Morgunblaðið - 11.10.2003, Side 52
ÞÝSKALAND – ÍSLAND
52 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„LEIKURINN hér í Hamborg
er geysilega þýðingarmikill
fyrir okkur Íslendinga og jafn-
framt mjög erfiður fyrir þá
leikmenn sem fá það hlutverk
að halda merki Íslands hátt á
loft. Ef við horfum á raunhæfa
stöðu, eins og hún er í riðli okk-
ar og einnig á þýska knatt-
spyrnu annars vegar og ís-
lenska hins vegar, er óhætt að
segja að væntingar okkar
hljóta að vera einn meiri í sam-
bandi við viðureign Skota og
Litháa í Glasgow – að Litháar
nái að gera þar jafntefli, eða
vinna. Við horfum þó ekki á
stöðuna þannig, því að við för-
um í alla leiki til að ná árangri
og sigri. Það sem gerir knatt-
spyrnuna eins skemmtilega og
spennandi er að það getur allt
gerst,“ sagði Eggert Magn-
ússon, formaður Knattspyrnu-
sambands Íslands, sem segir að
það sé afar ánægjulegt að vera
formaður þegar svona vel
gengur, eins og að undanförnu.
„Við erum hér í drauma-
stöðu. Við erum þegar búnir að
ná því takmarki, sem við sett-
um okkur – að við erum að
berjast um fyrsta sætið í riðl-
inum, sem er hreint út sagt frá-
bært. Ég vona að það hjálpi
strákunum mikið að meirihluti
Íslendinga verður með hugann
í Hamborg þegar við etjum
kappi við sterkt lið Þjóðverja.
Hér í Hamborg verða yfir þrjú
þúsund Íslendingar til að styðja
við bakið á strákunum,“ sagði
Eggert og síðan bætti hann
ákveðinn við: „Draumur for-
mannsins í leiknum er að við
höldum Þjóðverjum í skefjum,
fáum ekki á okkur mark í fyrri
hálfleik og heldur ekki í seinni
hálfleik. Og síðan skorum við
sigurmarkið á þriðju mínútu í
viðbótartíma, þannig að Þjóð-
verjar nái ekki að jafna. Þetta
er minn draumur.“
Draumur
formannsins
í Hamborg
Rúnar meiddist í leik með Loker-en um sl. helgi en hann segist
allur vera að koma til. „Ég hef náð að
fara í gegnum æfing-
ar landsliðsins án
þess að hafa neinar
þrautir.“ Rúnar
sagði að það væri
mikill hugur í leikmönnum að standa
sig gegn Þjóðverjum á þeirra heima-
velli.
„Það vinna allir hér að sama mark-
miðinu, þjálfarar, leikmenn og aðrir
sem eru hér. Það eru allir ánægðir að
vera hér saman og allir eru tilbúnir
til að leika. Stemningin er í einu orði
sagt frábær! Ekki skemmir að við er-
um hér í mjög góðu umhverfi í útjaðri
Hamborgar. Undirbúningurinn fyrir
leikinn gegn Þýskalandi getur ekki
verið betri. Það er engin lognmolla í
hópnum. Við höfum haft margt fyrir
stafni og erum búnir að setjast oft
niður til að ræða málin og spá í leik-
inn, sem er sögulegur og við vonumst
eftir að Íslendingar eigi eftir að
minnast Hamborgar með bros á vör.
Það er aðeins eitt sem við hefðum
viljað vera lausir við. Það er óvissan
um mig, Hermann og Pétur Hafliða,
hvort við getum leikið. Við höfum
fengið mjög góða meðferð hjá lækni
landsliðsins og sjúkraþjálfara, sem
eru frægir fyrir að gera ótrúlega
hluti á stuttum tíma. Já, við höfum
átt hér góðan tíma til að vinna í öllu,
sem þarf að lagfæra. Það er hluti af
daglegu lífi okkar, að menn þurfa
alltaf að vera að gæla við ýmislegt,“
sagði Rúnar, sem telur að leikurinn
verði geysilega erfiður.
„Pressan er á Þjóðverjum, sem
koma örugglega grimmir til leiks.
