Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 25

Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 25 Borgarnesi | Jóhannes Arason opn- ar sýningu í Listasafni Borgarness kl. 16 í dag, laugardag. Sýningin ber yfirskriftina „Þetta þarf skýr- ingar við“ og gefur þar að líta út- skornar klukkur, leirmunir og mál- verk. Einnig er á sýningunni ljósmyndir af grjóthleðslum Jó- hannesar og endurbyggingum á gömlum torfhúsum, þ.á m. er bað- stofan í Seljalandi sem Jóhannes byggði á árunum 1990–1994. Jóhannes Arason er fæddur þann 30. september árið 1913 í Múla í Kollafirði. Hann útskrifaðist sem búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1935 og rak bú í áratugi. Árið 1980 sneri Jóhannes sér alfarið að torfi og grjóthleðslu og má víða sjá handbragð hans um sveitir landsins. Hann hefur m.a. komið að endurbyggingum á göml- um torfhúsum og má þar nefna Glaumbæ, Saurbæ í Eyjafirði, „Hjallinn“ í Vatnsfirði, Stóru Akra í Skagafirði og Hóla í Hjaltadal. Allt frá árinu 1986 hefur Jóhann- es fengist við útskurð og fyrir rétt liðlega fimm árum síðan sneri hann sér jafnframt að listmálun. Sýn- ingin í Listasafni Borgarness er sett upp í tilefni af 90 ára afmæli Jóhannesar og er þetta hans fyrsta einkasýning. Sýningin er opin virka daga kl. 13–18 og til kl. 20 á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. Sýningin stendur til 5. nóvember. Jóhannes Arason fyrir utan baðstofuna í Seljalandi. „Þetta þarf út- skýringar við“ Jóhannes Arason heldur upp á 90 ára afmælið með fyrstu einkasýningunni Ísafirði | Bæjarstjóri og formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar vilja aukin framlög í Húsafriðunarsjóð og jafnframt að ábyrgð sjóðsins á ákvörðunum hans verði aukin. Þetta kemur á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði. Á fundi sem Halldór Halldórsson bæjarstjóri og Guðni Geir Jóhann- esson, formaður bæjarráðs Ísa- fjarðarbæjar, áttu með fjár- laganefnd Alþingis fyrir skömmu, tilkynntu þeir að bærinn hygðist sækja um fjárframlag úr Húsafrið- unarsjóði til endurbyggingar gamla barnaskólahússins við Aðalstræti á Ísafirði. Í erindi þeirra til fjár- laganefndar segir svo: „Bæj- arstjórn Ísafjarðarbæjar tók ákvörðun fyrir 3–4 árum um að rífa gamla barnaskólann á Ísafirði en húsið er að grunni til frá 1901. Ákvörðun þessi var tekin vegna þess að húsið hentar illa inn í heild- arfyrirkomulag á svæðinu, tekur mikið pláss en rými þess nýtist ekki vel miðað við nútímakröfur. Auk þess liggur fyrir að gríðarlegur kostnaður fylgir því að gera húsið upp. Húsafriðunarsjóður ríkisins stöðvaði þessa ákvörðun með einni ákvörðun og bæjarstjórn varð að fella gamla barnaskólann að hug- myndum um framtíðaruppbygg- ingu í húsnæðismálum Grunnskól- ans á Ísafirði. Nú verður sótt um til Húsafrið- unarsjóðs vegna fyrsta áfanga í að gera gamla barnaskólann upp. Sótt verður um 50% af framkvæmda- kostnaði eða 6.000.000 kr. að þessu sinni. Miðað við getu sjóðsins má þykja gott ef hann úthlutar 600.000 kr. því þótt Húsafriðunarsjóður geti lagt þungar byrðar á eigendur gamalla húsa fylgir því engin ábyrgð af hálfu sjóðsins. Undirrit- aðir vilja vekja athygli fjár- laganefndar á þessari staðreynd,“ segir í erindi bæjarstjóra og for- manns bæjarráðs. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2004 er gert ráð fyrir rúmum 66 milljónum króna til Húsafriðunarsjóðs. Vilja aukin framlög í Húsa- friðunarsjóð Í ný störf | Snorri Björn Sigurðs- son, fyrrverandi sveitarstjóri Sveit- arfélagsins Skagafjarðar, hefur ver- ið ráðinn forstöðumaður þróunar- sviðs Byggðastofnunar. Þá hefur Valbjörn Steingrímsson rekstrarfræðingur verið ráðinn framkvæmdastjóri Heilbrigðis- stofnunarinnar á Blönduósi.    