn safnist á enn færri hendur en áður. Áberandi í málflutn- ingi hans og stuðningsmannanna er sú fullyrðing að örlítill hópur manna ráði öllu í landinu. Í fótspor Banzers? Ekki er óþekkt að fyrrum einræð- isherrar snúi aftur til valda sem lýð- ræðislega kjörnir forsetar í löndum Rómönsku-Ameríku. Má hafa það til marks um örvæntinguna sem fátækt- in getur af sér í mörgum þessara landa. Þannig var Hugo Banzer kjör- inn forseti Bólivíu árið 1997. Hann fór fyrir herforingjastjórn í landinu á ár- unum 1971-1978 en var í framboði í öllum lýðræðislegum kosningum sem haldnar voru í landinu á níunda og tí- unda áratugnum. Hann náði loks kjöri sem forseti árið 1997 og átti hann rétt ár eftir af kjörtímabilinu er hann sagði af sér í ágústmánuði 2001. „Ég virti alltaf lögin“ Reuters Efraín Ríos Montt, fyrrverandi einræðisherra í Guatemala og nú forseta- frambjóðandi, ávarpar stuðningsmenn Lýðveldisfylkingarinnar (FRG). ’ Mannréttinda-samtök segja að stjórn Ríos Montt beri ábyrgð á mörg- um hroðalegustu grimmdarverkunum í sögu Rómönsku- Ameríku. ‘ Fyrrum einræðisherra í Guatemala leitar nú eft- ir lýðræðislegu umboði til að stjórna landinu. Ásgeir Sverrisson segir frá Efraín Ríos Montt. GÆSLUVARÐHALD Mijailo Mijailovic, meints morðingja Önnu Lindh, utanríkisráð- herra Svíþjóðar, var í gær framlengt um tvær vikur. Fá saksóknarar þá aukinn tíma til að afla sönnunargagna í málinu. Rannsóknir á DNA- erfðaefni í lífsýnum sem fund- ust á morðstaðnum þykja renna stoðum undir grun um að Mijailovic hafi myrt Lindh en hún var stungin til bana í verslun í Stokkhólmi 10. sept. sl. Kínversk geimferð í næstu viku KÍNVERSK stjórnvöld sögðu í gær að í næstu viku, á tíma- bilinu 15.–17. október, yrði mönnuðu geimfari skotið á braut um jörðu, að sögn op- inberu fréttastofunnar Xinh- ua. Væri ráðgert að geimfarið færi 14 hringi um jörðu áður en það svifi aftur til jarðar. Aðeins þrír fjölmiðlar hafa fengið leyfi til að senda full- trúa sína til geimferðamið- stöðvar Kína til að fylgjast með geimskotinu. Eru það Xinhua, Dagblað alþýðunnar og kínverska ríkissjónvarpið. Arafat sagð- ur við betri heilsu YASSER Arafat, leiðtogi Pal- estínumanna, tók þátt í hefð- bundnum föstudagsbænum múslíma í aðalstöðvum sínum í borginni Ramallah á Vest- urbakkanum í gær. Virtist hann vera við sæmilega heilsu, gat kropið margsinnis og staðið upp hjálparlaust. Mikið hefur verið fjallað um heilsu hans síðustu daga, læknar hans segja að leiðtog- inn hafi fengið slæma maga- kveisu. Sumir fjölmiðlar sögðu að Arafat hefði fengið vægt hjartaáfall eða að hann væri með magakrabbamein og gæti þurft á aðgerð að halda en læknarnir vísuðu þessum fregnum á bug. Arafat er 74 ára gamall. Rakst ekki á Nessie BRESKI kafarinn Lloyd Scott lauk í fyrradag við „maraþonhlaup“ á botni Loch Ness-stöðuvatnsins í Skot- landi, klæddur gömlum og þunglamalegum kafarabúnaði. Þá hafði hann lagt að baki um 40 kílómetra leið og er þetta lengsta köfunarganga sem vit- að er um. Á göngunni sá hann ekki hið fræga skrímsli, öðru nafni Nessie. Scott safnaði með göngunni áheitum fyrir góðgerðarsamtök sem aðstoða börn er þjást af hvítblæði. STUTT Varðhald framlengt Arafat (lengst t.h.) við bænir í gær. LEIÐTOGAR Suðaustur-Asíuríkja komu sér í vikunni saman um að hvetja til þess að gengið yrði markvissar til verks við að skapa samræmdan innri markað í heims- hlutanum, að evrópskri fyrirmynd. Jafnframt hétu leiðtogarnir því í lokaályktun fundar þeirra á orlofs- eynni Balí í Indónesíu að herða að- gerðir gegn hryðjuverkaógninni. Leiðtogarnir, ýmist forsetar eða ríkisstjórnarleiðtogar frá hinum 10 aðildarríkjum Samtaka Suðaustur- Asíuríkja (ASEAN), létu alveg vera að gagnrýna herforingja- stjórnina í Búrma (Myanmar), þrátt fyrir herferð sem í því lok- aða landi virðist vera í gangi gegn stjórnarandstöðuhreyfingu Aung San Suu Kyi. Hvöttu leiðtogarnir ennfremur til að sex-hliða viðræður um kjarn- orkumál Norður-Kóreu yrðu hafn- ar á ný sem fyrst. SA-Asíuríki skapi eigin innri markað Nusa Dua á Balí. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.