Við ætlum ekkert að gefa eftir frekar
en í viðureigninni í Reykjavík, sem
lauk með jafntefli. Þar voru Þjóðverj-
ar heppnir, þannig að það er komið
að okkur að vera heppnir,“ sagði
Rúnar.
Svona til gamans höfum við tekið
saman feril Rúnars með landsliðinu,
sem má sjá hér á kortum á síðunni.
Rúnar Kristinsson segist ekki vera búinn að leika sinn síðasta landsleik
„Vonandi verð ég á
ferðinni í Portúgal“
!"# !"" !"! !! !! !! !! !!$ !!% !!& !!# !!" !!!
'()
*+)
, -./01 '221304 5611*
32*+ 789:( 51.;
12.
1'6;
.1.*
<=362*+'
560:>1
)
**
?1;
81'
365(
46@
3'**;
71'(
/'2'('
5.
8'37
71'(
>166*;
(
;6'
>1
66
*;
5
(
'
4
6
.1
.*
42
0;
$)
3'.
'
5
(
'
.
1.
*
1*
;
)
3'.
'
/
'2
'(
'
1
'*
;
21
'6
/
'2
'(
'
1
'*
;
21
'6
/
'2
'(
'
21
'6
9;
/
'
2'(
'
4
22;
$
/
'
2'(
'
21
'6
9;
2566;*
2*+32 942+'
A
7:B;21'6'
C2/B;21'6'
'*00;21'6'
5(;2*+:0
D21'6'
023)
2566;*
5.
/'2'0
2*+321'69
E*3
#
"
#
#
"
$#
„ÉG hef ekki sagt mitt síðasta orð. Ég er ákveðinn að leika gegn
Þjóðverjum og síðan tvo landsleiki í nóvember ef með þarf. Vonandi
verð ég á ferðinni í Portúgal næsta sumar – tek þátt í lokakeppni
Evrópukeppninnar með strákunum. Þetta eru þeir draumur sem við
strákarnir í landsliðshópnum eigum okkur og vonandi rætast þeir,“
sagði Rúnar Kristinsson, leikreyndasti landsliðsmaður Íslands, sem
hefur leikið 102 landsleiki og hann segir að leikurinn gegn Þýska-
landi sé þýðingarmesti landsleikurinn sem hann hefur tekið þátt í.
Eftir
Sigmund Ó.
Steinarsson
í Hamborg
1'6' 46
A
!"#
!""
!"!
!!
!!
!!
!!
!!$
!!%
!!&
!!#
!!"
!!!
0)
*.;
2*+32'(3'*3
21'69;
31
E*
?1;
016'(
800
"
#
"
#
#
#
$
$
#$#
#$
$"
$
#$
$
$
$
$
"$ #$
$
$
#
#
#
#
#
*+32'( 1'6'
A
C
!"
F1/9
*.7192*+
20
EG1>5.
*+6'*
E332*+
/62*+
662*+
789:(
'0?1*
51.;
57H06'*
H66:32:76
>
+
312
I'662*+
7'33
H662*+
E1*
2*+
'1J?01*301'*
1*
*+5
6*
'**2*+
K*46
E2.
6502*+
522*+
D
C
D<=362
D
C
L50E.2
D
C
;30;6'
1E+
*.2*+
D
M213
2>*
E*'3
;+'D>
3'2
:2'7
,E7F0
N?'21
2:71*
'302*+
61+:*
2:76
1002*+
D2*+
L:22*+
<=362*+
023)
:0?19
E*3
2*+321'69;
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
$
#
#
#
#
#
#
#
#
$
$
#
$
$
$
$
$
$
#
$
#
942+'
21'69
.1.*
?71'
89:(@
*.;
2'(3'*3
81'
21'69;
5.
24*+
31
E*
?1;
?1'D
3:00
0'2
(
21'6
8
2*+321'6'
#
&
&
$
$
$
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrirliði landsliðsins, segist
vera tilbúinn í slaginn gegn Þjóðverjum. „Það er að
renna upp stór stund í lífi okkar og við ætlum okkur
að njóta stundarinnar og skemmta okkur eins vel og
við getum þegar komið er inn á völlinn. Við bíðum
spenntir eftir leiknum gegn Þjóðverjum. Verkefnið er
stórt og krefjandi – það er ekki á hverjum degi sem
við Íslendingar leikum gegn svo stórri þjóð, eins
sterku liði og á eins stórum velli og er hér í Hamborg.
