Morgunblaðið - 11.10.2003, Side 53

Morgunblaðið - 11.10.2003, Side 53
ÞÝSKALAND – ÍSLAND MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 53 Spurður um umfjöllunina í þýskufjölmiðlunum fyrir leikinn und- anfarna daga sagði Þórður að þar hefðu skipst á skin og skúrir. „Það var allt á öðrum endan- um eftir að Rudi Völler rasaði út í beinni útsendingu eftir leikinn á Laugardalsvelli en í kjölfarið unnu þeir Skota og þá varð allt eðlilegt á ný. Þjóðverjar á toppnum og litla Ís- land næsta fórnarlamb. Það er að- eins eitt sem hefur verið í þeirra huga undanfarna daga. Þýska liðið lék afar illa að þeirra mati á Laug- ardalsvelli, og samt gátum við ekki unnið þá. Fjölmiðlar draga því þá ályktun að það sé aðeins hægt að gera betur og bóka megi sigur Þjóð- verja. Þessi leikur er aðeins forms- atriði að mati Þjóðverja og þeir eru komnir áfram í keppninni.“ „Við sem erum „eldri og reyndari“ höfum talað mikið um að þetta sé einmitt sú staða sem okkur hefur alla dreymt um. Fyrir mig verður það sem að upplifa draum að ganga inná völlinn þar sem 50 þúsund áhorfendur eru mættir, í úrslitaleik um sæti á stórmóti. Það verður því aðeins gleði í bland við spennu sem mun ríkja í okkar herbúðum fyrir leikinn. Það er ekki hægt að biðja um betri aðstæður. Að leika gegn stór- þjóð um efsta sætið í riðlinum er ekkert nema tilhlökkun,“ sagði Þórð- ur en hann hefur aldrei tapað á AOL- Arena, heimavelli Hamburger SV. Gert eitt jafntefli og unnið með liði sínu Bochum. Margir hafa bent á að aðstæður íslenska liðsins séu svip- aðar og gegn Dönum á Parken þar sem Danir skoruðu 6 mörk gegn engu, en Þórður er á því að íslenska liðið sé í stakk búið til að takast á við þær aðstæður sem verða á vellinum. „Ég fékk ekki að taka þátt í „Park- en-ævintýrinu,“ sagði Þórður og er sem áður viss um að leikurinn í dag verði á öðrum nótum. „Við vitum að það er hægt að leika vel gegn Þjóð- verjum, við gerðum það á Laugar- dalsvelli og það er mikil stemning í okkar hópi – sjálfstraustið er fyrir hendi. Það verður farið varlega af stað, en við ætlum að halda okkur við þá leikaðferð sem hefur heppnast vel í síðustu leikjum og menn hafa mikla trú á þessu liði. Þegar við göngum inn á völlinn verður það eins og í draumi. Að leika úrslitaleik um sæti á stórmóti, á útivelli gegn stórþjóð- inni Þýskalandi,“ sagði Þórður. Algjör drauma- leikur „EF íslenska liðinu er stillt upp maður gegn manni gegn þýska liðinu er ekki vafi á því að þeir myndu hafa vinninginn en úrslit leiksins ráðast ekki fyrr en út á völlinn er komið. Ef við leikum eins og við gerðum á Laug- ardalsvelli og án þess að gera mistök, getur allt gerst,“ segir Þórður Guðjónsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Boch- um í Þýskalandi. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar frá Hamborg enginn knattspyrnumaður sem leik- ur í landsliði vill missa af.“ Meiðsli Péturs Hafliða stærsta vandamálið Að undanförnu hafa fréttir af ís- lensku landsliðsmönnunum verið á þann veg að fæstir þeirra eru að leika að staðaldri, og þrír þeirra sem skipa íslenska landsliðshópinn að þessu sinni hafa dvalið að mestu leyti á nuddbekknum vegna meiðsla. Logi sagði að í herbúðum íslenska liðsins gerðu menn sér vonir um að Her- mann Hreiðarssonog Rúnar Krist- insson yrðu klárir í slaginn en bætti því við að í hópnum væri ekki rætt mikið um „vandamálin“ sem upp. Stærsta vandamálið kom upp seinni partinn í gær þegar Pétur Hafliði Marteinsson meiddist illa á ökkla og er ljóst að hann tekur ekki þátt í leiknum. Að þessu undanskildu eru engin stórvandamál í hópnum. „Það er þannig í knattspyrnu að leikmenn slasast, menn eru ekki í náðinni hjá sínum félagsliðum en við höfum ekki sérstakar áhyggjur af stöðunni eins og hún er í dag. Það er samkeppni um stöðurnar í liðinu og það er af hinu góða.