Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 22
F
IMM ár eru um þessar
mundir frá því Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar
var sett á laggirnar á
Akureyri. „Tíminn hef-
ur liðið hratt og ýmislegt áunnist,“
sagði Níels Einarsson, forstöðumað-
ur stofnunarinnar, þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann í tilefni tíma-
mótanna.
„Íslendingar gleyma því stundum
að Vilhjálmur var Kanadamaður;
Stefánsson var ekki föðurnafn hans
heldur ættarnafn. Faðir hans hét Jó-
hann Stefánsson.“ Jóhann og eig-
inkona hans voru í hópi Íslendinga
sem fluttu úr Eyjafirði til Manitoba
1876 og þar fæddist Vilhjálmur 1879.
Nú er 41 ár frá því Vilhjálmur lést
en Níels segir rannsóknir hans og
verkefni enn býsna vinsælt viðfangs-
efni.
Árangur sem erfiði
Níels segir að stofnunin hafi hlotið
góðar viðtökur.
„Það getur verið erfitt að mæla ár-
angur svona stofnunar. En sam-
kvæmt mælistikum árangursstjórn-
unar höfum við tekið að okkur ýmis
verkefni, ekki síst í alþjóðlegu sam-
starfi, og haft árangur sem erfiði.
Núna erum við til dæmis með á okkar
könnu umsvifamikil alþjóðleg sam-
starfsverkefni. Það er mikil þörf fyrir
upplýsingar um norðurslóðir; mann-
líf, náttúru og auðlindanýtingu.“
Fjórir starfsmenn eru fastráðnir
við stofnun Vilhjálms Stefánssonar
og fleiri starfa þar við ýmis verkefni.
fastir og fleiri „Þá tengjast okkur
sérfræðingar á ýmsum stöðum um
allan heima sem ráðgjafar. Og hingað
koma reglulega gistifræðimenn.“
Eitt þeirra verkefna sem stofnunin
hefur unnið í samstarfi við Norður-
slóðastofnanir í Evrópu og Norður-
Ameríku er upplýsingaveita um norð-
urslóðir á Netinu. „ESB og Norræna
ráðherranefndin styrktu það verkefni
myndarlega. Þar er að finna upplýs-
ingar um samfélög, um umhverf-
isbreytingar og um málefni sjálf-
bærrar þróunar á norðurslóðum, eftir
viðurkennda sérfræðinga á fimm
tungumálum – sem er óvenjulegt með
upplýsingaveitur á Netinu. Efnið er
sett fram mjög myndrænt og að-
gengilegt fyrir almenning, lærða sem
leika,“ segir Níels.
„Þetta er tilraun til að gera að-
gengilegar upplýsingar um það sem
efst er á baugi, um lífsskilyrði á norð-
urslóðum, fyrir almenning um allan
heim sem hefur ekki endilega aðgang
að slíkum upplýsingum. Það er gerð
tilraun til þess að vekja athygli á lífs-
skilyrðum hins almenna norð-
urslóðabúa og þannig vekja athygli
og kannski samúð með kjörum þessa
fólks og lífsskilyrðum.“
Níels fullyrðir að framtíð norð-
ursvæðanna sé ekki síst í höndum
þeirra sem sunnar búa. „Efnahags-
lega, félagslega og umhverfislega.
Það er því brýnt að þeir sem sunnar
búa á hnettinum geri sér grein fyrir
þessu nána sambandi. Þetta er eitt af
þeim alþjóðlegu samvinnuverkefnum
sem við höfum tekið þátt í, og reynd-
ar stjórnað.“
Hann nefnir að stofnunin sé „á
kafi“ í því verkefni sem formennska
Íslands í Norðurskautsráðinu er.
„Stofnunin er aðsetur verkefnisins og
sér um að samhæfa og hafa umsjón
með verkefninu og til þess hefur verið
ráðinn sérfræðingur sem verkefn-
isstjóri. Þetta er veigamikið verkefni;
tilraun til að taka saman, með aðstoð
sérfræðingahóps frá öllum norð-
urslóðaríkjunum, yfirlit um lífskjör á
norðurslóðum. Þetta hefur aldrei ver-
ið gert. Norðurskautssvæðið hefur
látið taka saman greinargerð, yfirlit
um stöðu mengunarmála og líf-
fræðilega fjölbreytni – en nú er komið
að samfélögum og mannahópum.