Að taka þátt í svona viðureign er draumur sem allir
knattspyrnumenn eiga. Við höfum fengið þetta tæki-
færi með mikilli vinnu og dugnaði í síðustu leikjum.
Við erum að fara að leika úrslitaleik við Þýskaland.
Það hefði enginn getað trúað því fyrir nokkrum mán-
uðum. Við erum svo sannarlega tilbúnir og það kæmi
mér verulega á óvart ef einhver myndi ekki gefa allt
sem hann á í leikinn. Eins og ég sagði þá er ekki á
hverjum degi sem við Íslendingar leikum við þessar
aðstæður. Við leikmennirnir erum tilbúnir,“ sagði Eið-
ur Smári.
„Við ætlum að
njóta stundarinnar“
BJARNI Guðjónsson er í íslenska lands-
liðshópnum eftir nokkra fjarveru en hann
lék síðast með liðinu í 3:0 sigurleiknum
gegn Litháen á Laugardalsvelli. Þar lagði
Bjarni upp fyrsta mark leiksins sem Heið-
ar Helguson skoraði með skalla. Eftir að
hafa verið í herbúðum enska liðsins Stoke
City í fjögur ár samdi Bjarni við þýska lið-
ið Bochum í vor en liðið leikur í efstu deild
í Þýskalandi og með liðinu leikur einnig
Þórður Guðjónsson bróðir Bjarna. Að
mati Bjarna á íslenska liðið ágæta mögu-
leika gegn stórþjóðinni Þýskalandi í leikn-
um í dag og telur Bjarni að aðeins Michael
Ballack, leikmaður Bayern München, sé
leikmaður í sérflokki ásamt félaga sínum í
Bayern, markverðinum Oliver Kahn.
„Við höfum fulla trú á því að við getum
staðið okkur gegn Þjóðverjum, þrátt fyrir
að við séum litla liðið. Umræðan í þýskum
fjölmiðlum undanfarna daga hefur verið á
einn veg. Þjóðverjar eiga að vinna leikinn
gegn Íslendingum – og það er í sjálfu sér
ágætt veganesti fyrir okkur. Blöðin og
sjónvarpsstöðvar segja að þýska liðið hafi
leikið afar illa á Laugardalsvelli og ekki
tapað leiknum. Og því sé það engin spurn-
ing að sigurinn sé í sjónmáli fyrir liðið nú
þegar fyrir leikinn í Hamborg. Við sem er-
um í hópnum höfum „þjappað“ okkur vel
saman og erum staðráðnir í að gera engin
mistök og ná góðum úrslitum gegn Þjóð-
verjum. Eftir að hafa séð þýsku landsliðs-
mennina spila frá því að ég kom til Boch-
um dreg ég þá ályktun að við getum gert
ágæta hluti gegn þeim. Það er sjálfstraust
í okkar liði og menn láta knöttinn ganga
vel á milli sín ef svo ber undir. Það er allt
hægt í knattspyrnu og við ætlum okkur að
standa okkur,“ sagði Bjarni Guðjónsson.
„Oliver Kahn og Michael
Ballack eru í sérflokki“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bjarni Guðjónsson
MIKIL spenna hefur verið að
byggjast upp í Þýskalandi fyr-
ir leik Þjóðverja og Íslendinga,
sem fer fram á AOL Arena í
Hamborg í dag. Uppselt er á
leikinn, 51.000 áhorfendur
mæta á svæðið og þar af eru
rúmlega þrjú þúsund Íslend-
ingar. Miðar hafa verið seldir
á aðaljárnbrautastöðinni í mið-
borg Hamborgar og í gær var
kominn langur listi yfir fólk
sem vildi tryggja sér miða á
leikinn. Það er smá möguleiki
fyrir þá sem eru á listanum að
fá miða, en ósóttir miðar verða
seldir fyrir hádegi í dag.
Geysileg spenna