Morgunblaðið - 11.10.2003, Page 27
Beygla með
pastrami-skinku
Beygla eftir smekk (mæla með beyglu með öllu)
Rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum
Grand salat
agúrkur
rauðlaukur
græn paprika
tómatar
ólífur
pastrami-skinka
hvítlaukssósa
hunangssinnep
pipar
Kljúfið beygluna og ristið í ofni.
Smyrjið með rjómaosti og setjið
síðan ofan á salat, agúrkusneið-
ar, rauðlaukssneiðar, sneiðar af
papriku og tómatasneiðar og
ólífur. Þá kemur skinkan og síð-
an hvítlaukssósa og hunangs-
sinnep ofan á hana og að lokum
smávegis af pipar. Skerið í
tvennt og beyglan er tilbúin.
MATARKISTAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 27
SAMKVÆMT því sem eigendur
beyglustaðanna komast næst eru
til heimildir um bakaðar beyglur
allt frá sautjándu öld.
Árið 1683 ákvað bakari frá Vín
í Austurríki að baka sérstakt
brauð til heiðurs konungi Pól-
lands, Jan III Sobieski. Konung-
urinn var fær knapi og ákvað
bakarinn því að baka brauð í lag-
inu eins og ístað en austurríska
orðið yfir ístað er beugel. Sumir
halda að lagið hafi verið eins og
skeifa til að auðvelda bökurum að
bera þær til viðskiptavina. Þær
voru þræddar upp á stöng og
þannig bornar milli staða.
Beyglur fyrst á
sautjándu öld
Baka einnig súrdeigsbrauð
og sætindi
Einnig eru seldir þar ýmiss kon-
ar súrdeigsbrauðhleifar, hnetu-
brauð, hafrabrauð með graskers-
fræjum og margar fleiri tegundir
svo og sætabrauð. Auk þess sem
viðskiptavinir geta keypt hinar
ýmsu tegundir af beyglum og tekið
með heim ósmurðar þá er líka boðið
upp á samlokubeyglur.
En hvernig á að borða beyglu?
„Það er í raun engin sérstök hefð
fyrir því að borða þær á einn vissan
hátt. Roskið fólk í New York borðar
beyglurnar sínar heilar og
ósmurðar en síðan smyr þorri New
York-búa þær með rjómaosti. Flest-
ir rista þær líka eða hita en það
þarf alls ekki að gera.“
Frank segir að vinsælasta teg-
undin af samlokubeyglum hjá þeim
sé með kjúklingi og beikoni.
Hér kemur uppskriftin:
Samlokubeygla með
kjúklingi og beikoni
Beygla eftir smekk
sítrónu-og piparmaríneruð kjúk-
lingabringa skorin í strimla
stökkt, steikt beikon
létt majónes
hreinn rjómaostur
tómatsneiðar
jöklasalat
Skerið beygluna í tvennt eftir
endilöngu og ristið hana.
Smyrjið léttmajónesi á annan
helminginn og rjómaosti á hinn.
Setjið síðan beikonið, kjúklinga-
bringuna og grænmetið eftir
smekk á beygluhelminginn og
lokið með hinum.
Á VEITINGASTAÐNUM Vox á Nordica-hótelinu standa
nú yfir kanadískir sælkeradagar í tilefni af heimsókn
Adrienne Clarke, landstjóra Kanada, til landsins. Hákon
Már Örvarsson, yfirmatreiðslumaður á Vox og brons-
verðlaunahafi í Bocuse d’Or-matreiðslukeppninni, Oliver
Bartsch, yfirmatreiðslumaður landstjórans, og Pierre La-
framboise, vínráðgjafi landstjórans, hafa sett saman sjö
rétta matseðil, þar sem eingöngu er að finna rétti úr kan-
adísku hráefni og með þeim er eingöngu borið kanadískt
vín.
Kanadísku vínin hafa að sögn forráðamanna staðarins
komið gestum þægilega á óvart, enda höfðu margir ekki
hugmynd um að í Kanada væri yfirleitt ræktaður vínviður.
Þar er víngerð þó talsverð og í miklum vexti.
Kanadísk vín á markaðinn eftir 4–5 mánuði
Rob Scapin, yfirvíngerðarmaður Vincor í Niagara Falls
í Ontario, sagði í samtali við Morgunblaðið að kanadísku
vínunum hefði verið vel tekið. Aðspurður hvort neytendur
myndu eiga þess kost að kaupa kanadísk vín hér á landi,
sagði Scapin að fulltrúar vínframleiðenda, sem hér eru
staddir, hefðu átt fund með fulltrúum Áfengis- og tóbaks-
verzlunar ríkisins og væru að skoða leiðir til að flytja inn
kanadísk vín til Íslands. Gera mætti ráð fyrir að kanadísk
vín kæmu á markaðinn hér eftir 4-5 mánuði.
Scapin sagðist ekki gera ráð fyrir að innflutningurinn
yrði í miklum mæli til að byrja með og líklegt væri að vínin
fengjust aðallega á veitingahúsum í fyrstu. „Fæstir vita
yfirleitt að í Kanada eru framleidd gæðavín. Við þurfum
því að byrja að sá fræjum þekkingar á vörunni okkar,“
sagði Scapin.
Kanadísk vín
senn fáanleg
Morgunblaðið/Árni Torfason
Rob Scapin frá Vincor International og Tony Stewart
frá Quail’s Gate Estate Winery með sýnishorn.
Hvítlaukstöflur úr ferskum hvítlauk er þeim mun
virkari sem þær innihalda meira af virka efninu
ALLICIN. Bestur árangur í rannsóknum hefur
náðst með töflum sem innihalda yfir 3,6 mg af
allicin. Því var ákveðið að nýju hvítlaukstöflurnar
frá Heilsu innihaldi 4 mg af allicin í hverri töflu.
Þær eru engu að síður lyktarlausar. Þessar nýju
hvítlaukstöflur Heilsu eru einhverjar þær
sterkustu sem fáanlegar eru hérlendis í dag.
Þegar þú kaupir þér glas af hvítlaukstöflum
færðu annað eins með á hálfvirði!
Nánari upplýsingar um hvítlauk má finna í Nýju íslensku
lyfjabókinni (Lyfjabókaútgáfan), Bætiefnabókin (Mál og
menning) og á www.heilsa.is/bætiefni
STERKARI HVÍTLAUKSTÖFLUR
KRAFTAVERK