Verkefnið tekur til allra mannhópa á
norðurslóðum, ekki eingöngu frum-
byggja. Þetta er verulega mikilvægt
verkefni og veigamikið sem stofn-
uninni hefur verið treyst fyrir að hafa
umsjón með.“
Hann segir verkefnið falla vel að
áherslum stofnunarinnar þar sem
hugtakið sjálfbær þróun – „sem má
skilgreina sem ábyrga samfélags- og
efnahagsþróun í sátt við umhverfið“ –
er í miðdepli. „Okkar starf miðast að
því að taka þátt í alþjóða samstarfi á
þessu sviði. Fyrir litla þjóð á borð við
Íslendinga, sem er svo háð auðlinda-
nýtingu og umhverfi, er bráðnauð-
synlegt að taka þátt í alþjóða-
samvinnu, og flest okkar verkefni
hafa þetta að leiðarljósi.“
Mikil viðurkenning
Adrienne Clarkson, landstjóri
Kanada, sem hóf opinbera heimsókn
til Íslands í gær, sækir stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar heim á mánu-
daginn og flytur þá minningarfyr-
irlestur Vilhjálms. „Ég lít svo á að
það sé mikil viðurkenning á starfi
stofnunarinnar, enda höfum við átt
sérstaklega gott samstarf við Kan-
adamenn, stofnanir og samtök, á
þessum fimm árum,“ segir Níels. „Í
heimsókninni verður lögð sérstök
áhersla á mikilvægi hins félagslega
arfs, menningar, fyrir lífvænleika
samfélaga á norðurslóðum og hvað
hægt er að gera til að miðla upplýs-
ingum um hvaða þættir það eru í
samfélögum sem gera það að verkum
að sum samfélög komast betur af en
önnur og hvernig miðla má slíkri
þekkingu um norðurskautssvæðið.“
Níels segir það hafa komið af-
skaplega vel út að stofnunin sé stað-
sett á Akureyri. „Við vitum ekki
hvernig stofnunin hefði þróast ef hún
hefði verið sett niður í Reykjavík, en
Akureyri er vaxandi nafn í norð-
urslóðasamstarfi. Hér er stofnun Vil-
hjálms, við höfum höfum haldið hér
fjölda ráðstefna og funda um norð-
urslóðamálefni og hér á Akureyri eru
líka tvær skrifstofur Norðurskauts-
ráðsins staðsettar og halda báðar
uppi öflugri starfsemi. Það hefur í för
með sér að bærinn er orðinn þekktur
sem norðurslóðabær.
Kannski þess vegna hefur ekki ver-
ið erfitt að fá hér mjög hæfa starfs-
menn og þeir gistifræðimenn sem hér
hafa verið, eru hæstánægðir með
dvölina. Með nútíma samskiptatækni
er staðsetning stofnunarinnar ekki
vandamál.“
Mikil þörf fyrir upplýsing-
ar um norðurslóðir
Fimm ár í sept-
ember frá því
Stofnun Vil-
hjálms Stefáns-
sonar hóf störf
Starfsmenn og gestir: Vladimir Vasiliev og Yana Alexandrova, gestafræðimenn frá Jakútíu í Rússlandi, Lára Ólafsdóttir skrifstofustjóri, Níels Einarsson
forstöðumaður, hin grænlenska Joan Nyman Larsen deildarstjóri og Jón Haukur Ingimundarson sviðsstjóri við húsnæði stofnunarinnar við Norðurslóð.
Morgunblaðið/Kristján
Árangur sem erfiði: Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms
Stefánssonar á Akureyri, segir margt hafa áunnist á fimm árum.
AKUREYRI
22 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Tók bíl ófrjálsri hendi | Héraðs-
dómur Norðurlands eystra hefur
dæmt tvo karlmenn á þrítugsaldri í
35 daga skilorðsbundið fangelsi og til
að greiða sekt fyrir að taka bíl
ófrjálsri hendi á Húsavík og aka hon-
um utan vega í bænum. Annar mað-
urinn var dæmdur til að greiða 30
þúsund krónur í sekt, en hann hafði
ekki endurnýjað ökuskírteini sitt.
Hinn maðurinn var dæmdur til að
greiða 25 þúsund krónur í sekt.
Af því bara | Lovísa Lóa Sigurð-
ardóttir myndlistarmaður opnar sýn-
inguna „Af því bara er ekkert svar“ á
Kaffi Karólínu Akureyri, í dag, laug-
ardag 11. október kl. 14. Sýningin
samanstendur af málverkum unnum í
olíu og blandaðri tækni á striga.
Lovísa Lóa lærði myndlist í Finn-
landi og Edinborg, einnig látbragðs-
leik í Kaupmannahöfn
Sýningin stendur til 7. nóvember
næstkomandi.