“ Um áhersluatriði íslenska liðsins í föstum leikatriðum sagði Logi: „Það skiptir engu hvort leikmaðurinn heitir Michael Ballack frá Þýska- landi eða Julian Johnsson frá Fær- eyjum. Við bregðumst eins við í báð- um tilvikum. Við höfum ekki breytt neinu í þessum efnum og ætlum ekki að breyta neinu, sömu grunnatriðin eru höfð til hliðsjónar í hvert sinn sem við glímum við hornspyrnu eða aukaspyrnu frá mótherjum okkar, allt er háð sömu lögmálum,“ sagði Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Í leiknum á Laugardalsvelli lokuð-um við á allt sem heitir „væng- spil“ hjá Þjóðverjum. Þeir komust ekki upp vængina og engar fyrirgjafir komu frá þeim svæð- um. Það verður ef- laust þeirra mark- mið að brjótast upp vængina, en við ætlum að leyfa þeim að fara inná viss svæði, beinum þeim inná miðjuna og tökum þar á móti þeim. Í leiknum í Reykjavík komu flestar fyrirgjafir þeirra frá leikmönnum sem voru staddir á miðjum okkar vallarhelm- ingi. Slíkar fyrirgjafir fara langa leið og varnarmenn okkar fá því tækifæri til þess að staðsetja sig betur og skalla knöttinn í burtu. Þetta er samt sem áður aðeins eitt atriði af mörg- um sem við þurfum að hafa í huga,“ sagði Logi. Léttleikinn ræður ríkjum hjá Loga Spurður um spennuna í hópnum og þá Evróvisjón-stemningu sem væri í gangi á Íslandi fyrir leikinn og fyrirséð að fáir yrðu á ferli í dag á milli 15 og 17 sagði Logi í léttum tón: „Ég á vona bara að okkur gangi bet- ur í leiknum en okkur hefur gengið í söngvakeppninni hingað til,“ og var ekki laust við að Rúnar Kristinsson, Þórður Guðjónsson, Ásgeir Sigur- vinsson og Eiður Smári Guðjohnsen kynnu vel að meta léttleikann í svör- um þjálfarans. Logi er með munninn fyrir neðan nefið að venju, en hann bætti því við að spennan ætti ekki að vera vandamál. „Við höfum rætt þetta mikið í okk- ar hóp og ég veit að leikmenn liðsins eru fullir tilhlökkunar, og vilja allir vera í ellefu manna byrjunarliði. Þetta er svo sannarlega leikur sem Viljum ná betri árangri en í Evróvisjón, segir landsliðsþjálfarinn Logi Ólafsson Morgunblaðið/Einar Falur Þjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson slá á létta strengi með Helga Sigurðssyni og Arnari Grétarssyni á æfingu í gær. „Spennan verður ekki vandamál“ Stefán Stefánsson sjúkraþjálfari hugar að ökklameiðslum Pét- urs H. Marteinssonar. Pétur verður ekki með í dag. „VIÐ munum beita sömu leikaðferð hér í Hamborg og við gerðum gegn Þjóðverjum á Laugardalsvelli,“ sagði Logi Ólafsson, sem stýr- ir íslenska landsliðsinu í knattspyrnu ásamt Ásgeiri Sigurvinssyni, á fundi með fjölmiðlamönnum á hóteli íslenska liðsins í gær. Logi sagði m.a. að Þjóðverjar myndu eflaust sækja hart að íslenska lið- inu í upphafi leiks en íslensku leikmennirnir væru í stakk búnir til að mæta þeirri pressu. Baráttan verði fyrir hendi en íslenska liðið myndi vissulega fara varlega í upphafi leiks. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar frá Hamborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.