Sportbar | Nýr sportbar verður opnaður í dag í húsi Valaskjálfar á Egilsstöðum. Opnunarleikur Sport- barsins er viðureign Íslendinga og Þjóðverja kl. 15, en opnunarteiti hefst kl. 14 með léttum veitingum og upphitun fyrir leikinn. Sett hefur verið upp gervihnattakerfi sem veit- ir aðgang að flestum stórleikjum á íþróttasviðinu. Vopnafirði | „Uppboðsmarkaðirnir eru spennandiz,“ segir Einar Þór Sigurjónsson hjá Fiskmarkaði Vopnafjarðar. Einar og sonur hans Steinþór eiga og reka Fiskmark- aðinn, sem var stofn- aður af Einari og eldri syni hans í litlu leigu- húsnæði á bryggjunni árið 1994. „Fyrsta árið gekk ágætlega og í kjölfarið keyptum við þetta hús sem við erum nú í,“ segir Einar. „Við þurftum að breyta því mikið og búið að ganga upp og ofan síðan. Við seljum allan þann fisk sem við erum beðn- ir um að selja, en vinnum jafnframt vel með fiskverkunum, jafnt hér sem annars staðar“ heldur Einar áfram. „Stundum vilja menn ekki nýta smáfiskinn og þá seljum við hann fyrir þá. Við seljum fisk frá Bakkafirði, Vopnafirði og Borg- arfirði. Í dag vorum við til dæmis að selja af Brettingi og það fer á bíl núna á eftir. Helstu kaupendur okk- ar eru fyrir sunnan, suður með sjó, í Vestmannaeyjum og á Dalvík. Mað- ur verður ekki feitur af þessum við- skiptum en þetta sleppur til.“ Einar segist vera ánægður með björgun Tanga, eins og hann kallar það. „Ég er hrifinn af þeim björg- unaraðgerðum, þær eru nauðsyn- legar. Þeir auglýstu eftir hluthöfum og ég veit svo sem ekki hversu margir bæj- arbúar fara í að kaupa hlutabréf. Hlutabréfa- markaðurinn er hættulegur að vissu marki. Einhverjir menn úti í bæ eiga hluti hingað og þangað og eru ekkert að velta því fyrir sér að fólk haldi vinnu sinni á landsbyggðinni. Þeir horfa bara á arðinn og ef hann lukkast ekki þá taka þeir kvótann burt,“ segir Einar. „Ef Eskfirðingar taka kvótann erum við hér búin að vera,“ segir Steinþór. „Fari Tangi og kvótinn af staðnum þá leggur allt annað upp laupana, það segir sig sjálft.“ Feðgarnir minnast á að íbúðaverð hafi hækkað á Vopnafirði og þrátt fyrir vandræðin með Tanga virðist eins og fólk sé nú jákvæðara að kaupa sér húsnæði en áður. „Fólk sem var kannski búið að leigja í mörg ár hrekkur nú allt í einu til og fer að kaupa sér,“ segir Einar. Hann bætir því við að hver sé sinnar gæfu smiður og það gildi jafnt um Vopn- firðinga sem aðra í heimi hér. Verður ekki feitur af því að höndla með fisk Einar Þór Sigurjónsson Íbúðabyggingar | Skipulags- yfirvöld á Austur-Héraði hafa á síð- ustu vikum og mánuðum úthlutað eða lofað fyrirtækjum og ein- staklingum lóðum fyrir um fjögur hundruð íbúðir. Á heimasíðu sveit- arfélagsins kemur fram að þessi íbúðafjöldi samsvari því að nú sé í uppbyggingu á Austur-Héraði íbúðarhúsnæði fyrir um eitt þúsund og eitt hundrað íbúa. Stjórnendur sveitarfélagsins telja sig vinna skipulagsmál í réttu samhengi við eftirspurn og framkvæmdir og hafa góða stjórn og yfirsýn á uppbygg- ingu svæðisins.    ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfossi | „Svona kóramót hefur ekki verið haldið áður,“ segir Valdi- mar Bragason, formaður Karlakórs Selfoss, sem stendur fyrir stór- tónleikum í dag klukkan 17.00 í Íþróttahúsinu á Selfossi. Þá koma sjö karlakórar saman á kóramóti og mynda stórkór með 300 körlum sem syngja munu saman nokkur þekkt kóralög. Þeir sem taka þátt í mótinu eru auk Karlakórs Selfoss, Karlakórinn Fóstbræður, Karlakórinn Jökull frá Hornafirði, Karlakór Rangæinga, Karlakór Hreppamanna, Karlakór Keflavíkur og Lögreglukórinn. Í til- efni þess að 110 ár eru liðin frá fæð- ingu Páls Ísólfssonar tónskálds munu kórarnir syngja saman lagið Brennið þið vitar. „Upphafið að þessu kóramóti má rekja til þess að Fóstbræður ætluðu í