ÞRJÚ fyrirtæki hafa opnað skrif-
stofur í húsnæði við Hvannavelli þar
sem bílasala Hölds var áður til húsa.
Eitt fyrirtækjanna er að hefja starf-
semi nú; Margt smátt – Bolur Norð-
urland, sem selur auglýsingavörur af
ýmsu tagi auk þess að sjá um merk-
ingar og skiltagerð, en hin eru tölvu-
fyrirtækið EJS og Símaland sem
fluttu sig um set innanbæjar. Á
myndinni er Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson, sem rekur Margt smátt –
Bol á Akureyri, í miðjunni, og tveir
starfsmanna fyrirtækisins í Reykja-
vík, Rúnar Ívarsson, til vinstri, og
Árni Esra Einarsson markaðsstjóri.
Þrjú undir
sama þaki
Morgunblaðið/Kristján
Seiðandi suðrænir tónar | Hjónin
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Jav-
ier Jauregui gítarleikari koma fram á
tónleikum í Ketilhúsinu á Akureyri í
hádeginu á þriðjudag, 14. október, kl.
12.15. Efnisskráin er fjölbreytt og ljúf
segir í frétt um tónleikana, þjóðleg en
einnig með alþjóðlegu ívafi. Þar munu
vísur Vatnsenda-Rósu heyrast sem
og ítölsk lög og lög við ljóð Garcia
Lorca.
Gamlar myndir | Opnuð hefur ver-
ið í Minjasafninu á Akureyri sýning
á ljósmyndum Lenharðs Helgason-
ar. Um er að ræða mannlífsmyndir
frá árunum 1953 og 1954. Lenharður
keyrði kjörbúðarbíl Kaupfélags Ey-
firðinga og var alltaf með myndavél í
bílnum og myndaði mikið.
„ÉG er stundum spurður hvort
því fylgi ekki erfiðleikar að
stofnunin beri nafn þessa þekkta
og umdeilda manns. Ég svara því
til að svo sé ekki. Auðvitað var
Vilhjálmur töluvert umdeildur á
sínum tíma og er ennþá en arf-
leifð Vilhjálms Stefánssonar er
ákalega frjó og mikils virði; hug-
sjón hans og sýn á framtíð norð-
urslóða og eðli lífsskilyrða á
norðurslóðum. Sífellt er hægt að
sækja í þann hugmynda- og fróð-
leiksbrunn sem Vilhjálmur
byggði með sínu lífsstarfi. Það
hefur verið sagt um Vilhjálm að
hann sé svo heillandi karakter að
best sé að forðast hann; lífshlaup
hans sé eins og hvalur sem gleypi
hvern þann sem reynir að segja
frá því. Það er örugglega rétt að
umfjöllun um Vilhjálm hefur
gleypt marga og um hann eru
gerðar heimildamyndir og skrif-
aðar lærðar bækur, og það er
ágætt að slík umfjöllun sé fyrir
hendi. Verra er þegar fjallað er
um Vilhjálm á rætinn og ósann-
gjarnan hátt og slík umfjöllun
hefur reyndar sérstaklega komið
fram í bókum um Karluk slysið.
Þar hefur umfjöllunin jaðrað við
persónuníð og rógsherferð. Vil-
hjálmur sjálfur tók slíkum árás-
um með stökustu ró og svaraði
aldrei í sömu mynt og ég hygg að
þeir sem kynna sér vel stað-
reyndir málsins og frásagnir
sagnfræðinga líti málið í öðru
ljósi.“
Arfleifð Vilhjálms frjó og mikils virði
STUTTMYND eftir ungan Ak-
ureyring, Elvar Guðmundsson,
verður sýnd í Sambíóinu á Ak-
ureyri, Nýja bíói næstu þrjá daga,
sunnudag, mánudag og þriðjudag,
12. til 14. október. Tvær sýningar
eru hvern dag, sú fyrri kl. 18 og hin
síðari kl. 19. Myndin heitir Fautar
og villimeyjar og er að sögn Elvars
gamansöm hasarmynd. Aðgangur
er ókeypis.
Fautar og villimeyjar
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Norðausturkjördæmi
verður haldinn í Deiglunni á Akureyri
í dag, laugardaginn 11. október kl
13:30. Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa munu þingmenn kjördæm-
isins, þau Steingrímur J. Sigfússon
og Þuríður Backman flytja stutt
ávörp. Allir eru velkomnir á fundinn.
Vinstri-grænir funda
♦ ♦ ♦