heimsókn til Hafnar í Hornafirði til að halda tónleika þar með Karla- kórnum Jökli. Þeir urðu ásáttir um að hittast frekar á Selfossi og syngja þar saman með Karlakór Selfoss. Síðan fór þetta að hlaða utan á sig og nú eru þetta sjö kórar sem koma hér saman,“ segir Valdimar Braga- son sem segir kóramótin mjög gef- andi samkomur bæði fyrir kórfélaga og áheyrendur. „Við fáum að kynn- ast starfinu hver hjá öðrum. Þetta eru mismunandi kórar og við lærum af efnistökum hinna og sjáum hvern- ig þeir bera sig að. Svo fá áheyr- endur tækifæri til að hlusta á alla þessa kóra sem eru með 20–30 karla upp í ríflega 60 í hverjum kór. Mað- ur er auðvitað mjög spenntur að sjá þetta samstarfsverkefni okkar og Karlakórsins Fóstbræðra ganga upp en Eyþór Eðvarðsson, formaður þeirra, hefur unnið mikið að þessu með okkur,“ segir Valdimar. Á tónleikunum mun hver kór syngja þrjú lög og síðan syngja þeir fjögur saman. Að loknum tónleik- unum heldur Karlakór Selfoss árshátíð sína í Hótel Selfoss og munu þar verða 350–400 manns að skemmta sér. Konur karlakórs- manna koma með þeim á kóramótið í dag og verður sérstök skoð- unardagskrá fyrir þær á meðan karlarnir liðka raddböndin fyrir tón- leikana. Félagsskapurinn er aðdráttarafl „Það er bæði áhugi fyrir góðum söng og ekki síður félagsskapurinn sem dregur mann í karlakór. Það er mjög gefandi að vera í þesum fé- lagsskap. Svo er alltaf eitthvað nýtt á ferðinni á hverju ári. Núna erum við til dæmis me0ð tvö ný lög sem eru útsett af Helenu Káradóttur, tónlistarkennara á Selfossi, og Þóri Baldurssyni, tónlistarkennara í Reykjavík. Þannig erum við alltaf að bæta við söngflóruna hjá okkur. Það er spennandi að æfa söng- skrána yfir veturinn með mönnum sem leggja sig fram um að gera vel og þegar vel tekst til er þetta ólýs- anlega gaman. Menn verða að ein- beita sér og syngja rétt þannig að samhljómurinn verði fullkominn. Það fylgir því mikil vellíðan að syngja í kór, maður nýtur þess að syngja og finna samkenndina sem myndast í kórnum,“ segir Valdimar Bragason, formaður Karlakórs Sel- foss. Þegar vel tekst til er ólýsanlega gaman Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gaman: Valdimar Bragason, formaður Karlakórs Selfoss. Stórtónleikar sjö karlakóra á Selfossi Selfossi | Í lokahófi Golfklúbbs Sel- foss sem fram fór nýlega var til- kynnt val á kylfingi ársins, efnileg- asta unglingi og mestu framfarir á árinu, sem sagt þrír bikarhafar. Kylfingur ársins var valinn Hlynur Geir Hjartarson en hann var ekki til staðar í lokahófinu þar sem hann er við æfingar á Spáni. Davíð Örn Jónsson 14 ára var valinn efnileg- asti unglingurinn, fékk einnig við- urkenninguna fyrir framfarir árs- ins. Framfarir hans eru ótrúlegar því að á einu sumri lækkaði hann forgjöf sína úr 36 í 12,4 en svona mikil lækkun á einu sumri er óþekkt hjá GOS. Davíð Örn er svo til nýbyrjaður í golfíþróttinni; hann byrjaði að sjást á golfvellinum síðla sumars árið 2002 en byrjaði ekki að keppa í mótum fyrr en á þessu ári, og hann keppti í mörgum mótum í sumar. En keppni í mótum er óræk sönnun á því hvaða forgjöf viðkomandi kylf- ingur er með. Davíð Örn Jónsson er efnilegasti unglingurinn í Golfklúbbi Selfoss Lækkaði forgjöfina úr 36 í 12 á einu ári Framfarir: Davíð Örn er efnilegasti unglingurinn í golfi á Selfossi. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gatnagerðargjöld | Fellahreppur hækkar gatnagerðargjöld í bænum verulega á næstunni. Er það gert til að færa gjaldskrá nær raunkostnaði, en hún hefur verið óbreytt frá árinu 1999. Fellahreppur á nú við rekstr- arvanda að stríða og er verið að skoða innri málefni hreppsins með tilliti til hagræðingar og sparnaðar.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.